Morgunblaðið - 30.10.1988, Síða 16
16 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 1988
A DROmNS nFGí
Umsjón:
Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir
Séra Kristján Valur Ingólfsson
Þorbjörg Daníelsdóttir
Styður nýja stöðu prestskvenna
Ingvor Johansson er biskupsfrú
í sænsku fríkirkjunni og hefur
hreint ekki hefðbundnar skoðanir
á hlutverki prestsfjölskyldunnar
og valdi biskupa. Hún stóð upp
eftir einn fyrirlesturinn til að lýsa
skoðunum sínum, sem hún gerði
með hlýju og kímni, þótt það
væri greinilegt að skoðun hennar
var bjargföst og vandlega íhuguð.
PrestsQölskyldur hafa breytzt.
Og það er gott. Nú fínnst mér
það mitt hlutverk að gefa prests-
frúm styrk og sjálfsálit. Ég vildi
líka geta kennt þeim að breyta
afstöðu mannanna sinna. Og ég
vildi breyta afstöðu biskupanna
til preststarfeins og ijölskyldunn-
ar. En það er ekki hægt. Það er
betra að setja vonir sínar á næstu
kynslóðir. Ég heyri biskupa í
fríkirkjunni segja að þeir hafí sár-
ar áhyggjur af því að konur prest-
anna séu famar að vinna úti. Þá
geti prestamir ekki unnið prest-
starfíð eins og áður, segja þeir.
Og eins og þeir eigi að vinna það.
Þegar ég hætti að hugsa eins og
þeir átti ég tvö lítil böm. Maður-
inn minn lokaði dyrunum inn til
sín svo að bömin trufluðu hann
ekki. Svo skrifaði hann ræðu um
textann: Leyfíð bömunum að
koma til min. Ég fann það þegar
ég hlustaði á ræðuna í kirkjunni
að þessi ræða var nú ekki um
okkur.
Velvilji fyrir því að
kjósa konu sem biskup
Séra Jorunn Wendel er prestur
í norsku meþódistakirkjunni í
Lilleström, og ein þeirra, sem
stóðu að upphafsguðsþjónustunni
í Centra Kirken. Ég heyrði að
hugsanlegt væri að næsti biskup
meþódista á Norðurlöndum yrði
kona og að nýjar hugmyndir væru
um biskupskjörið og fékk séra
Jórunni til að spjalla við okkur
um það.
Hveijar eru hinar nýju hug-
myndir um biskupskjör?
Næsta biskupskjör verður í
aprfl 1989. Kjörið fer fram í me-
þódistakirkjum allra Norðurlanda
Mikið starf í hópi
norskra kvenpresta
Rosemarie Köhn kennir guð-
fræði við háskólann i Ósló og er
formaður samtakanna, sem nor-
skir kvenprestar og kvenguð-
fræðingar hafa með sér, Norsk
Kvinnelig Teologforening. Eftir
greinargóða og skemmtilega
kynningu á könnun, sem samtökin
gerðu á afstöðu kven- og karl-
presta til starfs síns, tók ég hana
tali og spurði fyrst:
Hvert er markmið starfsins
i Norsk Kvinnelig Teologforen-
ing?
Það er áhugahópur kvenguð-
fræðinga og kvenpresta, sem
styður málefíii kvenna. Við erum
núna að gera ýmsar kannanir um
konur, um kvenpresta, sem eiga
lítil böm, um ógifta kvenpresta,
um fóstureyðingar.
Og hvað verður svo um þess-
ar kannanir?
Við sendum þær til kirkju-
stjómarinnar. Biskuparnir taka
misjafnlega á móti þeim. Nokkrir
taka þeim vel og vilja fara eftir
þeim. Aðrir taka þeim illa og
fínnst vð vera kvenvargar. í ráðu-
neytinu erum við teknar alvarlega
og þar höfum við fengið Qárstyrk
til rannsókna á preststarfinu.
Hveijir gera þessar rann-
sóknir?
Vinnuhópar frá okkur. Þeir fá
svo sérfræðinga í lið með sér,
bæði úr hópi guðfræðinga og ann-
arra, t.d. félagsfræðinga. Við höf-
um séð að við verðum sjálfar að
koma þessu í verk ef það á að
gerast. Það er nauðsynlegt fyrir
okkur að þessar upplýsingar liggi
fyrir. Ef þær em ekki til er það
sjálfum okkur að kenna. Þetta er
mikil vinna en við höfum trú á
því að erfíðið skili sér.
Hver eru önnur verkefhi fé-
lagsins?
Við tökum að okkur mál kven-
presta, sem snúa sér til okkar
vegna vandamála í starfinu.
Margar þeirra snúa sér til okkar
og við reynum að fínna iausnir.
Við höfum ekki fast starfslið en
leggjum fram mikið sjálfboðaliða-
starf. Stjómin, sem er valin af
170 konum í félaginu, starfa í
sjálfboðaliðavinnu að þessum
störfum sem öðmm.
Af öðmm verkefnum félagsins
má nefna námsstefnur, sem við
höldum um margvísleg efíii. Þau
geta varðað preststarfið, guðfræði
eða kvenréttindi á breiðum gmnd-
velli. Þessar námsstefnur em
tækifæri til að koma fram skoðun-
um og hugmyndum og heyra frá
hinum. Við emm núna að halda
röð af námsstefnum um stjómun
kvenna. Við höfíim fengið tvo
kvensálfræðinga til að annast
þetta. Það er auðvitað ekki unnið
í sjálfboðavinnu. Én við höfiim
okkar eigin árgjöld og peninga frá
ráðuneytinu til að nota.
Biblíulestur vikunnar
Biblíulestrar vikunnar em um frelsið í Jesú Kristi, frelsið,
sem við eigum í trúnni. Það er boðað í allri Biblíunni. Guð
gefí þér góðan biblíulestur, gleði í hjarta og góða viku.
Sunnudagun II. Mós. 20.1—7
Mánudagun Sálm. 25.20—22
Þriðjudagun Jesaja 40.28—31
Miðvikudagun Lúk. 2.10—11
Fimmtudagun Post. 2.22—25
Föstudagur: Gal. 5.1
Laugardagur Op. 22.12—17
Ég leiddi þig út úr þrælahúsinu
Varðveit mig, frelsa mig
Frelsi nýrra krafta
Yður er frelsari fæddur
Frjáls frá dauðanum
Frelsuð til frelsis
Gangið inn'um hliðin til frelsisins
nema á íslandi, þar sem meþódis-
takirkjan starfar ekki. Meþódista-
kirkjan í Eistlandi tilheyrir líka
Norðurlöndum en kirkjufólk þar
fær ekki leyfí til að ferða úr landi
svo að biskupinn fer þangað sem
gestur. Nú em 18 ár frá síðasta
biskupskjöri og sá biskup var kos-
inn til lífstíðar. Næst kjósum við
biskup til 4 ára og það verður í
fyrsta sinn, sem það er gert. Það
verður mögulegt að kjósa sama
biskup þrisvar í röð svo að hver
biskup getur setið í 12 ár. Við
teljum að eftir það geti biskup
farið aftur til almennra prest-
starfa. En það hefur ekki reynt á
það ennþá.
Eru likur að að næsti biskup
ykkar verði kona?
Konur hafa aldrei átt í erfíðleik-
um með preststörf innan meþód-
istakirkjunnar. í vfgsluheiti presta
stendur hvorki „hann“ né „hún“.
Margar konur innan meþódista-
kirkjunnar á Norðurlöndum em
vel hæfar til biskupsstarfsins og
velvilji er fyrir því, bæði meðal
karla og kvenna, að kjósa konu
sem biskup. En meðal karla em
líka margir, sem em vel hæfir til
starfsins. Biskupaefnin em ekki
útnefnd fyrirfram en við emm nú
að ræða málin.
Morgunbæn
Ó, Guð, það ert þú, sem hefur
gefíð mér enn einn dag. An þinn-
ar hjálpar veit ég að þessi dagur
fer allur úrskeiðis.
Gættu tunguu minnar.
Varðveit mig frá því að segja
það, sem veldur erfíðleikum, og
frá því að blanda mér í deilur, sem
aðeins gera illt verra og leiða
ekki til neins.
★
Gættu hugsana minna.
Lokaðu hugskoti mínu fyrir
allri öfund og afbrýðisemi, lokaðu
því fyrir biturð og fyrirlitningu,
lokaðu því fyrir ljótum og óhrein-
um hugsunum.
★
Hjálpaðu mér til að lifa i dag í
hreinleika, auðmýkt og kærleika.
★
Gefðu að í allan dag komist engin
röng hugsun að í huga mínum og
ekkert rangt orð úr munni mínum,
fyrir Jesúm Krist Drottin minn.
Amen.
★
Þessi morgunbæn er ur Bæna-
bók William Barclay More Prayers
for the Plain Man.
íslenzkar konur á Forum. — Öfundin var þar ekki, misréttið var þar ekki, vantraustið var þar
ekki. Við treystum hver annarri og lærðum að treysta sjálfum okkur.
Kirkjan á Nordisk Forum 88
Kirlqukonur stóðu fyrir vand-
aðri dagskrá á kvennaþinginu
Nordisk Forum 88, sem haldið var
í Osló í sumar frá 30. júlí til 7.
ágúst. Þær séra Gunvor Lande
og Synnöve Hinneland Stendal
skipulögðu þátttöku kirkjunnar
og flölmargar konur frá öðrum
Norðurlöndum lögðu fram starf
sitt, þekkingu og áhuga. Mjög
merkir fyrirlestrar voru haldnir
daglega, helgistundir voru á
hveijum morgni og í upphafi og
við lok þingsins voru haldnar fjöl-
sóttar og blæbrigðaríkar guðs-
þjónustu, þar sem samheldni og
fognuður fyllti kirkjurnar.
Þátttakan f Nordisk Forum var
kærkomið tækifæri til að efla
starf kvennaáratugar Alkirkjur-
áðsins, sem hófet um sfðustu
páska. Það er áreiðanlegt að
áhrifin frá þessu mikla þingi hafa
nú breiðst til dala og stranda og
teygt sig víða vegu. Þau hafa
aukið þekkingu og íhugun og gef-
ið fjölmörgum konum nýja innsýn
og sterkari trú á sjálfa sig og
samstöðu kvenna. Kirkja Krists
stendur mitt á meðal þeirra sem
beijast fyrir betri heimi. Hún er
aflgjafí og eflist af allri réttlætis-
baráttu. Boðskapur hennar um-
lykur öll svið mannlífsins og
grundvöllur hans er alltaf hið
mikla fagnaðarerindi um Krist.
Það skiptir öllu. Það breytir öllu
hvort við trúum á hann eða ekki,
það skilur á milli lífs og dauða
og gefur engan kost á málamiðl-
un.