Morgunblaðið - 07.01.1989, Blaðsíða 1
52SIÐUR B OG LESBOK
STOFNAÐ 1913
5. tbl. 77. árg.
LAUGARDAGUR 7. JANUAR 1989
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Deila Bandaríkjanna og Líbýu:
Líbýumenn kveð-
ast búnir undir árás
Bonn, Sameinuðu þjóðunum, París, Washington. Reuter.
LÍBÝUMENN hafa hafnað tillögu stjórnvalda í Vestur-Þýskalandi
þess efnis að alþjóðlegri nefind sérfræðinga verði heimilað að skoða
verksmiðju þá sem Bandarikjamenn fullyrða að Líbýumenn hyggist
nota til að framleiða efhavopn. í dag, laugardag, hefst í París ráð-
stefiia 140 rikja um framleiðslu efhavopna og sagði Eduard Shev-
ardnadze utanrikisráðherra Sovétríkjanna, í gær að atburðurinn
yfir Miðjarðarhafi á miðvikudag er Bandaríkjamenn grönduðu
tveimur líbýskum orustuþotum hefði „eitrað andrúmslofit" ráðstefii-
unnar.
Shevardnadze kvaðst ekki geta
sætt sig við skýringar Bandaríkja-
manna á atburðarásinni en banda-
rískir embættismenn fullyrða að
líbýsku þoturnar hafi verið vopnað-
ar og ógnað tveimur bandarískum
orustuþotum. I gær var birt í Wash-
ington myndbandsupptaka af loft-
bardaganum og sögðu bandarískir
embættismenn að hún sýndi að
önnur þotan hefði verið búin flug-
skeytum. Pulltrúi Líbýumanna hjá
Sþ sagði myndbandið vera fölsun.
Stjómvöld í Bandaríkjunum hafa
ítrekað lýst yfir því að árásin teng-
ist á engan hátt deilu Banda-
ríkjanna og Líbýu vegna byggingar
verksmiðjunnar nærri Trípólí. Líb-
ýskir embættismenn sögðu í gær
að þeir væru undir það búnir að
Bandaríkjamenn gerðu árás á land
þeirra. Dagblaðið Jamahiriya
skýrði frá því að hundruð verka-
manna héldu til í verksmiðjunni og
myndu þeir fúslega „fóma lífi sínu“
ef á þá yrði ráðist. „Við víkjum
ekki og við viljum að arabískt blóð
blandist hér í þessari helgu mold
undir gunnfána Moammars Gadd-
afi,“ hafði blaðið eftir einum verka-
manninum.
Kanadamenn og Bretar hafa
tekið undir það sjónarmið að hugs-
anlegt sé að framleidd verði efna-
vopn í verksmiðjunnni umdeildu.
Eitt hundrað vestrænum blaða-
mönnum var í gær boðið að skoða
verksmiðjuna og héldu þeir frá
Trípólí í tveimur langferðabifreið-
um. Þeir sneru aftur átta klukku-
stundum síðar en í stað skoðunar-
ferðarinnar hafði þeim verið ekið
að fornminjum frá tímum Róm-
veija.
Sjá einnig „Myndbandið tek-
ur . . .“ á bls. 20.
J’V -
... , > - * .:■ ; t*. »*—1
Reuter
Fylgismenn öfgasamtakanna Byltingarráðs Fatah, sem lúta forystu hryðjuverkamannsins illræmda Abu
Nidals, mótmæia árás Bandaríkjamanna á líbýsku orustuþoturnar í Beirút í Líbanon í gær.
Mánuður liðinn frá náttúruhamförunum í Armeníu:
Hjálpargögnum ekki út-
deilt og matvæli skortir
Skjólfatnaður læstur inni í vöruskemmum og söfnunarfé ekki notað
Keyptir til
að hætta
reykingum
Osló. Reuter.
FORRÁÐAMENN norsks
námafyrirtækis hafa afráðið
að verðlauna þá starfsmenn
sem hætta reykingum á ár-
inu. Hafa þeir heitið þvi að
bæta 48.000 ísl. kr. í launa-
umslög þeirra sem sigrast á
tóbaksfikninni.
Talsmaður fyrirtækisins,
sem nefnist Tana Kvartsitt-
brudd, sagði í gær að stjórn-
endur þess hefðu tekið þessa
ákvörðun til að stuðla að bættri
heilsu starfsfólksins, sem
myndi skila sér í fækkun veik-
indadaga. Starfsmenn fyrir-
tækisins eru 21 og af þeim
svæla 16 sígarettur, vindla og
annað það sem að gagni kann
að koma til að svala tóbaks-
fíkninni. Þeir fimm sem ekki
reykja munu einnig hljóta
launauppbótina, að sögn tals-
mannsins, sem bætti við að það
gæti tæpast talist sanngjarnt
að undanskilja þá.
Moskvu, Genf. Reuter.
FATNAÐI og skóm hefiir enn ekki verið dreifit til nauðstaddra
íbúa Armeníu þrátt fyrir að vöruskemmur séu því sem næst
troðfúllar af lijálpargögnum, að því er sagði í frétt í gær í sov-
éska dagblaðinu Sotsíalístítsjeskaja Índustríja. Mánuður er nú
liðinn frá því landskjálftinn mikli reið yfir Armeníu og sagði í
firéttinni að ekki hefði verið hreyfit við fjármunum þeim sem
safiiað hefði verið í Sovétríkjunum til að lina þjáningar íbúanna.
ust af náttúruhamförunum þann
7. desember síðastliðinn og kom
fram í gær að alls hefðu safnast
um 576 milljónir ísl. kr. í reiðufé
og vamingur að verðmæti um
960 milljóna ísl. kr.
„Enn hefur fjöldi fólks, börn
jafnt sem fullorðnir, ekki fengið
hlýjan skjólfatnað og skó. Hins
vegar er nægan fatnað að finna
í hverri einustu vömskemmu í
Jerevan og í jámbrautarvögnun-
um á brautarstöðvunum," sagði
í frétt blaðsins. Margir þeirra sem
komust lífs af hefðu ekki náð að
þrífa með sér skjólfatnað er þeir
flúðu heimili sín og hefðu þeir
orðið að þola kulda og vosbúð í
heilan mánuð. Aætlað hefði verið
að veija þyrfti tveimur milljónum
rúblna (um 160 milljónum ísl.
kr.) til kaupa á skjólfatnaði til
handa öllum þeim sem misst
hefðu heimili sín í náttúmham-
fömnum. Við þetta bættist síðan
að matvæli væm mjög af skorn-
um skammti. Hvatti blaðið til
þess að þegar í stað yrði gripið
til viðeigandi ráðstafna til að
koma í veg fyrir frekari matvæla-
skort.
í frétt Sotsíalístítsjeskaja índ-
ustría sagði ennfremur að ekki
hefði verið hreyft við hundmðum
þúsunda rúblna sem einstakling-
ar og hin ýmsu samtök í Sov-
étríkjunum hefðu gefið til að lina
þjáningar hinna nauðstöddu.
„Hvers vegna liggja hundmð
þúsunda rúblna enn inni á banka-
reikningnum heimsfræga númer
700412? Vissulega hlýtur að
mega nota fijáls framlög þús-
unda einstaklinga og samtaka
þeirra til að aðstoða þann gífur-
Iega fjölda fólks sem á um sárt
að binda sökum jarðskjálftans."
Sagði í fréttinni að embættis-
menn í Armeníu hefðu sagt að
fjármunir þessir yrðu notaðir til
uPPbyggingar á jarðskjálfta-
svæðinu. Þetta fengi hins vegar
ekki staðist þar eð vitað væri að
ráðamenn í Kreml hefðu þegar
ákveðið að milljörðum rúblna yrði
varið í þessu skyni.
Alþjóðasamband Rauða
kross-félaganna í Sviss kynnti í
gær áætlun um byggingu endur-
hæfingarstöðvar og gervilima-
smiðju í Armeníu auk þess sém
ráð er fyrir því gert að fjármun-
um verði veitt til að byggja vöm-
skemmur og bæta samgöngur á
jarðskjálftasvæðinu. Sagði í til-
kynningunni að kostnaður vegna
þessa verkefnis væri áætlaður
um einn milljarður ísl. kr. Al-
þjóðasambandið sendi út beiðni
til aðildarlandanna er fréttir bár-
Híróhító Japans
keisari er látinn
Tókíó. Reuter.
HÍRÓHÍTÓ Japanskeisari and-
aðist í gærkvöldi í keisarahöll-
inni í Tókíó. Fréttin af andláti
keisarans barst laust fyrir
klukkan 23 að ísl. tíma og
skömmu síðar var frá því skýrt
að elsti sonur hans, Akíhitó
krónprins, hefði tekið við keis-
araembættinu.
Híróhító sem var 87 ára að aldri
hafði verið við völd í Japan í 63
ár, lengur en nokkur einvaldur í
veraldarsögunni. Keisarinn veikt-
ist snögglega þann 19. september
síðastliðinn og hafði mjög dregið
af honum undanfama þijá daga.
Banamein hans var krabbamein.
Akíhító krónprins er 55 ára að
aldri en undanfarna fjóra mánuði
hefur hann sinnt störfum keisara.
Híróhító mun upp frá þessu nefn-
ast Showa keisari en svo nefnist
valdatímabii hans (1925-1989).
Showa merkir „upplýstur friður"
og japanska ríkisstjómin mun
síðar ákvarða hvað nefna beri
Híróhító Japanskeisari.
valdaskeið sonar hans. Útför keis-
arans fer ekki fram fyrr en eftir
45 daga en búist er við því að
hann verði lagður til hinstu hvílu
í keisaragrafreitnum í Hachioji
um 35 kílómetra vestur af Tókíó.