Morgunblaðið - 26.01.1989, Side 46
46
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 1989
fclk f
fréttum
Gengið til góðs
Indveijinn Sri Chinmoy er einn
virtasti andlegi leiðtogi okkar
tíma. Hann er búsettur í New
York í Bandaríkjunum og hefur
hann leitt hugleiðsluhóp hjá Sam-
einuðu þjóðunum um árabil. Hann
ferðast víða um heim, heimsækir
kirkjunnar menn, þjóðhöfðingja,
listamenn, íþróttafólk og afreks-
menn á hinum ýmsu sviðum.
Sjálfur er hann íþróttamaður af
lífi og sál, stundar meðal annars
hlaup og lyftingar.
Lyftingar hans hafa vakið
heimsathygli en í tvígang hefur
hann lyft rúmlega þremur tonnum
með annarri hendi og hafa þær
lyftur verið viðurkenndar af
breskum og bandarískum lyfting-
asamböndum. Fyrir Ólympíuleik-
ana í Seoul í Kóreu lyfti hann, á
þar til gerðum standi, mörgum
þekktum keppandanum sem og
embættismönnum með annarri
hendi og á ferðalagi um heiminn
á síðasta ári framkvæmdi hann
700 slfkar lyftur. Eftir að til New
York kom, í nóvembermánuði
sfðastliðnum, lyfti hann sem svar-
ar hans eigin líkamsþyngd, sem
er um 78 kíló, 100 sinnum á 68
mínútum. Stuttu síðar endurtók
hann þetta 100 sinnum, nú á að-
eins 22 mínútum og 43 sekúndum,
sem þýðir að hver lyfta hefur tek-
ið um 12 og hálfa sekúndu. Vitni
voru að öllum lyftum hans og
meðal annarra voru viðstaddir
formaður bandarísku ólympíu-
nefndarinnar og varaformaður
alþjóðlegu vaxtaræktarsamtak-
anna.
Afrek af þessu tagi virðast of-
urmannleg en bænir og hugleiðsla
síðustu áratugi hafa gefið Sri
Chinmoy innri sem ytri styrk.
Hann segir: „Með því að lyfta
mönnum er ég að hvetja þá og
fylla hugmóði um leið og ég votta
þeim og afpekum þeirra mína
dýpstu virðingu." Og annarsstað-
ar segir Sri Chinmoy: „Ég legg
áherslu á að innri styrkur og innri
friður getur leitt til friðar í heimin-
um öllum. Allir menn þrá frið.
Með styrk bæna, hugleiðslu og
góðs vilja getum við leitt mann-
kynið til hærra vitundarstigs".
Starf hans allt einkennist af
óeigingimi og einlægum vilja til
þess að leiða menn til aukins and-
legs þroska sem er forsenda fyrir
velferð mannkyns. Hann hefur
skrifað um 700 bækur, málað
þúsundir málverka og tónsmíðar
hans skipta einnig þúsundum.
Hann heldur tónleika og sýningar
víða um heim svo og flytur fyrir-
lestra um andleg málefni. Hér á
landi hélt hann meðal annars tón-
leika í Háskólabíói í apríl á sfðast-
liðnu ári. Hugleiðslusetur eru
mörg í hans nafni og er eitt slíkt
starfandi í Reykjavík.
Hugleiðsla, bænir og góður vilji
er leiðin sem Sri Chinmoy hefur
gengið til góðs.
SRI CHINMOY
Hér má sjá hvaða aðferðir Sri
Chinmoy notar við að lyfta
fólki.
Sri Chinmoy hitti Jóhannes Pál páfa II í Vatíkaninu i lok ársins.
Er þetta í þriðja sinn sem þeir ræðast við. Sagði Jóhannes Páll
páfi við það tækifæri: „Ég er mjög þakklátur fyrir heimsókn
þína. Guð blessi þig og verk þín.“
COSPER
—Þegiðu.þú fælir fiskana burtu.
HAPPADRÆTTI
Stórhapp-
ilrætti Flug-
björgunar-
sveitanna
Nýlega voru afhentir aðalvinn-
ingar í stórhappdrætti Plug-
björgunarsveitanna, en dregið var
24. desember síðastliðinn. Bergþór
Ólafsson vann svokallaðan heimili-
spakka sem innihélt Macintosh Plus
einkatölvu, kvikmyndatökuvél,
hljómtækjasamstæðu, sjónvarps-
og myndbandstæki, örbylgjuofn og
farsíma, samtals að verðmæti
825.000,-.
VESTUR-ISLENDINGAR
Islendingafélagið
í San Fransiskó
Islendingafélagið í San Fransiskó
í Bandarílq'unum hélt jólafagnað
í desember þar sem aðventuljósin
voru tendruð af bömum. Séra Vig-
fús Þór Amason prestur í Siglu-
fírði, sem er í ársleyfí við fram-
haldsnám í Berkeley, las jólaguð-
spjallið og flutti jólahugvekju. Jóla-
sveinn (Júlíus Baldursson) skemmti
bömunum og gaf gjafír. Formaður
íslendingafélagsins í San Fransiskó
er Ámi Amason og er félagslíf hjá
félaginu þar mjög blómlegt. Á
myndinni em frá vinstri Þómnn
Hulda Vigfúsdóttir, jólasveinninn
Júlíus Baldursson og Björg Vigfús-
dóttir.
Lilja Eiríksdóttir hlaut í vinning LandCruiser Turbo Diesel-bif-
reið, að verðmæti rúmlega tvær milljónir króna.
Bergþór Ólafsson tekur við heimilispakkanum