Morgunblaðið - 25.01.1989, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 25.01.1989, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐE) IÞROTTIR MŒMKUDAjGUR 25. JANÚAR 1989 KÖRFUKNATTLEIKUR / ÍSLANDSMÓTIÐ Nober rekinn frá IBK Jón Kr. Gíslason, fyrirliði liðsins, tekurvið stjórninni. Gunnar Valgeirsson hættir að dæma fyrir ÍBK Persónulegar dellur „Okkur kom mjög illa saman, J6n Kr. Gíslason: „Vil ekki tjá mig um málið." Magnús GuAflnnsson: „Okkur kom mjög illa saman." Gunnar Valgelrsson: „Táknræn mótmæli." STJÓRN Körfuknattleiksráðs Keflavlkur hefur ákveðið aö segja upp þjálfara liðsins, Lee Nober. Ástœðan fyrir upp- sögninni mun vera deila Nob- ers og Magnúsar Guðfinns- sonar vegna lelkbanns í kjöl- far slœmrar æfingasóknar. Leíkmenn ÍBK héldu fund um mállð og samþykktu að láta Nober fara. Jón Kr. Gfslason, fyrlrliði ÍBK, hefurtekið við liðinu en ekki hefur verið ákveðið hver verður aðstoð- armaður hans. Magnús Guðfinnsson sleppti tveimur æfíngum með ÍBK, án þess að láta Nober vita. Nober ákvað því að setja Magnús í bann í ieik liðsins gegn ÍR í Islandsmót- inu og í síðari leiknum gegn Njarðvík í bikarkeppninni. Þá hót- aði Magnús að hætta að leika með liðinu og í framhaldi af því héldu leikmenn liðsins fund. Þar samþykkti meirihluti liðsins að segja Nober upp og gera Jón Kr. að þjálfara. „Gekk ekkl upp“ „Við héldum fund þar sem meirihluti leikmanna samþykkti að segja Nober upp. Þetta gekk einfaldlega ekki upp og við mun- um standa og falla með þessari ákvörðun okkar," sagði Gunnar Jóhannsson, formaður Körfu- knattleiksráðs Keflavíkur í sam- taii við Morgunblaðið. „Strákamir töldu þetta það besta sem hægt væri að gera í stöðunni, en ég vil annars sem minnst segja um þetta mál,“ sagði Gunnar. Jón Kr. Gíslason, fyrirliði ÍBK sem tekur við liðinu, vildi ekki tjá sig um málið. Lee Nober: „Spuming um grundvallarreglur." Morgunbiaðið/Einar Faiur mér og Nober, og mér fannst bannið frekar vera persónulegt en vegna liðsins," sagði Magnús Guðfinnsson. „Ég vissi af þessum reglum en það voru margir sem slepptu æfíngum. Svo þegar ég mætti ekki á skotæfíngu fyrir leikinn gegn Njarðvík var ég dæmdur í tveggja leikja bann. Það hafði margt gerst á undan og ég kenni því frekar um en þessum æfingum sem ég sleppti," sagði Magnús. „Ekkl strangar reglur" Eins og áður segir var það tveggja leikja bann Magnúsar Guðfinnssonar sem varð til þess að Nober var rekinn. „Þetta var spuming um gmndvallarreglur. Leikmenn eiga að mæta á æfíng- ar og ég læt menn ekki komast upp með að skrópa," sagði Lee Nober i gær. „Reglur mínar era ekki strang- ar. Leikmenn geta sleppt æfíng- um ef þeir láta mig vita. Ef þeir sleppa einni æfíngu án þess að láta mig vita fá þeir eins leiks bann og tveggja leikja bann ef þeir sleppa tveimur æfíngum. Ef þeir sleppa einni æfíngu með landsliðinu þá er þeim vikið úr liðinu og ef þeir koma mínútu of seint þá fá þeir ekki að vera með. Því er vart hægt að segja að mínar reglur séu strangar," sagði Lee Nober. Nober sagði að bannið hafí verið nauðsynlegt til að halda uppi aga og til að sýna að liðið væri mikilvægara en einstakir leikmenn. Það skipti ekki máli hver Ieikmaðurinn væri eða hve góður. „Ég varð einfaldlega að gera þetta til að sýna hve mikil- væg liðsheiidin er,“ sagði Nober. Nober á launum tll vors Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins verður ÍBK að borga Nober laun fram til vors. í samn- ingi hans við félagið var það tek- ið fram að hann fengi laun allan samningstímann eða til loka ís- landsmótsins. Gunnarhættlrað dæma fyrirÍBK Gunnar Valgeirsson, einn af dómuram ÍBK, hefur ákveðið að dæma ekki fyrir félagið í íslands- mótinu í körfuknattleik. Hann hefur rætt við körfuknattleiksráð ÍBK og KKÍ og tilkynnt þeim ákvörðun sfna. Gunnar mun þó dæma áfram en ekki fyrir ÍBK heldur sem ófélagsbundinn dóm- ari. „Ég er ekki sáttur við þessa niðurstöðu með brottvikningu Lee Nober. Þegar upp koma vandamál á að leysa þau strax en ekki láta reka á reiðanum þar til í óefni er komið," sagði Gunnar. „Ég fékk Lee Nober til að koma til ÍBK og segja má að þessi ákvörðun mín sé táknræn mótmæli vegna brott- vikningar þjálfarans." verður haldinn í félagsheimili Fáks, Víðidal, 26. janúar nk. kl. 20.30. Fyrirlesarar verða Björn Stein- björnsson og Brynjólfur Sandholt, dýralæknar. Fjallað verður um: 1. Smitsjúkdómahættu íslenskra hrossa vegna erlendra sam- skipta. Smitleiðir og varnir. Erindið verður skýrt með mynd- um og fyrirspurnum svarað. 2. Fullkominn hestaspítali kynntur í máli og myndum. Þörf fyrir hestaspítala í Víðidal rædd. 3. Gefnar upplýsingar um grundvallaratriði við fóðrun hrossa. Fyrirspurnum svarað. AÐALFUNDUR kvennadeildar Fáks verður haldinn í félagsheimilinu 1. febrúar nk. og hefst kl. 21. Hestamannafélagið Fákur BLAK Akureyringar enn taplausir Norðfirðingar komu á óvart en KA sigraði í þremur hrinum KA-menn unnu um helgina enn eina ferðina í blaki karla. Að þessu sinni lögðu þeir Norðfírðinga að velli í þremur hrinum þar sem litlu munaði að leika Skúli Unnar þyrfti fleiri hrinur. Sveinsson KA hefur ekki tapað skrifar leik enn sem komið er en kærumál er að vísu í gangi vegna leiks þeirra og ÍS fyrr í vetur. Norðfírðingar komu talsvert á óvart I leiknum þrátt fyrir að þeim tækist ekki að vinna hrinu. Fyrstu hrinuna vann KA 15:9 og síðan var jöfn hrina sem lyktaði með 16:14 sigri KA. Síðustu hrinuna unnu þeir síðan 15:10. HK tók á móti Frömuram á laug- ardaginn og var mjög létt yfír þeim leik. Heimamenn unnu fyrstu hrin- una 15:1 og þá næstu 15:6. Þriðju hrinuna vann Fram 12:15 en síðan var allur vindur úr þeim því HK vann síðustu hrinuna 15:1. Á miðvikudaginn vann ÍS lið HSK að Laugarvatni í þremur hrin- um. Heimamenn tóku harkalega á móti gestunum í fyrstu tveimur hrinunum en töpuðu þó, 13:15 og 12:15. í þriðju hrinunni náðu Stúd- entar sér á strik og unnu 15:5. í blaki kvenna vora þrír leikir. Breiðablik tapaði einni hrinu gegn nágrönnum sínum úr Kópavogi, HK, en vann hinar hrinumar tiltölu- lega auðveldlega. Fyrstu hrinuna vann UBK 15:6, síðan 15:10 en í þriðju hrinu snérast tölumar við, 10:15 og loks vann UBK 15:4. Þróttardömur voru ekki mikil hindran fyrir Víkinga. Þrjár stuttar hrinur enduðuð 15:0, 15:6 og 15:7. Á Akureyri vann Þróttur frá Nes- kaupsstað lið KA í fjögurra hrinu leik. í fyrstu tveimur hrinunum komust heimamenn í 10 og 9 stig en síðan unnu þeir 15:11 en töpuðu síðustu hrinunni 15:9. RÝMINGARSAIA 15-50% AFSLÁTTUR sJ VATNSVIRKINN HF. ÁRMÚLA 21 SÍMAR 686455 — 685966 LVNGHÁLSI 3 SÍMAR 673415 — 673416

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.