Morgunblaðið - 14.05.1989, Síða 1

Morgunblaðið - 14.05.1989, Síða 1
SUNNUDAGUR ISLAND TEKIÐ MEÐ TROMPI LEIKLIST ÞEGAR ÉG ER ORÐIN(N) SUNNUDAGUR 14. MAÍ 1989 BLAÐ [ Þrjú hundruð börn hafa nú lært að dansa eins og MICHAEL JACKSON „Bad“ söluhæsta erlenda platan ó ís- landi síðustu átta árin ■ Myndband um Jackson hefur selst í 2 þúsund eintökum ■ Yfir 20 þúsund manns hafa séð kvik- myndina „Moonw'alker" eftir Kristínu Marju Baldursdóttir SSennilega hefur einn af merkilegri menningaratburðum bæjarins gerst á útmánuðum þegar á annað hundrað drengir undir tólf ára aldri þyrptust beint úr fótboltanum í dansskóla. Drengir sem aldrei höfðu látið sig dreyma um að stiga inn í slika stofnun, enda ætluð stelpum að þeirra dómi, gerðust nú svo aðgangsharðir og djarfir á dansgólfinu að undrum sætti. Eins og menn geta rétt ímyndað sér þá var það hvorki rællinn né valsinn sem laðaði, slík spor taka þeir víst ekki ógrátandi, heldur voru það spor, hreyfingar og hnykkir Michaels Jacksons sem teknir voru fyrir af mikilli innlifun. Margir foreldrar höfðu auðvitað tekið eftir furðulegum hlykkjum og sveiflum barna sinna sem annars voru hin hlédrægustu að eðlisfari, og séð myndir og veggspjöld af karlmanni sem minnti á konu í herbergjum þeirra, en kannski ekki alveg áttað sig á því í fyrstu hvað var að gerast.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.