Morgunblaðið - 26.01.1989, Blaðsíða 52
'íEiSí'
VEITINGAHÚSIÐ
SKÚTAN
DALSHRAUNI 15
S. 51810 og 651810
KORFUKNATTLEIKUR - NBA-DEILDIN
ÞÖRR\
MATUR
Fjölbreyttur þorramatur á fjölskyldubakka,
kr. 1.050.- pr. mann.
Ljúffengur þorramatur á trogum fyrir fimm
manns eöa fleiri, kr. 1.050.- pr. mann.
Glæsilegar þorraveislur að viðbættri grlsa-
steik, t.d. fyrir fyrirtæki og/eða félagasamtök,
kr. 1.150.- pr. mann.
Bjóðum upþ a þægilegan og vistlegan sal
fyrir 50 - 170 manna hópa.
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTT1R
FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 1989
NBA-molar
■ PÉTUR Guðmundsson, okk-
ar maður í NBA-deildinni, er með
nokkuð góða nýtingu úr þriggja
stiga skotum. Hann hefur leikið í
deildinni í fjögur ár með Portland,
Los Angeles Lakers og loks San
Antonio Spurs. Nýting hans úr
skotum fyrir utan línuna er 50%.
Pétur hefur skotið tvisvar og hitt
úr öðru skotinu! í úrslitakeppninni
hefur Pétri ekki gengið jafn vel —
skotið tvisvar án þess að skora.
■ STIGAMET NBA-deildarinn-
ar var sett í leik Detroit Pistons
og Denver Nuggets í Denver
1983. Detroit sigraði eftir þrí-
framlengdan leik, 186:184. Flest
stig í leik án framlengingar voru
er Denver sigraði San Antonio
Spurs 163:155, árið 1984. Það eru
tæp 7 stig á mínútu. Fæst stig í
leik í NBA-deildinni voru í leik
Fort Wayne Pistons og Minnea-
polis Lakers árið 1950. Wayne
Pistons sigraði í leiknum, 19:18.
Þess má geta að Georg Mikan
gerði 15 af 18 stigum Lakers.
Metið í íslandsmótinu var sett í
fyrra er Haukar sigruðu Tindastól
141:134 í þrí-framlengdum leik.
■ LOS Angeles Lakers hefur
náð bestum árangri á útivelli. Það
var árið 1972 er liðið sigraði í 31
af 38 útileikjum sínum. Sama ár
náði liðið besta árangri í heild, vann
69 af 82 leikjum sínum. Boston
Celtics hefur hinsvegar náð besta
árangri á heimavelli. Það var árið
1986 er liðið sigraði í 40 af 41
heimaleik sínum.
■ UPPSELT hefur verið á
síðustu 500 heimaleiki Portland
Trail Blazers. Það er met í NBA-
deildinni. Boston Celtics er í 2.
sæti með uppselt á 387 heimaleiki
í röð.
■ OG Beiri met. Los Angeles
Lakers hefur unnið flesta leik í
röð. Það var 1971-72 er liðið vann
33 leiki í röð. Liðið tapaði svo 34.
leiknum fyrir Milwaukee, 104:120.
Þá var í liði Milwaukee „efnilegur"
leikmaður, Kareem Abdul-Jabbar
sem nú er að ljúka ferli sínum með
Lakers.
Pat Rilay, ræðumaður og þjálfari.
■ PAT Riley, þjálfari Lakers,
þarf ekki að hafa áhyggjur af aura-
leysi. Hann fær rúmlega 400.000
dollara í laun fyrir að þjálfa lið
Lakers. Við þetta bætist svo þókn-
un fyrir að halda ræður hér og þar
í Bandaríkjunum. Fyrir að stíga í
pontu tekur Riley um 15.000 doll-
ara. Þess má geta að í fyrra hélt
hann um 50 ræður. „Ég tel mig
vera þjálfara og fyrirlesara," segir
Riley. „Ræðumennskan hjálpar
mér við að koma sjónarmiðum
mínum á framfæri og gera fólki
grein fyrir því hvað ég geri sem
þjálfari."
■ ÁHORFENDUM fjölgaði um
22,9% í NBA-deildinni í fyrra. Árið
1987 voru áhorfendur 4.330.488
en í fyrra voru áhorfendur
5.307.143. Mesta aukningin var á
leikjum Sacramento, LA Clippers,
Milwaukee og New York. ,
iilififjliífííttutiiiitimtt t
NBA-úrslK
Atlanta Hawks—Cleveland Cavaliers...............................121:105
New Jersey Nets—Denver Nuggets..................................117:115
Seattle Supersonics—Portland Trail Blazers......................103:100
Chicago Bulls—Dallas Mavericks .................................109: 91
Houston Rockets—Miami Heat ....................................118: 93
Phoenix Suns—Charlotte Homets................................. 106:103
New York Knicks—Los Angeles Lakers..............................122:117
Milwaukee Bucks—Sacramento Kings................................114:110
1. VINNINGUR
á laugardag
handa þér, ef þú hittir
á réttu tölumar.
• •
vantaí
smn:
/z
mo,
■
asimsv
OFALDUR
Mark Jackson átti mjög góðan leik gegn Lakers og stjómaði spili New York.
Lakers skelh
á heimavelli
EFTIR 24 sigra í röð á heima-
velli urðu meistararnir, Los
Angeles Lakers, loks að játa
sig sigraða. Það var New York
Knicks sem stöðvaði sigur-
göngu Lakers og sigraði
122:117 í spennandi leik. Þess
má geta að New York hafði
aðeins tapað einum leik á
heimavelli, fyrir Lakers, og því
má segja að leikmenn New
York hafi borgað fyrir sig.
Síðustu mínútumar vom mjög
spennandi og þegar nokkrar
sekúndur vom til leiksloka var stað-
an 120:117 og Lakers með boltann.
Liðið reyndi þtjú
Gunnar skot en þau geiguðu
Valgeirsson
skrifar
öll og New York
gerði síðustu stigin
úr vítaskotum. Pat
Ewing (25 stig) og Mark Jackson
vom bestir í liði New York.
Micheal Jordan meiddist í leik
.Chicago gegn Dallas. Hann hvfldi
lengst af en kom inn á í fjórða leik-
hluta. Þá gerði hann út um leikinn
með 9 mikilvægum stigum og
Chicago sigraði 109:91.
Dominique Wilkins var í miklu
stuði er Atlanta sigraði Cleveland
121:105. Wilkins gerði 41 stig fyrir
Atlanta.
New Jersey sigraði Denver,
117:115 í spennandi l'eik. Það sem
var þó merkilegast við þennan leik
var að Michael Adams gerði ekki
þriggja stiga körfu í leiknum en
hann hafði gert a.m.k. eina slíka í
79 leikjum í röð, en það er met.