Morgunblaðið - 25.01.1989, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 1989
Stakfell
Faste/gnasa/a Suður/andsbraut 6
687633
Einbýlishús
NJÁLSGATA
Timburh. kj., hœð og ris 132 fm. Nýtt
járn á þaki. Allar raf-, vatns- og skólp-
lagnir nýjar. Einstaklingsíb. í kj. Verö
6,7 millj.
ÁLFTANES
143 fm einbhús á einni hœö meö 42
fm bílsk. Timburhús. Skilast fullb. að
utan, tilb. u. tróv. að innan. VerÖ 7,5
millj.
Raðhús og parhús
SEUABRAUT
Endaraðh., kj., hœð og ris. Sór 3ja herb.
íb. í kj. Húsið er 190 fm. Bflskýli. Verö
8,7 millj.
Hæðir
GNOÐARVOGUR
Falleg efsta hœð I fjórbhúsl um 100 fm
nettó. Stórar suðursv. Mjöfl gott út-
sýni. Verð 6,5 millj.
4ra herb.
HAALEITISBRAUT
Góð íb. á 4. hœð i fjölbhúsi 101,7 fm
nettó. Suðursv. Vandaöar innr. Parket.
Góöur bflsk. Fallegt útsýni. Ve/Ö 6,5
millj.
SNÆLAND
Falleg íb. ó efri hœö 106 fm. Góöar
innr. 3 svefnherb. 16 fm aukaherb. ó
jarðh. m. sameiginl. snyrtingu. Þvotta-
herb. í íb. Stórar suðursv. Verö 6,7 millj.
ÆSUFELL
105 fm endaíb. ó 6. hœö í lyftuhúsi.
Góðar stofur, 4 svefnherb. Glœsil. út-
sýni. Mjög góö og mikil sameign. Hús-
vöröur. Verö 5,5 millj.
3ja herb.
MEÐALHOLT
Góö efri hœö í tvíbhúsi 74,1 fm. Saml.
stofur og eitt herb. eöa stofa og tvö
herb. Aukaherb. meö sameiginl. snyrt-
ingu í kj. Nýtt gler. Laus strax. Verð
4,7 millj.
VALLARÁS
Nýjar 3ja herb. fbúöir um 85 fm. íbúðirn-
ar eru langt komnar. Verða afh. m. innr.
og tœkjum eftir 4-5 jnán. Verö 5,3
millj., auk bflskýlis.
VINDÁS
Falleg 3ja herb. íb. á efstu hæð. Fullb.
eign með góðum innr. og bílskýli. Verð
5.4 millj.
VÍKURÁS
Ný 3ja herb. íb. ó 2. hœð í fjölbhúsi.
Laus fljótl. VerÖ 5,3 millj.
SIGTÚN
Gullfalleg kjfb. f fjórbhúsi 80,2 fm nettó.
Vandaðar innr. Parket. Nýjar hitalagnir
og ofnar. Sérhiti. Nýjar raflagnir. Verö
4,9 millj.
LAUGATEIGUR
Kjíb. í fjórbhúsi 75,1 fm enttó. Nýtt
þak. Ákv. saia. Laus strax. Verö 3,7
millj.
NÝBÝLAVEGUR
Falleg 3ja herb. (b. á 1. hæð I stelnh.
76 fm nettó. Sérþvottah. 28 fm bílsk.
Áhv. nýtt húsnstjlán 1670 þús. Verð
5.5 millj.
2ja herb.
BOÐAGRANDI
Falleg 2ja herb. Ib. á 1. hæð 53 fm
nettó. Góð sameign. Sérgarður. Nýl. fb.
Verð 3,9 millj.
VALLARÁS
Nýjar og fallegar fullb. fbúöir til afh.
eftir 4-5 mán. Verö 3,7 millj. ón bílskýlis.
VINDÁS
Ný 2ja herb. íb. ó 3. hœð. Áhv. um 1
millj. f húsnstjlóni. Verð 3,7 millj.
VALLARÁ
Nýjar fullb. einstaklíb. Húsnstjlón fylgja
íb. Verð 2950 þús.
BREKKUSTÍGUR
Falleg 2ja-3ja herb. ib. á jarðh. I
tvíbhúsi. Sérinng. Sérþvottah. Falleg
eign. Verð 3,5 millj.
AUSTURSTRÖND
2ja herb. íb. ó 5. hœö í fjölbhúsi. Bflskýli.
Til afh. fljótl. Áhv. byggingasj. 1,3 millj.
Verð 4,3 miilj.
KEILUGRANDI
Gullfalleg 65 fm fb. ó 2. hœö. Vandaöar
innr. Parket. Gott bflskýli. Verð 4,6 millj.
FRAMNESVEGUR
Einstaklíb: ó 2. hœö í steinh. Sórinng.
Ákv. sala. Verö 2,1 millj.
UGLUHÓLAR
Falleg íb. ó jarðhœö 54,1 fm meö sór-
garöi. Rúmg. sóreldhús. Góö sameign.
Falleg eign. Verö 3,4 millj.
UÓSHEIMAR
Snotur íb. ó 8. hœö í lyftuh. 47,6 fm
nettó. Gott útsýni. Verö 3,4 millj.
HRAUNBÆR
Falleg 2ja herb. íb. ó jaröh. Parket.
Verö 3,3 millj.
HÁALEITISBRAUT
Björt kjíb. í fjölbhúsi. 51,6 fm nettó.
Lítiö niðurgr. Góö sameign. Verö 3,2 m.
Jónas Þorvaldsson,
Gisli Sigurbjörnsson,
Þórhildur Sandholt. lögfr
Blómlegt andlegt líf er forsenda
góðs efiiahags og bættra stjómmála
eftir Pál Skúlason
Árið 1970 ákvað Alþingi að
íslenska þjóðin skyldi reisa sér hús
sem yrði miðstöð upplýsingar og
andlegs lífs í landinu. Þar yrði
starfsaðstaða fyrir um 800 gesti til
að sinna andlegum efnum varðandi
allar hugsanlegar greinar mannlífs-
ins. Allt markvert sem hefði verið
hugsað, sagt og skrifað um náttúr-
una, söguna, atvinnuhættina, lögin,
stjómmálin, viðskiptin, listimar,
tæknina og trúarbrögðin, skjótt frá
að segja: tilvemna alla saman, yrði
þar gert aðgengilegt almenningi,
námsmönnum og fræðimönnum til
athugunar og úrvinnslu. Þetta hús
skyldi verða sannkölluð uppeld-
ismiðstöð íslensku þjóðarinnar,
ræktunarstöð þeirrar þekkingar
sem gerir fólk hæft til að takast á
við þau lífsverkefni sem blasa við;
afla lífsgæða og skipta þeim á milli
sín, leysa sameiginleg hagsmuna-
mál, móta samlíf sitt í háskalegum
heimi.
Nú stendur þetta hús fullbúið að
utan en tómt að innan á Melunum
þar sem fólk hrópaði fyrir skömmu
hvatningarorð til fótboltamanna.
Þessi tómleiki hefur nú þegar vakið
djúpstæðar efasemdir t bijóstum
fólks. Það er ekkert líf og fjör á
melnum; þar er ekkert um að vera.
Völlurinn, þar sem átti að heyja
baráttuna fyrir viðreisn andlegs lífs
í landinu, er ekki orðinn að veru-
leika, umgjörðin ein er risin. Og
hún hýsir aðeins eitt; tómleikann í
þjóðarsálinni.
Tómleikinn lýsir sér fyrst og
fremst í leiðindum; og leiðindin
bijótast fram í hvers kyns uppá-
tækjum og vitleysu sem valda
ómældri þjáningu, sektarkennd og
jafnvel örvæntingu. Fólk kann þá
ekki fótum sínum forráð, heldur
sveiflast til eftir því hvemig vindar
blása og veit að lokum ekki sitt
ijúkandi ráð.
Tómleikinn felur í sér andlegan
dauða. Hann er grafhýsi hugsjón-
anna, sem eiga að lýsa upp veruleik-
ann og sýna okkur hvað er raun-
verulega þess virði að gera. Verði
hugsjónimar tómleikanum að bráð
missum við sjónar á því sem gefur
lífinu gildi. Missum við sjónar á
gildi lífsins, höfum við engar for-
sendur til að setja okkur markmið
og taka ákvarðanir. Þá verðum við
Þjóðarbókhlaðan.
skeytinarlaus í hugsun og hegðun,
gerum eitt í dag og annað á morg-
un uns ruglið og bægslagangur
byrgja okkur endanlega sýn á heim-
inn; þá myrkvast veröldin öll eins
og hún leggur sig í efnalegu sem
andlegu tilliti.
Hugsjónin um sjálfstætt menn-
ingarríki er eina ljósið sem við höf-
um til að lýsa upp þann vanda sem
við stöndum frammi fyrir sem ein
þjóð. Ef við skeytum ekki lengur
um þessa hugsjón, þá missum við
sjónar á þeim verkefnum sem við
þurfum að sinna í daglegum störf-
um, og klúðrum þar með lífi okkar.
Þess vegna er andleg viðreisn eina
von okkar.
Andleg viðreisn felst í því að sigr-
„Nú stendur þetta hús
fúllbúið að utan en tómt
að innan á Melunum þar
sem fólk hrópaði fyrir
skömmu hvatningarorð
til fótboltamanna. Þessi
tómleiki hefur nú þegar
vakið djúpstæðar efa-
semdir í brjóstum
fólks.“
ast á leiðindunum, fylla tómarúmið
af því sem gerir lífið raunverulega
spennandi og skemmtilegt og kenn-
ir okkur að takast á við verkefni
hversdagsins af öllum lífs- og sál-
arkröftum, í anda þeirra dygða sem
þurfa að prýða einstakling og þjóð,
eigi þeim vel að farnast: hófsemi,
hugrekki, sanngimi og viska.
Eram við menn til að lifa eftir
þessum sjálfsögðu sannindum, eða
ætlum við að láta leiðindin enn um
stund draga okkur á asnaeyranum
og veifa framan í okkur þeirri
blekkingu að við höfum ekki efni á
þvf sem við þörfnumst mest, svo
að andlegt líf megi blómstra í
landinu, nefnilega Þjóðbókasafii?
Höfundur er prófessor við Hi-
skóla íslands.
Hugsanlegt að verðleggja greiðslu-
miðlun í samræmi við kostnað
- segir viðskiptaráðherra
„ÉG TEL að ein af þeim leiðum,
sem til greina komi við að draga
úr vaxtamun bankanna, sé að
verðleggja sérstaklega þá þjón-
ustu sem ekki tengist beinlinis
lánsviðskiptum, það er að segja
greiðslumiðlun og slíka þjónustu,
á grund velli kostnaðar sem henni
er samfara," sagði Jón Sigurðs-
son, viðskiptaráðherra, í samtali
við Morgunblaðið.
„Ég hef meðal annars falið nefnd
að kanna vaxtamun í íslenska
bankakerfinu," sagði Jón. „En auð-
vitað þarf að huga beinlínis að því
að auka hagkvæmni í rekstri banka
og leita spamaðarleiða, bæði innan
þeirra banka sem nú starfa og með
samrana banka. Einnig kemur til
greina að rýmka reglur um erlenda
lánastarfsemi hér á landi,“ sagði
Jón Sigurðsson.
í fréttatilkynningu frá Sambandi
íslenskra viðskiptabanka segir með-
SVERRIR KRISTJÁNSSON
HÚS VERSLUNARINNAR 6. HÆÐ
BALDVIN HAFSTEINSSON HDL.
FASTEIGN ER FRAMTIÐ
Laugateigur - sérhæð
Til sölu 125 fm nettó hæð og ris. Á hæðinni er for-
stofa, hol, baðherb. með sturtu, svefnherb., stórar stof-
ur og eldhús. í risi (undir súð) eru 3 svefnherb. og
snyrting.
í Hafnarfirði
- iðnaðar- eða verslunarhús
Á besta stað miðsvæðis í Hafnarfirði ca 485 fm hús á
einni hæð á stórri hornlóð. Byggingarréttur. Laust
fljótt.
Heiidsala - smásala
Til sölu fyrirtæki sem er í innflutningi með heild- og
smásölu. Flytur inn mjög þekkt merki í fatnaði. Fyrirtæk-
ið á 83 fm mjög gott nýtt húsnæði á jarðhæð með
góðri aðkomu. (Þetta húsnæði er hægt að selja sér).
Einnig gott verslunarpláss í landsþekktu verslunarhúsi
þar sem hæglega má hafa tvær aðskildar verslanir.
Nánari uppl. á skrifst.
Sjáið fleiri auglýsingar f sunnudags-
biaðinu um margar góðar eignir
íöurinn
Hatiwslr 20. s. 2M»
JNýia húsinu >ié Lafciartorfl)
Brynjar Fransson, sfmi: 39558.
26933
Rauðás. Nýl. 2ja herb. íb. é jarðh.
Laus strax. Verð 3,3-3,4 millj. Góð kjör.
ÁsbÚð. 2ja herb. 60 fm (b. á jaröh.
í nýl. húsi. Laus strax.
Ódýrt einbýli. Tíl sölu 80 fm einb-
hús (timburhús) í Hafnarf. Verð 3,0-3,3
millj. Laust strax.
Engihjalli. Falleg 3ja herb. (b. Nýtt
parket.
Fannafold. 3ja herb. 74 fm ib. i
parhúsi. Fokh. Frág. aö utan.
Fannafold - Parhús. 4ra herb.
íb. I parhúsi með bilsk. Samtals 125 fm.
Fokh. Frág. að utan.
Vesturberg. Mjög góð 4ra herb. íb.
á 1. hæð. Sérþvhús. Ákv. sala.
Hvassaleiti. Góð 4ra herb. 100 fm
íb. á 2. hæð. Suöursv.
Kópavogsbraut. Glæsil. sérhæö
(jaröhæð) ca 120 fm.
Leifsgata. Efri hæð og ris um 140
fm. Ib. er mikið endurn. t.d. eldh., bað-
herb., gólfefni og þak hússins. 35 fm
bílsk. fylgir. Laus fljótl. Verð 8,5 millj.
Laugarásvegur. Giæsii. einbhús
kj. og tvær hæðir auk bílsk. Samt. um
290 fm.
Skúli Sigurðsson, hdl.
al annars: „Það er staðreynd að
íslenskar innlánsstofnanir stunda
umfangsmeiri greiðslumiðlun en
víðast annars staðar og að tékka-
notkun á íslandi er margföld á við
það sem tíðkast t.d. á Norðurlönd-
unum. Það er líka staðreynd að
þessi þjónusta er ekki verðlögð í
samræmi við það sem hún kostar.
Væri verðlagning raunhæf væri
hægt að lækka vaxtamun.
Hörðustu andstæðingar þess að
bankar hér á landi verðleggi þessa
umfangsmiklu þjónustu í samræmi
við kostnað hafa einmitt verið
stjómvöld sem með beinum eða
óbeinum hætti hafa lagt hart að
bönkum að hækka ekki þjónustu-
gjöld gegnum tíðina og jafnvel beitt
þrýstingi til að slíkar hækkanir
væra dregnar til baka."
Hjónanám-
skeið í
Seljakirkju
Hjónanámskeið verður haldið i
Seljakirkju laugardaginn 28. jan-
úar nk. Námskeiðið stendur frá
kl. 13.00 til 19.00 e.h. og er í formi
fyrirlestra og verkefhavinnu.
Námskeið sem þetta hafa verið
haldin víða um land og í söfnuðum
á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Leið-
beinendur á námskeiðinu era þeir
sr. Birgir Ásgeirsson, sr. Jón Dalbú
Hróbjartsson og sr. Þorvaldur Karl
Helgason. Það skal tekið fram að
námskeiðið er bæði ætlað hjóna-
bandsfólki og fólki í sambúð sem
og fólki er hyggur á hjónaband eða
sambúð.
Fjöldi þátttakenda í námskeiðinu
er takmarkaður og fer skráning
þeirra er hyggja á þátttöku fram á
skrifstofu sóknarprests í Seljakirkju.
Þátttökugjald er kr. 2.600 fyrirhjón.