Morgunblaðið - 21.05.1989, Page 2

Morgunblaðið - 21.05.1989, Page 2
2 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. MAÍ 1989 GRIMME að var vissulega talsvert mál að fæðast utan hjónabands fyrir sextíu árum síðan. Þá var það ekki eins algengt og núna, og litið alvarlegri augum. En pabbi stóð fastur á því að ég yrði rétt feðraður og þess vegna er ég Gunnarsson. Ég ólst upp í Dan- mörku, í Kaupmannahöfn, og kom fyrst til Islands eftir stríð, og bjó í um hálft ár á býli föður míns, Skriðuklaustri. Þá var ég 18 ára gamall. Ég hafði reyndar hitt bæði pabba og bræður mína í æsku, en ég man ekkert eftir því. Það er því ekki hægt að segja að samband okkar hafi verið dæmigert samband feðga, þegar við kynnumst svona seint. Én ég eignaðist góðan vin í honum, og það held ég að lýsi sam- bandi okkar best. Við vorum góðir vinir. Hins vegar varð samband mitt við bræður mína íslensku, Gunnar og Úlf, eins og það getur orðið best á milli bræðra. Það var hreinlega eins og við hefðum alltaf þekkst. Það sem kom mér mest á óvart þegar ég kynntist pabba, var kímni- gáfa hans. Hún er ekki fyrirferðar- mikil í bókum hans, sem eru gegn- umsneitt mjög alvarlegar, enda var hann fyrst og síðast maður alvör- unnar. Ég hafði lesið flest allar bækur hans sem þá höfðu komið út, og bæði mamma og aðrir í Dan- mörku höfðu sagt mér margt af honum, þannig að ég vissi heilmikið um hann áður en ég hitti hann. En ég hafði sem sagt ekki minnsta grun um að hann væri svona leiftr- andi fyndinn í persónulegri um- gengni. Ég kvartaði yfir þessu við , hann, sagði að mér fyndist hann ætti að láta kímnina fá meira rúm í bókunum. Hann hafði gaman af, og sagðist alltaf hafa gert það, það væri þá bara að kímnigáfa mín næði ekki upp í hans. Og þannig má segja að tónninn á milli okkar hafi verið, léttur og mikið um góð- látlegt grín í garð beggja. Annað dæmi um þetta er þegar égtók blaðaviðtal við hann. Ég hafði átt fjölmörg stór viðtöl, meðal annars við flesta af helstu rithöf- undum Norðurlanda — svo sem Halldór Laxness og William Heine- sen, sem ég veit að lesendur Morg- unblaðsins þekkja og hafa vonandi í hávegum. Svo mér fannst orðið tímabært að taka viðtal við pabba. Og það var ekki síst spennandi vegna þess hversu sjaldan hann veitti viðtöl. Mér tókst að fá hann til þess, en svo þegar við fórum í gang fór allt í hnút vegna þess að hann svaraði öllum spurningum mínum mjög stuttaralega og hálf- partinn út í hött. Það fauk því fljót- lega í mig og ég spurði af hverju í fjáranum hann væri með þessar tiktúrur, og þá svaraði hann því til, að það væri sjálfsagt vegila þess að spurningarnar væru ekki nógu góðar. Þá varð ég auðvitað enn reiðari uns það kom í ljós að hann var bara að stríða mér. Svo bytjuðum við upp á nýtt og allt gekk eins og i sögu. Við ræddum að sjálfsögðu mest um bókmenntir og þau vandamál sem fylgja því að vera íslendingur og skrifa á dönsku. Meðal annars komum við inn á þetta, að margir Danir halda að það eigi að segja „islænding", þegarþað er rétt að segja „islænder". Eg hafði lært þetta vitlaust í skóla og það hafði verið pínlegt fyrir mig þegar ég kom til íslands í fyrsta skipti og sagði „islænding" — því ég hafði lært í skóla að „islænder" væri hestur og peysa. En svo var mér rækilega gerð grein fyrir því af pabba og bræðrum mínum að það ætti líka við þjóðernið og að maður ætti síst að amast við samlík- ingunni við hestinn, sem er þraut- seigur, sterkur og hugrakkur. Og það væri della danskra háskóla- manna að segja „islænding“, eins og flestir reyndar gera enn þann dag í dag. En það var einkum þrennt sem pabbi hafði ekki háar hugmyndir um: íþróttir, blaðamennska og sós- íaldemókratar. Og þegar ég gerðist svo íþróttafréttaritari á Socialdemo- kraten, átti hann erfitt með að kyngja því. En hann umbarþessa veikleika mína af mikilli háttvísi þegar hann hafði vanist þeim. — En hvernig var samband ykk- ar Franzisku, eiginkonu pabba þíns, — varla hefur hún verið hrifin af þér? Vitaskuld var þetta sérstakt, að koma þarna sem barn utan hjóna- bands þeirra, vera það sem kallað var lausaleikskrói, og það var tals- vert mál á þeim tíma. En ég fann aldrei fyrir því að ég væri óvelkom- inn og hún var mér góð eins og allir aðrir. — Hvað um hina dönsku foreldra þína? Mamma er enn á lífi, nýorðin níræð. Hún er dóttir eins þekktasta leikhúsgagnrýnanda Dana fyrr og síðar. Ég eignaðist sem sagt dansk- an pabba og hef alltaf sagt að það hafi verið mitt lán í lífinu að eiga tvo pabba, annan danskan — hinn íslenskan. Og þannig leið mér alla mína æsku. Ég man ekki hvenær mér var sagt að Gunnar Gunnars- son væri pabbi minn. Ég hef alltaf vitað það, mér hefur verið gert þáð ljóst á svo viturlegan hátt, að ég hef aldrei efast og það hefur aldrei verið neitt vandamál fyrir mig. Ekki heldur hér í Dar.mörku. Danski pabbi minn var stórkostleg- ur maður, og svo þegar ég kom til fjölskyldu minnar á Islandi eftir stríðið, var mér tekið opnum örmum og urðu strax miklir kærleikar með okkur. Og ég hef alltaf sagt, vissu- lega dálítið stór upp á mig, að ég hafi erft það besta í fari þessara tveggja þjóða. Vinir mínir eru ekki alveg sammála því, en ég fullyrði það samt... — Af hverju hafa þeir ekki viljað samþykkja það? Við skulum láta það liggja milli hluta, segir hann og hlær. — Kannski varþað bara spaug ... — Hvers vegna gerðir þú ekki alvöru úr því að setjast að á íslandi? Já, land og fólk heillaði mig, vegna þess að mér líkar vel að maður viti hvað já og nei er. Dan- ir, og ég verð eiginlega að segja við Danir, erum afslappaðri og líka yfirborðskenndari en íslendingar, mér finnst gott að menn viti hvar þeir hafa hvern annan eins og mér finnst það vera á íslandi. En tungu- málið var stór þröskuldur, því ég hafði einsett mér að verða blaða- maður, og blaðamenn verða að hafa gott vald á því tungumáli sem þeir skrifa. Og þar sem ég gerði það ekki kom aldrei alvarlega til greina að ég settist að á íslandi. A Skriðu- klaustri var alltaf töluð við mig danska. Ég lærði reyndar að lesa og skildi pínulítið þegar ég heyrði á tal annarra, en þjálfaðist aldrei í að tala íslensku sjálfur. En mig langaði vissulega til þess .. . — Hvað finnst þér um skáldskap föður þíns? Mér finnst það eigi aðallega að leggja tvennt til grundvallar mati á list. í fyrsta lagi hvað hún hefur að segja á þeim tíma sem hún kem- ur fram, og í öðru lagi hvaða gildi hún hefur fyrir nútímann. Og út frá þessu frnnst mér hann hafa verið mjög framsýnn í sínum bestu verk- um. Vald hans á tungumálinu og hrynjanda þess var sérstaklega mikið og hann var mjög íslenskur í því sem hann skrifaði. Ég held hann hafi haft mikil áhrif á skilning annarra þjóða á íslendingum. Það hefur fáum tekist að lýsa íslenskum hugsunarhætti eins vel og hann gerði. Og þess vegna finnst mér hann mjög stór rithöfundur. Ég held ekki að mikið af því sem hann skrifaði eigi eftir að endast til lengri tíma litið, en það gildir reyndar um flest. Hvað stendur eftir af því sem var skrifað fyrir tvö hundruð árum? En ég held að sumt af því besta sem hann skrifaði muni — ekki bara á Norðurlöndum heldur líka í Evrópu — standa upp úr sem dæmi um sérstöðu norrænnar hugsunar. — Eitthvert verk umfram önnur sem þú heldur upp á? Jú, það er ein lítil bók, sem ég held að fáir þekki, sem heitir Dreng- urinn. Það finnst mér eitt af því besta sem ég hef lesið um dagana. Annars hef ég aldrei gefið bók- menntaverkum einkunn, og finnst það ekki hægt. Mér finnst að meta eigi verk manna í heild, en ekki gefa einstökum verkum einkunn. ar bollaleggingar, að ég held fyrir okkur báða... Fyrst þú minnist á Halldór Laxness; finnst þér að pabbi þinn hefði frekar átt skilið að fá Nóbelsverð- launin en hann eins og margir vildu meina? Þegar verðlaununum var úthlutað á sínum tíma og allar þessar umræður voru um það hvor þeirra hefði átt að fá þau hugsaði ég auðvitað heilmikið um það mál. Og ég komst að þeirri niðurstöðu, að á þeim tíma var rétt- ara að veita Halldóri þau en pabba, en mér fannst líka að pabbi hefði átt skilið að fá þau nokkrum árum fyrr. En það er að sjálfsögðu heldur ekki hlutlaust mat. Eins og ég sagði, hef ég átt blaðaviðtal við Halldór og heimsótt hann og átt alveg einstaklega skemmtilegar stundir með honum. Hann og pabbi voru ágætir vinir, en áttu um leið í gífurlegri samkeppni. Ég hafði það á tilfinningunni, svona hálft í gamni og hálft í alvöru, að hvorum um sig hafi fundist enginn vafi leika á því að hinn væri næstbesti rithöf- undur íslendinga. Mér hefur alltaf þótt það miður að geta ekki fylgst með íslenskum bókmenntum á íslensku. Ég get stautað mig fram úr íslenskum texta, en þannig er ekki hægt að lesa skálskap. Eg hef því Iesið íslensk verk í þýðingum og fylgst sæmilega með því sem hefur komið út á dönsku, og að sjálfsögðu lesið allt sem Laxness hefur skrifað. Ég hef alltaf verið sérstaklega hrifínn af hugrekki hans til að þróa sig, það eru ekki mörg dæmi í bók- menntasögunni um rithöfunda sem hafa tekið jafn margar kollsteypur og hann — allt frá kaþólsku til kommúnisma — og lent standandi í hvert skipti. — Hvað um aðra íslenska höf- unda? Ég las síðast Grámosann eftir Thor Vilhjálmsson og fannst hún stórkostleg. Ég sá svo viðtal við hann í sjónvarpinu og þar staðfesti hann þá hugmynd sem bókin hafði gefið mér af honum sem stórgáfuð- um og vel skilgreindum manni. Hann er mjög spennandi höfundur. En því miður hefur mér ekki gefrst mikill tími til lestrar í seinni tíð og þess vegna hef ég ekki lesið annað af því sem hefur komið út á undan- förnum árum. — En svo við víkjum nú að þínu ævistarfi, blaðamennskunni.. Já, danski pabbi minn, Ove Niel- sen, var blaðamaður í 25 ár áður en hann sneri sér að viðskiptum. Ég ólst því upp við blaðamennsku og fékk snemma áhuga á að leggja hana fyrir mig. í skólaleyfum bar ég út blöð, var sendill á ritstjórn og fleira til að kynna mér fyrirbær- ið frá öllum hliðum. Um þær mund- ir sem ég þóttist vera tilbúinn í slag-. inn frétti ég að ameríska fréttastof- an, United Press, vantaði fréttarit- ara hér í Kaupmannahöfn. Ég hafði bara gagnfræðapróf og ekki mikla enskukunnáttu, svo ég gekk á fund skjalaþýðanda sem ég kannaðist við og spurði hvort hann gæti ekki kennt mér að skrifa ensku á þrem- ur mánuðum. Honum fannst það broslegur barnaskapur hjá mér að halda að slíkt væri hægt, en féllst á að kenna mér og lofaði því að taka aðeins hálft gjald fyrir ef ég yrði ekki rekinn fýrstu þijá mánuð- ina í starfi. Ég fór til hans á hveij- um degi í þijá mánuði og gerðist síðan fréttaritari hjá United Press, — og var ekki rekinn. Við það starf- aði ég í nokkur ár uns ég fékk stöð- una sem pabbi átti svo erfitt með að kyngja, varð sem sagt íþrótta- fréttaritari á Socialdemokraten, sem var fyrirrennari Aktuelt. Það var árið 1951. Ég valdi íþrótta- fréttamennsku meðal annars vegna þess að blaðið átti ekki yfir miklum fjármunum að ráða, en íþrótta- fréttamenn voru þeir sem voru sendir út um allan heim. Og það var það sem mig langaði. Eg hef líka alltaf haft mikinn áhuga á íþróttum, og var um tíu ára skeið liðsstjóri og leikskipuleggjandi fyrir meistaraflokk kvenna í handknatt- leik hjá HC. Og það er eina danska félagsliðið sem nokkurn tíma hefur náð Evrópumeistaratitli. Og ég þyk- ist, á minn hógværa máta, ekki eiga minnstan þátt í því. Svo árið 1966 — þá var búið að breyta nafninu í Aktuelt — var ég settur í einn af ritstjórastólunum. Þá var blaðið í gífurlegum fjár- hagskröggum og til að bjarga því frá gjaldþroti var ráðist í að endur- skipuleggja sunnudagsblaðið og ég hafði umsjón með þvi. Það var sem sagj; skilyrði að það yrði fjárhags- legur bjargvættur Aktuelt. Ég hafði alveg fijálsar hendur við þetta verk- efni og að sjálfsögðu aðstoðarfólk. Við gjörbreyttum blaðinu þannig GUNNAR GUNNARSSON OG SKRIÐUKLAUSTUR Það sem kom mér mest á óvart þegar ég kynntist pabba, var kímnigáfa hans. Hún er ekki fyrirferðar- mikil í bókum hans, sem eru gegnumsneitt mjög alvar- legar, enda var hann fyrst og síðast maður alvörunnar. Ég treysti mér ekki til að dæma um hvaða gildi hann hefur á ís- landi — en utan frá held ég að hann hafi haft mikið að segja um skilning fólks á íslendingum, ég hugsa að það sé mikilsverðasti þátt- urinn í hans skáldskap. En að sjálf- sögðu get ég ekki dæmt verk hans hlutlaust. Ég hef skrifað heilmikið um bókmenntir, en aldrei um bækur hans og kæmi það aldrei til hugar. Ég hef rætt skáldskap hans mikið við aðra, meðal annars við Halldór Laxness, og það voru mjög fróðleg-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.