Morgunblaðið - 14.05.1989, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 14.05.1989, Blaðsíða 8
8 C MORGUNBLAÐIÐ MANNLÍFSSTRAUMAR sunnuuagur 14. MAÍ 1989 MENNTASETUR ÍSLENSKRA BÆNDA í 100 ÁR Viltu taka þátt í nýsköpun íslensks landbúnaðar? Almennt búfræðinám Viltu læra um Ferðaþjónustu • Fiskeldi • Loðdýrarækt • Skógrækt Kanínurækt eða gömlu góðu hefðbundnu kvikfjárræktina? Bændaskólinn á Hvanneyri er nútíma skóli, þar sem færustu búvísindamenn fylgjast með öllum nýjungum í landbúnaði og miðla þeim til nemenda, sem vilja takast á við heillandi verkefni. Þar er frábær aðstaða á heimavist. Auk hefðbundinnar búnaðarfræðslu eru 12 valfóg: Alifugla- og svínarækt • Ferðaþjónusta • Fiskeldi Hrossarækt • Kartöílu- og grænmetisrækt • Loðdýrarækt Nautgriparækt • Rekstrarhagfræði • Sauðfjárrækt Skógrækt • Vélfræði • Vinnuvélar og verktækni. Búfræðinám tekur 2 ár (4 annir) en fólk með stúdentspróf eða hliðstæða menntun getur lokið því á einu ári. Helstu inntökuskilyrði eru að umsækjendur hafi lokið almennu grunnskólaprófi og að þeir hafi öðlast nokkra reynslu í landbúnaðarstörfum. Háskólanám 1 búvísindum Innritun stendur nú yfir í Búvísindadeild Bændaskólans á Hvanneyri, sem er kennslu- og rannsóknastofnun á háskólastigi. Skilyrði til inntöku eru að viðkomandi hafi lokið almennu búfræðinámi með fyrstu einkunn, og stúdentsprófi eða öðru framhaldsnámi, sem deildarstjórn tekur jafngilt og mælir með. Auk alhliða undirstöðumenntunar í búvísindum gefst kostur á sérhæfingu. Nemendur kjósa valgreinar síðustu tvö árin og skrifa aðalritgerð um eigin rannsóknaverkefni. Námið tekur 3 árog telst 90 námseiningar (BS 90). Árlegur kennslutími við Búvísindadeild er 34 vikur á tímabilinu frá 15. september til 15. júní. Nemendur geta búið á nemendagörðum en eiga kost á fæði í mötuneyti Bændaskólans á Hvanneyri. Þeir njóta sömu réttinda hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna og aðrir háskólanemar. :-------------^-----------|j------------------------- Umsóknir ásamt prófskírteinum þurfa að berast skólanum fyrir lO.júní. —— ■1 ■ ■ ■ 11 y I' 111—iii|—— ...............— Nánari upplýsingar í síma 93-70000. Skólastjóri. HAGFRÆÐI/ Hvers má vænta af breytingunum í Evrópuf ísland og evrópski J]ármagns- markaðurinn ÁKVÖRÐUN Evrópubandalagsins um sameinaðan markað frá 1992 skapar gerbreytt viðhorf í viðskipta- og atvinnulífí Evrópu. Það á jafnt við um lönd innan bandalagsins og lönd utan þess, sem eiga þar mikilla viðskiptahagsmuna að gæta. ísland er í síðarnefhda hópnum. Einhver mesta breytingin sem er að verða á hinu efíiahags- lega umhverfi í Evrópu felst í óhindruðu Qármagnsflæði milli landa og ftjálsum bankaviðskiptum og annarri fjárinálaþjónustu þvert á landamæri. Islendingar standa í þessum efnum frammi fyrir nýjum aðstæðum sem kalla á viðbrögð af hálfu stjómvalda og atvinnulífs. Óskiptur fjármagns- markaður í Evrópu mun stuðla að því að fjármagnið rennur þangað þar sem arðsemi þess er mest. Eigendum þess bjóðast fjöl- breyttari og betri ávöxtunarkostir. Notkun fjármagns er mikil í fjölmörg- um greinum at- vinnurekstrar. Samkeppnisstaða fyr- irtækja getur af þeim sökum ráðist af því hversu greiðan aðgang þau hafa að fjármagni og á hvaða kjör- um. Það er því þýðingarmikið hags- munamál íslenskra atvinnufyrir- tækja að þau hafi í þessu efni ekki lakari aðstöðu en keppinautar þeirra í Evrópu. En margt þarf að breytast til að svo verði. Ákvörðun Evrópubandalagsins um afnám allra hafta í fjármagnsvið- skiptum tekurgildi 1. júli 1990. Þessi ákvörðun gildir um öll aðildarlönd Evrópubandalagsins, en Spánn, Port- úgal, Grikkland og Irland hafa frest til ársloka 1992 til að fullnægja ákvæðum hennar. Ákvörðun þessi mun ekki breyta miklu fyrir lönd eins og Bretland, Vestur-Þýskaland og Holland, sem öll hafa fellt niður hömlur á gjaldeyrisviðskiptum. Sama gildir um Danmörku. Með reglugerð um gjaldeyrisviðskipti, sem tók gildi hinn 1. október 1988, lauk síðasta áfanganum við að auka fijálsræði í viðskiptum með fjármagn og fjár- málaþjónustu milli Danmerkur og umheimsins. Þann dag tilkynnti danski seðlabankinn að Danmörk hefði að fullu fullnægt ákvæðunum í fyrmefndri ákvörðun framkvæmda- stjórnar Evrópubandalagsins um af- nám hafta í fjármagnsflutningum. Sameinaður markaður Evrópu- bandalagsins fyrir fjármálaþjónustu, en það hugtak er eins konar sam- heiti fyrir bankastarfsemi, vátrygg- ingar og verðbréfaviðskipti, byggir á þeirri meginreglu að þjónustu, sem boðin er fram og seld með lögmætum hætti í einu aðildarlandi, megi bjóða fram og selja án hindrana í öðru aðildarlandi. Gera má ráð fyrir að þessar ákvarðanir muni leiða af sér miklai breytingar, þegar þeim hefur að fullu verið hrundið fram. Sýnt er að aukin samkeppni og stærri markaður muni leiða til þess að vextir muni verða áþekkir um álfuna alla, enda þótt staðbundnar aðstæður í einstökum Iöndum geti leitt til nokkurra frávika frá því sem almennt gerist. Evrópubandalagið fól fyrirtækinu Price Waterhouse að kanna hvaða fjárhagslegur ávinningur gæti orðið af aukinni samkeppni með fjármála- þjónustu í framhaldi af samruna fjár- magnsmarkaða í aðildarríkjum bandalagsins og heimilda til að bjóða fram og selja þjónustu af þessu tagi. Meginniðurstaða fyrirtækisins- af at- huguninni, sem tók til átta aðild- arríkja bandalagsins, er að búast má við 10% lækkun á þjónustukostn- aði að meðaltali, og svarar þessi lækkun til 0,7% af samanlagðri landsframleiðslu landanna átta. Nið- urstöður fyrirtækisins bera jafnframt með sér, að gera má ráð fyrir enn meiri ávinningi í þeim löndum þar sem fjármagnsmarkaðir eru skammt á veg komnir á þróunabrautinni og einangraðir frá umheiminum. Freist- andi er að yfirfæra niðurstöður at- hugunarinnar til íslands, enda þótt tekið skuli fram, að hún er ekki gerð með hliðsjón af aðstæðum hér á landi. En fyrrgreindar tölur svara til þess, að á íslandi væri um að ræða sparnað í lækkuðum þjónustugjöld- um sem svaraði til um tveggja millj- arða króna á ári. Efnahagsáætlun Norðurlanda 1989—1992, sem samþykkt var á þingi Norðurlandaráðs í Stokkhólmi ber þess merki að á Norðurlöndum er talið brýnt að bregðast af snerpu við ákvörðun Evrópubandalagsins. Áætlunin felur í sér að Norðurlönd haldi áfram að stíga skref í átt til aukins fijálsræðis í fjármálaviðskipt- um og fjármagnshreyfingum, og skuli tilteknum áföngum náð í því efni fyrir árslok 1992. Fjármálaráðherra gerði sérstakan fyrirvara af íslands hálfu við hina norrænu áætlun á meðan hún var í höndum norrænu ráðherranefndar- innar. Gaf hann þar með til kynna að íslensk stjórnvöld treystu sér ekki til að verða nágrannaþjóðunum sam- ferða í aðlögun að breyttum aðstæð- um í evrópsku fjármála- og viðskipt- alífí. Forsætisráðherra hefur nýlega staðfest á Alþingi að fyrirvarinn lýsi stefnu ríkisstjómarinnar í þessum málaflokki. Þessi fyrirvarastefna er misráðin. íslensk fyrirtæki í mörgum greinum atvinnurekstrarins eiga líf sitt undir því að standast erlendum keppinautum snúning. Ýmis dæmi eru um það frá liðnum misserum að fyrirtæki og jafnvel heilar atvinnu- greinar hafa ekki staðist þolraun erlendrar samkeppni. Hvaða rök eru fyrir því að veita íslenskum bönkum sérstakt skjól fyrir alþjóðlegri sam- keppni? Hvaða rök eru fyrir því að meina íslenskum fyrirtækjum, sem heyja harða samkeppnisbaráttu, að skipta við aðrar bankastofnanir en þær sem njóta verndar gagnvart sömu raun? eftir Ólaf isleifsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.