Morgunblaðið - 06.12.1988, Síða 2
2 B
MORGUNBLAÐŒ) SÞROTTIR ÞRŒUUDAGUR 6. DESEMBER 1988
■ ÁSTÞÓR Ingason, UMFG,
meiddist í sigurleik Grindvíkinga
gegn Njarðvík á dögunum og var
óvíst hvort hann myndi leika með
liði sínu gegn Val á sunnudaginn.
Nokkrum mínútum fyrir leik var
þó ákveðið að hann skyldi vera í
liðinu. Hann kom ekkert inná í
leiknum!
■ LEE Nober, þjálfari ÍBK er
ekki alltaf hrifínn að dómgæslunni
í leikjum liðsins. í leik Keflvíkinga
gegn KR-ingum á sunnudaginn
setti hann á svið undarlegan lát-
bragðsleik sem áhorfendur kunnu
vel að meta. Skyndilega var hann
kominn með staf og sólgleraugu og
lék blindan mann! Hann hafði
greinilega undirbúið þetta atriði en
dómaramir voru ekki hrifnir og
gáfu Nober tæknivíti fyrir leik-
þáttinn.^
■ RÚNAR Árnason, leikmaður
Grindavíkur fékk brottrekstarvillu
fyrir að slá einn leikmann Vals í
leik liðanna um helgina. Samkvæmt
reglum aganefndar KKÍ mun
Rúnar fá leikbann og missir því
af næsta leik Grindvikinga, gegn
KR 22. janúar.
■ HINRIK Þórhallsson hefur
verið endurráðinn sem knattspymu-
þjálfari Snæfells frá Stykkishólmi
næsta sumar. Hinrik þjálfaði liðið
með góðum árangri í fyrra og var
félagið hársbreidd frá því að vinna
sig upp í 3. deild.
■ RAGNAR Rögnvaldsson,
knattspymumaður úr Breiðabliki,
hefur ákveðið að leika með Dalvík-
ingum í 3. deild næsta sumar.
Ragnar hefur víða komið við og
leikið meðal annars með KA, ÍBI
og Víking.
■ KRISTINN Bjömsson, sem
þjálfaði Stjörnuna úr Garðabæ í
3. deild síðasta sumar, hefur verið
orðaður sem næsti þjálfari Dalvík-
inga.
■ HOLLENSKI unglingurinn
Dennis Bergkamp, skoraði sitt
áttunda mark í sjö leikjum fyrir lið
sitt Ajax, sem hélt áfram sigur-
göngu sinni í hollensku deildar-
keppninni um helgina. Ajax sigraði
Haarlem 1-0, og hefur klifíð upp
töfluna sem nemur tíu sætum
síðustu vikumar eftir ömurlega
byijun á keppnistímabilinu. Berg-
kamp var alls óþekktur í upphafí
tímabilsins, en hann er enn einn
ávöxturinn úr hinu fræga unglinga-
liði Ajax, sem hefur meðal annarra
alið upp snillinga á borð við Johan
CruyfF og Marco Van Basten. Það
lið sem mest hefur komið á óvart
í hollensku deildinni er þó Fortuna
Sittard, sem er aðeins tveimur stig-
um á eftir PSV Eindhoven, og
sigraði PSV fyrir skömmu. Breti
nokkur, John Clayton, hefur gert
það gott hjá spútnikliðinu, skoraði
sigurmarkið gegn PSV og fyrra
markið af tveimur í sigurleik gegn
Willem 2.
■ LUZERNha.íö\ aðeins eitt stig
upp úr leik, 2:2, gegn Wettingen
í svissnesku deildarkeppninni um
helgina. Það heldur þó fyrsta sæt-
inu í deildinni. Það er nú með 27
stig en Grasshoppers, sem tapaði
4:3 gegn Young Boys, er með 25
stig í öðru sæti.
KNATTSPYRNA / BELGÍA
Amórá
batavegi
„ÉG var að koma frá sérfrœð-
ingi mínum í Munchen og hann
er bjartsýnn og segir allt vera
á réttri leið og ég verði farinn
að leika aftur fljótlega, þó verð
ég að segja, að ég finn enn til
þegar ég beygi hœgri fótinn,“
sagði Arnór Guðjohnsen knatt-
spyrnumaður hjá Anderlecht í
samtali við Morgunblaðið um
helgina, en sem kunnugt er,
meiddist hann illa á hægra
læri fyrir nokkru.
Amór sagði að aðeins væri eftir
að leika tvær umferðir fram
að miðsvetrarhléinu og legði hann
Bjarni
Markússon
skrifarfrá
Brussel
enga áherslu á að ná þeim, vildi
heldur flýta sér
hægt og vera tilbú-
inn í slaginn þegar
deildarkeppnin hefst
á ný 20. janúar.
Raymond Goethals þjálfari liðsins
er sammála, vill heldur fá Amór
alheilan í janúar heldur en hálfgóð-
an fyrr. Anderlecht hefur sýnt að
breidd er í liðinu, því liðið hefur náð
góðum úrslitum síðustu vikurnar
þótt vanti leikmenn eins og Amór
og t.d. Nígeríumanninn Keshi. Leik-
imir sem eftir eru, em gegn Genk
og Molenbeek, liðum sem eru mun
lakari á pappímum a.m.k.
KNATTSPYRNA
Bjami til Englands
Bjami Felixson, íþróttafrétta-
maður Ríkisútvarpsins, held-
ur utan til Englands í dag. Hann
mun lýsa leik Coventry og Manc-
hester United í beinni útsendingu
frá Heighfíeld Road á laugardag-
inn. Þetta verður fyrsta beina
útsendingin frá ensku knattspym-
unni í vetur.
Ríkissjónvarpið mun sýna níu
leiki beint frá ensku knattspym-
unni í vetur. Næstu leikir verða
Millwall og Sheffeild 17. desem-
ber og 31. desember verður leikur
Aston Villa og Arsenal sýndur.
Iþróttafréttamenn RUV munu
í mörgum tilfellum fara utan og
lýsa leikjunum beint.
Arnór Guðjohnsen.
KNATTSPYRNA
Laugardalsvöllur:
Uppfyllir ekki kröfúr
sem þjóðarieikvangur
STJÓRN Knattspyrnusam-
bands íslands hefur áhyggjur
af ástandi þjóðarleikvangs ís-
lendinga, Laugardalsvellinum.
í ársskýrslu sambandsins er
þessum áhyggjum lýst og því
að völlurinn uppfylli ekki örygg-
iskröfur.
Alþjóðaknattspymusambandið
hefur ákveðið að í næstu
heimsmeistarakeppni verði aðeins
leikið á völlum sem hafa eingöngu
sæti fyrir áhorfendur. KSÍ telur að
hluti skýringar á slakri aðsókn á
leiki liggi í óaðlaðandi aðbúnaði á
veljinum og völlum yfirleitt.
í ársskýrslu KSÍ er því beint til
stjórnvalda að hafíst verði handa
sem fyrst við uppbyggingu mann-
virkisins með það í huga að það
verði lokuð hringlaga bygging.
Einnig að völlurinn verði flóðlýstur
þannig að landsleikir og félagsliða-
leikir að hausti geti farið fram á
eðlilegum tíma dags.
KÖRFUKNATTLEIKUR / NBA-DEILDIN
Michael Jordan átti stórleik og setti 39 stig.
Jordan fór
ákostum
Los Angeles og Detroit Pistons halda
sínu striki og hafa örugga forustu
NÚ eru liðin i NBA-deildinni
búin með 14-17 leiki hvert og
hafa bestu liðin frá sl. keppn-
istímabili, Los Angeles Lakers
og Detroit Pistons, tekið for-
ystu í deildunum tveimur. Þessi
tvö lið hafa ieikið stórgóðan
körf uknattleik í vetur og hefur
Lakers-liðið átt hvern stjörnu-
leikinn af öðrum undanfarið. Á
sama tíma á Boston í miklum
erfiðleikum og hefur alls ekki
virkað sannfærandi og ekki
bætti úr skák þegar Larry Bird
meiddist. Það verður langur
vetur framundan fyrir hina fjöl-
mörgu stuðningsmenn iiðsins.
Aföstudag átti Lakers-liðið frá-
bæran leik í Utah, en það lið
var einmitt erfíðasti andstæðingur
Lakers í fyrra. Leiknum var sjón-
varpað í TBS-sjón-
Gunnar varpsstöðinni og átti
Valgeirsson Utah aldrei mögu-
sknfar íeika í leiknum. La-
kers lék án Abdul-
Jabbar, sem á við smávægileg
meiðsl í hné að eiga, en það kom
ekkert að sök. Byroin Scott skoraði
32 stig fyrir Lakers og „Magic“
Johnson skoraði 17 stig, tók 12
fráköst og átti 15 stoðsendingar.
Jordan relðist
Á laugardag tapaði Dallas sínum
flórða heimaleik á keppnistímabil-
inu þegar Chicago vann 113:100. í
dagblöðunum á laugardagsmorgun
í Dallas voru greinar um að Mic-
hael Jordan skoraði aldrei mikið
gegn Dallas. Þetta fór ekki vel í
kappan og hann skoraði 39 stig
fyrir lið sitt í þessum sigurleik. Þá
heldur San Ántonio áfram góðu
gengi á heimavelli. Spurs vann New
York 122:109 í góðum leik á laugar-
dag, en liðinu gengur ekki eins vel
á útivöllum þar sem flestir leikir
tapast. Spurs eru með 6 sigra og
8 töp það sem af er keppnistímabil-
inu. Það eru einkum -bakverðirnir
Alvin Robinson og Johnny Dawkins
sem halda liðinu á floti.
Á sunnudag vann Los Angeles La-
kers lið Washington í framlengingu.
í þeim leik jafnaði „Galdur" nokkur
Johnson leikinn fyrir heimamenn
með skoti frá miðju um leið og
leiktíminn rann út. Það var að sjálf-
sögðu þriggja stiga karfa og í fram-
lengingunni reyndist Lakers sterk-
ara. í Detroit var það góðvinur Jo-
hnson, Isiah Thomas, sem skoraði
sigurkörfu Detroit gegn New Jersey
í hörkuleik.
Efstu liðin í Austurdeild eru (í sviga
eru unnir leikir-tapaðir leikir):
Detroit (13-3), Cleveland (11-3),
New York (10-6), og Átlanta
(10-6). í Vesturdeild eru þessi lið
efst: L.A. Lakers (12.-3), Denver
(11-5), Utah Jazz (10-5), og Hous-
ton (10-7). Þá er að geta þess að
enn hefur Miami ekki unnið neinn
af þeim 13 leikjum sem liðið hefur
spilað. Metið í NBA eru 15 leikir í
upphafí keppnistímabils.
■ Úrsllt B/11