Morgunblaðið - 26.01.1989, Qupperneq 43
fwr PAT)vtAf. ,3s HTíOAmmoíri araAjavnioaoM
MORGUNBLAÐIÐ PIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 1989
43
HITT OG ÞETTA
Öðru hveiju sleppum við
handavinnu, matar- og kðku-
uppskriftum og lesum okkur til
skemmtunar um annað fólk og
þess hagi. Eftir að hafa blaðað
í gegnum fáein erlend tímarit
rakst ég meðal annars á með-
fylgjandi frásagnir sem ég býð
ykkur upp á í dag i lauslegri
þýðingu, ykkur vonandi til
fróðleiks og skemmtunar.
Vatnsrúmið vinsælt
Vatnsrúm hafa nú víða náð
miklum vinsældum, en það hefur
tekið sinn tíma. Fýrstu vatnsrúm-
in sem vitað er um voru gerð í
Persíu (sem nú nefnist íran) fyrir
um 3.000 árum. Voru það skinn-
belgir fylltir af vatni.
Ein ástæðan fyrir því að menn
hafa nú komið auga á ágæti
vatnsrúmsins er sú að heimilislífið
er meira metið en verið hefur.
Allt er nú reynt til að gera svefn-
herbergið vistlegra. Og svo heyr-
ast alltaf sögur um fólk sem líður
betur í baki og sefur betur eftir
að hafa skipt á gömlu rúmdýn-
unni og vatnsrúmi. í vatnsrúmi
verður hryggurinn ekki fyrir eins
miklu álagi þar sem líkaminn fær
jafnari stuðning á fljótandi dýnu.
Andlitslyfting'
Samtök bandarískra lýtalækna
hafa skýrt frá því nýlega að þeim
karlmönnum hafi ijolgað ört sem
leitast eftir fegrunaraðgerðum til
að bæta útlit sitt. Segja samtökin
að á síðustu 3-4 árum hafi þessum
andlitsaðgerðum á körlum fjölgað
um 36%.
Mörg undanfarin ár hafa karlar
stundað mikið margskonar æfíng-
ar til að bæta líkamsvöxt sinn,
en skokk og íþróttir draga ekkert
úr andlitshrukkunum. Þessvegna
eru þeir nú famir að leita til lýta-
lækna í sí-auknum mæli. Algen-
gustu aðgerðimar felast í að lyfta
augnabrúnum, sem hjá mörgum
vilja gjaman síga með aldrinum
og gera þá syfjulega á svip, sem
að sjálfsögðu nær ekki nokkurri
átt! Einnig er nokkuð um að menn
láti taka auka húðfellingar undir
hökunni. Hér er ekki um undir-
höku að ræða, heldur verður húð-
in slök og leggst í fellingar. Þá
er andlitslyfting nokkuð vinsæl
hjá körlum. Þær aðgerðir eru
nokkuð öðruvísi á körlum en kon-
um. Hjá körlunum er frekar tekið
úr húðinni á bak við eyrun en
ekki við hársvörðinn, því erfiðara
er að hylja örin við hársvörðinn
hjá þunnhærðum körlum.
Karlar eru yfirleitt lengur að
gróa sára sinna eftir þessar að-
gerðir en konur, sem þeim þykir
enganveginn gott, því flestir em
þeir óþolinmóðir. Eðlilegt er að
þeir sem ekki vilja láta sjá ör sín
og marbletti eftir aðgerðina haldi
sig innan dyra í um tíu daga, en
karlamir þurfa að fela sig tveimur
dögum lengur. Enginn veit hvers
vegna. En þeir uppskera umbun
fyrir þjáninguna, segja lýtalækn-
amir. Margir karlar endast nefni-
lega um tveimur árum lengur í
æðstu stöðum þar sem unglegra
útlit gefur þeim bæði öryggi og
starfsorku.
Sambúð
Því er haldið fram að hjón eða
hjónaleysi fari að líkjast hvort
öðru eftir nokkurra ára sambúð.
Við segjum oft að hjónasvipur sé
nieð sambýlisfólkinu.
Þegar allt leikur í lyndi í sam-
búðinni fara báðir aðilar oft
ósjálfrátt að herma eftir svip-
brigðum hvors annars, og það
leiðir meðal annars til þess að
báðir fá sömu hrukkumar, til
dæmis kringum munninn og aug-
un. Rannsóknir sýna að sambýlis-
fólk sem fer að líkjast hvort öðm
er í sérlega góðri sambúð, að því
er tímaritið „Psychology Today“
segir.
Útlitið hefur mikið að segja,
einnig fyrir þá sem em í sambúð.
Sérstaklega leggja karlmenn mik-
ið upp úr því.
Karlar vilja að konan sem þeir
búa með hugsi vel um sig og líti
vel út. Konur gera ekki alveg jafn
miklar kröfur til karlanna sinna,
að því er bandaríska tímaritið
„Self" hermir. Segir tímaritið að
þetta hafí verið niðurstöður könn-
unar sem gerð var á vegum Ríkis-
háskólans í Iowa.
Franska tímaritið „Marie Cla-
ire“ hefur birt viðtöl við nokkrar
ungar konur frá Moskvu. Þótti
tímaritinu það tíðindi að konumar
vildu ekki tala um kynlíf því um
það ætti ekki að tala. En konum-
ar viðurkenndu að vitað væri um
karla og konur sem byggju saman
án þess að vera gift. Gífurlegur
skortur á íbúðum væm þar þó
Þrándur í Götu. Ógift par yrði að
búa í foreldrahúsum, jafnvel þótt
bæði væm komin á fertugsaldur-
inn.
Reyndu HONIG
strax í dag
500 9
Fljótlegt og fyrirhafnarlítið.
UMBOÐSMENN:
Jakob Kristinsson, Bíldudal S: 94-2128
Skipasmíðastöð Marselíusar, ísafirði S: 94-3899
Jón Jóhannsson, Þórshöfn S: 96-81127
Hilmar Árnason, Höfn S: 97-81337
Marinó Sigursteinsson, Vestmannaeyjum S: 98-12441
Matthías Bragason, Ólafsvík, S: 93-61463
Axel Sveinbjörnsson hf., Akranesi S: 93-11979
swmmmm
í TAKT VIÐ TÍMANN
Viltu skara fram úr á hörðum
vinnumarkaði?
Við bjóðum þér upp á hagnýta
kennslu í viðskipta- og tölvu-
greinum, ásamt því helsta sem
gerir þig að hæfum og dugandi
starfskrafti.
Þú getur valið um morgun- eftir-
miðdags- eða kvöld tíma, eftir því
sem þér hentar.
Að námskeiðinu loknu útskrifast
þú sem skrifstofutæknir.
Innritun og allar nánari upp-
lýsingar færðu í símum 68 75 90
og 68 67 90.
Olga Herbertsdóttir
skrifstofutæknir, útskrifuð des '88.
„Ég haföi aðeins grunnskólapróf,
þegar ég tók þá stóru ákvörðun að
fara að læra skrifstofutækni.
Ég sé heldur ekki eftir því, enda
var námið sérstaklega skemmtilegt
og hefur nýst mér í hvívetna".
Tölvufræðslan
Borgartún 28