Morgunblaðið - 26.01.1989, Side 45
eaet haumai bs huoaqtjtmmt? QiQAjawjOHOM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 1989
Elín Helga Stefáns-
dóttir—Mhming
Fædd 31. janúar 1905
Dáin 17. janúar 1989
Tíminn vinnur aldrei á
elstu kynningunni,
ellin finnur ylinn frá
æskuminningunni.
(Jón S. Bergmann)
Þá hefur blessuð Elín frænka
mín kvatt þennan heim. Stundin
var komin og ég held að hún hafi
ekki verið þeirri ráðstöfun mótfali-
in.
Foreldrar hennar voru hjónin
Amfríður Rannveig Ólafsdóttir frá
ísafirði og Stefán Runólfsson prent-
ari í Reykjavík. Foreldrar Amfríðar
vom hjónin Elín Halldórsdóttir frá
Gili í Bolungarvík. Hún var af svo-
nefndri Amardalsætt. Maður Elínar
Halldórsdóttur var Ólafur, bóndi og
sjómaður í Hnífsdal, síðar á Sela-
Kirkjubóli í Önundarfirði, en lengst
af, eða frá 1882, á ísafirði til dauða-
dags 6.7. 1919. Hann var fæddur
á Skjaldfönn við ísafjarðardjúp son-
ur Ölafs bónda þar Jónssonar S
Lágadal og víðar, Ólafssonar. Fyrri
kona Ólafs var Amfríður Ólafs-
dóttir, Matthíassonar, Þórðarsonar
stúdents í Vigur.
Faðir Elínar var Stefán prentari
Runólfsson, hreppstjóra að Berg-
vaði í Hvolhreppi, síðar Eyrar-
bakka, Nikulássonar á Kollabæ,
Runólfssonar. Móðir Stefáns var
Helga Stefánsdóttir frá Eystri-
Kirkjubæ á Rangárvöllum.
Stefán var fæddur 1863 og kom
ungur til Reykjavikur, um eða innan
við tvítugsaldur. Hann byijaði á því
að vinna á úrsmíðastofu, en líkaði
ekki starfið og komst að samkomu-
lagi við ísafoldarprentsmiðju um
nám í prentiðn. Það mun hafa ver-
ið 1884-5. Árið 1893 réðst hann
sem prentsmiðjustjóri til Skúla
Thoroddsen á ísafírði, sem þá stóð
í ströngu í sambandi við svonefnt
Skúlamál. Þar var heitt í kolunum,
sem kunnugt er, og lifði lengi i glóð-
unum. Stefán sagði starfí sínu lausu
1896 og stofnaði, ásamt nokkmm
mönnum á ísafirði, félag til kaupa
á prentsmiðju er neftid var „Prent-
smiðja Stefáns Runólfssonar". Þeir
ýttu og úr vör nýju blaði er nefnd-
ist „Haukur“ og vera skyldi fræði-
og skemmtiblað, en ópólitískt.
Fyrsta blaðið kom út 14. október
1897 og náði fljótlega nokkurri út-
breiðslu, einkum á Vestfjörðum og
í Reykjavik. Stefán var lengi í Leik-
félagi Reykjavíkur og þótti góður
leikari.
Á ísafirði kynntist Stefán konu-
efni sinu Amfriði. Þau giftust 3.3.
1899, en fluttust til Reykjavíkur
1901. Þeim varð 9 bama auðið, en
tvö þeirra dóu ung. Þau 7, er kom-
ust á legg, vom:
Nikulás Davíð f. 1898, Stefán
Helgi f. 1901, Ólafur Páll f. 1902,
Guðrún Margrét f. 1904, Elín Helga
f. 1905, Runólfur Magnús f. 1906,
og Ágúst f. 1913.
Skömmu eftir miðjan fýrsta ára-
tug aldarinnar festi Stefán kaup á
húsinu nr. 16 við Þingholtsstræti
og bjuggu hjónin þar til dauðadags.
Stefán lést 1936 og Amfríður 1951.
Eg kynntist þessu frændfólki
mínu fyrst árið 1912, þegar foreldr-
ar mínir fluttust frá ísafirði til
Reykjavíkur ásamt 7 bömum
sínum. Húsfreyjan var föðursystir
mín og við fómm auðvitað fyrst í
Þingholtsstræti 16 til að heiisa upp
á frændfólkið og var okkur vel
fagnað. Ég þekkti engan í bænum
og laðaðist því að þessu frændfólki
mínu. Ég var þama oft daglegur
gestur og komst þá ekki hjá því
að kynnast dætmnum einnig og
veita því athygli hver regin munur
var á skapgerð þeirra. Guðrún var
framgjöm og vildi öllu ráða, kvik-
lynd og skjót í svömm, en gat oft
komist vel að orði og skemmtilega.
Elín var aftur á móti hæglát, ljúf-
lynd og hlédræg. Hún talaði helst
ekki við ókunnuga nema á hana
væri yrt, en svaraði þá skýrt og
kurteislega, en hún gat líka verið
„glettin og spaugsöm og spræk“.
Hún hugsaði ekki um framhalds-
nám að loknu námi í bamaskóla,
en laðaðist að mömmu og vildi
Ingileif Gísla-
dóttir - Minning
Fædd 26. september 1902
Dáin 22. janúar 1989
í dag fer fram útför Ingileifar
Gísladóttur sem lést í Reykjavík
þann 22. þ.m. á 87. aldursári.
Ingileif fæddist í Reykjavík þann
26. september 1902, dóttir hjón-
anna Vilborgar Halldórsdóttur og
Gísla Einarssonar sjómanns. Var
hún yngst þriggja systkina, en hin
vom Halldór sem var togaraskip-
stjóri um árabil og er á lífi og
Sigríður verslunarkona sem er látin
fyrir nokkmm áram.
Að loknu námi í Landakotsskól-
anum vann Ingileif við verslunar-
störf hér í Reykjavík og í Dan-
mörku þar til hún giftist þann 9.
október 1926 Kolbeini Sigurðssyni
skipstjóra, sem ættaður var frá
Eyrarbakka. Kolbeinn var togara-
skipstjóri um fjölda ára, mikill afla-
maður og farsæli í starfí. Skömmu
eftir að þau giftust byggðu þau hús
að Sóleyjargötu 21 og bjuggu þar
ætíð síðan, en Kolbeinn lést í árslok
1973. Á Sóleyjargötunni bjó hún
manni sínum og bömum hlýlegt
heimili þar sem ætíð var gott að
koma og njóta samvistar við þau.
Þau eignuðust fjögur börn, tvíbur-
ana Sigurð og Gísla sem báðir vom
stýrimenn og em látnir, dótturina
Viktoríu sem var eiginkona undir-
ritaðs og lést 1984, en yngstur er
Kolbeinn Ingi flugstjóri, búsettur í
Lúxemborg. Ingileif varð því að sjá
á bak þremur af fjóram bama sinna
löngu fyrir aldur fram. Bamabömin
hennar em átta og bamabama-
bömin fimm.
Tengdamóðir mín var heilsu-
hraust fram á efri ár en fyrir nokkr-
um ámm hrakaði sjón hennar það
mikið að hún gat ekki lesið eða
tekið í spil og var það henni mikið
áfall.
Ingileif, sem nú er komin á fund
eiginmanns og bama sinna, er hér
kvödd af ástvinum sínum með þökk
fyrir það sem hún veitti þeim.
Jóhannes Markússon
hjálpa henni við matseld og hús-
verk, en það er mikil vinna á stóm
heimili. Élín lærði þá margt, sem
nauðsynlegt er að kunna á lífsleið-
inni. Heimilið varð hennar kvenna-
skóli. Hún var iðin og vann verk
sín hljóðlega. Það var hennar metn-
aður að leysa hvert verk vel og
snyrtilega af hendi og þá leið henni
vel á eftir.
Eftir lát foreldranna komu bömin
sér saman um að búa áfram félags-
búi í gamla, góða húsinu undir for-
ystu Stefáns Helga og var Elín þá
sjálfkjörin ráðskona, en hin systkin-
in vom öll í atvinnu. Davíð var þá
kvongaður fyrir nokkmm ámm og
fluttur að heiman. En þegar Stefán
féll frá 1966 varð að slíta þessum
félagsskap. Elín fékk fasta vinnu í
þvottahúsi Ríkisspítalanna og vann
þar meðan heiisa og aldur leyfðu.
Eftir að störfum lauk bjó Elín um
skeið í húsi bróðursonar síns Stef-
áns Ágústssonar og konu hans
Helgu Bjömsdóttur, Stefánssonar.
En hana dreymdi um að eignast
litla séríbúð og rættist sá draumur
með aðstoð framangreindra hjóna
og Ólafs bróður hennar og konu
hans Önnu Pálmadóttur. Hafa þessi
hjón bæði jafnan litið til hennar og
fylgst með högum hennar og heilsu.
Síðustu árin bjó Elín í séríbúð í
Reynimel 72 og þar veiktist hún
af „inflúensu" þeirri, er breiddist
mjög um bæinn í haust. Var hún
flutt í Landakotsspítala, en þar kom
í ljós að hún var með ólæknandi
sjúkdóm, sem skyndilega dró hana
til dauða.
Minningin um Elínu frænku mina
er björt og fögur. Hún var hæglát
og ljúflynd, vann sín verk vei og
samviskusamlega. Hún vildi öllum
vel og gerði aldrei flugu mein.
Og sá, sem þyngstar byrðar bar
fær bætur engu minni
því guð er allt og allstaðar
í allri veröldinni.
(D.St.)
Ólafúr I. Magnússon
Skiiadagxir
Birtingardagur .
■Birting
afmælis-
ogminning-
argreina
10
OKTÓBER
LAUCARDACUR
13
OKTÓBER
ÞRIÐJUDAGUR
Skiladajfur Birtingardagur
Morgunblaðið tekur af-
mælis- og minningargreinar
til birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjóm blaðsins á 2. hæð í Aðal-
stræti 6, Reykjavík og á skrif-
stofú blaðsins í Ha&arstræti
85, Akureyri.
Athygli skai á því vakin, að
greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á
mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
45
t
EINAR F. FREDERIKSEN
flugstjóri,
Hrlngbraut 71,
Reykjavlk,
verður jarðsunginn frá Kristskirkju föstudaginn 27. jan. kl. 13.30.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna,
Sunna Emanúelsdóttir Frederlksan.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
SIGURÐAR J. JÓNSSONAR,
Skólastfg 11,
Akureyrl.
Þórunn Björnsdóttir,
Björn Sigurðsson, Guðrún Jónsdóttir,
barnabörn og aðrir vandamenn.
t
Minningarathöfn um son okkar,
VALDIMAR ÞORVARÐARSON
frá Grundarfirði,
ferfram frá kapellunni í Fossvogi föstudaginn 27. janúar kl. 10.30.
Útför hans fer fram iaugardaginn 28. janúar kl. 14.00 frá Grundar-
fjarðarkirkju. Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð en þeim,
sem vildu minnast hins látna er bent á Grundarfjarðarkirkju eða
Slysavarnafélag Islands.
Fyrir hönd barna og systkina hins látna,
Ásdfs Valdimarsdóttir,
Þorvarður Lárusson.
t
Útför eiginmanns míns og stjúpa okkar,
ÞORLÁKS GUÐMUNDSSONAR
frá Hveragerðl,
Vogatungu 87,
Kópavogl,
fer fram frá Garðakirkju á Álftanesi föstudaginn 27. janúar
kl. 13.30. Bílferð verður frá Hótel Ljósbrá, Hveragerði kl. 12.00.
Lfney Krlstinsdóttir,
Auður Antonsdóttir, Sigurlfna Antonsdóttir,
Þorkell Máni Antonsson, Kristinn Antonsson,
Sigrfður Antonsdóttir, Tómas Antonsson.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÓLAFUR SIGURÐSSON,
Hrafnistu, Hafnarfirði,
áður Brúnavegi 12,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 27. janúar kl.
15.00.
Þeir sem vildu minnast hans, vinsamlegast láti Heilsugæslusjóð
Hrafnistuheimilanna njóta þess.
Kristjana Þorsteinsdóttir,
Gerður Óiafsdóttir, Magni Ingólfsson,
Rebekka Ólafsdóttir, Valdlmar Sveinsson,
Sigríður Ólafsdóttir, Bjarni Bjarnason,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum auðsýnda samúð og vináttu við fráfall fööur okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
HALLFREÐS GUÐMUNDSSONAR,
fyrrverandl hafnsögumanns,
Akranesl.
Sórstakar þakkir færum við starfsfólki Sjúkrahúss Akranes fyrir
góða hjúkrun og umönnun á liðnum árum.
Sigrfður Hallfreðsdóttir, Sfmon Sfmonarson,
Magnús Hailfreðsson, Guðrún Andrásdóttir,
Runólfur Hallfreðsson, Ragnheiður Gfsladóttir,
Júlfana Helgadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Lokað
Vegna jarðarfarar SIGRÚNAR S. ÓSKARSDÓTTUR
verður verslunin lokuð frá kl. 13-15 föstudaginn 26. janúar.
Axel Ó., Laugavegi 11.
Lokað
í Vestmannaeyjum. Vegna jarðarfarar SIGRÚNAR S.
ÓSKARSDÓTTÚR verður verslunin lokuð föstudaginn
26. janúar og laugardaginn 27. janúar.
Axel Ó., Vestmannaeyjum.