Morgunblaðið - 21.05.1989, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 21.05.1989, Qupperneq 4
4 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. MAÍ 1989 GRIMME að það varð í rauninni alveg nýtt og sérstakt blað, SondagsAktuelt, og það náði sem betur fer fljótt miklum vinsældum og rokseldist. Eftir að fjárhagsstaðan var orðin trygg og rútína komin á blaðið fór ég að rækta þau áhugamál mín sem mig hafði lengi dreymt um að geta sinnt, og voru bókmenntir og leik- list. Eg hafði alltaf farið mikið í leikhús og vildi prófa að sameina þann áhuga minn blaðamennsk- unni, fékk að skrifa um minni hátt- ar leiksýningar, en aðalgagnrýn- andi blaðsins, Svend Eriksen, sem þá var einn viðurkenndasti leiklist- argagnrýnandi Danmerkur, fór með mér á sýningarnar, svo ég gæti leitað ráða hjá honum. Hann reyndi sjálfur að hafa sem minnst áhrif á mig og það hafði mikið að segja fyrir mig að eiga hann að. Eftir því sem árin liðu færði ég mig upp á skaftið og endaði sem aðalleiklistar- gagnrýnandi blaðsins og var þá líka farinn að skrifa um bækur. En þetta var fýrst og fremst hobbýið mitt, meðfram ritstjórastarfinu. Svo var ég rekinn fyrir tveimur árum. Þá voru aftur gerðar miklar breytingar á blaðinu og fengnir tveir menn frá fréttastofu Danska sjón- varpsins til að annast þær. Nú, við töluðum ekki sama málið og ég var látinn fara. Ég varð bálreiður og náði ekki upp í nefið á mér upp á íslensk- an máta. Sem betur fer, vil ég segja, því þá rann reiðin líka fljótt af mér og ég losnaði við að verða bitur, sem er það versta sem getur komið fyrir nokkurn mann. Það er ekkert eins sorglegt og fólk sem er biturt. En ég var heppinn og fékk ijölda tilboða um að skrifa fyrir hina og þessa, og uppgötvaði að það var frábært að vera laus við allar þær áhyggjur sem fylgja rit- stjórastöðunni og geta bara skrifað, sem mér þykir skemmtilegast af öllu. Ég fékk tilboð um að sjá um viðtalsþátt hjá Kaupmannahafnar- sjónvarpsstöðinni, Kanalen. Síðan hefur það gerst að Aktuelt er hætt að koma út á sunnudögum. Núna er ég sem sagt í lausamennsku, skrifa fyrir Berlingske Tidende og annast viðtalsþáttinn. Ég hef líka um árabil séð um dönsku útgáfuna á samnorrænni fréttaárbók, sem kallast Horisont. Það hefur verið mín fjárhagslega varaskeifa, því ritstjórastólar eru valtir og ég vildi ekki standa uppi tekjulaus ef mér yrði fyrirvaralaust vikið úr starfi. Horisont kemur út í 50—60 þúsund eintökum á ári, í áskrift, og er gef- ið út og unnið í Svíþjóð. — Hefur þig aldrei langað til að skrifa skáldverk? Ég hef enga hæfíleika í það, svar- ar hann snöggt. — í fýrsta lagi ber ég alltof mikla virðingu fyrir því sem hefur verið skrifað. Ég hef les- ið of margar góðar bækur til að Ianga til að skrifa sjálfur. Ég vil frekar vera góður handverksmaður, en lélegur listamaður. Fyrir mér er blaðamennska fyrst og fremst handverk, gott handverk. Þeir sem eru bestir geta sjálfsagt kallast listamenn, en blaðamennska er ekki list í mínum augum. Reyndar skrifaði ég tvær smá- sögur sem birtust á prenti þegar ég var ungur maður. Sú fyrri kom út í vikublaði, sunnudagsblaði, og strax sama dag fór ég í hádegismat til móðurfjölskyldunnar til að taka á móti hrósyrðum. En það sa.gði enginn neitt þegar ég kom. Ég þótt- ist vita að þeim hefði þótt sagan það góð að þau ættu ekki orð. Svo snæddum við um stund og ræddum um daginn og veginn uns éggerð- ist óþolinmóður og spurði hvort þau hefðu ekki fengið blaðið. Jú, sögðu þau og héldu svo áfram að tala um eitthvað annað. Þá datt mér ekki annað í hug en að sagan væri svo rosalega góð að þau væru bara hálfvönkuð. Mér fannst ég því verða að segja eitthvað til að hjálpa þeim af stað og spurði mömmu hvort hún hefði ekki lesið smásöguna mína. Þá sló þögn á mannskapinn, en hún leit fast á mig og sagði: Jú, viltu ekki rétta mér saltið? Ég varð auð- vitað sármóðgaður — eins og títt hendir misskilda snillinga — og rauk á dyr. Viku seinna las ég svo smásöguna mína og hún var væg- ast sagt ekki góð. Seinna skrifaði ég aðra vegna þess að mig vantaði peninga til að borga skatt, en eftir það hef ég verið svo tillitssamur við lesendur að skrifa ekkert. — Varstu undir áhrifum frá pabba þínum þegar þú skrifaðir þessar sögur? Nei, alls ekki. Ég hef einfaldlega alltaf haft gaman af því að skrifa. En eins og ég segi, þá hefur svo margt gott verið skrifað og ég er þeirrar skoðunar að fínnist manni maður ekki hafa eitthvað mikilvægt að segja, sem ekki hefur verið sagt áður, eða geti sagt hlutina betur en aðrir, þá eigi maður að sleppa því að skrif a. Og mér hefur sem sagt ekki enn fundist ég hafa eitt- hvað mikilvægara fram að færa en allir þeir rithöfundar heimsins sem ég hef lesið, og heldur ekki að ég gæti sagt það sama betur en Lax- ness og Shakespeare og Heming- way og Goethe og Thomas Mann ... að ekki sé talað um kínverskar bókmenntir sem ég dái mikið eða Dostojevskíj sem mér finnst mestur allra. Ef mér dytti einhvern tíma í hug að gerast rit- höfundur væri nóg fyrir mig að lesa eitthvað eftir hann til að hætta snarlega við ... — Hefurðu hugsað þér að skrifa ævisögu þína? Nei, ég er handverksmaður. Það er prófessor sem var einhvem tíma svo vingjamlegur að skrifa í grein að ég væri einn af fjómm eða fímm hér í landi, sem gerðu blaðaviðtöl að list. Mér þótti að sjálfsögðu vænt um að hann skrifaði þetta, en þótti hann gera of mikið úr hlut- unum. Mér finnst að það beri að gera skýran greinarmun á list og handverki. Og mér fínnst að ævi- minningar eigi að vera list. Annars á maður að láta það eiga sig. Fyrri eiginmaður mömmu var Tom Krist- ensen (einn af virtustu rithöfundum Dana á þessari öld), og hann sagði einu sinni við mig að annaðhvort ætti maður að segja allan sannleik- ann eða láta það eiga sig. Og mið- að við allt það sem ég hef upplifað, þá þykir mér einsýnt að ég muni ekki segja allan sannleikann, og þess vegna mun ég láta það eiga sig, af tillitssemi við margt fólk og pínulítið gagnvart mér sjálfum líka. Upplifað margt seg- irðu ... ? Já, að sjálfsögðu hafa þeir sem lifðu stríðið upp- lifað margt og mikið. Eg lifði sjálfur mjög geyst í umþað bil 10 ár ... — Hvemiggeyst? Bara lifði lífinu maður! Skemmti mér vel og var kátur piparsveinn og var það mikið og skemmti mér vel. Ég vildi ekki fyrir nokkum mun hafa misst af þessum ámm, en mér fyndist það tillitsleysi við margt fólk ef ég færi að lýsa þeim mjög nákvæmlega. Vissulega má segja að maður geti notað önnur nöfn og breytt hinu og þessu, en það fólk sem til þekkir og um er fjallað get- ur alltaf iesið á milli línanna. 0 g svo skrifa ég heldur ekki nógu vel ennþá til þess að geta orðið rithöf- undur. — En þú ert kvæntur? Já. — Og átt böm? Nei, engin börn. Ég hef verið kvæntur í bráðum þrjátíu ár, konu sem ég kynntist í gegnum íþrótta- fréttamennskuna. Hún heitir Elsa Birkmose og var mjög fræg hand- og körfuknattleikskona á þeim tíma. Við vomm komin yfír þrítugt þegar við giftum okkur og ákváðum að eignast ekki böm. — Er það ekki hámark svartsýn- innar? Já, ég vil orða það þannig, að ég sé reiðubúinn til að taka umtals- verða áhættu fyrir sjálfan mig, en ekki fyrir þá sem hafa ekki beðið um það. En ég gleðst yfir því að flestir aðrir em ekki á sömu skoð- un, því annars væri ekki mikið framundan í mannheimi. Við hjónin emm hinsvegar mjög hrifín af börn- um og heimili okkar er alltaf fullt af bömum — þau em bara ekki þess að fiskurinn fljúgi. — Þú ert þá væntanlega ekki trúaður maður? Nei, langt í frá. Ég er sjálfsagt einhver trúlausasti maður sem um getur. Ég var einu sinni á fjöl- mennri alþjóðlegri ráðstefnu um trúmál í Tókíó, og tók þátt í umræð- um um hinar aðskiljanlegustu trú- arstefnur. Þar var kaþólikki sem teiknaði stórt fjall á töflu og fjöl- marga stíga upp eftir því sem allir enduðu við tindinn og sagði þá standa fyrir trúarstefnurnar, sem allar stefndu að sama marki. Þetta hafði mikil áhrif á viðstadda. Nú er það góða við ráðstefnur í austur- löndum að þar gefa menn sér góðan tíma til að hugsa. Á vesturlöndum rembast allir við að svara spuming- unum áður en þær em lagðar fram — til að virka gáfulegir. En í austri þykir það bera vott um yfirborðs- mennsku að vera of fljótur á sér með fullyrðingar, og sú er líka oft- ast raunin. Ég hafði því íhugað þessa myndlíkingu kaþólikkans dá- GÖNGUFÖRIN Trú kemur oft fólki að miklu gagni, veitir því stoð og styrk í erfíðleikum, og maður skyldi vara sig á því að vera að fetta fíngur út í trúarskoðanir annarra. En hvað q'álfan mig áhrærir kýs ég að ganga við fjallsrætumar. okkar eigin böm ... — Er þetta kannski gmnntónninn í lífsspeki þinni, — að taka ekki áhættu fyrir þá sem hafa ekki beð- ið um það? Ég veit ekki... Ég myndi kannski frekar vilja kalla það raun- sæi, en það er erfitt að útskýra þetta nákvæmlega, — og þetta er líka skoðun sem ég vil ekki koma inn hjá öðm fólki. En ég er sem sagt ekki hrifinn af „manninum". Ég ræddi einu sinni við guðfræðing sem sagði að það sem honum fynd- ist ótrúlegast í tilvemnni væri að maðurinn hefði ekkert þroskast og þróast frá því sögur hófust. Ég er sammála honum. Mér finnst óskilj- anlegt að maðurinn hafi ekki í nein- um skilningi þróast í jákvæða átt, sem ekki hefur með efnishyggju að gera. Þekking okkar og tækni hefur tekið stórstígum framfömm og það bætist við hana á hverri sekúndu sem líður, en andlega hliðin, sálar- þroskinn hefur staðið í stað. En það er kannski ekki hægt að ætlast til góða stund áður en ég fékk hjá honum krítina og teiknaði stíg sem lá í hring meðfram fjallsrótunum og sagði svo: Það er einn afgerandi munur á mér og ykkur. Ég ferðast eftir þessum stíg við rætur fjalls- ins, og þið reynið hvert um sig af fremsta megni að fá migtil að ganga upp ykkar stíga. Hinsvegar dettur mér ekki í hug að reyna að fá ykkur niður til mín. — Og þá sagði kaþólikkinn: Þú ert ömgglega trúlausasti maður sem ég hef fyrir- hitt. Eg er sem sagt trúlaus, ei geri enga tilraun til að taka trúna frá öðm fólki Því ég veit ekki hvað er satt, hvernig ætti ég að vita það? Ég er afskaple, mikið á móti mönnum se rembast við að breyta tr fólks. í fyrsta Iagi vita þeir ekki hvað er rétt, og í öðm lagi hafa þeir ekkert betra fram að færa í staðinn. Trú kemur oft fólki að miklu gagni, veitir því stoð og styrk í erfiðleikum, og maður skyldi vara sig á því að vera að fetta fingur út í trúarskoðanir annarra. En hvað sjálfan mig áhrærir kýs ég að ganga við fjallsræturnar. — En um leið og þú segist ekki vera hrifínn af manninum ber allt þitt fas merki um að þú hafír gam- an af fólki og að þú sért ánægður með lífið, — er þetta ekki mótsögn? ' Nei, ég er ákaflega forvitinn um fólk og hef gaman af að umgang- ast það. Hinsvegar þykir mér við ekki hafa neitt til að hreykja okkur af. Við nánari athugun emm við nefnilega fyrst og síðast auvirðileg. Enn er Iífið dásamlegt. Sumum finnst sjálfsagt einkennilegt að manni skuli þykja lífið dásamlegt, en maðurinn lítilmótlegur. En þegar athæfí okkar er grannt skoðað, hvað við emm að gera, hvernig við búum í haginn fyrir komandi kyn- slóðir, hvernig við fömm með nátt- úmna, hvernig við látum algerlega stjórnast af peningahyggju, hvemig við látum milljónir meðbræðra okk- ar svelta, bara til þess að einhveij- ir aðrir geti grætt meira, — þá getum við ekki komist að annarri niðurstöðu en að við — mennirnir — séum auvirðilegir. Áður fyrr var egóismi fyrst og fremst sjálfsbjarg- arviðleitni. Fólk varð að hrifsa til sín það sem gafst til að lifa af. En núna, þegar það er ekki lengur nauðsynlegt, að minnsta kosti ekki í okkar heimshluta, höldum við samt áfram að einblína á okkar eigin rass og heimtum sífellt meira og meira. Það hefur sem sagt ekk- ert breyst innra með fólki, þrátt fyrir að ytri aðstæður séu góðar. Grunnþættimir era enn egóismi, tillitsleysi og valdagræðgi. Og nú er svo komið að komandi kynslóðir þurfa að súpa seyðið af þessu, ekki bara við sem emm lifandi núna. Það er að vísu talað mikið um að gera eitthvað, en það er bara snakk. Ég held að eins og málum er hátt- að, verði maður að vera mjög heit- trúaður til að eygja einhveija von fyrir manninn, og það er ég ekki. Én lífið er engu að síður undursam- legt, og margt dásamlegt í henni veröld, til dæmis konur. Ég hef allt- af elskað konur — þú mátt alveg láta það koma fram, það vita allir sem til mín þekkja, að fyrir mér em konur yndislegasti þáttur tilver- unnar. Það var mikið gæfuspor að ég skyldi ekki kvænast fyrr en ég var kominn yfir þrítugt, því ef ég hefði gert það fyrr hefði það ömgg- lega ekki enst. Én þó ég sé svona hrifinn af konum er ekki þar með sagt að ég álíti að þær séu eitthvað betri manneskjur en karlar. — Hvað um pólitíkina? Já, ég hef alltaf verið mjög pólitískur og mín pólitíska sannfær- ing hefur byggt á því, að ég hef viljað vera með í að gera sem mest fyrir þá sem em mest þurfandi. Það er varla hægt að segja þetta meira banalt, en um þetta hefur mín pólitíska stefna snúist. Og þess- vegna hef ég verið og er enn sósíal- demókrati. Því þrátt fyrir marga galla — og þeir em vissulega marg- ir — á þeim stjórnmálaflokki, er hann samt sá flokkur sem hefur bæði viljað og getað gert mest fyr- ir þá sem era mest þurfandi. Og það er bara raunsætt mat, ég held því ekkert fram að kratar séu í sjálfu sér eitthvað betri manneskjur en það fólk sem er í öðram flokkum. — Hefur líf þitt verið hamingju- samt? Já, mjög, segir Grimme og ljómar allur. — Ég hef lifað yndislegu, skemmtilegu og spennandi lífi. Ég hef verið það heppinn að fá réttu tækifærin á réttum tíma, og það væri hróplegt vanþakklæti af mér að segja annað en lífið hafi verið mérgott...

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.