Morgunblaðið - 25.01.1989, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 1989
Viðræður Borgaraflokks og ríkisstjórnar:
Vinnuhópar um
einstök atriði
Tvær vikur til stefnu, segir Júlíus Sólnes
FULLTRÚAR Borgaraflokksins og stjómarflokkanna funduðu í gær
um hugsanlega aðild Borgaraflokksins að ríkisstjóminni. Þar var
ákveðið að setja á laggirnar vinnuhópa til að ræða um einstök atriði
í kröfum Borgaraflokksins. Júlíus Sólnes, formaður Borgaraflokks-
ins, segist enn telja um helmings líkur á að flokkurinn gangi inn
I stjórnina, en tíminn, sem menn hafí til að ákveða sig, takmarkist
við þessa og næstu viku.
„Það var farið ýtarlega yfír út-
reikninga Þjóðhagsstofnunar og
hagdeildar flármálaráðuneytisins á
tillögum okkar og þær ræddar fram
og aftur," sagði Júlíus. „Við vörp-
uðum fram ýmsum tillögum sem
hugmyndum án þess að standa
mjög stíft á þeim. Sumar eru þess
eðlis að þar er horft til framtíðar,
en á öðrum málum viljum við að
verði tekið strax," sagði hann og
nefndi sérstaklega afnám sölu-
skatts á matvæli.
í dag munu þeir hittast, Júlíus
og Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra til þess að skipu-
leggja starf vinnuhópanna. „Við
leggjum allt kapp á að fá botninn
í þetta, við höfum þessa og næstu
viku til þess að leiða viðræðumar
til lykta að mínu mati.“
„Árangurinn af þessum fundi
var nokkuð góður," sagði
Steingrímur Hermannsson, forsæt-
isráðherra. Hann sagðist telja að
stjómarflokkamir og Borgara-
flokkur hefðu tvímælalaust nálg-
ast. Steingrímur sagði að umræður
um efnahagsmál í ríkisstjóminni
tækju enn sem komið væri ekki
mið af viðræðunum við Borgara-
flokk. „Ef þetta fer eitthvað að
nálgast, verður það auðvitað rætt
við Borgarflokk sérstaklega," sagði
Steinrímur.
VEÐUR
/ DAG kl. 12.00:
Heimiid: Veðurstofa íslands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær)
VEÐURHORFUR í DAG, 25. JANÚAR
YFIRLIT í GÆR: Hægfara lægð 6 Grænlandshafi, en efnileg lægð
suðvestur í hafi ó ieið norðaustur, verður hún sennilega milli ls-
lands og Færeyja á Föstudag.
SPÁ: Sunnan 4-6 vindstig og slydduél ó Suður- og Vesturlandi.
Þurrt ó Noröur- og Norðausturlandi. Hiti nálægt frostmarki.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á FIMMTUDAG: Breytileg ótt og hiti nálægt frostmarki.
Úrkomulítið á Austfjörðum og Suðausturlandi, en víða ól annars
staðar
HORFUR A FÖSTUDAG: Norðaustanátt og hiti um eöa rótt undir
frostmarki. Snjókoma eða slydda um norðan- og austanvert landið,
en sennifega þurrt á Suðvesturiandi.
TÁKN:
y, Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
r r r
r r r r Rigning
r r r
* r *
r * r * Slydda
r * r
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
10° Hitastig:
10 gráður á Celsíus
V Skúrir
V Él
= Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—|- Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gœr að ísl. tíma
Akureyrl Reykjavlk hltl +2 2 vaóur snjóól skúr
Bargen 8 súld
Helsfnkl +1 skýjaó
Keupmannsh. 7 þokumóða
Narsserssuaq +12 snjókoma
Nuuk +1« helðskfrt
Osló 0 þoka
8tokkhólmur Þórshöfn 6 akýjað rignlng
Algarve 14 lóttskýjað
Amsterdam 0 þoka
Barcelona 12 mlstur
Berlln 4 mlstur
Chlcago 2 þokumóða
Faneyjar 8 helðskfrt
Frankfurt 0 þokumóða
Qiasgow 10 skýjað
Hamborg 6 þokumóða
Las Palmaa 21 helðskfrt
London 7 skýjað
Loa Angeles 8 helðskfrt
Lúxemborg +1 skýjað
Madrid 8 léttskljaS
Malaga 14 skýjað
Mallorca 16 téttskýjað
Montreal 4« skýjað
New Vork 0 Mttskýjað
Ortando 11 skýjað
París 0 alskýjað
Róm 13 helðskírt
San Oiego 12 *ký|«*
Vfn 4 mlstur
Washlngton 0 mlstur
Winnlpeg +24 heiðskfrt
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Tafír í innanlandsfíugi
Miklar tafír hafa verið í innanlandsflugi Flugleiða frá þvi á sunnu-
dag og í gærmorgun biðu um 1.600 farþegar eftir flugi. Um
hádegið höfðu flestir komist leiðar sinnar en aflýsa varð flugi
til ísaQarðar, þar sem flugvellinum var lokað vegna veðurs.
Lánskjaravísitalan
verður samningsatriði
- segir Björn Grétar Sveinsson
„Ég lft þannig á, að fyrst rfkisstjórain er nú farin að hringla f láns-
kjaravísitölunni, hljóti hún að vera samningsatriði f næstu samningum.
Nú er búið að opna allar þessar reglur og nú hlýtur verkalýðshreyfing-
in f framtfðinni að reyna að hafa í samningum áhrif á hvernig þau
mál þróast," sagði Björa Grétar Sveinsson, formaður verkalýðsfélags-
ins Jökuls á Höfn f Horaafirði spurður álits á breytingum á grund-
velli lánskjaravísitölunnar.
„Fyrir mér er lánskjaravísitalan
ekki heilög. Helst hefði ég viljað sjá
hana fara til íjandans og það væru
ákvarðaðir naftivextir af Alþingi og
ríkisstjóm. Þetta heitir miðstýring á
íslensku," sagði Bjöm Grétar enn-
fremur. Hann sagðist telja það sjálf-
sagt að verkalýðshreyfíngin tæki
þetta efnisatriði til athugunar í
samningum, sem og önnur. Eins og
allir vissu reyndi verkalýðshreyfíngin
að hafa áhrif á aðgerðir ríkisvaldsins
í ýmsum efnum og þetta væri bara
hluti af því.
„Nei, ég tel að þama sé komin
flötur sem auðveldi samninga. Þama
emm við komnir með verslunar-
vöm,“ sagði hann aðspurður. „Þessi
breyting nú, eins og hún er gerð,
kemur sér ágætlega fyrir skuldara,
sem em nú því miður flestir félagar
í verkalýðshreyfingunni. Við hljótum
að reyna að hafa áhrif á það, ef við
náum fram einhverri kaupmáttar-
aukningu, að það rústi ekki fólk hvað
snertir skuldabyrði. Mér þykir menn
gera dálítið mikið úr því að þetta
komi til með að torvelda kjarasamn-
inga, vegna þess að þeir sem hafa
verið við gerð þeirra, hafa verið með
þennan söng í eyrunum, eins og láns-
kjaravísitalan var. Það sé verið að
semja þannig að skuldir hækki og
svo framvegis. Þetta er ekki nýr
söngur, plötunni var bara snúið við.“
Tilræði við launþega
- segir Magnús L. Sveinsson, formaður VR
„Þessi ákvörðun ríkisstjóraarinnar er auðvitað mjög alvarleg fyrir
launamenn í landinu og þá alveg sérstaklega fyrir þá sem era á um-
sömdum launatöxtum á bilinu 33-50 þúsund krónur. Allar hækkanir á
töxtum eins og þessum munu hafa bein áhrif á skuldir til hækkunar,"
sagði Magnús L. Sveinsson, formaður Verslunarmannafélags
Reylq'avíkur.
„Það er augljóst að með þessu er
verið að fæla launþega frá því að
leita eftir leiðréttingu á launatöxtum
sfnum. Þetta kemur til viðbótar því
að ríkisvaldið hefur gengið lengra
en nokkum óraði fyrir í að skerða
kaupmátt launa og einnig með meiri
skattaálögum en áður hafa þekkst.
Það er fráleitt að stilla dæminu þann-
ig upp að fái fólk leiðréttingu á laun-
um sínum, hækki allar skuldir í
landinu. Ég vek sérstaka athygli á
því að þetta gerir ríkissfjómin rétt
um það bil sem launasamningar
verða lausir og heimilt verður að
semja um nýja launataxta þegar lög-
in falla úr gildi. Þetta er eitt tilræð-
ið enn við kjör launþega í landinu,"
sagði Magnús.
Hann sagði að það væri augljóst
að með þessu væri einnig verið að
reyna að blekkja varðandi verðbólg-
una í landinu, því hún reiknaðist
minni samkvæmt nýju vísitölunni,
en þeirri aðferð sem farið hefði verið
eftir fram að þessu.
Hann sagðist gera ráð fyrir að
þetta ætti eftir að vekja hörð við-
brögð verkalýðshreyfíngarinnar, því
þessi ákvörðun væri mjög alvarleg
aðför að henni. „Verkalýðshreyfíngin
hlýtur að verða að skoða það vel
hvemig hún geti hmndið þessari
ákvörðun," sagði Magnús.
Margar hliðar á málinu
- segir Petur Signrðsson, forseti ASV
„Mér sýnist í þessu máli eins og öllum öðrum að það eru tvær, þijár
eða Qórar hliðar, eftir því hvaðan menn líta til þess. Ég veit ekki
hveijum á að trúa og hveijum ekki,“ sagði Pétur Sigurðsson, forseti
Alþýðusambands VestQaröa, aðspurður um breytingar á grundvelli
lánslgaravfsitölunnar.
Hann sagði að ykist öll launa-
fúlgan í landinu án þess að þjóðar-
tekjumar ylcjust, þýddi það bara
verðbóigu. Vandi verkalýðshreyfing-
arinnar væri sá að ef menn vildu
halda þessu jafnvægisástandi í þjóð-
félaginu sem nú ríkti að því er virt-
ist, þýddi það að ekki væri hægt að
hækka heildarlaunasummuna mikið,
heldur þyrfti að jafna út tekjum, því
stórir hópar væm með of lágar tekj-
ur miðað við það sem gæti talist
eðlilegt.
Pétur sagði að sér fyndist verka-
lýðshreyfingin hafa í raun og vem
markað þá stefnu á síðasta ári að
tilraun yrði gerð til þess að ná tökum
á verðbólgunni. Það hefði tekist að
verulegu leyti, að hans mati, en hitt
væri annað mál að uppgjör milli
hinna ýmsu þjóðfélagsaðilja hefði
ekki farið fram. „Þetta uppgjör sem
á eftir að eiga sér stað er stóra
málið. Það hefði átt að gerast í fram-
haldi af samningunum á síðasta ári,
en átti sér aldrei stað,“ sagði Pétur.