Morgunblaðið - 09.12.1988, Qupperneq 7
aiORGKNHEæœ.íFÖSrimSAIIHB^.aiHSBDHHHBaötó
■%-ífr
Deilurnar um flug 007
í lok ágústmánaðar árið 1983
skaut rússnesk bardagaflugvél
niður kóreska.farþegavél sem far-
ið hafði um 500 kílómetra af leið
yfir sovéska herstöð. Allir um
borð í kóresku vélinni, 269 tals-
ins, létust, þ.m.t. 63 Bandaríkja-
menn.
Sagan um flug 007 frá Kóreu
er þesskonar að velvakandi
bandarískir sjónvarpsframleið-
endur í leit að næsta heimildadra-
manu ættu að bítast um hana.
En það hefur tekið heil fimm ár
að gera „Shootdown", sem greinir
frá árásinni og eftirmála hennar
í Bandaríkjunum. Sjónvarps-
myndin var frumsýnd vestra fyrir
stuttu með Angela Lansbury í
aðalhlutverki en hún leikur móður
eins fómarlambsins um borð.
Það var einkum tvennt sem
tafði mjög framgang mjmdarinn-
ar: Erfiðleikamir við að komast
að hinu sanna um slysið og deilur
innan NBC-stöðvarinnar, sem
framleiddi sjónvarpsmyndina, um
hvemig sagan skyldi sögð. Fram-
leiðendurnir og ritskoðendur
NBC-stöðvarinnar, eða sú deild
sem sér um að takmarka ofbeldi
og kynlíf á skjánum og gæta að
því að nákvæmni sé gætt í með-
ferð umdeilds efnis, stóðu í löng-
um og ströngum samningavið-
ræðum þar sem rákust saman þau
Guðað á
skjáinn
sjónarmið framleiðendanna að
gera mynd sem tæki pólitíska
afstöðu og þau sjónarmið ritskoð-
aranna að jafnvægi og sanngimi
skyldu í heiðri höfð. „Það veit
enginn fyrir víst hvað gerðist,"
segir Alan Gerson varaforstjóri
NBC. „Til er fjöldinn allur af skýr-
ingum sem stangast á. Við vildum
vera vissir um að myndin kæmi
inná hinar ólíku skoðanir og kenn-
ingar."
„Shootdown" er byggð á sam-
nefndri bók eftir R. W. Johnson
en ein af ástæðunum fyrir því að
NBC vill fara varlega í sakirnar
er sú, eins og Gerson segir, að
enginn virðist_ vita nákvæmlega
hvað gerðist. Á þeim fimm ámm
sem liðin em frá því Rússar skutu
farþegaþotuna niður hafa tilgátur
stangast mjög á; skutu Rússar
hana niður með köldu blóði eða
var flugstjóri flugs 007 á mála
hjá CIA og í njósnaleiðangri yfir
sovésku landsvæði?
í bók sinni sagði Johnson að
vélin hefði verið í njósnaleiðangri
og hann sagði einnig að stjórn-
völd í Bandaríkjunum hefðu leynt
þeim upplýsingum eftir skotárás-
ina. Sjónvarpsframleiðandi, Leon-
ard Hill að nafni, fékk áhuga á
samsæriskenningu Johnsons.
Hann hitti bandarískar fjölskyldur
hinna látnu, frétti af stöðugri við-
leitni þeirra til að komast að sann-
leikanum um atburðinn og kynnt-
ist Nan Moore hvers sonur var
um borð í vélinni. Hún var starfs-
maður í Pentagon og ein af þeim
sem krafðist þess að skipuð yrði
sérstök rannsóknamefnd í málinu
á vegum þingsins. í Moore fann
Hill það sem sjónvarpsmyndir oft
þurfa, persónulegar raunir í
pólitísku argaþrasi. Hann tryggði
sér samvinnu hennar (Lansbury
leikur Moore), keypti réttinn að
bók Johnsons og fékk tvo hand-
ritshöfunda úr „Cagney og Lac-
ey“-þáttunum til að gera handrit
uppúr bókinni.
I myndinni er sagan sögð frá
sjónarhóli Moore, lýst harmi henn-
ar yfir sonarmissinum og leit
hennar að sannleikanum ásamt
fjölskyldum þeirra Bandaríkja-
manna sem voru um borð í flug-
vélinni. Hún kemst smám saman
Angela Lansbury (til vinstri) leikur móður eins þeirra sem fórust
með kóresku farþegaþotunni í sjónvarpsmyndinni „Shootdown".
á þá skoðun að stjómvöld feli
upplýsingar um flugið og að flug-
vélinni gæti hafa verið beint með-
vitað inn yfir sovéska lofthelgi til
að kanna hve skjótt varnarkerfí
Rússa virkaði.
Hill segist hafa viljað gagnrýna
harðlega hlut bandaríkjastjómar
í málinu. „Það var svo mörgum
spumingum ósvarað," segir hanti,
„en samt fór aldrei fram nákvæm
rannsókn. Málið lyktaði af yfir-
hylmingu. Við emm ekki að segja
að 007 hafi verið njósnavél, eins
og sumir hafa sakað okkur um.
Við segjum það eitt að hættan á
að huldustjóm myndist í þessu
landi er fyrir hendi."
„Þetta er ein ráðgáta sem
Jessica Fletcher gæti ekki leyst,"
segir Angela Lansbury og á við
spæjarann sem hún leikur í Morð-
sögu. „Nan heldur að Bandaríkin
hafí borið ábyrgð á hvemig fór,
og það má vera að hún hafi rétt
fyrir sér, en það er erfitt fyrir
mig að ímynda mér að Bandaríkin
noti farþegaflugvél til að „kítla“
rússneska varnarkerfíð.11
Byggt á The New York Times.
— ai.
Bíóin í borginni
BÍÓBORGIN
Buster ★ ★ 1/2
Hreinskiptin en atkvæðalítil mynd
um lestarræningjann Buster og
fjölskyldu hans sem kaus frekar
fangelsi og franskar en sói og
sand. Kannski ekki svo galið. -sv.
Á tæpasta vafti ★ ★ ★1/2
Hollywood atvinnumennska í
yfirgír auk listilegra takta í leik-
stjórn, kvikmyndatöku og sviðs-
myndagerð, og Willis í hörkuformi
sem óvinnandi karlmenni, gera Á
tæpasta vaði spennumynd ársins.
Mynd sem verður miðað við í
framtíðinni. -sv.
Óbærilegur lóttleiki tilver-
unnar ★ ★ ★ ★
Bandaríski leikstjórinn Philip Kauf-
man hefur fest ástarsögu Tómasar
og Teresu úr samnefndri bók
Milans Kundera á filmu á sérstak-
lega fallegan, erótískan og Ijúfsár-
an hátt með ólgandi vorið í Prag.
í bakgrunni. Leikurinn er með ein-
dæmum góður og þegar best læt-
ur er Léttleikinn óvenju sterkt,
óvenju áhrifamikið kvikmyndaverk.
-ai.
STJÖRNUBÍÓ
Vetur dauftans ★ ★ 1/2
Spennumynd og gæsahúðarupp-
spretta þegar best lætur, þó farn-
ar sóu troðnar slóðir; fatlafói á
hjólastól, geðbilaður manndrápari,
stúlka í nauð á afskekktu, drauga-
legu sveitasetri, sambandslaus við
umheiminn, o.s.frv. [ vænu meðal-
lagi, en leikstjórinn Penn má svo
sannarlega muna sinn fífil fegri.
-sv.
Stefnumót vift engil 1/2
Ófyndnasta gamanmynd sem sést
hefur um langa hríð. Efnið og efni-
stökin með ólíkindum aulaleg. -sv.
BÍÓHÖLLIN
Út í óvissuna ★ 1/2
Fimm Ramósnáðar halda í sigur-
sæla herferð til N-Kóreu þegar
Pentagon skortir kjarkinn. Með
eindæmum vitlaus og þ.a.l. bros-
leg á sinn hátt. En í hvaða tilgangi
þessi teiknimyndarlegi samsetn-
ingur er gerður og fyrir hverja ligg-
urekki íaugum uppi. -sv.
Skipt um rás ★ ★ 1/2
Farsakenndur gamanleikur og
satíra á nútíma fjölmiðlafár og
pólitíkusa eftir annáluðu leikriti
Ben Hects, sem fært er til nútím-
ans. Myndin ristir að vísu ósköp
grunnt, er ekki eftirminnileg á
neinn hátt, en það er auðvelt að
skemmtaséráhenni. -ai.
Stórviftskipti* ★1/2
Vandvirknislega gerður farsi í
flesta staði, en vantar þó hinn
nauðsynlega herslumun til að ná
flugi. Leikhópurinn snýst heldur
mikið í kringum sjálfan sig, en „The
Devine Ms. M.“, skruggukvendið
Bette Midler, er eins og storm-
sveipur á tjaldinu og gerir myndina
vel þess virði að henni sé veitt
athygli. -sv.
í greipum óttans *1/2
Myndin um Krafta-Jackson er
formúluafþreying í meðallagi. Þið
hafið séð þær margar svona áður
og eigið sannarlega eftir að sjá
þærfleiri. -ai.
Sá stóri ★ ★ ★
Tom Hanks er frábær í þessari
vandlega gerðu og geðþekku
líkamsskiptimynd um 13 ára strák
sem verður þrítugur á einni nóttu.
Sumir eru alltaf að flýta sér að
eldast, en slappaðu af, þinn tími
kemur nógu fljótt. -ai.
Ökuskírteinið ★ ★
Les stelur stífbónuðum Kadda
pabba síns og líður af stað inní
hið greiðfæra land kvíða og angist-
ar er geymir alla þá sem ein-
hverntíma hafa óttast það að
skemma bíl pabba síns. Sæmileg-
asta afþreying. -ai.
REGNBOGINN
Ógnvaldurinn ★ ★ 1/2
Sálfræðingur, barneignir, heimilis-
líf. Chuck Norris er að verða eins
og .sænsk vandamálamynd. En
hann þarf líka að fást við hrikaleg-
an morðingja í þessari nýjustu
spennumynd sinni sem kemur
manni talsvert á óvart af því Norr-
is sýnir mannlegar hliðar og hand-
bragðiðeróvenjuvandað. -ai.
Gestaboð Babettu ★ ★ ★ ★
Ljóðrænt, gamansamt og alvarlegt
meistaraverk Gabriels Axels um
hvítagaldur listamannsins, bók-
stafstrú, freistinguna, eftirsjá
ónýttra ástarfunda, frið og sátt við
Guð og menn. Snilldarleikstjórn,
handrit, leikur og kvikmyndataka.
Skilur engan eftir ósnortinn. -sv.
U2 ★ ★1/2
Þrumurokk frá þrumuhljómsveit í
landvinningum í vesturálfu. Svart-
hvít nær hún vel anda pólitískra
hljómsveitarmeðlimanna og hljóð-
upptaka góð. -sv.
Bagdad Café ★ ★ ★
Það er Ijúfur og ferskur blær yfir
Bagdad-kaffinu í eyðilandinu. Sér-
kennileg mynd, sórviskuleg og
skondin, léttlynd og launfyndin,
uppstillingar gamansamar, per-
sónurnar furðulegar og mannlegu
samskiptin í góðu lagi. Sterk og
bragðmikil eins og kaffið hennar
Munchgestetter. -ai.
Á Örlaga-
stundu ★ 1/2
Myndinni tekst hvorki að vekja
áhuga manns á persónum sínum
né atburðum því efnið og efnistök-
in eru furðuléga úrelt eða í besta
falli gamaldags. Hefði kannski
gengiðfyrir30árum. -ai.
Barflugur ★ ★ ★
Barflugur er óvenjuleg mynd þar
sem skáldið og fyllibyttan Buk-
owski segir frá eigin reynslu af
lífinu í strætinu. Frásögnin leiftrar
af gálgahúmor, hér finnst mönnum
lífið hreint ekki leitt og leikur þeirra
Rourke og Dunaway er með ólík-
indum. Krydd ítilveruna. -sv.
HÁSKÓLABÍÓ
Apaspil ★ ★ ★
George A. Romero hefur tekist að
gera dálaglegan og á stundum
æsispennandi þriller um lítinn apa
sem framkvæmir allar óskir eig-
anda síns, sem bundinn er við
hjólastól, en tekur uppá því að
myrða fólk í þokkabót. Háspenna,
lífshætta. Apinn erfrábær. -ai.
LAUGARÁSBÍÓ
Hundalíf ★ ★ ★ 1/2
Lasse Hallström hefur einstakt lag
á að þræða á milli hins gamansam
og og sorglega í lífi yndælisstrák-
gutta, sem Anton Glanzelius leik-
ur, til fullkomnunar, og tekst að
snerta þá römmu taug sem binst
æskunni á Ijúfsáran og einkar geð-
þekkan máta. Frábærlega gaman-
söm mynd. -ai.
Sfðasta freisting
krists ★ ★ ★ ★
Mynd Martins Scorsese er mögn-
uð, djarflega gerð, dulúðug,
óvenjuleg og að lokum einstaklega
áhrifamikil. Jesús Scorsese er
bæði maður og guð og myndin
snýst um þá innri baráttu sem
hann heyir til að sætta þessi tvö
ólíku eðli og finna markmiðið með
lífi sínu. Lokakaflinn er lítiö meist-
araverk sem Willem Dafoe í hlut-
verki Jesú kórónar með átakamikl-
umsnilldarleik. -ai.
í skugga hrafnsins ★ ★ ★ 1/2
Hrafn vinnur úr þeim menningar-
arfi sem mikilvægastur er okkur
íslendingum og verður sífellt mikil-
vægari. Hann sækir efnivið í
óþrjótandi brunn sagnanna okkar,
það má allt eins segja að hann só
kvikmyndalegur arftaki íslendinga-
sagnahöfundanna. Kveikir nýtt líl
í goðsögnunum með stórum til-
finningum, stórum persónum
mikilfenglegri mynd. -ai.
HVAÐ
ERAÐ
GERAST?
fleiríritum. Kl. 14.30opnasýningarí
báðum húsunum. Byggðasafnið sýnir
jólasveinana þrettán í gamla hlóðaeld-
húsinu. Skjalasafnið sýnir gömul jóla-
kort. Listasafnið heldur sýningu á verkum
nemenda frá námskeiðum haustsins og
verða grafikmyndirtil sölu þar. í Bóka-
safninu verður einnig sýning á grafíkverk-
um Svövu Sigriöar og eldri útgáfum af
verkum Guðmundar DaníelSsonar, sem
mun árita bók sína á laugardaginn og
verður hún til sölu i safninu. Sýningarnar
verða opnartil kl. 17. Kaffi verðurselt í
Bókasafninu sem einnig sýnir nýjar
jólabækur og verður það opið til útlána.
Lff ogland
Líf og land hafa nú um tveggja ára skeið
beitt sér fyrir almennum umræðum og
opinberum aðgerðum vegna þeirrar
hrikalegu gróðureyöingar sem enn á sér
stað á íslandi. Vegna þess hve ofbeit
búfjár skiptir miklu um eyöingarmátt nátt-
úruaflanna hefur Líf og land lagt áherslu
á friöun landsins fyrir lausagöngu búfjár.
Stjórnvöld virðast nú um það bil vera að
vakna til vitundar um hlutverk sitt í þessu
máli. Líf og land vill nú gefa kjósendum
kost á að taka þátt í baráttunni fyrir þvi
að alþingismenn vakni og hefjist handa.
(þessum tilgangi hafa samtökin nú látið
prenta póstkort sem fólk getur keypt í
bókaverslunum og sent formönnum
þingflokkanna. Á kortin eru prentuð við-
eigandi hvatningaroríitil þeirra. Laugar-
daginn 10. desember kl. 13 til 18 verður
Líf og land með uppákomu í Kringlunni
í Reykjavík til þess að vekja athygli al-
mennings á þessu átaki. Líf og land hvet-
ur fólk til að koma og vera með eða fara
i bókabúðir og taka þátt i baráttunni.
Samhjálparsamkoma
Á sunnudag kl. 20 er Samhjálp með
Samhjálparsamkomu i Hvitasunnukirkj-
unni, Fíladelfíu, Hátúni 2. Dagskráin verð-
ur fjölbreytt að venju. Mikið verður um
söng, almennursöngurog Samhjálpar-
kórinn syngur auk þess sem Guðbjörg
Óladóttir syngur einsöng. Á samkomunni
verður skirnarathöfn og samhjálparvinir
vitna um reynslu sína af trú. Ræðumaöur
samkomunnar er Óli Ágústsson. Sam-
hjálp býður alla velkomna á meðan hús-
rúm leyfir.
Útivera
Hana nú
Vikuleg laugardagsganga Fristunda-
hópsins Hana nú í Kópavogi verður laug-
ardaginn 10. desember. Lagt verðuraf
staðfrá Digranesvegi 12 kl. 10.00. Úr
því myrkriö aftur snýr — ofar færist sól.
Við mætum skammdeginu í góðum fé-
lagsskap í bæjarrölti Hana nú.
Ferðafélag íslands
Á sunnudag kl. 13 verður farin göngu-
ferð út í Geldinganes. Geldinganes er
láglent nes sem gengur út í Kollafjörö.
Eiði tengir það við Gufunes, sem er nes-
ið austur af Viðeyjarsundi, suövestan
Eiðsvíkur. Á18. öld vargeymdur ÍGeld-
inganesi fénaður sem notaður var til að
fóðra fálka konungs á leiðinni til Kaup-
mannahafnar. Öldum saman var það ein
af skyldum (slendinga við konung sinn
að sjá honum fyrir veiðifálkum. Notaði
konungur fálka mjög til gjafa enda þóttu
íslenskir fálkar hinar mestu gersemar. Á
síðustu árum hefur Geldinganes verið
notað til hagbeitarfyrir hesta. Gengið
verður kringum þetta sögufræga nes og
ber þar ýmislegt fyrir augu á þægilegu
rölti. Miðvikudaginn 14. des. veröur
næsta myndakvöld i Sóknarsalnum,
Skipholti 50a. Sýndar verða myndir úr
feröum félagsins.
Útivist
Á sunnudag er létt ganga á dagskrá
Útivistar. Brottförerkl. 13 frá BSf, bensin-
sölu, og veröur ekið áleiðis að Gróttu
og gengið út að vitanum á stórstraums-
fjöru. Síðan verður haldið meðfram
strönd Seltjarnarness, um Suðurnes og
hugað aðfjörumó og fleiru. Heimkoma
er kl. 17. Áramótaferð Útivistar í Þórs-
mörk er 4 dagar með brottför 30. desem-
ber. Nánari upplýsingarfást á Skrifstof-
unni í Grófinni 1.
Viðeyjarferðir
Hafsteinn Sveinsson er með daglegar
ferðir út i Viðey. Fyrsta ferð er fariö kl.
13.00 og er farið á heila tímanum frá
Reykjavík og á hálfa timanum frá Viöey.
Mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga
fer siðasta ferð frá Viðey kl. 18.30 en
aðra daga kl. 23.30. Aukaferðireru farn-
ar meö hópar sem panta sérstaklega.
Kirkjan í Viðey er opin og veitingar fást
i Viöeyjarnausti. Bátsferðin kostar 300
krónurfyrirfullorðna, 100 krónurfyrir
börn að 14 ára aldri en frítt er fyrir börn
5 ára og yngri.
Ýmislegt
Jólasala MHÍ
Hin árlega jólasala Myndlista- og handi-
ðaskóla Islands hófst um síöustu helgi
í turninum á Lækjartorgi. Til sölu eru
ýmsir hlutir unnir af nemendum sjálfum
svo sem piparkökuhús, smákökur, laufa-
brauð, jólakort, kerti, eyrnalokkar, tölur,
slæður, málverk og margt fleira. Jólasal-
an er í umsjá 3. árs nema og rennur
allurágóöi i námsferðen i MHl erára-
löng hefð fyrir utanlandsferð 4. árs nema
áður en hafin er vinna lokaverkefna.
Borgarbúar og aðrir þeir sem leið eiga
um miðbæinn íjólaösinni eru hvattirtil
að líta við. Opnunartímar eru sem hér
segir: Mánud,—fimmtud. kl. 16—18,
föstud. kl. 16—19, laugard. kl. 10—18.