Morgunblaðið - 14.05.1989, Blaðsíða 28
MORGUNBLAÐIÐ AFMÆLI SUNNUDAGUR 14. MAÍ 1989
28 C
Afmæliskveðja:
Jóhann Þorvaldsson
fyrrv. skólastjóri
Fyrir nokkrum árum var einu
sinni sem oftar hringt frá Reykjavík
í Jóhann Þorvaldsson fyrrum skóla-
stjóra á Siglufirði. Erindið var að
biðja hann að skreppa suður um
miðjan júní og vera þar þjóðhátíð-
ardaginn. Röddin úr Reykjavík
kvaðst tala frá skrifstofu forseta
íslands, hefði hann í hyggju að
sæma skólastjórann gamla fálka-
orðu þann dag.
„Ég get alls ekki kornið," svaraði
Jóhann.
Þá var spurst fyrir um hvað
hamlaði för þessa þegns á vit höfð-
ingja. Jóhann Þorvaldsson kvaðst
bundinn af skógræktarstörfum þær
vikur er sól væri hæst á lofti yfir
Norðurlandi. Með ýtni reyndi röddin
úr Reykjavík að fá Jóhann til að
slá störfum á frest nokkra daga
kringum þjóðhátíð. En hann var
ósveigjanlegur, kvað plöntur best
komnar í jörð sem fyrst og starfslið
sitt, siglfirsk börn, gera ráð fyrir
vinnu í Skógræktinni einmitt um
þær mundir sem málmfuglum væri
úthlutað við Faxaflóa. Endaði hann
ræðu sína með þessum orðum: „Ég
get ekki brugðist börnunum," og
fór hvergi.
Þessi saga af Jóhanni, vini
mínum, Þorvaldssyni og svar hans
minnir á ýmsa göfugustu menn Is-
lendingasagna, og lýsa mannkost-
um hans vel. í engu vildi hann
bregðast. Lifandi bömin skiptu
hann meira máli en dauður málm-
fugl fyrir sunnan.
Jóhann Þorvaldsson verður átt-
ræður á þriðjudaginn kemur. Þó er
hann enn ungur, enn að störfum,
enn hiklaus og traustur í barátt-
unni fyrir þær hugsjónir sem hann
vígðist ungur. Hann er það ungur
að maður blygðaðist sín fyrir að
fara að rekja æviferil hans. Hann
stendur enn í orrahríð lífsins miðri
og lætur hvergi deigan síga. í meira
en fjóra áratugi hefur hann verið
ritstjóri Regins á Siglufirði. Það
segir nokkuð um trúmennsku hans
og þrautseigju að ekkert blað bind-
indishreyfingarinnar á íslandi hefur
komið út jafn lengi og Reginn, að
Æskunni einni undanskilinni.
Jóhann Þorvaldsson er skýr mað-
ur og skemmtilegur eins og margur
Svarfdælingurinn. Þó hygg ég að
ýmsar gerðir manna um þessar
mundir eigi hann erfitt með að
skilja. Mig gmnar til að mynda að
hann botni lítið í sálarlífi þess lýðs
sem telur sér sæma að raka saman
AEG AWTilí>0£)
AEG
AEG
STRAUJÁRN
DB 112
Jt ■ > m í U.flOMÍI
fr® V Wm O- D'
AEG
ÖRBYLGJUOFN
MC 112
i iR
AEG
UPPÞVOTTAVÉL
FAVORIT 428
U-W
AEG
PÚSSIKUBBUR
VS 130
AEG
HJÓLSÖG
HKS65A
<AÐUR /$.9qó
fZMi
§Erm
m
AEG
RAFHLÖÐUBOR-
VÉL
ABS 13 RL
ÁEG
LIMGERÐIS-
KLIPPUR
HES 65
BRÆÐURNIR
=)J ORMSSON HF
Lágmúli 9 H 8760 128 Reykjavík
AEG SÖLUAÐILAR UM ALLT LAND
AFKOST
ENDING
GÆÐI
fé á að selja fólki, jafnvel óvitum,
efni sem breytir því í afglapa eða
ófreskjur. Og enn síður mun hann
skilja það fjölmiðlafólk sem vinnur
„það fyrir vinskap“ ölsölulýðs að
ljúga til um gífurlega aukningu
áfengissölu síðustu vikurnar til að
slá ryki í augu þeirra sem fátækast-
ir eru í andanum.
Þegar dimmir fyrir sjónum, þeg-
ar auðhyggja og framapot, sýndar-
gljái og gervigleði, kokhreysti og
óheilindi virðast standa föstum fót-
um, þegar fjárplógslýður ryðst um
fast og vill stjórna þeim sem löndum
ráða, þá rennur upp ljós í svartnætt-
inu við að hugsa til orða Jóhanns
Þorvaldssonar:
„Ég get ekki brugðist börnun-
um.“
Heill honum áttræðum. Megi
hugsjónir hans um fagurt mannlíf,
manngildi ofar auðgildi, allsgáða
þjóð rætast. „Þá mun aftur
morgna."
Olafiir Haukur Árnason
Jóhann og fjölskylda hans taka
á móti gestum í safnaðarheimili
Langholtskirkju hér í Reykjavík á
afmælisdaginn kl. 16-19.
Lausnin
fyrir
lagerinn
STAKAR HILLUR EÐA
HEIL HILLUKERFI
Lagerinnþarfaðverarétt
skipulagöurtil
aðréttnýting náistfram.
Kynntu þér möguleikana
sem við bjóðum.
LAGERKERFIFYRIR
VÖRUBRETTI
Mjög hentugt kerfi og sveigjanlegt við
mismunandi aðstæður. Greiður
aðgangur fyrir lyftara og vöruvagna.
STÁLHILLUR FYRIR
SMÆRRIEININGAR
BÍLDSHOFÐA 16SIMI672444 TELEFAX672560