Morgunblaðið - 09.12.1988, Side 1
VÍKUNA 10.-16. DESEMBER
PRENTSMIÐJA MORG UNBLAÐSINS
FOSTUDAGUR 9. DESEMBER 1988
BLAÐ
B
KR og Valur
Á miðvikudag lýsir Heimir Karlsson
á Stöð 2 síðari hálfleik KR og Vals
í 1. deild karla í handbolta.
Má búast við hörkuleik þar sem þessi
topplið í íslandsmótinu
eru bæði taplaus.
Hafliði
Sigurður Á.
Siguröur A.
Úlfar
Jón Óskar
Opið hús á Utvarpi Rót
Á Útvarpi Rót hafa staðið yfir nokkrar endurskipulagningar á rekstri og dagskrá stöðvarinnar sem felst m.a.
í breytingu á útsendingartima. Nýr dagskrárliður sem nefnist Opið hús hófst 1. desember og er ætlunin
að hafa vikulega opið hús á fimmtudagskvöldum þar sem boðið verður upp á kaffiveitingar og mismun-
andi dagskrá i beinni útsendingu. Siðastliðinn fimmtudag litu nokkur Ijóðskáld inn og lásu afurðir sínar
og næsta fimmtudag koma nokkrir rithöfundar og lesa úr nýjum bókum sínum. Má þar t.d. nefna Sigurð
A. Magnússon, Úlfar Þormóðsson, Sigurð Á. Friðþjófsson, Jón Óskar og Hafliða Vilhelmsson.
Á föstudag kl. 18 veröur kynnt alls óþekkt hljómsveit sem heitir Mýsnar í
þætti sem nefnist Upp og ofan. Sigurður fvarsson, alias Siggi í Gramminu,
er með vikulegt Prógramm sitt á sunnudag kl. 13 þar sem hann spilar rokk-
tónlist og kl. 15 sama dag er á dagskrá þáttur þar sem skyggnst verður inn
í menningu Keflavíkur og Suðumesja. Þetta er aðeins lítið brot úr dagskrá
Rótar fram yfir helgi.
Meðan skynsemin blundar
Sjónvarpið sýnir á fimmtudag fyrstu myndina úr breskum myndaflokki
sem samanstendur af fjórum sjálfstæðum hrollvekjusögum. Myndin
heitir Sumarvofan og fjallar um unga stúlku sem býr ásamt foreldrum
sínum á Ítalíu. Hún verður fyrir sálrænu áfalli sem foreldrar hennar
verða ekki vör við og til að ná athygli þeirra spinnur hún upp sögur
um vofur sem birtast henni. Hún nær sér eftir þetta áfall en síðar á
lífsleiðinni eiga sögurnar eftir að ásækja hana. Aðalhlutverk leika
Susan Bradley og Dearbhla Molloy.
Sjónvarpsdagskrá bls. 2-16
Útvarpsdagskrá bls. 2*16
Hvað er að gerast? bls. 3/6/7
Myndbönd bls. 13/16
Vinsælustu myndböndin bls. 13
Bíóin í borginni bls. 7
Guðað á skjáinn bls. 7
Jólin — hátíð barnanna bls. 8
......i
U-u