Morgunblaðið - 25.01.1989, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 25.01.1989, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25'. JANÚAR 1989 17 Sverrir Hermannsson á fiindi Félags ungra framsóknarmanna: Ekki trúaður á að ríkisstjóm- in taki á efhahagsmálunum SVERRIR Hermannsson, banka- stjóri Landsbanka íslands, sagð- ist ekki sjá nein merki þess að ríkisstjómin myndi taka á efiia- hagsmálunum og lagfæra grund- völl útflutningsatvinnuveganna á hádegisfimdi Félags ungra fram- sóknarmanna á mánudag, þar sem hann hafði framsögu um vaxtamál. Þó sagði Sverrir að hann sæi ekki hvemig Fram- sóknarflokkurinn lifði það af að stíga ekki skref til þess sem þyrfti í þeim efiium. Því væri haldið fram að gengisfelling væri óráð, en menn yrðu að horf- ast í augu við að röng gengis- skráning væri það alversta. Sverrir sagði að vextir gætu því aðeins verið lágir að verðbólgunni væri haldið niðri. Hann sagði að búist hefði verið við að verðbólgu- hraðinn jrrði 25% í þessum mánuði, en reyndin væri einhvers staðar á bilinu 30-40%. Ekki væri sjáanlegt annað en verðbólga færi vaxandi og hætta væri á flóðbylgju verð- hækkana þegar verðstöðvun lyki. Frumskilyrðið væri að verðbólgunni væri haldið niðri. Hann sagði að ef meirihluti bank- aráðs Landsbankans færi áfram að tilmælum ríkisstjómarinnar um vaxtahækkanir gæti bankinn farið hroðalega út úr samkeppninni við einkabankana, því fólk leitaði með sparifé sitt þangað sem best ávöxt- un byðist. Að sinni hyggju hefði lánsfé verið of dýrt hérlendis og bankamir þyrftu að taka til hend- inni, því bankakerfíð væri of dýrt í rekstri. Sverrir var spurður um hvemig stæði á því að vaxtamunur Lands- bankans væri að meðaltali 5,09% að hans sögn, þegar tékkareikning- ar bankans bæm 1% vexti og yfír- dráttarheimild á þeim 14%. Einnig bæru sparilán bankans til ungs fólks 7% vexti, en þegar því væri endurlánað væru vextimir 18%. Sverrir sagði skýringuna vera þá að vaxtamunur á endurlánuðum afurðalánum væri aðeins 1,5%, en þau væru um V3 af lánum bankans og vægju því þungt í meðaltals vaxtamun bankans. Reykjavíkurlögreglan: Færri kærðir fyrir ölvun og hraðakstur FÆRRI ökumenn voru kærðir fyrir ölvunar- og hraðakstur i Reykjavík á liðnu ári en 1987. Fleiri ölvaðir ökumenn lentu hins vegar í óhöppum 1988 en 1987, að sögn Ómars Smára Ármanns- sonar aðstoðaryfirlögregluþjóns. 1.064 ökumenn vom kærðir fyrir ölvun við akstur í Reykjavík í fyrra en 1.103 árið 1987. Hins vegar lentu 156 ökumenn, sem gmnaðir vom um ölvun, í slysum eða óhöpp- um en í þeim hópi vom 145 öku- menn árið 1987. Það vom 6.030 ökumenn kærðir fyrir hraðakstur í fyrra en þeir vora 6.289 árið á undan. Af þessum rúm- lega 6.030 vom 146 sviptir ökurétt- indum vegna þess hve gróf brotin þóttu og er það fækkun um þijátíu frá fyrra ári. Ófærð á Snæfellsnesi: Sjúkrabíll úr Ólafs- vík varð að snúa við ólafevík. HÉR hvessti allmikið úr norð- austri síðla aðfaranætur sunnu- Jóhann og félagar komnir til Seattle: •• Qnnum kafiiir við undir- búning einvígisins Seattle, frá Valgerði P. Hafetað, fréttaritara JÓHANN Hjartarson og aðstoð- armenn hans, Margeir Pétursson og Eivar Guðmundsson, und- irbúa nú af kappi fyrstu skák Jóhanns við Karpov, en 6 skáka einvígi þeirra hefst næstkomandi laugardag. Hingað komu þeir á fostudag og hafa nú komið sér fyrir í þremur samliggjandi her- bergjum og setustofu á hóteli í miðborg Seattle. Þeir félagar einbeita sér nú að skákinni, hitta fáa og forðast hvers kyns trufl- Gene Fisher, aðalskipuleggjandi einvígisins, og Yasser Seirawan, stigahæsti stórmeistari Banda- ríkjanna, tóku á móti þeim Jóhanni við komuna til Seattle. Karpov kom einnig til Seattle á föstudag. í fylgd með honum vom stórmeistarinn Zaitsev, sem lengi hefur verið að- stoðarmaður Karpovs, og alþjóðlegi meistarinn Podgaets. Einnig er eig- inkona Karpovs með í för. Mikill áhugi er á skákíþróttinni í Seattle og er einvígisins beðið með eftirvæntingu. Alls búa um ein og hálf milljón manna á borgarsvæðinu en í Washington-fylki bjuggu um 5 þúsund manns af íslenskum upp- Morgunblaðsins. mna árið 1980. Fyrstu evrópsku landnemamir settust hér að 1851 og flestir íbúar em af norður-evr- ópskum upprana. Aðalatvinnurek- andinn á svæðinu er Boeing-flug- vélaverksmiðjumar en þar starfa um 200 þúsund manns. Flugleiðir hafa, eins og kunnugt er, nýlega fest kaup á þotum frá Boeing. Grænlenskur tog- ari fékk á sig brot GRÆNLENSKI rækjutogariim Natsek fékk brot á sig laust eft- ir miðnætti í fyrrinótt þar sem hann var staddur um 200 mflur vestur af Garðskaga. Gluggar í brú skipsins brotnuðu og skemmdir urðu á siglingatækjum og fjarskiptatækjum, þegar sjór komst inn í brúna. Samkvæmt upplýsingum Land- helgisgæslunnar baðst beiðni um aðstoð frá togaranum kl. 01 í fyrri- VOLKSWAGEN 1989 M. AFLSTlTRI BÍLL FRÁ HEKLU BORGAR SIG J* HEKLAHF ^Laugavegi 170-172 Simi 695500 VERÐ FRÁ KR. 831.000 dags og tók þá að skafa lausa- mjöll sem fallin var. Á sunnudag var hvasst en ekki mikfl ofan- koma. Ekki er hægt að segja að hér sé mikill snjór en þó eru skaflar til óþurftar og var ófært litlum bflum innanbæjar á mánu- dagsmorgun og skólahald var fellt niður. Engin slys urðu hér en aðfara- nótt sunnudagsins þurfti að koma sjúklingi sem veiktist skyndilega á sjúkrahús. Ekki vom tök á að fá þyrlu og sjúkrabifreiðin þurfti að snúa við á leið til Stykkishólms vegna ófærðar sem komin var. Varð því ekki úr að maðurinn kæm- ist á sjúkrahús en í umönnun lækn- is hér heima horfír nú til betri veg- ar með líðan mannsins. Helgi • • nótt og hélt varðskipið Ægir þá fljótlega til móts við hann. Varð- skipið fylgdi togaranum síðan áleið- is til HafnarQarðar, en þangað var hann væntanlegur kl. 23 í gær- kvöldi. Annar grænlenskur togari, Nok- asa, sigldi á fsjaka á Dohrnbanka á sunnudaginn, og kom gat á stafn- hylki skipsins. Var hann væntanleg- ur til Hafnarfjarðar snemma í morgun, þar sem gera á við skemmdimar. 1. VINMNGUR á laugardag handa þér, ef þú hittir á réttu tölumar. Láttu þínar tölur ekki vanta í þetta sinn! niit j wuvld j« i»j í ru:

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.