Morgunblaðið - 06.12.1988, Blaðsíða 7
M Mé
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR
ÞRIÐIUDAGUR 6. DESEMBER 1988
B 7
Morgunblaöið/Bjarni Eiríksson
•n Víkingum. Hann hefur varið vel í vetur og hefur einn fengið hæstu einkunn
Mjög efnilegur
- segir Jóhann Ingi Gunnarsson,
þjálfari KR, um Leif Dagfinnsson
JÓHANN Ingi Gunnarsson,
þjálfari KR, segist ekki hafa
búist við miklu af Leifi er hann
tók við KR. „Það verður að
segjast eins og er að ég bjóst
ekki við miklu frá honum. Ég
hafði séð hann árið áður en
fannst hann ekki góður. Hann
hafði snerpu en virtist hrædd-
ur við boltann. Síðan þá hefur
margt breyst og Leifur hefur
staðið sig vel í vetur,“ sagði
Jóhann Ingi.
Leifur er mjög efnilegur og
ekki meira. En ef vel tekst
til ætti hann að geta orðið mjög
góður í framtíðinni. Hann hefur
bætt sig verulega á síðustu mán-
uðum. Mesti kostur hans og jafn-
framt versti galli var skapið. Hann
hefur mikið keppnisskap sem
hann beindi ekki á réttar brautir.
Nú hefur honum hinsvegar tekist
það og það er mitt hlutverk að
halda honum við efnið. Svo lengi
sem það tekst ætti hann að standa
sig vel.
Þegar Gísli Felix meiddist í
haust var útlitið ekki bjart. Mark-
vörður er jú hálft liðið og meiðsli
geta oft sett strik í reikninginn.
En menn gleyma því að það er
til jákvæð hlið á meiðslum. Þá fá
yngri leikmenn tækifæri og það
hefur gerst með Leif. 1 stað þess
að leggja árar í bát höfum við
ákveðið að standa okkur með
Leif og það hefur tekist. Hann
hefur staðið sig vonum framar
þrátt fyrir að vera svo ungur, en
markverðir verða yfirleitt betri
með aldrinum.
Ég hef ásamt Guðmundi Karls-
syni reynt að veita honum rétta
þjálfun og ég tel að hún hafí skil-
að sér. Markvarsla á íslandi á
ekki að vera vandamál en menn
verða að sinna þjálfun markvarða.
Ég verð að segja eins og ér að
ég átti ekki von á svo mörgum
góðum leikjum hjá Leifi. Hann
hefur átt slæma leiki en ég átti
von á að þeir yrðu fleiri. Hann
hefur vilja, hæfíleika og snerpu
en nú þarf hann að einbeita sér
að því að halda sér á jörðinni.
Nú er hann aðeins efnilegur en
gæti orðið mjög góður," sagði
Jóhann Ingi Gunnarsson.
HANDKNATTLEIKUR / ÍSLANDSMOTIÐ 1. DEILD
Fyrsta stig ÍBV í sex leikjum
Rislítill botnslagur
Steinþór
Guðbjartsson
skrifar
EFTIR fimm tapleiki í röð fengu
Eyjamenn loks stig á laugar-
daginn, en nýliðarnir eru enn í
fallsæti. Framarar eru ekki
langt undan og getur fátt kom-
ið í veg fyrir áð annað þessara
liða falli f 2. deild.
Botnbaráttuleikur liðanna var
ekki rismikill. Reyndar brá á
stundum fyrir góðum leik, einkum
hjá Eyjamönnum, en mistökin,
deyfðin og doðinn
voru alls ráðandi.
Slíkt kann aldrei
góðri lukku að stýra
og kom báðum lið-
um í koll, en jafnteflið var sann-
gjarnt.
Bæði lið tefla fram ungum og
reynslulitlum mönnum, sem skýrir
að hluta stöðu þeirra í deildinni, en
grunnatriði eins og sendingar og
grip verða að vera í lagi ef ekki á
illa að fara.
Sóknareikur Fram var einhæfur
og hugmyndasnauður, vömin var
oft illa á verði, en að taka tvo úr
umferð eftir hlé heppnaðist ágæt-
lega. Birgir Sigurðsson stóð einn
upp úr og Guðmundur varði oft
vel. Júlíus hefur kraftinn, en hann
nýttist ekki sem skyldi.
Eyjamenn hafa tekið framförum
í vetur og án Sigurðar Gunnarsson-
ar í fyrri hálfleik náðu þeir ijögurra
marka forystu, sem þeir létu af
hendi fyrir hlé. En þeir gáfust ekki
upp undir lokin og tókst að tryggja
sér annað stigið. Sigurður Friðriks-
son var þeirra bestur, en liðið á
langt í land.
Ursllt/B10
Staðan/B10
Morgunblaðið/Einar Falur
Birgir Sigurðsson var besti maður Fram en Sigurður gunnarsson hafði sig
lítið í frammi hjá Eyjamönnum.
Fram - IBV
20 : 20
Laugardalshöll, íslandsmótið í handknattleik, 1. deild, laugardaginn 3. desember 1988.
Gangur leiksins: 0:1, 1:1, 1:2, 2:2, 2:4, 4:6, 6:7, 6:9, 7:9, 7:11, 11:11, 11:13, 13:13,
13:14, 14:14, 15;14, 15:15, 17:15, 18:16, 19:18, 20:18, 20:20.
Fram: Birgir Sigurðsson 6, Tryggvi Tryggvason 5, Júlíus Gunnarsson 3, Hermann
Bjömsson 3/1, Agnar Sigurðsson 2, Ragnar Hilmarsson 1, Gunnar Andrésson, Egill
Jóhannesson, Jason Ólafsson, Sigurður Rúnarsson, Ragnar Hilmarsson.
Varin skot: Guðmundur A. Jónsson 8, Þór Bjömsson.
Utan vailar: Sex mínútur.
ÍBV: Sigbjöm óskarsson 6/2, Tómas I. Tómasson 4, Sigurður V. Friðriksson 3, Þor-
steinn Viktorsson 2, Sigurður Gunnarsson 2, Sigurður Friðriksson 2/1, Óskar Brynjars-
son 1, Elliði Aðalsteinsson, Jóhann Pétursson, Guðfínnur Kristmannsson.
Varin skot: Ingólfur Amarsson 7, Sigmar Þ. Óskarsson 1.
Utan vallar: Fjórar mfnútur.
Áhorfendur: Tæplega 100.
Dómarar: Ámi Sverrisson og Egill Már Markússon vom oft fjærsýnir en samkvæmir
sjálfúm sér.
HANDKNATTLEIKUR / 2. DEILD
Óvæntur sigur Þórs
ÞÓRSARAR, sem verið hafa
við botninn f 2. deild í hand-
knattleik, komu heldur betur
á óvart um helgina er þeir
sigruðu Hauka, 22:21 á Akur-
eyri. Leikurinn var æsispenn-
andi og Haukar höfðu tveggja
marka forskot þegar tvær
mínútur voru til leiksloka.
Þórsarar náðu hinsvegar
góðum endaspretti og
tryggðu sér sigur.
Leikurinn var jafn framan af
en skömmu fyrir leikslok virt-
ust Haukar vera nokkuð öruggir
með sigur. Þeir höfðu tveggja
mææH marka forskot
Frá þegar tæpar tvær
MagnusiMá mínútur voru til
áAkureyri leiksloka. Þá
minnkaði Ingólfur
Hermann Karlsson
Samúelsson muninn og Kristinn
Hreinsson jafnaði þegar tæp
mínúta var til leiksloka. Það var
svo Sævar Árnason sem tryggði
Þórsurum sigur þegar hálf mínúta
var eftir.
Páll Gíslason átti góðan leik
fyrir Þór og Hermann Karlsson
varði vel. í liði Hauka bar mest
á Áma Hermannssyni og Elíasi
Jónssyni sem gerði fímm mörk á
skömmum tíma í síðari hálfleik.
Páll Gíslason var markahæstur
í liði Þórs með 6 mörk, Sævar
Ámason gerði 5 og Kristinn
Hreinsson 4. Elías Jónasson og
Ámi Hermannsson gerðu fimm
mörk hvor fyrir Hauka.
HK vann Ármann í toppslag
HK skaust átopp 2. deildar
með sigri á Ármanni á sunnu-
dagskvöld. Eftir sigur Þórs á
'faukum eru Haukar og HK
með jafnmörg stig í efsta sæti,
en markatala Hauka er aðeins
betri.
Leikur HK og Ármanns var
hörkuspennandi í fyrri hálfleik,
og staðan í leikhléi var jöfn, 9:9.
Leikurinn var jafn framan af í síðari
hálfleik, en Kópa-
H. Katrín vogsliðið sigldi fram
Friðriksen úr og sigraði örugg-
skrifar lega? 28*23.
Fyrri hálfleikur
var jafn og spennandi og mikil bar-
átta í báðum liðum, enda leikurinn
þýðingamikill í topjpslagnum. HK
byrjaði betur, en Ármann jafnaði
fljótlega, og eftir það var jafnt á
ölium tölum.
HK var aftur friskara liðið í byrj-
un síðari hálfleiks, og í þetta sinn
náðu Ármenningar ekki að jafna
leikinn. Þess í stað bættu gestirnir
sífellt við forskot sitt, og þegar upp
var staðið var öruggur sigur HK
staðreynd, 28:23.
Hannes Leifsson var atkvæða-
mestur hjá Ármann með 8 mörk,
en var nokkuð mistækur í leik
sínum. Haukur Sigurðsson skoraði
6.
Hjá HK átti Elvar Óskarsson
stórleik og skoraði 14/6 mörk.
Hilmar Sigurgíslason skoraði 5
mörk.
Njarðvík sigraði ÍH
Þá sigraði Njarðvík ÍH, 29:25, í
Njarðvík á sunnudaginn. Heima-
menn voru yfir allan leikinn og
mestur var munurinn sjö mörk.
Ólafur Thordarsen skoraði 10 mörk
fyrir UMFN og Eggert ísdal sex,
en Guðmundur Karlsson og ívar
Arnarsson voru atkvæðamestir hjá
IH með fímm mörk hvor.
Urslit/B10
Staðan/B10