Morgunblaðið - 26.01.1989, Síða 28
28 •'
■HiSfil TTT7
MOÉGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 1989
IHWIIWHHMMmmiHMlWMWlWIM^
JltrpwifíMítfo
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoðarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 70 kr. eintakið.
Rétt staðsettur
ráðherra
Eg hefí sagt við forsvars-
menn ríkisstofnana: Það
er skylda ykkar þegar við
göngum í það verk að sækja
meiri skatta til almennings í
landinu, að standa honum opin-
ber reikningsskil, hvemig þið
hafið framkvæmt aðhald ykkar
á þessu sama ári. Það er hvorki
siðferðilega né pólitískt rétt að
sækja peninga í sjóð lands-
manna allra, í formi hærri
skatta, ef forstjóramir og
stjómendur þurfa ekki að
standa við sitt.
Við þurfum líka að breyta
landslögum hér á íslandi á
þann veg að ríkisforstjórar og
stjómendur ríkisfyrirtækja,
sem ekki standa í stykkinu,
verði að fara frá. Þeir verða
að hætta, alveg eins og for-
stjórar í fyrirtækjum sem farið
hafa á hausinn verða að
hætta.“
Framganreind orð féllu fyrir
skemmstu á stjómmálafundi
norður á Akureyri — og vóru
tíunduð rækilega á öldum ljós-
vakans. Ætla mætti að hér
hefði Sverrir Hermannsson,
fyrrverandi menntamálaráð-
herra, verið að tala um svoköll-
uð Sturlumál.
Þau snémst einmitt um
eyðslu á almennum skattpen-
ingum umfram fjárlagaheim-
ildir, þvert á ítrekuð fyrirmæli
viðkomandi ráðuneytis, og við-
brögð ráðherra af því tilefni.
Fræðslustjóri, sem ekki fór að
fyrirmælum að þessu leyti, varð
að láta af embætti.
Ræða sú, sem hér er vitnað
til og flutt var á slóðum svokall-
aðra Sturlumála, sem út af
fyrir sig er saga til næsta bæj-
ar, hljómar eins og réttlæting
á viðbrögðum fyrrverandi
menntamálaráðherra. Sá sem
talar er hinsvegar ekki Sverrir
Hermannsson, heldur Ólafur
Ragnar Grímsson, fjármálaráð-
herra í ríkisstjóm Steingríms
Hermannssonar.
Sturlumál þróuðust þann veg
að til stóð að dómstólar skæru
úr um ágreining fyrrverandi
ráðherra og handhafa fram-
kvæmdavaldsins og fráfarins
fræðslustjóra. Það var ekki
óeðlilegt og í fullu samræmi
við leikreglur réttarríkisins. En
þá komu nýir valdsmenn til
sögunnar: Svavar Gestsson,
menntamálaráðherra, fyrrver-
andi formaður Alþýðubanda-
lagsins, og Ólafur Ragnar
Grímsson, fjármálaráðherra,
núverandi formaður Alþýðu-
bandalagsins. Ágreiningsmál-
ið, umframeyðsla á almannafé,
var snarlega „leyst“ fram hjá
dómstólum. Sá, sem eyddi
skattpeningum umfram fjár-
lagaheimildir, var settur á
bótastall. Skattborgurum var
gert að greiða honum umtals-
verðar bætur. Þannig var hann
látinn „standa almenningi opin-
berlega reikningsskil“ á emb-
ættisfærslu sinni.
Orð og efndir stjómmála-
manna eiga ekki alltaf samleið.
„Það er hvorki siðferðilega né
pólitískt rétt að sækja peninga
í sjóð landsmanna allra í formi
hærri skatta, ef forstjóramir
og stjómendur þurfa ekki að
standa við sitt“, segir Ólafur
Ragnar Grímsson staddur í
fræðsluumdæmi norðan heiða,
„ríkisforstjórar og stjómendur
ríkisfyrirtækja, sem ekki
standa í stykkinu, verða að
fara frá, þeir verða að hætta.“
Óþarfí er að fara fleiri orðum
um útfærsla þessara orða í
embættisfærslu menntamála-
ráðherra og fjármálaráðherra.
Tvískinnungur af því tagi,
sem hér hefur verið fjallað um,
eflir hvorki traust né trúnað
milli almennings og stjóm-
málamanna. Stjómmálamenn
leika um of tveimur skjöldum.
Orð segja eitt, verkin of oft
annað. Enginn stjómmála-
flokkur verður hvítþeginn af
þess háttar sýndarmennsku.
Enginn þeirra kemst þó með
tæmar þar sem Alþýðubanda-
lagið hefur hælana í þessu efni.
Skoðanakannanir sýna að
Alþýðubandalagið, sem fékk
nálægt 23% kjörfylgi árið 1978,
hefur misst helft þess fylgis
fyrir borð. Ástæðan er ekki sízt
tvískinnungur þess á flestum
sviðum þjóðmála. Nýjustu
dæmin, skertur samningsrétt-
ur, launafrysting og hækkun
skatta í verði vöm og þjónustu,
tala skýru máli um heitstreng-
ingar í glatkistu. Ólafur Ragn-
ar Grímsson, formaður flokks-
ins, er hinsvegar rétt staðsett-
ur, með hliðsjón af flokkshefð-
um, orðurn og efndum Alþýðu-
bandalagsins, þegar hann talar
um opinber reikningsskil ríkis-
forstjóra og umframeyðslu
skattpeninga á slóðum Sturlu-
mála. Hann er helzti atvinnu-
rekandi landsins. En hann ger-
ir út á skattgreiðendur.
Ami Friðriksson fann litla sem enga stórsíld á miðunum:
Hef engar áhyggjur
af sfldarstofninum
- segir Jakob Jakobsson forstjóri Hafrannsóknastofnunar
Rannsóknaskipið Árni Friðriksson, skip Hafrannsóknastofhunar,
hefur undanfarnar tvær vikur verið við mælingar á stórsíld fyrir
austan land og sunnan. Leiðangrinum lauk á þriðjudag og var
Páll Reynisson leiðangursstjóri. Jakob Jakobsson forstjóri stofhun-
arinnar segist ekki hafa neinar áhyggjur af síldarsto&iinum.
Páll sagði í samtali við Morgun-
blaðið að stórsíld, þetta 33-35
cm., væri nánast engin á miðunum
og mun minna hefði fundist nú
en í nóvember og desember, en
þá fór Ámi Friðriksson í samskon-
ar leiðangur. Sá leiðangur var
heldur lengri og var þá jafnframt
verið að kanna ástand smásfldar
úti fyrir Norðurlandi. „Við fund-
um lítið af stórsfldinni fyrir ára-
mót og ennþá minna nú. Það er
nákvæmlega sama sagan og hjá
sfldarbátunum, sem hafa verið við
veiðamar. Mest er um sfldina inn
á Austfjörðum og töluvert magn
er að fínna við Hrollaugseyjar."
Páll sagði að ástand sfldar-
stofnsins væri þokkalegt þrátt
fyrir lítið magn af stórsíld. Mikið
hefði hinsvegar fundist af 30 cm.
sfld og þaðan af smærra. Leiðang-
ursstjóri sagðist hafa átt von á
að sjá meira af stærri sfldinni
miðað við mælingar fyrri ára.
Rannsóknaskipið Bjami Sæ-
mundsson er nú í loðnuleiðangri
fyrir norðan land. Að honum lokn-
um, liggur ekkert fyrir hjá skipinu
næstu tvo mánuðina sökum skorts
á rekstrarfé. Páll sagði að venju-
lega væri skipunum ekki haldið
úti allt árið. Algengt væri að skip-
in stoppuðu þetta þrjá mánuði á
ári. Ámi Friðriksson heldur í sjó-
rannsóknir eftir mánaðarmótin.
Þá er ætlunin að mæla hitastig
og seltu sjávar í kringum landið.
Jakob Jakobsson fiskifræðing-
ur sagði að eflaust væri minna
af stórsfld heldur en var á miðun-
um í fyrra. Auk þess væri eins
víst að sfldin héldi sig á slóðum,
þar sem menn einfaldlega hittu
ekki á hana. „Veður hefur verið
slæmt undanfarið og á takmörk-
uðum tíma er erfítt fyrir eitt skip
að leita af sér allan grun, bæði
vegna veðurs og takmarkaðs
tíma. Síldin stendur ákaflega þétt
á þessum árstíma og getur verið
mikið af henni á talsvert af-
mörkuðu svæði. Það hefur oft
gengið erfíðlega að finna allan
stofninn eftir að hann stækkaði.
Það virtist takast mjög vel í nóv-
ember 1987. Þá hélt hún sig á
Austfjörðunum auk þess sem við
fundum talsvert af henni við Hrol-
laugseyjar, þar sem engin síldveiði
hafði verið, og við Eldey.“
Jakob sagðist hafa hvatt sjó-
menn til að láta vita um síldartorf-
ur. Hinsvegar hefðu viðbrögðin
verið lítil um og eftir áramótin.
Hann sagði að 1979-árgangurinn
hefði verið mjög áberandi í afla
fímm síðustu ára. „Síldin fékkst
fyrst út af Suðurlandi 28-30 cm.
löng út af Suðurlandi, þá fjögurra
ára gömul. Síðan hefur hún eflst
og stækkað og er nú að renna
sitt skeið á enda. Kynslóðaskipti
eru nú á næsta leiti og við tekur
svokallaður 1983-árgangur, sem
á eftir að stækka og þyngjast.
Ég hef engar áhyggjur af stofnin-
um og er ég viss um að strax á
næsta ári verði hægt að veiða
stórsíld á miðunum þó hún hafi
ekki fundist nú.
Sambandssljórn SAL um breyttan grundvöll lánskjaravísitölunnar:
Málshöfðun ef stjóm-
völd láta ekki segjast
STJÓRN Sambands almennra lífeyrissjóða sættir sig ekki við að
ríkisstjórnin breyti einhliða samningi um kaup á skuldabréfum, sem
gerður var í síðasta mánuði, né að lánskjaravísitala með nýrri sam-
setningu gildi umn eldri lánssamninga, nema að undangengnum
úrskurði um að það sé lögmæt gerð. Þetta var ákveðið á fundi
stjórnarinnar i gær og hefúr verið óskað eftir viðræðum við ráð-
herra viðskipta og Qármála og er vonast til þess að af þeim fimdi
geti orðið hið fyrsta.
„Við munum fyrst eiga viðræður
við ráðherrana og vita hvort þeir
halda fast við að breyta þessum
samningi einhliða, sem við vorum
að gera, og raunar öllum eldri
skuldbindingum með því að hafa
þetta afturvirka reglugerð. Ef ekki
næst samkomulag við ríkisstjómina
um að hafður verði annar háttur á
en þeir hafa verið að kynna, þá
munum við leita til dómstólana,"
sagði Benedikt Davíðsson, stjómar-
formaður SAL.
Hann sagðist telja að ekki gæti
orðið af viðræðum um frekari kaup
lífeyrissjóðanna á skuldabrefum
ríkissjóðs fyrr en botn hefði fengist
í þetta mál. Samningar yrðu að
byggja á trausti milli aðila og því
væri mikilsvert að niðurstaða feng-
ist hið fyrsta. Þeir samningar sem
gerðir vom í desember giltu um
kaup skuldabréfa fyrstu þijá mán-
uði þessa árs og var gert ráð fyrir
að viðræður um skuldabréfakaup
Nýr grundvöllur kærð-
ur til úrskurðameftidar
BALDUR Guðlaugsson, hæstaréttarlögmaður, óskaði í gær eftir úr-
skurði úrskurðarnefiidar um verðtryggingu, samkvæmt 44. grein laga
nr. 13/1979 varðandi það hvort honum væri skylt að greiða af skulda-
bréfi samkvæmt nýjum grundvelli lánskjaravísitölu. Bréf hans til
nefndarinnar fer hér á eftir í heild:
„Seðlabanki íslands hefur sam-
kvæmt fyrirmælum viðskiptaráðu-
neytisins, sbr. 5. gr. reglugerðar
nr. 18/1989, birt auglýsingu um
nýjan gmndvöll lánskjaravísitölu.
Segir þar að eftirleiðis skuli svo-
nefnd launavísitala vega V3 í láns-
kjaravísitölunni. Undirritaður gaf
hinn 15. apríl 1987 út skuldabréf
til 5 ára sem bundið er lánskjara-
vísitölu og ber að greiða afborganir
2svar á ári, næst hinn 1. febrúar
næstkomandi. í umræddu skulda-
bréfí er sérstaklega tekið fram að
miðað sé við lánskjaravísitölu sam-
kvæmt auglýsingu Seðlabanka ís-
lands 29. maí 1979 með áorðnum
breytingum.
Undirritaður hefur nú fengið inn-
heimtutilkynningu vegna gjalddaga
skuldabréfsins hinn 1. febrúar nk.
Þar kemur fram að hinn nýi vísi-
tölugrandvöllur er lagður til gmnd-
vallar við útreikning á breytingu
lánskjaravísitölunnar frá janúar-
gildi til febrúargildis 1989. Áf frétt-
um er ljóst að þessi aðferð við út-
reikning veldur því að afborgun af
nefndu skuldabréfi verður lægri
hinn 1. febrúar nk. en ella hefði
orðið, en það segir hins vegar ekk-
ert um það hvemig útreikningur
samkvæmt hinum nýja vísitölu-
gmndvelli muni þróast það sem
eftir lifir lánstímans í samanburði
við útreikninga samkvæmt eldri
grandvelli. Hefur undirritaður
raunar fulla ástæðu til að ætla að
greiðslubyrði hans aukist ef hinn
nýi vísitölugmndvöllur verður lagð-
ur til gmndvallar.
Undirritaður telur sér óskylt að
greiða umrædda skuld á gmndvelli
útreikninga samkvæmt nýrri vísi-
tölu. í því sambandi skal bent á
eftirfarandi:
1. Undirritaður telur að ekki sé
um að ræða nýjan vísitölugmnd-
völl, heldur nýja vísitölu, sem ekki
geti náð til eldri skuldbindinga sem
bundnar séu eldri vísitölu.
Undirritaður tók á sig greiðslu-
skuldbindingu sem tengd skyldi
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 1989
29
Mest var
saltað á
Eskifirði
241.559 tunnur alls voru saltaðar
af síld á vertíðinni í haust, sam-
kvæmt upplýsingabréfí frá
SUdarútvegsnefiid. Af einstökum
stöðum var mest saltað á Eski-
firði, 38.562 tunnur. Hæsta sölt-
unarstöðin var Fiskmjölsverk-
smiðja HornaQarðar með 23.023
tunnur.
Saltaðar vom nokkm færri tunn-
ur nú en árið áður, en það var mesta
söltunarár í sögu Suðurlandssíldar-
innar. Þess er þó að gæta að í haust
var öll síldin annað hvor hausskorin
eða flökuð, þannig að nánast sama
magn af sfld upp úr sjó var tekið
til söltunar á haustvertíðinni 1988
og á vertíðinni 1987.
Saltað var á 44 söltunarstöðvum
í 21 höfn.
Mest var saltað á Eskifírði,
38.562 tunnur, á Homafírði vom
saltaðar 36.709 tunnur, 26.577 í
Grindavík og 25.967 á Seyðisfírði
svo nokkrir hæstu staðimir séu
nefndir.
Af stöðvum vom hæstar Fisk-
mjölsverksmiðja Homafjarðar með
23.023 tunnur, Pólarsíld hf á Fá-
skrúðsfírði með 15.248 tunnur,
Strandarsfld hf 14.894 tunnur, Har-
aldur Böðvarsson hf 13.417 tunnur
og Skinney hf Homafirði með
13.329 tunnur.
fyrir síðari hluta ársins hæfust í
næsta mánuði.
„Án tillits til efnisinnihalds þessa,
fínnst mér málsmeðferðin alveg frá-
leit. Það er gjörsamlega útilokað
að búa við það að annar samnings-
aðila geti einhliða rift samningum
með þessum hætti og breytt þannig
skuldbindingum á bilinu 20-30
milljöðram með einhliða reglugerð-
arbreytingu," sagði hann ennfrem-
ur.
Aðspurður benti hann á að fýrir
fáum dögum hefði komið upp mál
sem virtist mikið hitamál hjá stjóm-
völdum, þ.e. ríkisábyrgð skulda-
bréfa atvinnutryggingasjóðs. Ráð-
herrar hefðu hver um annan þveran
verið búnir að lýsa því yfír á fund-
um og annars staðar að þeir hefðu
lögfræðileg álit fyrir því að bréfín
væm nægilega trygg. Þeir hefðu
bakkað með það og tóku inn ríkis-
ábyrgð að fullu eins og lífeyrissjóð-
imir hefðu krafíst. „Og auðvitað
vona ég að menn sjái að sér í þessu
máli líka,“ sagði Benedikt.
Útiloka ekki
málshöfðun
- segir Pétur Blöndal
PÉTUR Blöndal formaður Lands-
sambands lífeyrissjóða segir að
hann telji að lífeyrissjóðirnir
muni á næstunni kanna lagalega
stöðu sína hvað varðar samning-
inn við ríkisvaldið um kaup á
ríkisskuldabréfum. Hann útilok-
ar ekki málshöfðun á hendur
ríkinu ef verðbætur á skuldabréf-
in þann 1. febrúar verða reiknað-
ar út samkvæmt nýju lánskjarav-
ísitölunni.
Pétur segir að stjóm Landssam-
bands Hfeyrissjóðanna muni koma
saman til fundar í dag, fimmtudag,
til að ræða þessi mál. Um töluverð-
ar fjárhæðir er að ræða þar sem í
samningunum sem gerðir vom í
síðasta mánuði skuldbundu lífeyris-
sjóðimar sig til að kaupa ríkis-
skuldabréf fyrir um 55% af ráð-
stöfnumafé sínu næstu þijá mánuði.
lánskjaravísitölu eins og hún var
samansett þegar skuldabréfíð var
gefið út. Jafnvel þótt um þætti vera
að ræða nýjan vísitölugmndvöll, en
ekki nýja vísitölu, telur undirritaður
að honum sé óskylt að sæta því að
gmndvöllur vísitölunnar og þar með
vísitöluútreikningsins breytist á
lánstímanum.
2. Samkvæmt 39. gr., sbr. 36.
gr. laga nr. 13/1979, er það Seðla-
banki íslands sem veita skal heim-
ild til verðtryggingar og birta skal
vísitölur sem heimilt er að miða
verðtryggingu lánsfjár við. Um slíkt
var ekki að ræða hér, heldur ákvað
viðskiptaráðuneytið breytingar á
gmndvelli lánskjaravísitölunnar
með reglugerð og ákvað jafnframt
í sömu reglugerð að Seðlabankinn
skyldi birta auglýsingu um láns-
kjaravísitöluna á grundvelli þeirrar
reglugerðar.
Undirritaður telur að viðskipta-
ráðuneytið bresti lagaheimild til að
taka sér fyrir hendur að breyta
gmndvelli vísitölunnar og að aug-
lýsing Seðlabankans, sem út er
gefín samkvæmt slíkri forskrift
ráðuneytisins með vísan til hennar,
standist því ekki heldur.
3. Samkvæmt 2. mgr. 36. gr.
laga nr. 13/1979 skulu reglur um
verðtryggingu einkum við það mið-
aðar að tryggja bundið sparifé gegn
verðrýmun af völdum verðhækk-
ana. i 40. gr. sömu laga segir að
heimilt sé að ákveða verðtryggingu
í formi sérstaks verðbótaþáttar
vaxta sem tengdur sé verðlags-
breytingum.
Undirritaður telur einsýnt að af
þessu megi ráða að lög nr. 13/1979
séu á því byggð að innlendar vísitöl-
ur mæli verðlagsbreytingar en ekki
launabreytingar. Því sé óheimilt án
lagabreytinga eða sérstakra laga-
heimildar að taka upp beina teng-
ingu við launabreytingar. Auk þess
liggi fyrir að gmndvöllur og út-
reikningur launavísitölu sé í molum.
Með vísan til 44. gr. laga nr.
13/1979 fer undirritaður fram á
úrskurð yðar um það hvort honum
sé skylt að sæta því að við útreikn-
ing afborgana af umræddri verð-
tryggðri skuld hans verði hinn 1.
febrúar næstkomandi og eftirleiðis
lögð til gmndvallar hin nýja vísitala
eða nýi vísitölugmndvöllur.
Virðingarfýllst,
Baldur Guðlaugsson, hrl.“
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir ANTHONY HAZLITT HEARD
Suður-Afríka:
Stórskrýtið og mót-
sagnakennt þjóðfélag
í bók eftir Pulitzer-verðlaunahafann i bókinenntum Allen
Drury, sem gefin var út fyrir tuttugu árum segir að Suður-
Afríka sé „stórskrýtið“ þjóðfélag. Þessi lýsing á ennþá vel
við. Liðið ár, sem einkenndist af ofbeldi og þrátefli í valdabar-
áttu svartra og hvítra, var nokkuð mótsagnakennt í Suður-
Afríku.
Stórt skref hefur verið tekið
í friðarátt í Angólu og
Namibíu og dregið hefur úr
spennu í sunnanverðri Afríku en
þetta hefur samt orðið til þess
að kúgunin hefur aukist og
spennan magnast í Suður-
Áfríku.
Nokkrir heppnir pólitískir
fangar hafa verið leystir úr haldi
en aðrir hafa verið teknir hönd-
um, frelsi annarra hefur verið
skerrt - og „heiðarlegir, frið-
samir blökkumannaleiðtogar"
hafa verið ákærðir fyrir hermd-
arverk og föðurlandssvik, eins
og Edward Perkin, sendiherra
Bandaríkjanna, lét ummælt eftir
réttarhöld nýlega.
Menn, sem hafa verið dæmdir
til dauða fyrir glæpi tengda
stjómmálum, hafa verið náðaðir
eins og frægt er orðið en samt
bíða tugir pólitískra fanga í löng-
um biðröðum eftir því að verða
settir á gálgann.
Stjómvöld í Suður-Afríku hafa
talað fjálglega um „víðtækara
lýðræði" á sama tíma og dregið
hefur úr kosningaþátttöku
svartra í sveitarstjómarkosning-
um og lýðræðisleg réttindi hafa
verið skerrt með því að banna
útgáfu blaða og starfsemi sam-
taka, auk þess sem baráttumenn
fyrir mannréttindum hafa verið
handteknir.
Yfírlækni eins af virtustu
sjúkrahúsum Afríku hefur verið
vikið úr starfi og hræsnistal vald-
hafanna um aðskilnað hefur ekki
riðið við einteyming.
Rekin fyrir að gera grín
að stjórninni
Jocelyn Kane-Berman, sem
var yfírlæknir Groote Schuur-
sjúkrahússins, þar sem Chris
Bamard, fmmkvöðull í hjartaí-
græðslu, starfaði, missti starf
sitt og fékk annað sem var mun
síðra að mati starfsbræðra henn-
ar.
Hvers átti hún að gjalda? Hún
hafði látið í ljós þá skoðun í
gamansamri grein, sem birtist í
dagblaði, að blökkumannaleið-
toginn Nelson Mandela væri
hæfastur til að gegna embætti
þjóðarleiðtoga Suður-Afríku og
varpaði fram tillögu um nýja
ríkisstjóm, þar sem flesta núver-
andi ráðherra vantaði.
Þeim alvöragefnu mönnum,
sem stjóma landinu og sjúkra-
húsinu, þótti hún ganga of langt.
Hegningin hefði hæft láttsettum
skrifstofumanni eða óþægu bami
og fjölmargir læknar sáu sig
knúna til að mótmæla. Atvikið
sýnir óöryggi suður-afrískra
stjómvalda gagnvart Afríska
þjóðarráðinu, ANC, hreyfingu
svartra þjóðemissinna, sem
Mandela veitti forystu. Þetta var
viðvömn til þeirra sem dirfast
að leggja til að breytingar verði
gerðar á stjóm landsins, þótt í
gamansömum tón sé.
Hræsni Þjóðarflokksins
Ennfremur hafa risið deilur í
Boksburg í Transvaal-héraði, þar
sem nýkjörin bæjarstjóm, skipuð
hægrimönnum, tók. sig til og
færði klukkuna aftur á bak til
þess tíma er engum þótti skömm
að kynþáttakúguninni. Hún lét
setja upp aðskilnaðarskilti, sem
bannaður aðgangur að sund-
laugum og baðströndum í sam-
ræmi við aðskilnaðarlögin frá
árinu 1953 í borgum og bæjum
þar sem Þjóðarflokkurinn er við
völd.
Aðeins fyrir hvita
Nýlega ók ég framhjá bað-
strönd á áhrifasvæði Þjóðar-
flokksins ekki langt frá Höfða-
borg, sem er tiltölulega laus við
aðskilnaðarstefnuna. Þar sá ég
skilti þar sem sagði að sam-
kvæmt lögum væri aðgangur að
baðströndinni „takmarkaður við
hvíta menn auk þjóna sem fylgja
hvítum bömum." Baðstrandar-
gestimir í þessum forréttinda-
hópi, allir hvítir, spókuðu sig í
sólinni, stungu sér í svalan sjóinn
og létu sem þeir vissu ekki af
Reuter
Suður-Afríka er land mótsagnanna. Á sama tima og stjórnvöld
lofa „víðtækara" lýðræði láta þau handtaka Qölda baráttumanna
fyrir lýðræði, banna útgáfii blaða og starfsemi samtaka. Á mynd-
inni mótmæla blökkumenn banni við starfsemi Sameinuðu lýðræð-
isfylkingarinnar, stærstu hreyfingar blökkumanna sem berjast
gegn kynþáttaaðskilnaðarstefiiu stjórnvalda.
Þjóðarflokkurinn, sem er við
.stjómvölinn í landinu, hafði með
trega fallist á að láta taka nið-
ur. Samt var það þessi sami Þjóð-
arflokkur sem samþykkti lög um
aðskilnað kynþátta á almenn-
ingsstöðum (frá 1953), sem
hægrisinnar í íhaldsflokknum
beita nú til að banna svertingjum
aðgang að skrúðgörðum, sund-
laugum og fleiri stöðum ætluðum
almenningi.
Þótt ríkisstjómin hafi for-
dæmt íhaldsflokkinn fyrir að
færa klukkuna aftur á bak og
sakað hann um að hafa veitt
þeim lið sem vilja harðari al-
þjóðlegar refsiaðgerðir gegn suð-
ur-afrískum stjómvöldum hefur
hún sjálf ekki hreinan skjöld.
íhaldsflokkurinn er einfaldlega
að gera það sem Þjóðarflokkur-
inn gerði um áraraðir og gerir
enn víðsvegar um Suður-Afríku.
Blökkumönnum er til að mynda
skiltinu, sem var í nokkurra
metra fjarlægð og var til vitnis
um þann órétt sem svartir sam-
landar þeirra era beittir.
Vandi stjómarinnar er aug-
ljós. Ef hún vill í alvöru breyta
þjóðfélaginu, afnema til að
mynda aðskilnaðinn og köma á
víðtækara lýðræði, verður hún
að binda enda á mótsagnimar.
í stuttu máli verður hún að um-
bera andóf, tryggja mannréttindi
og banna aðskilnað með öllu.
Þannig yrði Suður-Aftíka ekki
lengur „stórskrýtið" þjóðfélag.
Þá yrði gott fyrir alla - nema
ofstækisfulla þjóðemissinna -
að búa í Suður-Afríku.
Höfiindur er fyrrum rit-
stjóri dagblaðsinsCape 77-
mes í Höfðaborg og ritar
greinar um málefni Suður-
Afriku í ýmis blöð.