Morgunblaðið - 07.01.1989, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JANUAR 1989
7
Formlegar viðræður við EB þeg-
ar jákvæður árangur tryggður
Jón Baldvin sagðist vera sam-
mála Þorsteini Pálssyni um að við-
ræðum við EB bæri að hraða en
það væri ekki sama hvernig þær
bæri að.
Forsætisráðherra hefði nú lagt
fram minnisblað um viðræður sem
hann átti um þessi mál við m.a.
kanslara Vestur-Þýskalands og for-
sætisráðherra Bretlands og Belgíu.
Sjálfur hefði hann rætt við utanrík-
isráðherra ýmissa EFTA-ríkja og
forystumenn jafnaðarmannaflokka
í bæði EFTA og EB-ríkjum. Um
næstu helgi myndi hann síðan nota
tækifærið er hann færi til Parísar
til að undirrita samning um bann
við framleiðslu og sölu á eiturefna-
vopnum, til að ræða við utanríkisrá-
herra Frakklands, Spáns og Portú-
gals. Utanríkisráðherra sagðist
einnig hafa í hyggju að ræða sér-
staklega við forsætisráðherra
Frakklands og Spáns þegar tæki-
færi gæfist til.
Málinu hefði sem sagt verið hald-
ið vakandi og sérstaða íslands verið
skýrð. Taldi hann að málflutningur
Islendinga hefði fengið góðar undir-
tektir þó að björninn væri langt frá
því að vera unninn. Sérstaklega
væri brýnt að fá stuðning hjá
Frakklandi og Spáni sem færu með
formennsku innan EB á sama tíma
og íslendingar og Norðmenn færu
með formennsku innan EFTA. Jón
Baldvin sagðist telja að enginn
ágreiningur væri um hvernig bæri
að halda á málinu, t.d. væri mikil-
vægt að hafa góð samskipti við
hagsmunaaðila hér heima og færi
Magnús Gunnarsson, forstjóri SÍF,
með honum í viðræðurnar þar sem
áherslu ætti að leggja á hagsmuni
íslendinga vegna saltfisksmarkað-
anna.
Hvenær formlegar viðræður við
Evrópubandalagið ættu að heíjast
væri ekki okkar einna að ákveða.
Það ætti líka ekki að gera fyrr en
íslendingar væru vissir um jákvæð-
an árangur úr þeim viðræðum.
Utanríkisraðherra:
JÓN BALDVIN Hannibalsson, utanríkisráðherra, telur að íslending-
ar eigi ekki að hefja formlegar viðræður við Evrópubandalagið fyrr
en öruggt sé að árangur þeirra viðræðna verði jákvæður. Væri nú
unnið að því að kynna málstað íslendinga og undirbúa jarðveginn
fyrir viðræður. Kom þetta fram þegar Morgunblaðið spurði ráð-
herrann álits á þeim orðum Þorsteins Pálssonar, formanns Sjálfstæð-
isflokksins, i áramiíiotagrein í Morgunblaðinu, að formlegar viðræð-
ur við EB ættu að hefjast tafarlaust til að tryggja hagsmuni okkar
innan bandalagsins.
„Ég er þeirrar skoðunar að við-
ræður við Evrópubandalagið hefðu
átt að bytja ekki í gær heldur árið
1986 þegar Þorsteinn Pálsson var
í ríkisstjórn," sagði Jón Baldvin
Hannibalsson, utanríkisráðherra.
„Tilefnið þá til viðræðna var inn-
ganga Spáns og Portúgals í Evrópu-
bandalagið. Norðmenn notuðu sér
þetta tækifæri, hófu viðræður og
fengu viðskiptafríðindi. í staðinn
létu þeir reyndar veiðiheimildir í
Barentshafi en til slíkra eftirgjafa
hafa íslendingar ekki verið reiðu-
búnir. Engu að síður hefðum við
átt að hefja viðræður."
Borgaraflokkur og ríkissljórn:
Formlegar viðræður
hefjast á fóstudaginn
Formlegar viðræður ríkis-
stjórnarinnar við Borgaraflokk-
inn, um aðild að sfjórninni, hefjast
næsta föstudagsmorgun. Formað-
ur Borgaraflokksins segir að
flokkurinn vilji ræða endurskoðun
á allri tekjuöflun ríkissjóðs, sér-
staklega eignarskatti.
Þegar hefur verið skipuð viðræðu-
nefnd Borgaraflokksins, og verður
hún skipuð Júlíusi Sólnes formanni
flokksins, Inga Birni Albertssyni, Óla
Þ. Guðbjartssyni og Benedikt Boga-
syni.
Júlíus Sólnes sagði við Morgun-
blaðið að næsta vika yrði notuð til
að undirbúa þau málefni sem flokk-
urinn vildi ræða. Viðræðurnar væru
þó fyrst og fremst hugsaðar sem
könnunarviðræður og það ætti að
koma fljótt í ljós hvort málefna-
grundvöllur væri fyrir frekari við-
ræðum um að fiokkurinn færi í ríkis-
stjórnina.
Júlíus sagði að niðurstöður við-
ræðnanna yrðu bornar undir aðal-
stjórn og þingflokk Borgaraflokks-
ins, sem myndu taka endanlega af-
stöðu til málsins.
Hlutabréf í fossafélaginu
Titan á uppboði í Noregi
Leikandi og létt! Upplýsingasími: 685111
HLUTABRÉF í fyrirtækjum
sem hætt eru störfúm þykja
yfirleitt lítils virði, en bréfin
sem Magni R. Magnússon
keypti í fossafélaginu Titan um
jólaleytið eru undantekning þar
á, enda merkileg söguleg heim-
ild um merkilegt fyrirtæki.
Bréfin eru frá 1915, en Titan
hafði uppi stórfelldar áætlanir
um virkjun Þjórsár og fleira á
fyrstu áratugum aldarinnar og
var Einar Benediktsson einn
helsti hvatamaður að þvi.
Magni sagðist hafa fýrir tilvilj-
un rekist á tilkynningu í bæklingi
frá norsku uppboðsfyrirtæki þar
sem sagði að fjögur hlutabréf í
Titan yrðu boðin upp og tókst
honum að tryggja sér tvö bréf-
anna í gegnum síma.
Hlutabréfin eru gefin út í
Reykjavík í júlí árið 1915 og eru
skráð á 50 sterlingspund og 900
danskar krónur, sem myndi gera
um 5-6.000 íslenskar krónur mið-
að við gengi í dag, 74 árum síðar.
Magni sagðist hafa fengið bréfin
undir nafnvirði, líklega vegna þess
að norsku seljendurnir hafi ekki
gert sér grein fyrir hvemig þau
tengdust íslenskri sögu, enda texti
þeirra á dönsku og ensku. Annað
bréfið er nú komið í einkasafn
hérlendis, en hitt ætlar Magni
sjálfur að eiga. Bréf Magna er
skráð númer 3503, en hann sagð-
ist ekki vita hve mörg hefðu verið
gefin út, né hvort nokkur slík
bréf séu til á íslandi nú.
Fossafélagið Titan lét norskan
verkfræðing athuga virkjana-
möguleika í Þjórsá árin 1915-’17.
Árið 1927 fékk Titan leyfi til að
reisa 160.000 hestafla aflstöð við
Urriðafoss, en ekkert varð samt
úr framkvæmdum og var ekki
hafist handa við virkjun Þjórsár
fyrr en á vegum Landsvirkjunar
árið 1964 við Búrfell.
Ja.hver
þrefaldur!
Þrefaldur fyrsti
vinningur í kvöld!
Þreföld ástæða
til að vera með!
Morgunblaðið/Bjami
Magni R. Magnússon, safnari og verslunareigandi, með bréfið sem
sannar eign hans í fossafélagi Einars Benediktssonar og fleiri
mannna innlendra og erlendra. Magni á þó litla von á arðgreiðsl-
um frá Titan, þar sem fyrirtækið lagði upp laupana fyrir margt
löngu.
Þannig leit fyrirhuguð virkjun fossafélagsins við Urriðafoss út
á teikniborðinu árið 1918, nær 50 árum áður en hafist var handa
við fyrstu virkjunina í Þjórsá við Búrfell.
Magni er einn af fáum mönnum
hérlendum sem safnar hlutabréf-
um og á hann meðal annars bréf
Islandsbanka. Hann sagði að
menn áttuðu sig oft ekki á sögu-
legu gildi slíkra bréfa og hentu
þeim. „Fólk áttar sig ekki á að
hlutabréf geta orðið verðmæt þó
að fyrirtækin fari á hausinn."
-HÓ
Gódan daginn!