Morgunblaðið - 30.10.1988, Qupperneq 18
18 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 1988
félk í
fréttum
- Svona, farðu aftur að sofa, slökkviliðið er komið.
COSPER
Hér má sjá Jake Sieber liðsmann
Elduris póló liðsins, þar sem
hann verður fyrri til með boltann
strax í fyrstu leiklotu.
Eigpnkonur skipverja létu sig ekki vanta. Sumar þeirra munu hafa farið til Noregs og siglt heim til
íslands, mönnum sínum til halds og trausts. Valur Arnþórsson stjórnarformaður fyrirtækisins afhenti
þeim blómvendi í Hrísey.
Hríseyingar tóku vel
á móti nýju Snæfelli
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Árni Bjaraason er skipstjóri á Snæfellinu. Hér er hann í brúnni með
syni sína tvo, þá Sigurð 12 ára og Heimir Öra 9 ára. Til gamans
má geta að faðir Áraa, Bjarai Jóhannesson, var skipstjóri á fyrsta
Snæfellinu sem smíðað var skömmu eftir stríð og var það 146 tonna
trébátur. Þá er bróðir Árna, Bjarai Bjarnason, skipstjóri á hinu
aflasæla loðnuskipi, Súlunni EA, og einn þeirra þremenninga er
keypti Súluna fyrir skömmu.
Nýtt Snæfell EA 740 kom tU
landsins um miðjan október
og héldu Hríseyingar þá upp á
skipakomuna með pomp og
prakt. Skipið var smiðað i
Flekkufirði i Noregi og er í eigu
Útgerðarfélags KEA i Hrísey.
Skipasmiðastöðin tók gamla
Snæfellið upp i kaupin og var
það endurselt tíl spánskra út-
gerðarmanna, sem gera skipið
út frá Montevideo i Uruguay.
Heimahöfii þess er í Panama.
Að vonum var glaðst í Hrísey er
nýja skipið kom til heimahafnar í
og höfðu heimakonur útbúið mikið
kaffihlaðborð, sem gestir og eyja-
menn kunnu vel að meta. Að sögn
Arna Ámasonar skipstjóra vildu
menn ólmir komast á fleyið. Á ann-
að hundrað umsóknir bárust um
pláss á skipinu, en aðeins 26 menn
eru ráðnir. Þrettán voru á gamla
Snæfellinu svo flölga þarf um helm-
ing þar sem nýja skipið er alfarið
frystiskip. Kostnaður við smíði
skipsins nam 471 milljónum króna.
Niðurgreiðslur norska ríkisins nema
um 15% og þarf Útgerðarfélagið
því að greiða um 400 milljónir kr.
fyrir skipasmíðina. Fyrir gamla
Snæfellið fengust 60 millj. kr. og
nemur nýfjárfesting því um 340
millj. kr.
Bandaríkin
Eldurís
sigraði á
Pólóleikum
í Kentucky
Bluegrass Póló-mót í Kentucky
var haldið fyrir skömmu og
stóð fyrirtækið Eldurís vodka eitt
að leikunum. Fjöldi áhugamanna
um íþróttina, hesta-knattleik, sótti
mótið til þess að fylgjast með þess-
ari tveggja liða keppni. Eldurís póló
liðið sigraði ástralska liðið með ell-
efu stigum gegn fimm. Eftir keppn-
ina var þeim 400 gestum, sem við-
staddir voru, boðið upp á íslenska
sjávarrétti og kældan íslenskan Eld-
urís vodka. Fengu Eldurís póló liðið
sem og vodkinn sjálfur verðskul-
daða athygli og var forsvarsmönn-
um keppninnar hrósað í hvívetna.
GOLDIE HAWN
Leikkonan Goldie
Hawn og eiginmaður
hennar, leikarinn Kurt
Russel, hafa allsérstætt
áhugamál. Þau keppa í
hraðakstri á eigin lóð.
Fimm limósínur eiga þau
í bílskúmum, en ekki aka
þau um á þeim heldur í
ieikfangabílum. Þau
keppa á bílabrautum um-
hverfís húsið en hafa vfst
fengið nóg af að keyra
alltaf sama rúntinn. Hjón-
in hafa nú byggt nýtt
hús, 700 fermetra að
stærð, og liggur bíla-
brautin í gegnum mitt
húsið!
\
PÓLÓ
Draumur
ríka
mannsins
Ralph Lauren.
Fyrir skömmu var haldin tísku-
sýning á Hótel Borg þar sem
vetrarí’atnaður frá ameríska hönn-
uðinum Ralph Lauren var kynntur.
Óskar Jónsson og Sigurður Blönd-
al, eigendur að versluninni „Herra-
menn“ við Laugaveg stóðu að sýn-
ingunni en þeir hafa einkaumboð
hér á vörum frá Ralph Lauren.
Um 180 manns sóttu sýninguna
en það setti óneitanlega svip á hana,
að sýnt var í rafmagnsleysi hluta
tímans. Kom það ekki að sök. Var
bæði karlmanns- og kvenmanns-
klæðnaður kynntur. Segja má, að
stíll Ralphs Laurens sé gamall
sígildur hefðarstfll. Hann grípur
engar tískusveiflur en byggir að
miklu leyti á klæðastíl frá árunum
1920-1930 og er sportfatnaður að-
alsmerki hans. Vörur hans eru
þekktar um allan heim undir nafn-
inu Póló sem er dregið af hesta-
knattleiknum, Póló-leiknum, —
íþrótt ríka mannsins, eins og hann
hefur stundum verið nefndur.
Auk sportfatnaðar hannar hann
ýmsar vörur eins og skó, töskur,
belti og bindi og þótti það djarft á
sínum tíma er hann hóf að fram-
leiða breiðari bindi en áður þekkt-
ust. Allur daglegur klæðnaður jafn-
hliða smóking, kjólfötum og jafnvel
ilmvatni fyrir bæði kynin eru þekkt-
ar vörur undir merki hans og eru
víða í heiminum til sérstakar Póló
búðir. Fatnaður hans er framleiddur
í eigin verksmiðjum bæði í Evrópu,
Asíu og Bandaríkjunum.
Ralph Lauren hóf eigin rekstur
árið 1970. Síðan árið 1981 hefur
salan Qórfaldast. Er sagt um Ralph
Lauren í bandaríska tímaritinu
Time að sjaldan eða aldrei hafl
nokkur tískuhönnuður náð svo
langt, Ralph Lauren keðjan skapi
nú eina sterkustu tískuímyndina á
markaðnum.
En frægðin kom ekki átakalaust.
Ralph Lauren er sonur rússneskra
gyðinga. Hann hóf ungur að vinna
fyrir sér. Aðeins 15 ára að aldri
fékk hann fyrsta verkefnið á sínu
sviði og hannaði treyjur fyrir fót-
boltaliðið sem hann spilaði þá með.
Hann vann hjá nokkrum hönnuðum
þar til árið 1970 að hann setti á
stofn eigið fyrirtæki. Mörg mistök
voru gerð í byrjun og árið 1972 lá
við gjaldþroti. En síðan hefur fyrir-
tækið stöðugt sótt á brattann og
starfa nu margir kunnir hönnuðar
á hans vegum. I þeim hópi er íslensk
stúlka, Steinunn Sigurðardóttir, og
hannar hún pijónapeysur fyrir
Ralph Lauren.
Veldi hans er ævintýri líkast. Þó
að maðurinn sé með efnaðri mönn-
um heims ber hann það sjálfur ekki
utan á sér. Hann klæðist sjálfur
eingöngu bómullarskyrtum, snjáð-
um gallabuxum og kúrekastígvél-
um og ekur um á gömlum Porsche.
Áhugi hans á antíkmunum er ró-
maður og einkennir það allar búðir
hans að þar er að flnna húsgögn
og ýmsa smáhluti frá gamia tíman-
um.