Morgunblaðið - 06.12.1988, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
' </
*
1988
ÞRIDJUDAGUR 6. DESEMBER 1988
BLAD
-B
KNATTSPYRNA / VESTUR-ÞYSKALAND
.. / - ':*,'**&*'■
„Getum veríð
tiltölulega
ánægðir
- sagði Ásgeir Sigurvinsson
um gengi Stuttgart
„VIÐ höfum leikið tvo leiki vikulega í
tæpa tvo mánuði, erum íbaráttu á
þremur vígstöðvum og getum því ver-
ið tiltölulega ánægðir með árangur-
inn,“ sagði Ásgeir Sigurvinsson í sam-
tali við Morgunblaðið um helgina.
w
Asgeir sýndi enn einn snilldarleikinn á laugardag-
inn og Stuttgart er með í baráttu efstu liða,
þegar fyrri umferð er lokið. „Við gætum verið ofar,
en höfum gefið frá okkur auðvelda leiki. En við eigum
enn möguleika, þó haustmeistarar hafi oftar en ekki
staðið uppi sem sigurvegarar að vori. Bayern er vissu-
lega með gott lið, en heppnin hefur verið haustmeistur-
unum hliðholl og það hiýtur að koma að tapi hjá þeim.
Við misstum sigur niður í jafntcfli í Miinchen en
seinni leikurinn er eftir,“ sagði Ásgeir.
Stuttgart byijaði vel eftir áramót á síðasta tímabiii og fékk þá 15 stig úr
fyrstu átta leikjunum. „Við reynum að endurtaka leikinn og stefnt er að 14
daga æfingaferð í janúar. Til stóð að fara til Costa Rica og síðan á mót í Brasilíu
en mótið er dottið upp fyrir. Costa Rica er enn inni í myndinni en menn vilja
frekar fara til Suður-Spánar en fljúga heimshornanna á milli," sagði Ásgeir.
Stuttgart leikur í Evrópukeppni félagsliða í kvöld, fær Groningen í heimsókn.
Þetta er seinni leikur liðanna, en Stuttgart vann fyrri leikinn 3:1 og er því
nánast öruggt áfram í átta liða úrslit. Þá leikur liðið gegn Saarbriicken í þýsku
bikarkeppninni um næstu helgi, en næsti leikur í deildinni verður 18. febrúar.
KNATTSPYRNA
Hættvið
Möltu-
ferðina
Landsliðiðfer heldur
ekki til Búlgaríu
ÞAÐ verður ekkert að því að landsliðið í
knattspyrnu fari til Möltu í mars - til að
taka þátt í fjögurra þjóða móti, eins og fyrir-
hugað var. Ástæðan fyrir því að hætt hefur
verið við æfingaferðina, er rekstrartap
Knattspyrnusambands íslands.
Möltubúar buðu íslenska landsliðinu að taka
þátt í keppni ásamt landsliði Möltu, Dan-
merkur og Alsír. Möltubúar buðust til að greiða
allt uppihald, en KSÍ varð að sjá um ferðakostn-
að. Á ársþingi KSI á Selfossi um helgina kom fram
að sambandið skuldar rúmar átta millj. kr.
Ellert B. Schram, formaður KSÍ, tilkynnti að
draga yrði úr ýmsum kostnaði í framtíðinni. Ákveð-
ið var að hætta við ferðina til Möltu og einnig við
ferð til Búlgaríu.
Sjá fréttir frá KSÍ-þinginu/B
3,5
KARFA
ísland fékk
ekki HM
4T
Islendingar fengu
ekki riðil í undan-
keppni heimsmeistara-
keppninnar sem þeir
sóttu um í nóvember.
Um helgina var ákveðið
hvar leikið yrði í undan-
keppni heims- og Evr-
ópukeppninnar og
munu Islendingar leika
í Englandi og Portúgal.
Sjá B 4
Asgeir Sig-
urvinsson
átti mjög
góðan leik
með
Stuttgart
gegn Werd-
er Bremen.
U
„Engar tölur verið nefndar
- sagði Eggert Magnússon, formaður knattspyrnudeildar Vals
Ahugi enska knattspymuliðs-
ins Tottenham á Guðna
Bergssyni, miðverði Vals og
íslenska landsliðsins, hefur vakið
mikla athygli innanlands. Guðni
hefur staðið sig vel með varaliði
Spurs á rúmlega tveggja vikna
reynslutíma og er sennilegt að
félagið geri honum formlegt tilboð
í vikunni.
„Það hafa engar tölur verið
nefndar við okkur enda höfum við
ekkert verið boðaðir til viðræðna,"
sagði Eggert Magnússon, formað-
ur knattspyrnudeildar Vals, í sam-
tali við Morgunblaðið í gær. „En
ljóst er að hagsmunir Guðna og
Vals fara saman og skiptir hagur
Guðna mestu í þessu máli,“ bætti
hann við.
Eggert sagði að stjórn Vals
væri í viðbragðsstöðu, en meðan
formlegt tilboð lægi ekki fyrir,
væri í raun ekkert hægt að segja.
„Allt tal um tölur á þessu stigi
málsins er út í loftið."
Guðni skoraði tvö mörk fyrir
varalið Tottenham gegn Ports-
mouth á laugardaginn og leikur
með liðinu í dag. Hann gerir frek-
ar ráð fyrir að um semjist við
Tottenham.
Sjá nánar/B3
KNATTSPYRNA
lan Ross
fékk Drago-
styttunaí
fimmta sinn
Dragostyttan, sem ár hvert
er veitt því liði sem sýnir
prúðmannlegastan leik í 1. deild,
kom í hlut KR-inga að þessu
sinni. Styttan hefur komið í hlut
liðs sem Ian Ross hefur þjálfað
síðustu fimm árin. Ian Ross kom
hingað-til lands 1984 og tók við
Valsliðinu og var með það til
1987 og vann félagið Drago-
styttuna öll fjögur árin. Ross tók
við KR-ingum á síðata keppn-
istímabili og enn kom styttan í
hans hlut.