Morgunblaðið - 14.05.1989, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 14.05.1989, Blaðsíða 20
20 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. MAÍ 1989 6ISTIVINIR GÖTUNNAR og kem þeirri skoðun minni á fram- færi að framhjáhald sé allt í lagi, svo framarlega sem því er haldið innan íjölskyldunnar. Það finnst þeim báðum afskaplega fyndið þrátt fyrir að ég hafi á tilfínning- unni að konan hafí ekki alveg skil- ið brandarann. Sjóarinn vill endilega gefa mér að éta og ég þigg það. Við ræðum málin eitthvað, en allt í einu stekk- ur konan fram og þarf greinilega að kasta upp. Um fimm mínútum síðar kemur hún aftur fram og er von bráðar byijuð að kyssa sjóarann aftur. Ég sé stelpurnar af Brabra álengdar og fer og ræði við þær. „Veiðarnar" hafa greinilega heppn- ast vel, því þær eru allar með mis- myndarlega stráka í eftirdragi. Ég spyrst fyrir um partí og í ljós kem- ur að engar áætlanir eru um slíkt. Klukkan er orðin fimm og tími kominn til þess að haska sér. Enn sem fyrr eru leigubílar ekki á hveiju strái og nokkur bið eftir þeim. Loks erum við þrír eftir, ég, uppgjafa- dægurlagasöngvari og kunningi hans. Dægurlagasöngvarinn lætur mjög digurbarkalega og virðist ekki hafa komist yfir ímyndaða heims- frægð. Þegar hann byijar að syngja ákveð ég að ganga af stað í von umað finna leigubíl. Aður en varir er ég kominn í Brautarholtið. Ég fer inn og spjalla við vaktmanninn, strák nálægt þrítugu. Hann er refslegur náungi, óvitlaus en fullánægður með sig miðað við að afrekaskráin er auð. Hann býður kaffí og eitthvað í það. Við höfúm ekki lengi rætt saman þegar hann segir mér að ég sé ekki allur þar sem ég sé séður og hann viti allt um mig. Mér verður vita- skuld ekki um sel. Hann blikkar mig og spyr hvort ég eigi eitthvað. Örskamma stund átta ég mig ekki, en svo rennur upp fyrir mér ljós. Hann heldur að ég sé fíkniefnasali! Ég ákveð að vera ekkert að leið- rétta þann misskilning og hann seg- ir mér hvernig hann hafi komist að þessari niðurstöðu. Ég er nýkom- inn heim frá útlöndum, þekki „bran- PlanPerfect 22. - 24. maí kl. 13 -17 Töflureiknir fyrir byrjendur. Fariö veröur í uppbyggingu kerfisins og helstu skipanir kenndar ásamt valmyndum. Æfingar í töflum og reiknilíkönum og tenging við WordPerfect. Allar nánari upplýsingar og bókanir hjá Ásrúnu Matthíasdóttur Einari J. Skúlasyni hf. Grensásvegi 10, sími 686933. ATH: VR og fleiri stéttarfélög styrkja félaga sina til þátttöku Tölvuskóli Einars J. Skúlasonar hf. sann“ út og inn, ég geri ekki neitt nema að mæla götumar og á samt peninga. 2+2=5! Hann stingur upp á því að við kíkjum eitthvað frekar í glas og við fömm upp í herbergi þar sem tveir karlar sitja að drykkju. Áður en varir er búið að ná í flösku á svört- um og enn sem fyrr er, blandað í kaffi. Fljótlega bætist enn einn í hópinn. Þegar þarna er komið sögu er undirritaður vægast sagt orðinn nokkuð við skál, en ég er samt sem áður fullkominn áhugamaður um áfengisdrykkju í samanburði við þá atvinnumenn, sem ég er innan um. Umræðuefnið er ekkert og áður en varir em þeir byijaðir að telja upp höfuðborgir heimsins. Fyrst held ég að þeir séu búnir að missa vitið í eitt skipti fyrir öll, en þeir halda ótrauðir áfram. Þar kemur að ég ber í borðið og spyr hvað sé að gerast; hvort þeir hafi virkilega ekkert annað að tala um. Einn karlanna horfir á mig og segir síðan: „Við höfum ekkert að tala um, en við verðum að tala. Við erum á fylleríi.“ Ég melti þessa röksemdafærslu nokkra stund, en finn í sjálfu sér ekkert að henni. Það er kominn morgunn og ég er að leka út af. Einn karlanna er farinn að segja okkur hvað hann sé ábyggilegur og þekki marga merkismenn. Ég halla augunum og er steinsofnaður áður en ég veit af. Skömmu síðar hristir vaktmaðurinn mig og segir mér að sniðugast sé fyrir mig að fara í koju. Ég sam- sinni því og kveð. Klukkan er orðin tíu og þeir era enn að. Klukkan hálffjögur um daginn er bankað á dyr. Ég staulast til dyra og þar er þá vaktmaðurinn kominn. Með honum er ung kona, lagleg en illa farin. Ég býð þeim inn í grenið og vaktmaðurinn býður mér sjúss af hálftómri flösku. Ég þigg og mér líður eins og ég sé að kyngja geislavirkum úrgangi. Vaktmaðurinn er að safna áheit- um, sem renna eiga óskipt í kaup á brennivínsflösku. Ég rétti honum tvöþúsundkall og hann fer eitthvert fram á gang að fínna meiri pen- inga. Hann snýr brátt aftur og er með þá aura, sem til þarf. Hann biður mig um ganga í málið. Ég hringi á leigubíl og óska eftir að eiga ákveðin viðskipti við bílstjórann. Því er vel tekið og spurt hvaðan sé hringt. Ég lætþað uppi og mér er sagt að líklegast sé best að ég bíði úti í sjoppu. Skömmu síðar er ég orðinn stolt- ur eigandi flösku af íslensku brennivíni. Ég hafði farið út með 2.600 krónur í vasanum og átti fyrir blandi þegar ég steig út úr bílnum með þaninn buxnastreng. Ég fer upp á herbergi og þar sitja þau tvö og einn gamall gestur, sem bæst hefur í hópinn. Drykkjan hefst og ég er orðinn hreifur af fyrsta glasi. Vaktmaðurinn hefur mikinn áhuga á að heyra kasettu með rússnesku þungarokki og við hlust- um á hana af mikilli andakt. Vakt- mannninum fínnst þetta eitt mesta tónlistarþrekvirki mannsandans og konunni finnst Rússinn ágætur. Sá gamli fussar hins vegar og spyr hvort við eigum enga harmonikku- músík. Talið er jafnmarkvisst og um morguninn. Um níuleytið er konan farin að gráta yfir eigin eymd, — dætur hennar tvær eiga að fermast daginn eftir og hún getur ekki ver- ið viðstödd, svona á sig komin. Ég bendi henni á að það sé fullseint séð, hún hefði átt að hætta að drekka fyrir löngu. Hún segist vera að bíða eftir plássi á Vogi og fer svo að útmála fyrir mér hvað biðlist- inn sé langur. Vaktmaðurinn hlær og segir að hún verði alltaf á bið- lista. Hún grætur ekki minna við þessa athugasemd. Upp úr níu er partíið orðið býsna þreytulegt og farið að draga af mönnum. Klukkan tíu ligg ég í valnum. Ég vakna á hádegi daginn eftir, svipast um rústirnar og fer út. Ég fer heim til mín vestur í bæ, fer í bað og borða alvöru mat í fyrsta skipti frá því að gönguför mín um ógæfuhverfin hófst. Um kvöldið er mér jafnvel farið að líða ágætlega. Um kvöldið er haldið í Brautar-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.