Morgunblaðið - 26.01.1989, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 1989
33
Sykurmolarnlr sœtu Morgunblaðið/Börkur
Molar, Risaeðla og
Strax í Lundúnum
SYKURMOLARNIR luku nýverlö
mánaðarlangri tónleikaför um
Evrópu og voru síöustu tónleik-
arnir haldnir í Lundúnum. Tón-
leikarnir voru tvennir, þeir fyrri
í Kilburn National Ballroom, en
hinir sfAari f nœturklúbbnum
The Borderline, sem er f Soho
örskammt frá Oxford-stræti. Er
skemmst frá þvf að segja að
tónleikarnir voru báðir vel sóttir
og Molunum ákaft fagnað. Ekki
sfður voru tónleikarnir þó tæki-
færi fyrir hljómsveitirnar Risa-
eðluna og Strax að koma sár
og sfnu á framfæri og verður
ekki annað sagt en það hafi
tekist vel.
Fyrri tónleikarnir voru, sem
fyrr sagði, haldnir í Kilburn Natio-
nal Ballroom og voru um 3.000
manns viðstaddir. Risaeðlan hit-
aði upp og var ágætlega tekið,
þó svo ekki verði á móti mælt
að sveitin hafi goldið þess nokk-
uð að hljómleikagestir voru fyrst
og fremst komnir til að sjá Mol-
ana og því nokkuð óþreyjufullir.
Tónlist Risaeðlunnarerfremur
hrá og einföld í sniðum. Gagnrýn-
anda fannst hún þó á tíðum full
litlaus og fyrir vikiö náði Risaeðl-
an hvorki að hrífa hann né flesta
aðra áhorfendur. Ég er eiginlega
helst á því að henni sé líkjandi
við ungt og upprennandi vín: lo-
far góðu, en þarf að þroskast.
Þegar Sykurmolarnir komu á
sviðið ætlaði allt að ærast og
Molarnir sviku ekki, því í söng-
kerfinu tók gamalkunnur óður að
hljóma. Það var söngur þeirra
Karíusar og Baktusar: „Svangir
bræður sitja hér" í flutningi
Sigríðar Hagalín og Hinriks
Bjarnasonar. Áheyrendur kunnu
greinilega vel að meta braginn,
ekki síst hinir íslensku, sem fjöl-
Risaeðlan
mennt höfðu á staðinn, og tóku
hressilega undir.
Molarnir biðu þó ekki boðanna
og hófu þegar leikinn. Bæði voru
tekin gömul lög og ný og virtist
litlu skipta hvort áheyrendur
könnuðust við lögin eða ekki,
þeir voru með á nótunum frá
upphafi til enda.
Aldrei betri Molar!
Hér skal staðhæft að Sykur-
molarnir hafa aldrei verið í betra
formi og hana nú! Eða svo gripið
sé til orða einhvers almagnaðs
poppgoöans: Aldrei betri Molarl
Hjálpaðist þar allt að. Hljóm-
sveitarmeðlimir voru greinilega í
essinu sínu, spilamennskan var
eins og hún best getur orðið og
það, sem nýtt var í pokahorninu,
var ægiskemmtilegt.
Dagskráin var keyrð áfram af
miklum krafti og varla andað
milli laga. Það sem undirritaður
hafði þó einna mest gaman af
var sú staðreynd að Sykurmol-
arnir létu sér íslenskuna að
mestu nægja, nema hvað stöku
sinnum tóku þeir sér ensku í
munn til þess að gera létt gys
að áheyrendum (Einar örn gekk
þó skrefi lengra á stundum).
Þetta varð til þess að ég hef
endanlega sannfærst um það að
allt kjaftæði um að enskan sé
mönnum nauðsynleg til þess að
komast áfram í „bransanum", sé
úr lausu lofti gripið. Hins vegar
Morgunblaöið/Börkur
kann hún að vera margri popp-
stjörnunni bráðnauðsynleg til
þess að hylja fádæmalólegar
textasmíðar. Þetta á þó að sjálf-
sögðu einungis við efni sem gef-
ið er út fyrir íslenskan markað,
því ég efa að enskumælandi
plötukaupendur falli í stafi yfir
Ijóðrænum tilburðum Islendinga
á tungu þeirra Shakespeares og
Byrons.
Seinna kvöldiA
Síðari tónleikarnir voru, sem fyrr
segir, haldnir í klúbbnum The
Borderline. Klúbburinn er vart í
stærra lagi, en rúmar þó fleira
fólk en maður skyldi halda. Strax
hófu tónleikana og léku ýmis lög
af fyrri plötum, mest þó af hinni
síðustu. Flutningurinn var í fjör-
ugra lagi og kunnu áheyrendur
greinilega vel að meta það sem
á boðstólum var. Verður að segj-
ast að undirritaður minnist þess
vart að upphitunarhljómsveit
fengi jafngóðar undirtektir. Hér
er þó ekki verið að halda fram
að áheyrendur hafi ekki ráðið sér
af hrifningu, en það er fremur
sjaldgæft hér í borg að upphitun-
arhljómsveitir séu yfirleitt virtar
viðlits.
Óhætt er að segja að Sigurður
Gröndal gítarleikari hafi vakið
verðskuldaða athygli, enda hafði
hann sig nokkuð í frammi. Góður
rómur var einnig gerður að söng
Ragnhildar Gísladóttur, en sumir
töldu þó að hann ætti það sam-
merkt með hljómsveitinni, að
vera fullíburðarmikill, þ.e.a.s. of
mikið lagt upp úr tæknibreilum
ýmiskonar, en slíkt er ekki metið
mikils þessa dagana í Lundún-
um. Síðast en ekki síst ber að
geta þáttar Prestons Heymans,
ásláttarleikara, en hann stóð sig
með miklum ágætum.
Eftir stutt hié kom loks hljóm-
sveitin, sem beðið hafði verið
eftir með hvað mestri óþreyju:
Sykurmolarnir. Hún hóf leikinn
og gaf hvergi eftir í þenslunni.
Hins vegar er ég ekki frá því að
þreyta hafi verið farin að segja
til sín, því nokkuð fannst mér
skorta á þann þrótt, sem ein-
kennt hafði tónleikana í Kilburn
National Ballroom. Þá spillti líka
fyrir að hljómburður var mun lé-
legri en verið hafði hjó Strax.
Þegar allt kemur til alls held
ég að Strax geti unað vel við sitt,
meðan Risaeðlan þarf greinilega
að herða sig nokkuð í að ná
þeirri samstillingu og þeim þétt-
leika, sem til þarf til þess að
komast í atvinnumannadeildina.
Sykurmolarnir sýndu það hins
vegar og sönnuðu að þeir hafa
allt það til að bera sem góðar
poppstjörnur prýðir og veitist
gangan upp á tindinn létt. Bíð
ég sem aðrir næstu plötu með
óþreyju.
Andrós Magnússon
__________Brids_______________
Arnór Ragnarsson
Bridsfélag Breiðfirðinga
Sl. fimmtudag var áætlað að
hefja barometerkeppni og voru 50
pör skráð til leiks. Einhver misskiln-
ingur varð milli stjórnar og stjórn-
anda þannig að sl. fimmtudag var
spilaður eins kvölds Michell-
tvímenningur.
Nú skal reyna á nýjan leik í
kvöld, fimmtudagskvöld og eru
skráðir keppendur hvattir til að
mæta og um leið biður stjóm félags-
ins velvirðingar á þessum mistök-
um. Hugsanlega er hægt að bæta
við 2-4 pörum í keppnina og tekur
Isak hjá Bridssambandinu við þátt-
tökutilkynningum.
Úrslit í Michell-tvímenningnum
urðu þessi.
N/S-riðill:
Hallgrímur Hallgrímsson —
Sveinn Sigurgeirsson 298
Þorvaldur —
Karen V. 297
Jóhann Jóhannsson —
Kristján Siggeirsson 293
Jón Þorkelsson —
Gylfi J. Gylfason 292
Gróa Guðnadóttir —
Guðrún Jóhannesdóttir 285
Haukur Harðarson —
Vignir Hauksson °S3
A/V-riðill:
Ágúst Helgason —
Hannes Jónsson 340
Óskar Karlsson —
Guðlaugur 324
Þórður Jónsson —
Gunnar K. Guðmundsson 320
Gestur Jónsson —
Friðjón Þórhallsson 314
Jón Viðar Jónmundsson —
Sveinbjörn Eyjólfsson 312
Hjördís Eyþórsdóttir —
Anton Gunnarsson 304
Veitt voru 6.000 kr. verðlaun
fyrir 1. sætið, 3.000 fyrir annað
sætið og 2.000 kr. fyrir þriðja sætið.
Bridsdeild
Rangæingafélagsins ^
Þegar lokið var fjórum leikjum
af 13 í aðalsveitakeppni deildarinn-
ar var staða efstu sveita þessi: (Spil-
aðir em tveir 16 spila leikir á
kvöldi.)
Ingólfur Jónsson 93
Daníel Halldórsson 79
Baldur Guðmundsson 73
Lilja Halldórsdóttir 72
Sæmundur Jónsson 72
Spilað er á miðvikusdagskvöldum
í Ármúla 40 og hefst keppni kl.
19.30. Keppnisstjóri er Siguijón
Tryggvason.
Rafmagns- og steikarpannan
frá KENWOOD
er naudsynleg í hverju eldhúsi
Verð frá kr. 7.220,-
Fullkomin viðgerða-
og varahlutaþjónusta
Heimllls- og raftækjadelld
HEKLAHF
Laugavegi 170-172 Simi 695500
B3