Morgunblaðið - 14.05.1989, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNIÍDAGUR 14. MAÍ 1989
Hjónaminning:
Helga Jónsdóttir og
Erlendur Jónsson
Helga
Fædd2. mars 1911
Dáin 1. maí 1989
Erlendur
Fæddur 28. september 1896
Dáinn 5. september 1980
í gær kvöddum við ættingjarnir
frænku okkar, móðursystur mína.
Helga var elst systkina sinna. Jón
afi minn var bóndi á Ásum í Húna-
vatnssýslu. Þar var æskuheimili
þeirra. Fátækt var mikil í sveitum
á uppvaxtarárum hennar. Hún ólst
því upp v ið þröngan kost við al-
menn sveitastörf. Hún ólst því upp
við þröngan kost við almenn sveita-
störf. Skólaganga og sérmenntun
þekktist varla á þeim árum hjá
kvenfólki, nema þá helst hús-
mæðraskólar.
Bærinn Ásar stendur norðan í
bröttum brekkum ásanna í Svína-
vatnshrepp. Jörðin er erfíð bújörð
og reyndi því meir á þolrif fólksins
en ella. Föður sinn misstu þau ung.
Það lenti því á Helgu og Gísla bróð-
ur hennar, sem nú er látinn, umsjón
búsins ásamt móður þeirra fyrst
um sinn. Nokkrum árum síðar leyst-
ist búið upp og leiðir systkinanna
skildu. Helga og Soffía móðir mín
fluttust til Reykjavíkur. Gísli giftist
að Búrfelli sem er næsti bær við
Ása og bjó þar til æviloka. Nunna,
næstyngsta systirin, varð ljósmóðir
á Blönduósi, en lést ung. Ása,
yngsta systirin, fór nokkru síðar til
Bandaríkjanna og vann þar. Hún
lærði síðar uppeldisfræði áður en
hún kom til landsins eftir stríðsár-
in. Þegar ég man fyrst eftir Helgu
bjó hún á Bræðraborgarstígnum.
Þá vann hún á saumastofu í Aðal-
stræti 12 við að sauma einkennisföt
á lögregluþjóna. Saumaskapur var
nánast sú iðn sem kvenfólk fékk í
vöggugjöf á þeim tíma. Helga var
sérstaklega laghent kona og listræn
í sér, eins og er í hennar ætt. Eftir
hana eru til útsaumaðar myndir
sem eru hreinasta listaverk. Á þeim
sést vel hversu létt hún lék nálina
við að koma frá sér myndsköpun
hugans. Helga var einnig frekar
félagslynd kona þótt hún byggi ein
framan af ævinni. Hún eignaðist
engin börn, en naut þess í stað
samveru við börn systkina sinna.
Ég man nokkur jól þar sem það
þótti sjálfsagt að Helga væri heima
hjá okkur. Eftir að ég fermdist var
ég mikið á flakki. Átti heima í
Skíðaskálanum í Hveradölum og á
millilandaskipi uns ég hóf nám hjá
Viðtækjavinnustofunni sem var þá
á Laugavegi 178. Helga var svo
lánsöm að kynnast indælum manni,
Erlendi Jónssyni. Bjuggu þau í Mið-
túninu rétt þar hjá. Eg held að þau
hafí kynnst á gömludönsunum eins
og sagt var.
Eitt veit ég, þau dönsuðu mikíð
og skemmtu sér. Það var mjög
gaman að koma til þeirra, því þau
voru alltaf glöð og kát. Erlendur
vildi hafa alla hluti í góðu lagi.
Hann bað mig oft að koma og lag-
færa ýmsa hluti, eins og sjónvarpið
og fleira. Einnig bónaði ég bílana
hans á lærlingsárunum. Að sjálf-
sögðu borgaði hann mér fyrir ómak-
ið. Ég held að hann hafi nú oft
verið meira að hugsa um illa launað-
an lærling frekar en þörf væri á
að bóna bílinn. Erlendur var nefni-
lega mikið snyrtimenni. Svo held
ég að þau hafi haft gaman af því
að lítill frændi liti inn og fengi kaffi
og brauð. Erlendur var mikill nátt-
úrumaður. Hann hafði gaman af
ferðalögum og veiðiskap. Stangar-
veiði var hans líf og yndi. Þau ferð-
uðust því mikið saman og nutu
þess. Það urðu því mikil umskipti
í lífi Helgu þegar Erlendur féll frá.
Hann var þá við sína uppáhalds
iðju laxveiði, er hann var bráð-
kvaddur. Þau höfðu flutt sig um
set úr Miðtúninu í Hátún lOb, til
að eiga áhyggjulaus ævikvöld í
samfélagi við fólk á þeirra aldri.
Þar bjuggu þau er leiðir þeirra
skildu um sinn. Nú hafa þau vænt-
anlega hist aftur. Trúi ég að fagn-
aðarfundir hafí orði og þau dansi
og njóti þess sem tilveran gefur.
Ég er þakklátur fyrir að hafa feng-
ið að njóta þess um tíma að vera
nálægt þeim. Manni líður alltaf vel
í návist fólks sem er glatt og ánægt
með tilveruna.
Sigurður Harðarson,
útvarpsvirki.
t Hjartkær móðir okkar,
INDÍANA KATRÍN BJARNADÓTTIR,
Ljósheimum 4,
verður jarðsungin frá Langholtskirkju fimmtudaginn 18. maí
kl. 15.00.
Þeir, sem vilja minnast hinnar látnu, er vinsamlegast bent á líknar-
félög.
Albert Guðmundsson, Gísli Guðmundsson, Brynhildur Jóhannsdóttir,
Guðjón Guðmundsson, Þóra Sigurjónsdóttir,
Skarphéðinn Guðmundsson, Guðbjörg Axelsdóttir,
Erla S. Guðmundsdóttir, Þorbjörn Pétursson,
Valentínus Guðmundsson, Hafdís Ragnarsdóttir,
Steinþór Guðmundsson, Anna Georgsdóttir,
Ingólfur Jónsson, Inga Magnúsdóttir, Ingibjörg Ariliusardóttir,
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Ástkær eiginkona min, móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
HALLBORG SIGURJÓNSDÓTTIR,
Holtsbúð49,
Garðabæ,
sem lést í Landspítalanum 6. maí, verður jarðsungin frá kirkju
Óháða safnaðarins fimmtudaginn 18. maí kl. 15.00.
Haraldur Guðmundsson,
Sigurjóna Haraldsdóttir, Örn Zebitz,
Ágústa Haraldsdóttir, Hafsteinn Gilsson,
Eiður Haraldsson, Hrafnhildur Sigurbjartsdóttir,
Ester Haraldsdóttir, Siggeir Ólafsson,
Jón Ingvar Haraldsson, Edda Jóhannsdóttir,
Hólmfríður Haraldsdóttir, Helgi Lárusson,
barnabörn og langömmubörn.
Blómastofa
Fríðfinm
Suðuriandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öll kvöld
til kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
t
Alúðarþakkir faerum við öllum sem sýndu okkur samúð og vinar-
hug vegna andláts og útfarar
BJÖRNS JÓNSSONAR
frá Bæ.
Kristín Kristinsdóttir,
börn, tengdabörn, fósturbörn og barnabörn.
Legsteinar
MARGAR GERÐIR
Mamora/Gmít
Steinefnaverksmiðjan
Helluhrauni 14, sími 54034,
222 Hafnarfjörður
C 31
Heilsulindin Nýbýlavegi 24
Nudd- og heilsustofa
Erum að fá til okkar Þjóðverja, Hartmuth Schymizek,
sérfróðan í notkun á rafnuddtækjum, hljóðbylgjum og
heitum leirbökstrum. Hentar gegn hinum ýmsu gigtr
ar-, vöðva- og liðakvillum. Örvar einnig blóðrásina þar
sem það á við. Þá hefur Hartmuth áralanga reynslu
í meðhöndlun íþróttameiðsla eftir störf sín hjá vestur-
þýska knattspyrnuliðinu Bayer Uerdingen.
Uppi. og tímapantanir hjá Heilsulindinni
í síma 46460 eða 46986.
HVÍTASUNNUKAPPREIDAR
HESTAMANNAFÉLAGSINS FÁKS
Mánudaginn 15. maí kl. 12.30 hópreið Fáksmanna,
mótið sett og töltsýning unglingaklúbbs Fáks.
Kl. 13.00 úrslit í unglingaflokki 1.-5. sæti.
Kl. 13.30 úrslit í barnaflokki 1.-5. sæti.
Kl. 14.00 úrslit í B-flokki 1.-5. sæti.
Kl. 14.30 úrslit í A-flokki 1.-5. sæti.
Kl. 15.00 úrslit í tölti 1.-5. sæti.
Kl. 15.30 kappreiðar.
Keppt verður í 250 m skeiði, 250 m stökki, 350 m
stökki og 800 m stökki.
Einnig verður boðið upp á hestaleigu fyrir börn.
Ef veður leyfir verður fólki gefinn kostur á að aka um
í lystikerru. Hindrunarstökk á Brekkubraut og ýmsar
veitingar á boðstólum í félagsheimilinu og á svæðinu.
Hestamannafélagið Fákur.
Bolir með myndum
Kr. 1.450.-
□ Rambo □ Michael Jackson
n Europe □ A-Ha
□ Iron Maiden □ Queen
□ Scorpions □ Tina Turner
□ Marilyn Monroe □ Whitney Houston
□ James Dean □ Madonna
□ Bob Marley .□ George Michael
□ U-2 □ Don Johnson
CllC
Skólavörðustíg 42, sími 11506.
Aldrei meira
úrval