Morgunblaðið - 26.01.1989, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 1989
>
Ný Mmerki 2. febrúar nk.
Frímerki
Jón Aðalsteinn Jónsson
Póst- og símamálastofnunin
hefur sent frá sér tvær tilkynning-
ar um frímerkjaútgáfu sína á árinu
1989. I tilkynningu nr. 1 er greint
frá þeim frímerkjum, sem væntan-
leg eru á árinu. Þar er fyrst sagt
frá tveimur fuglamerkjum, sem út
koma 2. febrúar. Verður rætt um
þau sérstaklega hér síðar.
Næstu frímerki verða Norður-
landafrímerki, sem út koma 20.
apríl. Samtímis koma einnig út
slík frímerki á öðrum Norðurlönd-
um. Myndefni þessara frímerkja
er sameiginlegt og verða þjóð-
búningar. Að venju koma svo Evr-
ópufrímerki í bytjun maí. Sameig-
inlegt myndefni þeirra verður að
þessu sinni bamaleikir og leikföng.
Síðar á árinu er svo fyrirhugað að
gefa út frímerki í tilefni aldaraf-
mælis bændaskólans á Hvanneyri
og eins aldarafmælis Náttúru-
fræðifélags íslands. Þá eigum við
samkv. tilkynningunni von á smá-
örk með myndefni úr landabréfi
Olavus Magnus af Norðurlöndum.
Enda þótt það sé ekki tekið fram,
mun þessi smáörk eiga að koma
út 9. okt., þ.e. á Degi frímerkis-
ins. Hér verður því gert hlé á útg-
áfu smáarka með myndefni úr
ferðabók Gaimards, en þær hafa
komið út á þessum degi á liðnum
þremur árum. Mér er einnig kunn-
ugt um, að fyrri útgáfunefnd hafði
valið enn eitt myndefni úr téðri
bók til útgáfu á smáörk á Degi
frímerkisins 1989. Trúlega bíður
það annars tíma. Eins og menn
vita, hafa þessar smáarkir verið
með yfirverði, sem gengið hefur í
Frímerkja- og póstsögusjóð. Þar
sem hér virðist hafa orðið stefnu-
breyting í útgáfu myndefnis smá-
arkanna, býst ég við, að hún sé
að einhveiju leyti í sambandi við
væntanlega norræna frímerkja-
sýningu, NORDIU 91, sem ákveðið
er að halda hér í Reykjavík suma-
rið 1991, enda er óhugsandi annað
en sjóðurinn styrki undirbúning
hennar með verulegu ijárframlagi.
Hitt má hins vegar undarlegt
þykja, að nefnd sú, sem á að sjá
um þessa sýningu, hefur ekki enn
séð ástæðu til að kynna hana,
hvorki meðal íslenzkra frímerkja-
safnara né landsmanna almennt.
Er vonandi, að við fáum brátt að
heyra eitthvað, hvemig undirbún-
ingi NORDIU 91 líður.
Þá hefur íslenzka póststjómin
ákveðið að hefja að nýju útgáfu
landslagsfrímerkja, og munu tvö
frímerki væntanleg í þeim flokki.
í undirbúningi er svo nýtt
frímerkjahefti með landvættunum.
Þar að auki munum við eiga von
á 500 kr. frímerki með sama mynd-
efni. Útgáfa svo hás verðgildis er
vissulega engin gleðifregn fyrir
safnara, en hún endurspeglar því
miður þá verðbólgu, sem við ætlum
seint að losna við þrátt fyrir fögur
fyrirheit ráðamanna okkar. Ég
veit vel, að fyrir nokkrum ámm
var jafnvel hugsað til að gefa út
500 kr. frímerkj, en sem betur fer
varð ekkert úr því í það skiptið.
Lét póststjómin þá nægja að gefa
út 250 kr. frímerki í tilefni aldaraf-
mælis Landsbanka íslands 1986.
Ég býst við, að þörf fyrir svo hátt
verðgildi sem 500 krónur sé orðin
brýn fyrir póstþjónustu landsins,
og þá er erfítt að finna nokkur
gild mótrök. Hitt má þá þakka,
að nú skuli myndefnið vera valið
úr eins konar notkunarseríu
(bmgsserie) en ekki minningar-
merkjum, því að þá geta þeir, sem
safna mótífi eða tegundamerkjum,
sleppt að kaupa svo dýrt merki.
Þeir hafa sama myndefni á lágum
verðgildum.
Loks munu jólafrímerki reka
lestina, svo sem venja hefur verið
um mörg ár. Er vonandi að eins
vel takist til með þau og hin síðustu
eftir Kjartan Guðjónsson, því að
ég hef engan hitt, sem er ekki
mjög ánægður með þau
Falleg fuglafrímerki
2. febrúar
Eins og áður er sagt, koma
fyrstu frímerki íslenzku póststjóm-
arinnar út fimmtudaginn 2. febrú-
ar nk. Eru þau kynnt í tilkynningu
nr. 2. Þetta eru tvö verðgildi, 19
kr., sem er almennt burðargjald,
og svo 100 kr., sem þörf er fyrir
á margs konar sendingar. Myndef-
nið er sótt til íslenzkra fugla, og
hefur Þröstur Magnússon teiknað
þessi merki eins og önnur fugla-
merki á liðnum árum af alkunnri
smekkvísi.
Á lægra verðgildinu er óðins-
hani, sem er einn af vinsælustu
vaðfuglum hér á landi, þótt hann
sé einnig sundfugl. Hann er alger
farfugl og kemur ekki til lands
fyrr en upp úr 15. maí, næstsein-
astur allra varpfugla. í ágústlok
eru óðinshanar að mestu horfnir
frá landinu. En þrátt fyrir smæð
sína halda þeir sig úti á reginhafi.
Talið er, að íslenzkir óðinshanar
hafi vetursetu við sunnanverðan
Arabíuskaga, ólíkt öllum öðmm
íslenzkum fuglum.
Á 100 kr. merkinu er svo mynd
af sólskríkjunni okkar, sem við
nefnum snjótittling á vetuma.
Þröstur sýnir okkur hana bæði í
sumar- og vetrarbúningi. Hún er
langalgengasta tegund spörfugla,
sem hefur vetursetu hér á landi.
Við þekkjum líka, hvemig þessi
fallegi fugl leitar á náðir okkar í
jarðbönnum að vetri til, 'enda em
þeir fjölmargir, sem gauka komi
og öðm ætilegu að þeim. Flest
okkar kannast líka við Sólskríkju-
sjóðinn, sem Þorsteinn Erlingsson
skáld stofnaði til þess að styrkja
frækaup handa snjótittlingum,
þegar að þeim sverfur. Þá er nú
líka hið gullfallega kvæði hans um
þennan vin hans alþekkt. í tilkynn-
ingu póststjómarinnar segir, að
eitthvað af snjótittlingum fari til
Evrópu á vetuma, enda þótt þeir
séu hér einnig sem staðfuglar.
Enda þótt bæði þessi frímerki
séu falleg, tek ég sólskríkjumerkið
fram yfir. Ég hefði því kosið sólsk-
ríkjuna á lægra-verðgildið, því að
þá hefði hún komið fyrir augu allra
þeirra, sem fá almennan póst til
sín. 100 krónu frímerki ber sjaldn-
ar fyrir augu póstnotenda. Meðan
ég sat í útgáfiinefnd póstsins, lét
ég einmitt í ljós þá skoðun, að
velja beri þá fugla á almenn
frímerki, sem við bæði þekkjum
bezt og álítum einna fallegasta,
enda þótt þar geti vissulega
smekkur manna verið misjafn. En
hér hafði ég þá og hef enn í huga
hina gullfallegu mynd af andar-
steggnum á 90 kr. frímerkinu frá
1987. Hvað skyldu þeir annars
vera margir, sem séð hafa það
merki? Ég vil enda þennan þátt
með vinsamlegri ábendingu til
forráðamanna Póst- og símamála-
stofnunarinnar um að hafa þetta
sjónarmið í huga við útgáfu næstu
fuglafrímerkja.
Þorramáltíð
Þá er þorri genginn í garð. Hér áður fyrr var það fólki ekkert gleðiefni þegar hann kvaddi
dyra, enda lét hann oft finna óþyrmilega fyrir sér og gerir enn, þótt við í tæknivæddu
þjóðfélagi þurfum ekki að óttast hann eins og forfeður okkar. Og að blóta þorra hefur
verið til þess að milda skap hans. Fólkið talaði um að þreyja þorrann og Góuna. Þegar
þeir mánuðir voru að baki, var hægt að búast við mildari veðréttu, enda er þá sól komin
hátt á loft.
Þorramatur eða margt af honum er bara sá matur sem alltaf var á borðum íslendinga
hér áður fyrr, og hefur tilbreytingin á þorrablótum fremur verið brennivínið en maturinn sjálfur. Þorri er
gamalt mánaðarheiti, og er ekki ólíklegt að unga fólkið í dag gleymdi honum, ef þorrablótin væru ekki til
að minna á hann.
Suða á hangikjöti
Margir eru meðmæltir þeirri að-
ferð að sjóða hangikjötið aðeins í
20-30 mínútur, en láta það síðan
liggja í soðinu þar til að er orðið
kalt. Ég mæli eindregið gegn
þessu. Þetta getur auðveldlega
valdið sýkingu, þar sem nægur
hiti næst ekki inni í kjötvöðvanum
en aftur á móti nægilegur fyrir
hitakærar örverur, sem fjölga sér
hressilega við þessar aðstæður.
Ef hlemmurinn er svo líka hafður
á pottinum, er þetta enn hættu-
iegra. Aftur á móti er gott að
láta kjötið sjóða í 1 klukkutíma
við hægan hita, en láta það sfðan
liggja í annan klukkutíma í soð-
inu, en án þess að hlemmurinn
sé hafður á. Læri með beini þarf
heldur lengri suðu en úrbeinað
læri, og minni bitar, t.d. af fram-
parti, þurfa ekki eins langan tíma
og læri. Ég sýð læri alltaf með
beini, í heilu lagi, en þá læt ég
það sjóða við hægan hita í 75
mínútur, en liggja síðan 30 mínút-
ur í soðinu. Gott er að sjóða heilt
læri í steikingarpotti í bakaraofni.
Sviðasulta
5 sviðahausar
12 lítrar vatn
6 msk. gróft salt
3 blöð matarlím
1. Leggið sviðin í bleyti í kalt
saltvatn í 12 klst. Burstið síðan
mjög vel með grófum bursta úr
tveimur vötnum. Takið heilann
úr sviðunum, þvoið þau vel, sér-
staklega upp með tungunni.
2. Hitið vatnið, setjið salt út í.
Leggið sviðin í sjóðandi vatnið og
sjóðið við hægan hita í Ú/2-2 klst.
3. Takið hausana úr soðinu,
kælið örlítið en takið síðan allan
mat af beinunum. skerið kjötið í
sundur, þannig að það verði ekki
í stórum bitum. Fjarlægið auga-
steininn og eyrun. Leggið síðan
þétt í djúpt, aflangt mót, álmót
eða jólakökumót.
4. Notið helming soðsins. Setjið
fullan straum á helluna og sjóðið
soðið niður, þar til það er u.þ.b.
1 lítri.
5. Leggið matarlímið í kalt vatn
í 10 mínútur. Vindið upp úr vatn-
inu og bræðið í heitu soðinu.
6. Hellið soðinu yfír sviðin.
Kælið eins fljótt og mögulegt er.
Athugið: Ef þið notið matarlím
í sultuna, linast hún síður þegar
hún kemur í stofuhita.
Flatkökur
200 g hveiti
400 g heilhveiti
50 g hveitiklíð
IV2 tsk. salt
IV2 tsk. lyftiduft
5 dl. sjóðandi vatn
1. Setjið hveiti, heilhveiti,
hveitiklíð, salt og lyftiduft í skál.
2. Sjóðið vatnið og hellið því
sjóðandi út í mjölblönduna. Best
er að gera þetta í hrærivél, þar
sem erfitt er að hnoða svona heitt
deig með höndunum.
3. Skiptið deiginu í 10 hluta,
fletjið út og skerið undan diski.
Pikkið kökumar.
4. Setjið fullan straum á bökun-
arhellu, bakið síðan kökumar
beint á hellunni í 2-3 mínútur á
hvorri hlið.
5. Bleytið hreina diskaþurrku,
setjið utan um flatkökumar, setjið
þær síðan með stykkinu utan um
í pott, setjið síðan hlemm yfír.
Setjið kökumar jafnóðum og þær
em bakaðar í stykkið.
6. Skafíð lauslega af hellunni
jafnóðum með hníf.
Soðbrauð
V2 kg rúgmjöl
V2 tsk. salt
3 dl volgt vatn
1. Setjið rúgmjöl og salt í skál.
Hellið vatninu yfir, hrærið saman
með sleif. Setjið síðan á borðið
og búið til þykka rúllu, u.þ.b. 6
sm í þvermál.
2. Skerið rúlluna í 4-5 sm bita.
3. Mótið bitana eins og sýnt er
á meðfylgjandi mvnd. Þá stækka
brauðin við að þeim er þrýst út.
Þau eiga að verða um 10 sm í
þvermál fullmótuð.
4. Sjóðið brauðin í heitu kjöt-
soði (helst saltkjötssoði) í 15-20
mínútur.
5. Soðbrauðið er borðað heitt
með heitu saltkjöti eða kalt með
smjöri og súrmat, köldu saltkjöti
eða öðmm íslenskum mat svo sem
kæfu, rúllupylsu eða hangikjöti.
Þá er hver kaka skorin í ijóra
parta í kross og síðan klofin.