Morgunblaðið - 25.01.1989, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 1989
Þú
skalt ekki
örvænta
þó kominn
sé vetur
aiLiLtiatBsaa
Grandagarði 2, Rvík., sími 28855
BMberar
oskast
Símar 35408 og 83033
GAMLI BÆRINN
Hverfisgata4-62
AUSTURBÆR
Stigahlíð 49-97
Drekavogur
Efstasund 2-59
Heiðargerði
Framkvæmdastjóri sjávarútvegsmála EB:
Steftit er að betra jaftivægi í
fiskviðskiptum við önnur ríki
Brussel. Reuter.
ÞEIR, sem rændu Paul Vanden
Boeynants, fyrrum forsætisráð-
herra Belgíu, sendu nafnskír-
teini hans í gær til dagblaðs í
Brussel ásamt bréfi frá honum
sjálfum. Þar biður hann um, að
verulegri Qárhæð sé skipt milli
fátækra. í öðru bréfi kváðust
mannræningjarnir mundu
sleppa honum yrðu þeim
greiddar 750.000 dollara, rúm-
lega 37 milljónir isl. kr.
Pólland:
Högg karate-
manns talið
hafa banað
prestinum
Var yfirlýstur fylg-
ismaður Samstöðu
Varsjá. Reuter.
PÓLSKI presturinn Stefan Nied-
zelak, sem var yfirlýstur stuðn-
ingsmaður stjórnarandstöðuafl-
anna í Póllandi, fannst myrtur á
heimili sinu siðastliðinn mánu-
dag. Líkkrufiiing leiddi i Jjós að
Niedzelak hafði hryggbrotnað
og að sögn talsmanns pólsku
kirkjunnar bendir flest til þess
að presturinn hafi hlotið ban-
vænt högg karatemanns.
Zdzislaw Krol, talsmaður erki-
biskupsdæmisins í Varsjá, sagði að
Niedzelak hefði, dáið af völdum
höggs sem skaðaði mænu hans.
Hann sagði jafnframt að presturinn
hefði sætt barsmíðum og að hann
hefði nefbrotnað auk þess sem negl-
ur af fingrum hægri handar hans
hefðu verið rifnar af.
Morðið á Niedzelak, sem var
fylgismaður Samstöðu, hinna bönn-
uðu verkalýðssamtaka í Póllandi,
oili nokkrum ugg á meðal stjómar-
andstæðinga en á döfinni em ein-
mitt sáttaviðræður milli stjómvalda
og Samstöðu.
Krol sagði að silfurbúnaði hefði
verið stolið af heimili Niedzelak þar
sem lík hans fannst en ekki var
hróflað við öðrum verðmætum né
heldur pólskum, bandariskum og
frönskum peningum.
Kroi sagði í pólska ríkissjón-
varpinu á mánudagskvöld að hann
vonaðist til að lögreglan myndi
hafa uppi á ódæðismanninum. „Ég
vil trúa því, eins og svo margir
aðrir, að rannsókn málsins fari heið-
arlega fram og að sannleikurinn
verði dreginn fram í sviðsljósið,"
sagði Krol.
Bréfin og
nafnskírteinið
voru send á rit-
stjómarskrifstof-
ur blaðsins Le
Soir og segjast
samtök, sem kall-
ast Sósíalíska
byltingarsveitin,
bera ábyrgð á
mannráninu.
Segjast þau munu
sleppa honum verði lausnargjaldið
greitt og 25 milljónum ísl. kr. að
auki varið til hjálpar við fátækt
fólk. Segist lögreglan nú vera viss
um, að samtökin, sem eru áður
ókunn, hafí Vanden Boeynants á
valdi sínu enda ber fjölskylda hans,
að rithönd hans sé á bréfínu.
Paul Vanden Boeynants var
forsætisráðherra á árunum
1966-68 og aftur 1978-79. Þá
hrökklaðist hann frá við lítinn
orðstír og var dæmdur fyrir stór-
kostleg skattsvik og falsanir. Þeg-
ar honum var rænt var mái í gangi
gegn honum fyrir að hafa þegið
mútur, er hann var vamarmála-
ráðherra eftir 1970.
kr. Meðal þeirra leiða sem bent
hefur verið á til að jafna þennan
mikla mun er að krefjast aðgangs
að fískimiðum þeirra landa sem
selja físk til EB-landa í staðinn fyr-
ir markaðshlutdeildina. Spánveijar
em mesta fískveiðiþjóðin innan EB.
Minnkar það ekki líkur á, að Marin
haldi fram hagsmunum útgerðar-
manna.
Marin sagði að bæta yrði mark-
aðsstjóm innan EB til að tryggja
sjómönnum mannsæmandi laun.
Nýta yrði þann afla sem bandalag-
ið kaupir á fískmörkuðum í stað
þess að setja hann í úrgang. Á
döfinni væru tillögur um EB-sjóð
sem stæði undir kostnaði vegna
sameiginlegrar sjávarútvegsstefnu
bandalagsins. Sérstökum eftirlits-
manni á vegum framkvæmdastjóm-
arinnar yrði falið að fylgjast með
veiðum. EB legði áherslu á að virða
friðunaraðgerðir á fjarlægum mið-
um og vildi auka samvinnu við ríki
utan bandalagsins í fískveiðum og
vinnslu.
Bnissel. Frá Kristófer Má Kristinssyni, fréttaritara MorgnnblaðsinB.
NÝR framkvæmdastjóri sjávarútvegsmála innan Evrópubanda-
lagsins, Manuel Marin frá Spáni, flutti stefiiuræðu sína í Evrópu-
þinginu f síðustu viku. Lagði hann áherslu á, að tekið yrði að
nýju upp náið samstarf við hagsmunaaðila f sjávarútvegi og reynt
yrði að koma á betra jafhvægi í fiskviðskiptum við ríki utan
bandalagsins. Leggja yrði áherslu á meiri gagnkvæmni, þegar
rætt væri um aðgang að mörkuðum EB.
Viðskiptahalli EB í sjávarafurð-
um hefur vaxið hröðum skrefum
síðustu ár. 1986 var hallinn 3 millj-
arðar ECU eða 168 milljarðar ísl.
Mannránið í Belgiu:
Nafiiskírteini o g
bréf frá Boeynants
Reuter
„Bijóstbirting“ á blaðamannafundi
ítalski þingmaðurinn Ilona Staller (t.h.), öðru nafni Cicciolina,
sem helst hefur getið sér orð fyrir að afhjúpa bijóst sín við ólfk-
legustu tækifæri, efndi til blaðamannafundar í Róm f gær. Þar
barmaði hún sér ásamt stöUu sinni Moönu Pozi klámmynda-
stjörau yfir ritskoðun svonefiidra „fuUorðinskvikmynda" og
þrýsti á um hömlulaust klám. Við og við beruðu konurnar stoltar
barm sinn tíl þess að halda viðstöddum við efiiið.
Bretland:
Söngvar Satans í sjö-
unda sætí á lísta yfir
söluhæstu skáldsögur
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frimannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
BÓK Salmans Rushdies, Satanic Verses, eða Söngvar Satans, er
enn til sölu í bókaverslunum W. H. Smiths, nema í Bradford. Að-
gerðir múhameðstrúarmanna, sem vifja banna bókina og hafa
brennt hana opinberlega, hafa dregið athygli almennings að henni.
DeUt er um aðgerðirnar bæði f blöðum og tímaritum.
Það tiltæki múhameðstrúar-
manna að brenna bók Rushdies í
Bradford fyrir rúmri viku hefur
haft þau áhrif ein að auka sölu bók-
arinnar. Bóksalar segjast geta selt
mun fleiri eintök, ef endurprentun
bókarinnar væri lokið, en hún hefur
nú þegar selst í 42.000 eintökum.
Bókin var í sjöunda sæti á lista The
Sunday Times yfír söluhæstu skáld-
sögur síðastliðinn sunnudag.
Salman Rushdie er fæddur í
Bombay á Indlandi og hefur verið
ákafur gagnrýnandi kynþáttahaturs
í Bretlandi. Honum fínnst því heldur
kaldhæðnislegt að vera hótað mál-
sókn af samtökum um umburðar-
lyndi í trúmálum — á grundvelli
laga, sem ætlað er að koma í veg
fyrir kynþáttahatur.
Flestir þeirra tveggja milljóna
múhameðstrúarmanna, sem búa á
Bretlandseýjum, eru komnir frá Ind-
landsskaga, sérstaklega Pakistan.
Þar hefur múhameðstrú verið hóf-
samlegri en í Miðausturlöndum,
einkum vegna samneytis við önnur
trúarbrögð eins og búddhatrú. Á
síðustu árum hafa Saudi-Arabar og
ýmsir aðrir fylgjendur múhameðs-
trúar í Austurlöndum nær beint
miklu fé til samtaka og stofnana
múhameðstrúarmanna í Bretlandi.
Þessi peningastraumur virðist hafa
aukið hörku meðal talsmanna mú-
hameðstrúarmanna í samræmi við
siði og venjur gefendanna.
Lögin um guðlast
nái einnig' til
múhameðstrúar
Rushdie segir, að sárindi ýmissa
múhameðstrúarmanna séu ekki á
rökum reist. í fyrsta lagi hafi þeir
ekki lesið bókina, eins og margir
þeirra reyndar viðurkenna, auk þess
sem múhameðstrúarmenn líti á spá-
manninn sem mann, en ekki guðleg-
an eins og kristnir menn líti á Krist.
Það sé því engin ástæða fyrir þá
að móðgast við frásagnir sínar af
spámanninum, sem lýsi honum sem
breyskum manni.
Viðstaddir bókabrunann í Brad-
ford voru tveir borgarstjómarmenn
Verkamannaflokksins. Þeir ásamt
tveimur þingmönnum flokksins hafa
krafíst þess, að lögunum um guð-
last verði breytt á þann veg, að þau
nái líka til múhameðstrúar, en nú
vemda þau einungis kristna trú.