Morgunblaðið - 07.01.1989, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7: JANÚAR 1989
21
Reuter
Gleraugnaslanga í Gorkíj-garði
Sovéskt barn horfir í forundran á styttu af gleraugnaslöngu gerða
úr snjó í Gorkíj-garðinum í Moskvu í gær. Gorkíj, menningar- og
hvíldargarðurinn, var opnaður árið 1928 og hefur ávallt verið mikið
aðdráttarafl fyrir unga sem aldna.
Sovétríkin:
Milljónir manna
fá uppreisn æru
Moskvu. Reuter.
SOVESKIR baráttumenn fyrir mannréttindum fögnuðu í gær tilskip-
un frá Kreml, þar sem lýst er yfir að flestöll fórnarlömb hreinsana
á Stalínstímanum, milljónir manna, fái uppreisn æru.
Samkvæmt tilskipuninni, sem
birt var í Prövdu, málgagni komm-
únistaflokksins, í gær verður flest-
öllum dauða- og þrælkunardómum
„sérstakra" dómstóla frá því á
fjórða áratugnum og þar til Stalín
lést árið 1953 hnekkt. Þessum dóm-
stólum var komið upp á fjórða ára-
tugnum til að dæma milljónir
manna, sem sakaðir voru um
Sprengingin um borð í breiðþotu Pan Am yfir Skotlandi:
Faldi starfemaður á Heath-
row sprengjuna um borð?
skemmdarverk eða sagðir „óvinir
alþýðunnar," og tóku réttarhöldin
oft ekki nema mínútu. Öndvert við
sýndarréttarhöldin, þar sem hátt-
settir embættismenn og herforingj-
ar voru dæmdir, var almúginn leidd-
ur fyrir þessa dómstóla. I tilskipun-
inni, sem verður að lögum eftir að
forsætisnefnd Æðsta ráðsins hefur
staðfest hana, eru þessir dómstólar
sagðir ólöglegir.
„Með þessari mikilvægu ákvörð-
un er óteljandi alþýðumönnum fært
réttlæti með einu pennastriki,"
sagði rithöfundurinn Anatolíj Ryb-
akov, höfundur vinsællrar skáld-
sögu um Stalínstímann en hann var
sjálfur dæmdur í útlegð á Stalíns-
tímanum.
Mörgum af háttsettu embættis-
mönnunum, sem dæmdir voru á
Stalínstímanum, hefur verið veitt
uppreisn æru, annaðhvort á valda-
tíma Khrústsjovs eða síðan Míkhaíl
Gorbatsjov komst til valda árið
1985. Gorbatsjov setti á fót nefnd
í stjómmálaráði kommúnistaflokks-
ins til að fjalla um fómarlömb ógn-
arstjómar Stalíns en sovéskir emb-
ættismenn segja að hún hafi fengið
svo mikið af sönnunargögnum og
upplýsingum úr skjalasöfnum og
frá almenningi að ógjörningur hafi
verið fyrir hana að kanna sérhvert
mál. „Eina leiðin var að veita öllum
fjöldanum uppreisn æru,“ sagði
Arkadíj Vaksberg, félagi í Minnis-
varða-hrejrfingunni, sem stofnsett
var til að halda uppi minningu fóm-
arlamba Stalíns.
Bonn. Reuter.
BREZKIR sérfræðingar telja nú liklegast að starfsmaður á Heat-
hrow-flugvellinum í London hafi laumað sprengju um borð í breið-
þotu Pan Ameriean-flugfélagsins, sem splundraðist er hún var á
flugi yfír Suður-Skotlandi 21. desember sl.
Heimildarmenn innan vestur-
þýzku leyniþjónustunnar sögðu í
gær, að brezku rannsóknaraðilarnir
teldu líklegt að sprengjan hafi verið
falin við op fremri farangurslestar
þotunnar, svo til beint undir flug-
stjóraklefanum.
Þýzku leyniþjónustumennirnir
sögðu einnig að brezku rannsóknar-
aðilarnir væm nú svo gott sem
komnir á þá skoðun, að sprengjan
hafi ekki farið um borð í flugvél
Pan Am í Frankfurt í Vestur-
'Þýzkalandi. Brezk blöð höfðu skýrt
frá því að nær ömggt þætti, að
sprengjan hefði verið í farangri,
sem kom um borð í Boeing-727
þotu Pan Am í Frankfurt, og var
írak:
Hussein sakar Irani
um liðsflutninga
til landamæranna
Bagdad. Reuter.
SADDAM Hussein íraksforseti
sakaði írani í gær um að safiia
miklu herliði á landamærum
ríkjanna og sagði hættu á því að
Persaflóastríðið gæti blossað
upp að nýju. Hussein sagði að
íranir virtu að vettugi samþykkt
Sameinuðu þjóðanna nr 598, um
frið milli stríðandi aðila við
Persaflóa, og sakaði írani um
skort á samningsvilja.
„Við ráðum írönskum valdhöfum
frá því að auka liðsstyrk sinn á
landamæmm ríkjanna...,“ sagði
Hussein í gær í ávarpi sem flutt
var í útvarpi og sjónvarpi. „Við
lítum ekki á aukinn herstyrk á
landamærunum sem leik í pólitísku
tafli heldur teljum við það raun-
vemlega ógnun og merki um
stríðsvilja Irana,“ sagði Hussein
ennfremur.
Hussein hvatti arabaþjóðir, sem
stutt hafa íraka í Persaflóastríðinu,
til að láta ekki af þeim stuðningi.
Þá veittist Hussein að Sýrlending-
um. Hann gagnrýndi þá fýrir stuðn-
ing þeirra við írani í Persaflóastríð-
inu og sagði að vera sýrlensks her-
liðs í Líbanon hefði bætt gráu ofan
á svart.
Nefnd á vegum SÞ hefur sakað
íraka um að hafa beitt efnavopnum
í Persaflóastríðinu og Bandaríkja-
menn halda því fram að þeim hafi
verið beitt gegn Kúrdum búsettum
í írak í júlí á síðasta ári.
Hussein sagði í gær að írakar
væm hlynntir Genf-sáttmálanum
frá 1925, sem kveður á um bann
við notkun efnavopna. „írakar
leggja áherslu á aðild sína að Genf-
sáttmálanum en siðferðilegt og
lagalegt samþykki okkar þýðir þó
ekki að við teflum öryggi landsins
í tvísýnu,“ sagði Hussein.
síðan fluttur í Boeing-747 þotuna
á Heathrow. Þýzku leyniþjónustu-
mennimir sögðu að ef sprengjan
hefði verið falin í ferðatösku hefði
hún vegið allt að 30 kíló. Töskur
af því tagi hefðu ekki farið í fremra
hólfið. Þangað hefðu aðeins verið
settar töskur sem vom undir 20
kílóum að þyngd. Þess vegna beind-
ist gmnur manna að því að sprengj-
an hafí verið falin í veggjum við
lestaropið.
Þota Pan Am sprakk tæpri
klukkustund eftir brottför frá Heat-
hrow á leið til New York. Þotan
var af gerðinni Boeing-747 og með
henni vom 259 menn, sem allir biðu
bana. Einnig fómst 11 íbúar í bæn-
um Lockerbie í Suður-Skotlandi er
brak úr þotunni hrapaði til jarðar
þar.
Yasser Arafat, leiðtogi Frelsis-
samtaka Palestínumanna (PLO),
sagðist í gær búa yfir mikilvægri
vitneskju um sprenginguna í Pan
Am-þotunni. Hann útskýrði málið
ekki frekar í yfirlýsingu, sem hann
afhenti blaðinu al-Madinah í Jedda,
en sagðist vinna að því í samvinnu
við Bandaríkjamenn og ríki í Vest-
ur-Evrópu að ljóstra upp um spell-
virkjana.
Reuter
Vopn gegn stjórnleysi
íkjölfar kjarnorkustyrjaldar
Lögreglumaður skoðar byssur sem ástralska lögreglan gerði upptækar
í gær. Ástrali nokkur safnaði 34 byssum og 45.800 skothylkjum til
að vera við öllu búinn færi svo að hann kæmist lífs af eftir kjarnorku-
styijöld. Maðurinn vildi ekki vera óvopnaður í stjómleysinu sem hann
taldi fylgja í kjölfarið.
Bolholti 6.
Símar 68 74 80 og 68 75 80
Fjölbreytt námskeiðahald fyrir alla hefst í næstu viku.
Hvaða hópur hentar þér?
Umboðsmaöurá
ísiandi:
1 2 3 4
Ungar konur Ungar stúlkur og Bjóöum fyrirtækjum Sérhópar
ó öllum aldri piltar 13-16 ára námskeiö fyrir Starfshópar
Snyrting Hárgreiðsla Spyrting starfsfólk sitt Framkoma Saumaklúbbar
Framkoma Framkoma Kurteisi
Borðsiðir Fataval Símaþjónusta Snyrting
Fataval Hreinlæti Hreinlæti Framkoma
Hreinlæti Borðsiðir Klæðnaður Borðsiðir
Gestaboð Mannleg samskipti Snyrting Gestaboð
Mannleg samskipti Ganga Mannleg samskipti Mannleg samskipti
5 6 7 8
Nýtt - Nýtt Stutt Herrar á öllum Módelnámskeiö
snyrtinómskeiö aldri fyrir veröandi
Framkoma sýningarfólk
1. Föt og förðun Litgreining Litakort 2. Andlitssnyrting Handsnyrting Húðhreinsun Andlitssnyrting Fataval Hreinlæti Snyrting Hárgreiðsla 1. Ganga Snúningaro.fl. Sviðsframkoma o.fl.
Litakassar Borðsiðir
Mannleg samskipti Ganga 2. Upprifjun framhald
Unnur Arngrimsdóttir.
framkvæmdastjóri.
/«n\
FIMAr
Innritun alla daga ísímum 687480 og 687580 frá kl. 16-19.
Unnur Arngrímsdóttir, sími 36141.
'ssssr
Alþjóðleg umboðsskrifstofa.