Tíminn - 24.10.1965, Page 11
SUNNUDAGUR 24. október 1965
TÍMINN
n
VAR Á REKI
Framhald af bls. 1.
eins og fyrr segir Átti báturinn
þó að vera kominn að fyrir sólar
hring og vonzkuveður hafði geis
að á þessum slóðum. Var báturinn
þá nærri kominn upp í Búðahraun
og mun ekki hafa átt eftir nema
tveggja tfma rek. Þá er enn ótalið
eitt mjög alvarlegt atriði: Enginn
þeirra, sem á bátnum voru, virðist
hafa verið skráður á hann, en
það voru tveir karlmenn og ein
kona. Hefur blaðið orð skipverja
•sjálfra fyrir þessu, en fréttamað
Ur blaðsins hitti þá aðeins að máli
í morgun. Þeir sögðu einnig, að
blysið, sem sást frá þeim, hefði
verið þeirra síðasta blys, og tóku
þeir það úr gúmbátnum, sem stað
settur var uppi á stýrishúsi báts-
ins, og virðist hann hafa verið
eitt af því fáa, er í lagi var um
borð. Skýjaborgin fór á veiðar á
miðvikudaginn og í fyrsta kasti
fékk báturinn í skrúfuna, og hafði
verið á reki síðan, eða í fulla tvo
sólarhringa, eins og fyrr segir.
Hér verður að teljast um furðu
legan trassaskap á ýmsum svið-
um að ræða, en því miður er þetta
ekkert einsdæmi. Það verður að
segjast eins og er, að útbúnaður
og siglingar á smábátum hér við
Faxaflóa er oft fyrir neðan allar
hellur og verður vart hjá þvj
komizt að taka þessi mál fastari
tökum. Menn sigla þessum bátum
úr höfn þótt misjafnt veður sé
í nánd, og leita svo hafnar án
þess að gera nokkuð vart við sig.
Síðan er farið að óttast um þá í
landi og leitað aðstoðar Slysa-
varnafélags og Landhelgisgæzlu
og starfsmenn þessara aðila
Ódýrt — Góð kaup
Sængurver einiit
Sængurver röndótt
Koddaver einlit
Koddaver röndótt
Lök
kr, 190.00
— 215.00
— 38.00
— 40.00
— 101.00
Sveinspróf í húsasmíði
Þeir meistarar, er ætla að láta nema ganga undir
sveinspróf á þessu hausti sendi umsókn fyrir 28.
október til formanns prófnefndar, Gissurar Sím-
onarsonar, Bólstaðahlíð 34, ásamt eftirtöldum
gögnum:
1. Námssamningum.
2. Burtfararprófi frá iðnskóla.
3. Yfirlýsingu frá meistara um, að námstíma sé
lokið.
4. Fæðingarvottorð.
5. Próftökugjald.
Prófnefndin.
ÞAKKARÁVÖRP
Kærar þakkir færi ég öllum þeim, sem glöddu mig
með heimsóknum, skeytum og gjöfum á sjötugsafmæli
mínu 15. október s.l.
Guð blessi ykkur öll.
Ragnhildur Jónsdóttir, Núpsdalstungu.
Hjartans þakkir til allra þeirra, er glöddu mig með
gjöfum og skeytum á fimmtugsafmæli mínu 22. októ-
ber s.l.
Sigríður Andrésdóttir frá Þórisstöðum.
Konan min og móðir okkar
Sólveig Kristbjörg Magnúsdóttir
andaðist 22. þ. m.
Eiríkur Guðjónsson og börn.
Inniiegar þakkir til allra, er sýndu okkur samúð og vinarhug
við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu,
Maríu Ólafsson
Ása Traustadóttir, Óiafur Traustason,
Pétur Traustason, Theódóra Óskarsdóttir,
Jóhanna Traustadóttir, Jón Guðnason,
og barnabörn.
leggja sig oft í beina lífshættu
vegna trassaskapar þessara sjó-
manna, fyrir utan það, að svona
atvik geta hreinleg sljóvgað ár-
vekni þeirra aðila, sem annast
björgunarstörf, án þess að verið
sé að halda því fram, að svo hafi
enn orðið.
Vélbáturinn Skýjaborg er 12
tonn að stærð, byggður úr furu
og eik í Hafnarfirði árið 1962. Eig
andi er skráður í sjómannaalman
aki fyrir '65 Kjölur h.f. Reykja-
vík, en eins og fyrr segir var
einhver fisksali með bátinn á
leigu. Það var varðskipið Þór, sem
fann bátinn, og skipherra var Guð
mundur Kjærnested.
SIF TÓK
F,’amhald al t>ls. 1
Þetta er í fyrsta skipti, sem
Sif tekur togara að landshelgis-
veiðum, en eins og komið hefur
fram í fréttum hefur hún oft stað-
ið báta að veiðum. Eins og fyrr
segir var Þröstur Sigtryggsson
skipherra á flugvélinni, en Þórar-
inn Björnsson var skipherra á
Óðni.
Enn er ekki lokið dómsmeðferð
í máli skipstjóranna á þeim tveim
togurum Bæjarútgerðar Reykja-
víkur, sem voru teknir að land-
helgisveiðum á Faxaflóa í fyrri-
nótt, en munnlegur málflutningur
mun fara fram fyrir Sakadómi
Reykjavíkur síðdegis í dag.
HEIMANMUNDUR
Framhald af 6. siðu
Nei, þau heyra ekki undir
flokkinn, en þrír fjórðu hlutar
hinna félagsbundnu kvenna
eru sósíaldemókratar.
Hve fjölmenn eru þessi sam-
tök?
í þeim eru um 450 þúsund
konur. Á vinnuaflsmarkaði hér
eru um 37% konur og er það
hæsta talan í löndum Vestur-
Evrópu. En það er ekkert
nýtt fyrirbæri. Austurrískar
konur hafa um aldir starfað
mi'kið utan heimila sinna.
Eru kaupgjaldsmál aðal-
verkefni samtakanna?
Nei, hér eru verkföll afar
sjaldgæf og má segja, að kaup-
gjaldsmálin séu orðin tiltölu-
lega lítill þáttur í starfinu.
Þess í stað eru það fræðslu-
og menningarmál, sem mest
rúm skipa, enda fá samtökin
verulegt fjármagn til umráða í
því skyni. Verkalýðssamtökin
hafa eiginn skóla, þar sem
kenndar eru margar verklegar
greinir, auk bóknáms, t.d. í
þjóðfélagsfræðum. Við styrkj-
um starf „Volkstheater" —
leikhússins, sem staðsett er hér
skammt frá, ekki einasta svo
að starfsemi þess hér í borg-
inni beri sig, heldur líka til
þess, að það geti sent leik-
flokka út á land. Við viljum
kynna verkalýðnum góða leik-
list og tónlist og komi hann
ekki í leikhúsin og á tónleik-
ana, þá sendum við listamenn-
ina til hans á vinnustaðina. Við
styðjum og örvum hvers kon-
ar listiðkun meðal félags-
manna, gerum allt sem hægt
er, til að venja menn á að
verja frístundum sínum heldur
við skapandi, listrænt starf, en
í kvikmyndahúsum eða við
sjónvarp. Við höldum list-
sýningar, ekki einasta á viður-
kenndum listaverkum, heldur
og á verkum tómstundalista-
manna, og við reynum að
kynna nútímalist, þó að það
sé stundum þungur róður. Það
er enginn vandi að fá menn
til að viðurkenna að Rubens sé
góður málari, en það er erf-
iðara að -fá menn til að-.meta
og viðurkenna verk sámtíma-
manna.
Innan samtaka okkar eru
félög fyrir um það bil sextán
starfsgreinar. Auðvitað hafa
þær að nokkru sín sérvanda-
mál, en það fer oft svo, að
þegar málefni eru kynnt á
víðara vettvangi, þá sameinast
heildarsamtökin um lausn
þeirra, sem þá er auðveldari
í framkvæmd. Heildarsamtök-
in hafa starfslið og fjármagn
í sínum höndum og geta miðl-
að fé til þeirra félaga, sem
minna bolmagn hafa.
Við leggjum mikla áherzlu á
aukna menntun allra verka-
kvenna. Þróunin gengur — og
á að ganga — í þá átt, að
menntunarlega og launalega
minnki bilið á milli mannsins,
sem gengur með hvíta flibb-
ann og þess, sem er í vinnu-
gallanum. Öll tækniþróun nú-
tímaþjóðfélags stefnir í þá átt.
Eru þá konurnar, sem eru
37 hundraðshlutar vinnuafls-
ins, sérmenntaðar eða ófag-
lærðar?
Því miður eru margar kon-
ur án sérmenntunar, en það
er óðum að breytast. Árið 1951
fóru aðeins 32% af stúlkum,
sem lokið höfðu skyldunámi, í
einhvers konar framhaldsnám,
en tíu árum síðar, árið 1961,
fóru 56% af þeim. í fram-
haldsnám. Þrátt fyrir þetta eru
42% iðnverkamanna sér-
menntaðir, en aðeins 14%
kvennanna. En þetta stendur
til bóta, ekki sízt vegna þess,
að fleiri og fleiri foreldrum
verður ljóst, að bezti heiman-
mundur, sem þeir geta gefið
dætrum sínum, er góð mennt-
un.
Við slitum talinu og ég gekk
aftur út I borgina, þar sem
María Theresía reisti fyrstu
barnaskólana fyrir almenning,
bárinaði pyndingar, og skipaði
dætrum sínum að prjóna sjálf-
ap sokkana sína.
Sigríður Thorlacíus.
Útvegum meS stuttum fyrirvara fulkomin löndunar-
kerfi til löndunar á SÍLD, frá Bandaríkjunum. Lönd-
unarkerfi þessi hafa áratuga reynslu aS baki sér og
hafa gefiS sérstaklega góSa reynslu.
MeS okkar löndunarkerfum getum viS boSiS ySur:
Mikil afköst — 300 tonn á kfukkutímann.
Fullkomna nýtingu aflans og SÍLDINA vigtaSa um leiS,
Sjáum um uppsetningu og veitum alla tæknifræSilega þjónustu.
LEITIÐ NÁNARI UPPLÝSINGA.
SJÓVER H.F.
AUSTURSTRÆTI 14,
REYKJAVÍK,
SÍMl 22870.
Vélaverkstæði
Sig. Sveinbjörnsson
SKÚLATÚNI 6,
REYKJAVÍK,
SÍMAR 15153, 23520.