Morgunblaðið - 26.01.1989, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 1989
39
Dulbúnir dráparar
Kvikmyndlr
Arnaldur Indriðason
Dulbúníngur („Masquerade“).
Sýnd i Bíóhöllinni.
Bandarísk. Leikstjóri: Bob
Swain. Handrit: David Wolf.
Framleiðandi: Michael I. Levy.
Kvikmyndataka: David Walther.
Tónlist: John Barry.
Helstu hlutverk: Rob Lowe, Meg
Tilly, Kim Cattrall, John Glover
og Doug Savant.
Maður, kona, morð er kannski
sá ástarþríhymingur bíómyndanna
sem við kunnum helst að meta
þegar vel er farið með hann og sú
Úr myndinni Hinn stórkostlegi.
er raunin í myndinni Dulbúning-
ur(„Masquerade“), sem sýnd er í
Bíóhöllinni.
Það er vönduð, vel leikin, og vel
gerð sakamálamynd í anda þeirra
sem gerðar hafa verið eftir sögum
James M. Caine um eiturbeisk
morðsamsæri og brennandi ástar-
elda. Leikstjórinn, Bob Swain, hef-
ur fundið rétta, lágstemmda tóninn
til að fletta ofan af sögunni, hratt
án þess að flýta sér, skýrt án þess
að einfalda og af hjartans tilfínn-
ingu án þess að vera væminn.
Hið ríkulega millaumhverfí aust-
urstrandarinnar í Bandaríkjunum,
sem er sögusvið Dulbúnings, ýtir
flnlega undir andrúm svika og spill-
ingar. Þetta er ein af þessum
„kynlífs- og ofbeldismyndum", sem
vandlátir vilja kalla, er fer smekk-
lega með kynlifíð og sparlega með
ofbeldið. Bob Swain gerir sér góða
grein fyrir, að það er ekki verknað-
urinn sjálfur, í þessu tilfelli morðið,
heldur aðdragandinn og ástæðum-
ar og allt annað í kringum hann,
sem skiptir höfuðmáli. Ur því vinn-
ur hann mjög vel uppúr góðu hand-
riti.
Maður sér aldrei fyrir sér persón-
umar í morðingjahlutverki fyrr en
myndin flettir. sjálf ofan af þeim.
Yfirleitt grunar maður fljótlega
einhvem um græsku en eitt af því
sem er svo lokkandi við myndina
er dulbúningurinn sem hún klæðir
morðingjana í eins og heiti hennar
bendir til; enginn er eins og hann
Flókið samsæri og morð; Rob
Lowe í Dulbúningi.
sýnist. Hún gefur ekkert upp fyrr
en henni hentar og er þannig sífellt
að koma manni á óvart. Þess vegna
er best að vera eins og hún og
gefa ekkert upp um söguþráðinn
eða fortíð og tengsl persónanna.
Nægir að geta þess að kynták-
nið Rob Lowe stendur vel undir
nafni, hefur raunar sjaldnar verið
kynþokkafyllri, Meg Tilly fer best
að túlka brothættar og viðkvæmar
persónur, hljóðlega og látlaust og
hentar því mjög vel lágstemmdum
stíl Swains, og leikarar í minni hlut-
verkum standa sig allir með prýði.
Dulbúningur er svo sem ekki
annað en góð dægrastytting, góður
reyfari, góð saga, en hún reynir
heldur aldrei að vera neitt meira,
er samkvæm sjálfri sér og fyrirtaks
skemmtun frá upphafi til enda.
Myndbönd og mjaðmahnykkír
Hinn stórkostlegi („Moonwalk-
er“). Sýnd í BíóhöUinni.
Bandarísk. Leikstjóri: CoUn
Chilvers. Framleiðendur: Mich-
ael Jackson, Dennis E. Jones
og Jerry Kramer. Helstu hlut-
verk: Michael Jackson, Sean
Lennon, Joe Pesci, KeUie Park-
er og Brandon Adams.
Hinn stórkostlegi („Moonwalk-
er), sem sýnd er í Bíóhöllinni, er
ekki leikin bíómynd nema að litl-
um hluta heldur n.k. ævisaga
Michaels Jacksons frá því hann
byrjaði komungur að syngja með
fjölskyldu sinni til dagsins í dag
blönduð gömlum og nýjum mynd-
böndum. I fyrri hlutanum eru
klippt saman myndbrot frá ferli
hans og aðdáunin á viðfangsefn-
inu leynir sér aldrei; persónudýrk-
unin er alger. Það ætti ekki að
fara framhjá neinum að hér er
verið að setja goð hátt á stall.
íslenska heitið, Hinn stórkostlegi,
segir kannski allt sem þarf og líka
það að Michael Jackson er sjálfur
einn af framleiðendum myndar-
innar. Meiripartur seinni hlutans
er svo hin eiginlega „Moonwal-
ker“-mynd.
Það er spuming hvort áhorf-
endur hrífist af sjálfsánægjunni.
Jackson er strax í byijun settur
í samhengi við ýmsar sannarlega
stórkostlegar persónur sögunnar,
sem allar féllu fyrir morðingja-
hendi: John F. Kennedy, Robert
Kennedy, Martin L. King og John
Lennon (sonur Lennons og Yoko
Ono, Sean, fer með hlutverk í
myndinni) og síðan er saga Jack-
sons rifjuð upp með stuttum atrið-
um úr lffsferli hans klipptum sam-
an við ný og gömul tónlistarmynd-
bönd. Það er ruglingslega fram
sett svo oft er erfítt að átta sig
á hvert stefnir en innan um eru
góðir sprettir. Má þar sérstaklega
nefna mjög vandaða og skemmti-
lega leirmyndagerð („claymati-
on“), sem við fáum sjaldan að sjá
í bíó, og tónlistarmyndbandið við
lagið „Smooth Criminal" þar sem
skemmtilegar uppstillingar, hrað-
ar klippingar, danshæfíleikar og
hnykkir og skrykkir Jacksons
njóta sín vel.
Annars er goðið mest á harða-
hlaupum þegar hann er sýndur
annaðhvort undan aðdáendum
sínum eða illmennum. Sjálf „Mo-
onwalker“-myndin hefst ekki fyrr
en undir hlé eftir allan lofsönginn
um Jackson og jafnvel hún er tru-
fluð af ýmsum innskotum og er
ekki mikið annað en tæknibrellur
þegar upp er staðið. Hún er n.k.
herferð söngvarans gegn eitur-
lyfjum. í henni segir frá Jackson
og hópi krakka sem eiga S stríði
við eiturlyfjasala, sem Joe Pesci
leikur á djöfullegum nótum.
Hinn stórkostlegi er fyrst og
fremst mynd fyrir aðdáendur
Michaels Jacksons. Það má líta á
hana sem langt, langt tónlistar-
myndband og fyrir þá sem hafa
í senn gaman af slíku og dýrka
og dá Jackson, er hún gerð.
Betur má ef duga skal
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Laugarásbfó: Bláa eðlan — The
Blue Iguana
Leikstjóri John Lafia. Handrit
John Lafia. Kvikmyndataka
Rodolfo Sanchez. Tónlist Ethan
James. Aðalleikendur Dylan
McDermott, Jessica Harper,
James Russo, Pamela Gidley,
Tovah Feldsuh, Dean Stockwell,
Flea, Yano Anaya. 20th Century
Fox/Propaganda Films 1988.
Nýjustu mynd Propaganda-
manna leikstýrir nýliðinn John Laf-
ia eftir eigin handriti. Bláa eðlan
er heldur nær farsa en gaman-
mynd, þar sem einkum er dárast
að einkaspæjaramyndum frá fyrri
helmingi aldarinnar, spaghetti-
vestrum og vestrum. Eins má
kenna fjölmargar skopstælingar
frægra atriða úr góðkunnum
myndum einsog Lífverði Kurosawa
(sem verið er að sýna af og til á
Stöð 2 og enginn ætti að missa
af), Casablanca og fleiri mætti tína
til.
Einkaspæjarinn og hrakfalla-
bálkurinn McDermott telur sig
kominn í feitt er skattayfírvöld
Bandarílqanna fela honum að koma
uppum ólöglega bankastarfsemi í
smábænum E1 Diablo í Mexíkó, og
hæfir nafnið staðnum vel. Þama
morar allt af hinum argasta óarga-
lýð sem stjómað er af forystufólinu
Russo, eða „bankastjóranum"
Harper. Spæjarinn bruggar nú ráð
til að heimta féð og koma því norð-
ur yfír landamærin og nýtur full-
tingis stráksins Yano, söngkonunn-
ar Gidley og ruglar Russo og Harp-
er í ríminu. Sitja nú allir á svikráð-
um hver um annan þveran.
Hreint ekki svo galin hugmynd
og leikstjórinn fer oft ferskum og
nýstárlegum höndum um viðfangs-
efnið. Framleiðslan og vinnubrögð-
in fagmannleg, tónlistin góð og
sviðsmyndin, með öllum gömlu,
góðu Bjúkkunum, hreinasta augna-
yndi. Gallinn er hinsvegar sá að
líflegt handritið er ekki nógu fynd-
ið og ruglingurinn ekki nógu
ruglaður. Þá kemur upp hér sama
vandamálið og í fyrri mynd þeirra
félaga, Sigurjóns og Steven Golins,
aðalleikarinn veldur ekki hlutverki
sfnu.
Menn heltast fljótt úr lestinni í
Hollywood, við hvað svo sem þeir
starfa. leikarar ekki síst. Þeir fær-
ustu þykjast góðir ef þeir geta
haldið sig við toppinn í tíu ár, og
áratugurinn er ekki lengi að líða.
Enda er þar um auðugan garð að
gresja hvað snertir athyglisverða
skapgerðarleikara, gamlar eða
fallnar stjömur, eða aukaleikara.
Vandinn er að velja þá þannig sam-
an að hópurinn sé áhugaveifíur og
skemmtilega samstilltur og það
hefur svo sannarlega tekist. Þau
Russo (Extremities), Harper
(Shock Treatment), Feldshuh (The
Idolmaker) og aukaleikarinn
óborganlegi, Dean Stockwell, eru
stjömur myndarinnar (að ógleymd-
um stráknum Yano, furðufyrir-
brigði sem nefnist Flóin og Bjúkk-
unum!).
Frískleg, brosleg og vel hefur
tekist að setja saman skrautlegan
leikhóp af varamannabekknum. En
hérslumuninn vantar því Bláa eðlan
getur talist prýðistilraun en tæpast
alvarleg.
Kjötvörur
frá Höfn hf
fengu
TVENN
BR0N8VERDLAUN
Á INTERFAIR '88 í DANMÖRKU
Við framleiðslu Hafnar kjötvaranna
eru gæðin höfð að leiðarljósi
HOFN hf.
KJÖTVINNSLA - SELFOSSI
// J /J / /J /J *,J J
(t (t (t (r (r (r (r; (f
MUYWOOO LISTARNIR
Freistandi fimmtudagur i Hollywood
í kvöld kynnnum við vinsældarlistann
sem valinn var af gestum síðastliðið
laugardagskvöld.
Vikurálista Síðastavika Þessa viku Flytjandi Lag
2 1 3 Michael Jackson - Smooth Criminal
1 2 “ Boy Meets Girl - Waiting For A Star To Fall
2 3 5 Sverrir Stormsker - Bless
2 4 9 U2 - Angel Of Harlem
2 5 1 Replay - Michael Mania
1 6 “ Boney M - Boney M /Megamix
2 7 10 Salt’N’Pepa - Twist And Shout
2 8 4 Art Of Noise & Tom Jones - Kiss
2 9 7 Astec Camera - Working In A Goldmine
1 10 “ Martinica - I Love You More Than You Know
Þetta verður ekki það eina sem verður á boðstólum í
kvöld. Hafsteinn Hafsteinsson, stórsöngvari,
mun masta á svæðið ásamt dönsurum úr Gæjum
og glanspíum.
Michael Jackson á hreinu fHollywood.
Annar listi sem þú skalt muna:
Tossalisti
- Gæjarogglanspíurumhelgina
- Síðanskeinsólumhelgina
- Náttfataball 2. febrúar
- íslandsmeistarakeppnin í Rokk & ról 16.-19. febrúar.
Restamant - Diskótek
H0LUW00Ð
Fylgstu með okkur - Við fylgjumst með þér.