Morgunblaðið - 26.01.1989, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 1989
Saga og kirkja
Bókmenntir
Erlendur Jónsson
SAGA OG KIRKJA. Afmælisrit
Magnúsar Más Lárussonar. 238
bls. Sögufélag. Reykjavík, 1988.
Þetta afmælisrit Magnúsar Más
Lárussonar er »gefið út í tilefni af
sjötugsafmæli hans 2. september
1987« eins og stendur á titilsíðu.
Magnús Már varð þrítugur prófess-
or í guðfræði. Síðar söðlaði hann
um og gerðist prófessor í sögu.
Rektor Háskólans var hann líka um
árabil. Eru þá ótalin rannsóknastörf
hans í kennslugreinum sínum. Það
er því ekki ófyrirsynju að í af-
mælisriti þessu skuli vera ritgerðir
um guðfræði, sögu, bókmenntir og
iögspeki. Þótt Magnús Már kenndi
hvoruga hinna síðartöldu greina
skarast þær margvíslega við sérsvið
hans.
Af guðfræðilegu efni í Sögu og
kirkju þótti mér athyglisverðastur
þáttur séra Siguijóns Einarssonar:
„ ... hvar er nú höfðingi mektug-
ur?“ Lítil samantekt um iíkpredik-
anir Palladíusar í handbók Marteins
Einarssonar. Þótt »Herra Christian
/ herskip sendi / tvö í Eyjafjörð /
með trú hreina« verður að segja
það Dönum til lofs að þeir leyfðu
Islendingum að boða hinn nýja sið
á móðurmáli, gagnstætt t.d. Norð-
mönnum sem urðu að taka við
dönskunni með siðaskiptunum. Eins
og lesa má um í ritgerð séra Sigur-
jóns varð hér ekki aðeins trúarleg
bylting heldur einnig stjómarfars-
leg og hugarfarsleg. Siðaskiptin
ollu hér gagngerðum aldahvörfum
á flestum sviðum. Það var eitt með
öðru að staða konunnar varð veik-
ari en áður: »Benda má á í því sam-
bandi,« segir séra Siguijón, »að lút-
erska kirkjan hafði enga þá stöðu
að bjóða konu, sem að völdum jafn-
aðist á við stöðu priorinnu eða
abbadísar í katólsku klaustri, en
það „kvenídeal“, sem lúterska kirkj-
an hóf til vegs minnir einkum á
lútersku prestkonuna, eins og við
þekkjum hana allt fram á okkar
öld.«
Ahugaverð er einnig ritgerðin
Þankabrot úr Þingeyrakiaustri eftir
séra Guðmund Þorsteinsson. Þing-
eyraklaustur var ekki merkilegast
fyrir þá sök að það var fyrsta
Magnús Már Lárusson
klaustur sem stofnsett var á íslandi
heldur vegna hins að þar voru
íslensk fræði rækt af meiri elju en
dæmi voru til í öðrum klaustrum.
Spyija má hvort það hafi verið til-
viljun að skammt frá Þingeyrum
var fyrsta bókin í letur færð og
fyrstu prentsmiðjunni síðar valinn
staður. Úr sama héraði komu svo
enn síðar langflestir brautryðjendur
á sviði íslenskra fræða. Séra Guð-
mundur lýsir andblænum í klaustr-
inu að svo miklu leyti sem vitað er
hvemig lífinu var jrfírhöfuð lifað á
slíkum stað.
Af sögulegu efni í riti þessu þykja
mér athyglisverðastir þættimir
Upphaf þjóðar á íslandi eftir Gunn-
ar Karlsson og Stéttakúgun eða
samfylking bænda? Um söguskoð-
un Bjöms Þorsteinssonar eftir
Helga Þorláksson. í þætti sínum
bendir Helgi meðal annars á hvem-
ig marxisminn mótaði skoðanir
sagnfræðinga þeirra sem hann að-
hylltust, ellegar urðu fyrir áhrifum
frá honum en í þeim hópi mátti
telja Bjöm Þorsteinsson. Gunnar
vitnar í lærða menn og spinnur um
orð þeirra hugleiðingar um efni sem
seint verður útrætt. Því þjóðar-
hugtak breytist ekki aðeins frá öld
til aldar. Það vegur líka misþungt
í vitund manna þótt uppi séu á sama
tíma.
Meðal bókmenntaefnis þykir mér
hlýða að geta hugleiðingar Jónasar
Kristjánssonar, Þorgeirsþættir i
Flateyjarbók. Jónas tekur fyrir
smáþætti þá sem fylgja Fóst-
bræðrasögu í Flateyjarbók en ekki
er að fínna í öðmm handritum sög-
unnar. Spuming er hvort þættir
þessir hafí fallið niður í handritun-
13
um eða þeir hafi aldrei verið hluti
sögunnar, þeim hafi aðeins verið
aukið við í uppskrift Flateyjarbók-
ar. Málið er ekki stórt eins og Jón-
as bendir á en allrar athygli vert
vegna þess að þættir þeir, sem um
ræðir, bregða frá nútíma sjónarhóli
séð spaugilegu ljósi yfir hugsunar-
hátt og framferði þeirra fóstbræðra.
Síðastur hinna tæplega tuttugu
þátta bókarinnar er svo Sögustefn-
an sem grein lögspekinnar eftir
Sigurð Líndal. Sigurður fer ofan í
réttarfarshugmyndir evrópskra lög-
fræðinga á 18. og 19. öld. Á 19.
öld setti rómantíkin mjög svip á
lögfræði sem aðrar fræðigreinar,
ekki hvað síst í Þýskalandi. áhugi
íjóðverja á fomgermönskum lögum
leiddi svo til hins að þeir beindu
sjónum meðal annars til fslands og
tóku að rækja íslensk fræði sem
mest þeir máttu. Meðal annarra
nefnir Sigurður Konrad Maurer sem
hingað kom og studdi íslendinga
með ráðum og dáð, t.d. með því að
greiða fyrir útgáfu þjóðsagna Jóns
Amasonar sem prentaðar vom í
Þýskalandi.
Ég hef nefnt hér þá þætti ritsins
sem mér þykja athyglisverðastir.
Ekki ber svo að skilja að ekki sé
fleira markvert í bókinni. Með sam-
antekt hennar og útgáfu er fjölfróð-
um lærdómsmanni verðugur sómi
sýndur.
VERÐ FRÁ 7.745
ÞÚSUND STADGREITT
VERÐ FRÁ 1.376
ÞÚSUND STADCREITT
í FRAMTÍÐ VIÐ SKEIFUNA
SÍMAR: 685100 & 689633