Morgunblaðið - 06.12.1988, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐH) IÞROTT1R ÞRŒXJUDAGUR 6. DESEMBER 1988
B 3
KNATTSPYRNA / ENGLAND
Guðni skoraði
tvömörkgegn
Portsmouth
„ÞAÐ er ekki á hverjum degi
sem gamli „sweeperinn" nœr
að skora tvívegis í leik,“ sagði
Guðni Bergsson við Morgun-
blaðið eftir að varalið Totten-
ham hafði unnið Portsmouth
7:1 á White Hart Lane á laug-
ardaginn.
Guðni lék á hægri vængnum
sem sóknarbakvörður og
stóð sig vel. Hann skoraði annað
mark Spurs um miðjan fyrri hálf-
leik eftir þunga sókn — komst inn
í sendingu ætlaða markverði
Portsmouth, lék til vinstri og
skaut á milli fóta markvarðarins
með vinstri. Sitt annað mark og
sjötta mark Spurs gerði Guðni
síðan um miðjan seinni hálfleik.
Þá fékk hann knöttinn við
miðlínu, lék á bakvörð Portsmo-
uth, brunaði upp og skoraði ör-
ugglega — með hægri að þessu
sinni.
„Þeir voru frekar flatir í vöm-
inni og við nýttum okkur það vel.
Ég er ánægður með minn þátt
og úthaldið eykst með hveijum
leik enda veitir ekki af því á kant-
inum,“ sagði Guðni.
Hann leikur með liðinu gegn
Reading í dag og síðan verður
farið í samningamálin á næstu
dögum.
GuAnl Bargsson skoraði tvö mörk á White Hart Lane
íntámR
FOLK
■ BARCELONAn&ði forystu í
spænsku deildarkeppninni í knatt-
spymu aðeins sólarhring eftir að
Real Madrid náði henni. Barce-
lona vann Logrones 2:1 með mörk-
um Beguiristain og Salinas. Við-
ureign Real Madrid og Atletico
Madrid, var gróf samkunda. Þrír
leikmenn reknir út af auk þess sem
gula spjaldið var ellefu sinnum á
lofti.
■ VESTUR—ÞÝSKA deildar-
keppnin í knattspymu er hálfnuð.
Á því stigi er ýmislegt gert upp og
skoðað nánar. Alls fengu 9 lið færri
áhorfendur en
FráJóni nokkru sinni fyrr.
H. Garðarssyni Er það alvarlegt mál
iV-Þýskaiandi sem verjð er að
kryfja. Efnilegasti
leikmaðurinn, „uppgötvun ársins"
er talinn vera Thomas Hessler,
Köln. Mesti jaxlinn er talinn Manny
Kaltz, HSV, sem leikið hefur 550
leiki á 17 árum I deildinni. Um tíma
í vetur lék hann svo vel að talið var
að ekki væri hægt annað en að
velja „gamla manninn" f landsliðið
á ný, en sömu bakvarðarstöðuna
leikur Thomas Berthold sem leik-
ur með Verona á Ítalíu og hefur
lítið sýnt í seinni tíð.
■ LIÐ umferðarinnar er ekki
talið Bayem MUnchen, heldur
St.Pauli, Hamborgarliðið sem kom
upp úr 2. deild á síðasta keppn-
istímabili og hefur leikið mjög
frísklega.
■ í MARKALAUSUM leik
Kaiserslautem og Leverkusen,
lék 17 ára piltur sinn fyrsta leik
og þótti standa sig afburða vel.
Hann heitir Oliver Page og leikur
með fyrmefnda liðinu. Pilturinn
líkist Hollendingnum Frank Rij-
kaard, bæði í útliti og getu. Mögu-
leg stórstjama þar á ferðinni.
■ UERDINGEN og St. Pauli,
gerðu markalaust jafntefli í þýsku
deildinni um helgina. Var það
fímmti heimaleikur Uerdingen sem
endar 0:0 á þessu keppnistímabili.
■ DIETER Eckstein, var keypt-
ur til Frankfurt frá NUmberg
fyrr á þessu ári fyrir 4 milljónir
marka. Hann skoraði ekki sitt
fyrsta mark fyrr en nú um helgina,
sigurmark Frankfurt gegn
Hannover í ömurlegum leik. Það
var fjórði sigur Frankfurt í vetur
og hafa allir endað 1:0.
KÖRFUKNATTLEIKUR
Landsliðið til Portú-
gal og Englands
Á möguleika á að komast í undanúrslit Evrópukeppninnar
UM helgina var dregið í riðia í
undankeppni Evrópu- og
heimsmeistarakeppninnar í
körfuknattleik. íslendingar
sóttu sem kunnugt er um riðil
í heimsmeistarakeppninni en
fengu ekki. Þess í stað mun
íslenska liðið leika í undan-
keppni Evrópukeppninnar og
Portúgal og í undankeppni
heimsmeistaramótsins í Eng-
landi
Islendingar voru nokkuð heppnir
með riðil í Evrópukeppninni. Þeir
mæta Ungveijum, ísraelsmönnum,
Portúgölum og Belgum. TVö lið
komast upp úr þessum riðli. íslend-
ingum hefur gengið nokkuð vel
gegn Belgum og Portúgölum og
hafa yfírleitt staðið í Ungveijum.
ísraelsmenn eru hinsvegar með
langbesta iiðið í riðlinum.
I Evrópukeppninni eru fjórir riðl-
ar og fara tvö efstu liðin í hveijum
riðli áfram í 16-liða úrslit. Þar er
liðum skipt í fjóra_ riðla og leikið
heima og heiman. Átta þjóðir hafa
þegar tiyggt sér sæti í 16-liða úr-
slitum en það eru: Búlgaría, Spánn,
Frakkland, Grikkland, Ítalía, Holl-
and, Sovétríkin og Júgóslavía.
Erfiður riðlllíHM
Riðillinn í heimsmeistarakeppn-
inni, sem fram fer í Englandi, er
hinsvegar mun erfíðari en þar fer
aðeins eitt lið áfram. íslendingar
eru í rili með Englendingum, Port-
úgölum, Svíum og Portúgal.
í heimsmeistarakeppninni eru
þrír riðlar og efsta liðið í hveijum
riðli heldur áfram í undankeppni
þar sem átta lið beijast um tvö sæti
í lokakeppni HM sem fram fer í
Argentínu 1990.
Verður Pótur með?
í apríl verður tekin ákvörðun um
hvort leikmönnum úr NB A-deildinni
verði leyft að leika með landsliðum.
Líklegt er að það verði samþykkt á
heimsþingi FIBA og því gæti Pétur
Guðmundsson, sem leikur sem San
Antonio Spurs, leikið með íslenska
landsliðinu. Það hefði mikið að
segja fyrir liðið og möguleikar þess
ykjust verulega.
■ Rlðlar f EM og
HM/B10
HANDKNATTLEIKUR / SPÁNN
Öruggur hjá Teka
Granoilers í 2. sæti á móti íTblisi
Teka átti ekki í erfíðleikum með
Arrate, sem er í neðsta sæti
b-riðils, og vann 23:14 en staðan í
hálfleik var 12:7. Yfírburðir gest-
anna voru miklir og
skoruðu þeir fjögur
síðustu mörkin.
Kristján Arason var
markahæstur (6/2),
Melo skoraði fímm mörk, en Caban-
as og Ruiz þijú hvor.
Caja Madrid kom á óvart og vánn
Valencia á útivelli, 26:24. Valencia
hefur þótt mjög erfítt heim að
sækja, en varð að sætta sig við tap
að þessu sinni.
Þá vann Valladolid Palautordera
26:22 á útivelli, en leik Alicante og
Granollers var frestað.
Granollers er enn efst í riðlinum
með 12 stig, Teka er með 10 stig,
Caja og Valencia 10 stig.^Valla-
dolid 9, Palautordera og Alicante
4, og Árrate tvö stig.
í a-riðli er Atletico Madrid í efsta
sæti með 16 stig, en liðið vann
Tres de Majo 29:17. Barcelona er
í öðru sæti með 12 stig eftir 25:16
sigur gegn Bidasoa, sem er með
10 stig eins og Lagisa, en Malaga
og Lagisa gerðu 29:29 jafntefli. Þá
vann Avilles Uniexpress 23:22.
Gott hjá Granollers
Granollers tók þátt í fimm liða
móti í Tþlisi í Sovétríkjunum í stað
spænska landsliðsins og stóð sig
með prýði. Liðið hafnaði í 2. sæti
með 7 stig á eftir Sovétmönnum,
sem fengu 10 stig. Granollers vann
m.a. pólska landsliðið 22:18 og
gerði 22:22 jafntefli við það vestur-
þýska, sem fékk 6 stig í keppninni.
Frá
Atla
Hilmarssyni
á Spáni
Kristján Arason.
KARFA
Lands-
liðið
valið
KepptverðuríEng-
landi og Möltu
ÍSLENSKA landsliðið í körfu-
knattleik sem tekur þátt í smá-
þjóðamóti á Möltu var valið um
helgina. Liðið heldurtll Eng-
lands á föstudaginn og leikur
þar nokkra leiki en fer svo til
Möltu á mánudaginn.
Ilandsliðið vantar nokkra ieik-
menn sem voru valdir í haust.
Njarðvíkingamir Teitur Örlygsson,
Isak Tómasson, Helgi Rafnsson og
Hreiðar Hreiðarsson hafa ekki æft
með liðinu og voru því ekki valdir.
Pálmar Sigurðsson frá Haukum gaf
ekki kost á sér og KR-ingurinn ívar
Webster hefur ekki mætt nógu vel
á æfingar.
Tveir nýllðar
Tveir nýliðar eru í landsliðinu -
báðir frá Keflavík. Það eru þeir
Guðjón Skúlason og Magnús Guð-
fínnsson.
Eftirtaladir leikmenn voru valdir
til ferðarinnar.
Birgir Mikaelsson............KR
Gufjón Skúlason.............ÍBK
Jón Kr. Gíslason......'.....ÍBK
Magnús Guðfinnsson..........ÍBK
Guðmundur Bragason.........UMFG
V alur Ingimundarson.......UMFT
HenningHenningsson.......Haukum
ívar Ásgrímsson..........Haukum
Tómas Holton................Val
Matthías Matthíasson........Val
Varamenn liðsins eru Sigurður
Ingimundarson og Falur Harðarson
ÍBK.
Úrvalsleikur f Keflavík
Á morgun mun landsliðið mæta
úrvalsliði Torfa Magnússonar í
Keflavík. Torfi hefur valið tíu leik-
menn sem munu mæta landsliðinu
í þessum úrvalsleik:
Pálmar Sigurðsson Haukum, ívar
Webster og Jóhannes Kristbjöms-
son KR, Bjöm Steffensen og Sturla
Örlygsson ÍR. _ Hreinn Þorkelsson
Val. Rúmar Ámason UMFG og
Njarðvíkingamir Teitur Örlygsson,
ísak Tómasson og Helgi Rafnsson.
ÍÞRÓMR
FOLK
■ SEVERIANO Ballesteros frá
Spáni er efstur á heimslistanum í
golfí. Ballesteros hefur 1.458 stig
og er tæpum hundrað stigum á
undan Greg Norman frá Ástralíu.
Næstu menn em Sandy Lyle með
1.397 og Nick Faldo (1.103) frá
Bretlandi. Fimmti er Curtis
Strange frá Bandaríkjunum með
1.082 stig.
■ FRESTA varð bmnkeppni
heimsbikarsins í karlaflokki sem
fram átti að fara í Val D’Isere í
Frakklandi á sunnudaginn vegna
fannfergis. Á laugardaginn gátu
aðeins nokkrir keppendur farið nið-
ur æfíngaferðina áður en brautinni
var lokað. Keppnin átti síðan að
fara fram í gær, en þá varð að
fresta vegna mikillar rigningar.
Engin bmnkeppni hefur enn farið
fram í karlaflokki. í dag verður
keppt í fyrstu svigkeppni heims-
bikarsins f karlaflokki og fer hún
fram á heimavelli Alberto Tomba,
Sestriere á ítalfu. Pirmin Zur-
briggen hefur unnið tvö fyrstu
mótin, risastórsvig og stórsvig.