Morgunblaðið - 26.01.1989, Blaðsíða 47
47
88ei HACn-ÍAt .as HUOAaUTÍÆMra OICLUSVfJDHOM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 1989
SÖNGUR
Stolt yfir
að hafa náð
þessum áfanga
- segir Rannveig Fríða Braga-
dóttir, sem ráðin hefiir verið
í Vínaróperuna
Rannveig Fríða Bragadóttir
mezzosópransöngkona hefur
verið ráðinn við Vínaróperuna. Hún
hefur undanfarin sjö ár búið í Vínar-
borg þar sem hún hefur stundað
söngnám við Tónlistarháskólann og
áætlar að ljúka þar námi í vor.
Rannveig fór til Vínarborgar eft-
ir stúdentspróf og hafði hún þá jafn-
framt lokið 7. stigi frá Söngskólan-
um í Reykjavík. Hún fór með eitt
af aðalhlutverkunum í „Ævintýri
Hoffmanns" sem Þjóðleikhúsið setti
upp í haust. Þar var hún í hlut-
verki Niklausar, félaga Hoffmanns,
þangað til hún fór aftur til Vínar
í byijun desember. Með söngnáminu
í Vín hefur hún fengið tækifæri á
að starfa í stúdíói Ríkisóperunnar
þar í landi.
„Þangað eru aðeins teknir fáir
útvaldir nemendur hverju sinni og
aðeins þeir, sem álitnir eru þess
virði að leggja rækt við. í stúdóinu,
sem er stofnun innan Óperunnar,
fá nemendumir að taka þátt í sýn-
ingum og er hver nemandi þar í tvö
ár, ekki bara við söng heldur annað
það sem kemur að notum í óperu-
söng svo sem skylmingar og ball-
ett. Við fáum að starfa við húsið
allan þennan tíma, vinna með frægu
fólki og vera staðgenglar þess í
hlutverkum svo eitthvað sé nefnt,"
sagði Rannveig.
„Þó Vínaróperan sé stór, þá vita
forráðamenn hennar nákvæmlega
hvað þeir hafa undir höndum. Eg
hef verið heppin með hlutverk, hef
getað leyst mín verkefni vel af hendi
og get ekki neitað þeirri athygli,
sem ég hef orðið vör við í minn
garð. Eg vissi ekki hvaða áhrif þessi
langa vera mín á íslandi í haust
myndi hafa því vissulega beinist
athyglin frá manni þegar farið er
í burtu. Ég lifði samt alltaf í von-
inni um að geta verið áfram í Vín
Tog fá inni í Óperunni, en auðvitað
var það aðeins draumur þá, ekki
síst með tilliti til þess hve ung ég
er. Ég var síðan kölluð á fund með
forráðamönnum Óperunnar eftir
tónleika, sem styrktarfélag Óper-
unnar hélt þann 20. desember sl.
þar sem mér var gert tilboð. um
samning," sagði Rannveig. Samn-
ingurinn er til tveggja ára.
Rannveig sagði að þetta tilboð
væri vissulega mikil viðurkenning
fyrir sig. „Þetta er nokkuð sem
söngvara dreymir um og það er
ekki lítið skref að vera á samningi
hjá einni af bestu Óperum í heimin-
um. Ég hugsa ekki um það daglega
hvar ég stend á meðal söngvara,
en þegar maður staldrar við þessa
hugsun eitt augnablik, er ég mjög
stolt yfir að hafa náð þessum
áfanga." Rannveig'sagði að flutt
væri ópera á hveijum einasta degi
í Vínaróperunni frá 1. september
til 30. júní að undanskildum að-
fangadegi. Rannveig Fríða er 26
ára gömul, gift Austurríkismanni,
sem er kennari og listmálari.
„Ég lýk námi í vor þó segja
megi að maður útskrifist aldrei úr
söngnámi. Maður er alltaf að læra.
Ég mun hafa ýmislegt annað fyrir
stafni með Óperunni. Ég hef nokk-
ur önnur tilboð í bakhöndinni sem
ég ætla að reyna að sinna að ein-
hveiju marki. Hinsvegar er mjög
erfitt að fá frí þegar maður er kom-
in með fastan samning." Rannveig
sagðist sennilega ekki koma til með
að starfa á Islandi næsta vetur að
minnsta kosti. Hún hefði hinsvegar
mjög gott samband við Þjóðleik-
húsið og íslensku óperuna.
LISTGLER
Fegrið heimilið
með listgleri. Blý-
lagtgleríótal
mynstrum og lit-
um, einfalt eða
tvöfalt. Tilvalið í úti-
hurðir, svalahurðir,
forstofuhurðirog
alls konar glugga,
t.d. þar sem erfitt
erað koma við
gardínum. Fram-
leiðumeinnigspe-
glasúlur, hengi-
myndir, lampa, blý-
lagðaspeglaog
ýmsasmáhluti til-
valda tilgjafa.
Skerum og slípum
spegla eftir máli.
LISTGLER, KARSNESBRAUT110, SIMI45133.
Skrifstofutækninám
Tölvuskóli íslands
Símar: 67-14-66
67-14-82
lEvKÍnbig oéíbína
'að besta í mat
eðill, sem kitlar
t og áhersla lögð
Umhverfið er gl\
á þægindi.
Opið fimmtuda
frá kl. 19.00.
sunnudaga
Brautarholti 20, 3. hæð.
Gengið innfrá horni Brautarholts og Nótatúns.
RAUÐARÁRSTÍG 18 Sími 623350
HOTEL UMV
Ljúffengir kjötréttir með súpu, brauði og
kaffi á aðeins frá 790 kr.
Frítt fyrir börn innan 6 ára aldurs og
hálft gjald fyrir börn innan 12 ára.
Slepptu eldamennskunni af og til og
líttu inn í Lindina.
Þar færðu fullkomna máltíð á frábæru verði.
Hótel Lind er staður fyrir alla fjölskylduna.