Morgunblaðið - 21.05.1989, Page 8

Morgunblaðið - 21.05.1989, Page 8
8 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. MAÍ 1989 stundum til sálfræðings, það spyr sjálft sig hvað það geti fengið út úr meðferðinni, hveiju hún breyti?“ segir Gylfi. Eitt viðtal áorkar miklu Gylfi segir að þó að vandamál þeirra sem til sálfræðinga leita, telj- ist ekki ætíð stór á almennan mæli- kvarða, þá skipti þau einstaklinginn máli. Eitt viðtal geti áorkað miklu, aðeins það að fá einhvern til að tala við. Þá skiptir það ekki síður máli hjá hveijum fólk, lendir, sem leitar til sálfræðings. „Það er mikið mál að leggja allan sinn vanda í hendur ókunnugs aðila. Þetta er í raun einstakt tækifæri til að hafe áhrif á einstaklinga. Öllum getui brugðist bogalistin og þeir hafi slæm áhrif, en sem betur fer leitai fólk þá yfirleitt til annarra. Sálfræð- ingurinn og sá sem til hans leitar, verða að una því vel að vinna sam- an,“ segir Siguijón Algeng ástæða þess að fólk leitar til sálfræðings segir Guðfinna vera ýmiskonar vanda sem geti komið fram í kvíða, þunglyndi, þráhyggju, streitu og svefnleysi. „Kvíði kemur fram í svo mörgum myndum. Fólk skilur oft ekki afhveiju því líður illa og vill losna við vanlíðanina. Hún truflar það í daglegu lífi, t.d. í samskiptum við aðra, bæði í vinnu og í einkalífi og fólk á einnig oft erfitt með svefn og að einbeita sér. Til þess að takast á við vandann fer einstaklingur í meðferð. í fyrstu felst hún í því að afla upplýsinga um hann. í öðru lagi er reynt að meta í hveiju vandinn felst, hve lengi hann hefur varað, hvar og hvenær koma einkenni fram og hvernig einstaklingur bregðist við vandanum. Þegar þessari greiningu er lokið, er komið að sjálfri með- ferðinni. Hún beinist að því að kenna einstaklingnum aðferðir til að ráða betur við vanda sinn fram- vegis,“ segir Álfheiður. Sálarkreppa, fælni, sjálfsathugun Þær Guðfinna segja sálarkreppu vegna reiðarslags - skilnaðar, upp- sagnar í vinnu eða dauðsfalla hinna nánustu, geta orðið til þess að fólk eigi erfitt með að horfast í augu við raunveruleikann. „Við reynum að hjálpa því að takast á við nán- ustu framtíð, sigrast smám saman á kviðanum. Þegar reiðarslag dynur yfir, fer líðan fólks eftir ákveðnu munstri. Við reynum að komast að því á hvaða stigi fólk er og hvað sé fyrir höndum. Sálarkreppa er einstök fyrir hvern þann sem í henni lendir en þekking okkar á því hvem- ig hún skiptist í stig gerir okkur kleift að hjálpa honum. Fælni er nokkuð algeng, t.d. sem hluti geðrænna vandamála. Hræðsla við dýr, við að fljúga, tengjast fólki tilfinningaböndum og hræðsla við að koma inn í opin- berar stofnanir er meðal þess sem sálfræðingar reyna að vinna bug á, ýmist með einstaklings- eða hóp- meðferð. Þá nýta þeir sér gjaman atferlismeðferð á líkamleg einkenni hræðslu og sáleflismeðferð á and- legu hliðina og til að koma í veg fyrir að hræðslan skjóti upp kollin- um á nýjan leik. Að síðustu koma þeir sem eru í leit að sjálfum sér, aðallega yngra fólk. Gjaman vel menntað fólk, sem hefur kröfur um hvemig framgang- ur lífsins eigi að vera og vill ná tökum á eigin lífi. Það er óvisst um framtíðina, óánægt með sjálft sig en þó er ekki um dýpri vanlíðan að ræða. Þetta fólk hefur gjaman reynt ýmislegt í námi, starfi, sam- búð. Yfirleitt er það ekki sálgreint, heldur er beitt meðferð sem byggir á sálgreiningu." Sálkönnun fátíð Sálkönnuðir einir, oftast geð- læknar, hafa réttindi til sálkönnun- ar. Sálkönnun er langtíma meðferð, þar sem er kafað djúpt ofan í sál- arlíf einstaklings og er ætlað að þroska vitund hans, jafnvel breyta ákveðnum þáttum í persónuleikan- um. Meðferðin varir gjaman í tvö til þijú ár, jafnvel lengur. Sálkönn- un tekur mjög á einstaklinginn og hentar því fáum. Enda eru það aðal- lega læknar og sálfræingar sem fara í hana í þjálfunarskyni áður en þeir hefja störf sem slíkir.í sál- könnun „samkvæmt bókinni" fara menn fjórum til fimm skipti í viku í þijú til fjögur ár, jafnvel lengur. Bekkurinn frægi, sem er uppmnn- inn frá Freud, stendur til boða sum- um þeim sem í sálkönnun eru. Ætlunin með honum er að einstakl- ingurinn sjái ekki viðmælanda sinn, heldur geti ótruflaður látið hugann reika. Flestir sitja þó augliti til aug- litis við sálkönnuðinn. Þau börn sem fara til sálfræð- ings, þjást af hræðslu, einhverri áráttu, þráhyggju, þvagtruflunum, martröðum og námserfiðleikum, svo eitthvað sé nefnt. Siguijón seg- ir það skipta miklu máli að foreldr- ar komi með bömum sínum. Bati í flestum tilfellum Gylfi segir flesta þá sem fari í meðferð til sálfræðinga, sjá ein- hvern árangur af henni, stundum verulegan. Árangur af sálfræðilegri meðferð sé hins vegar erfitt að meta eftir hlutlægum mælikvarða. Þó megi yfirleitt sjá einhver áþreif- anleg merki, eins og að geðræn einkenni hverfi eða samskipti við aðra verði opnari og árangursrík- ari. Árangur meðferðar sé hins veg- ar ekki fólgin í því að losa skjólstæð- inginn við öll sín vandamál, heldur að gera hann færari um að takast á við það sem kunni að koma upp á. Misjafnt er hvenær og hvort meðferð lýkur. Stundum beinist hún að tilteknum geðrænum einkennum eða lífsvanda og lýkur þegar lausn hefur orðið á. Sumir koma aftur með sömu eða ný vandamál, aðrir ekki, svipað og sjúklingar sem leita til læknis með kvilla sína. „í hef- bundinni sálfræðilegri viðtalsmeð- ferð er venjulega gerður samningur við skjólstæðinginn um ákveðinn fjölda viðtala, t.d. einu sinni í viku í hálft eða eitt ár og stendur með- ferðin þann tíma hvernig sem ein- kennum skjólstæðingsins reiðir af,“ segir Gylfi. „í gegnum hin nánu tilfinningalegu tengsl sem myndast á milli þeirra fær skjólstæðingurinn smám saman innsæi í sjálfan sig, sem gerir hann færari um að standa á eigin fótum. Lokakafli meðferðar- innar er síðan fólginn í því að losa um hin nánu tengsl svo að skjól- stæðingurinn verði ekki lengur háð- ur sálfræðingnum, sem er einkenn- andi fyrir meginhluta meðferðar- tímans. Meðferð er í rauninni ekki lokið fyrr en sálfræðingnum hefur tekist að gera skjólstæðinginn óháðan sér og því getur þurft að gera samning um áframhaldandi meðferð uns þvi marki er náð. Ef tekst að ljúka meðferð á þennan hátt, er ekki gert ráð fyrir að skjól- stæðingurinn komi aftur. Ef ekki, þá má búast við að hann leiti til sálfræðingsins aftur og aftur.“ Iila við biðstofiir Það er enn mjög viðkvæmt mál að fara til sálfræðings, það þykir einkamál sem öðrum komi ekki við. Sumir segja ekki einu sinni maka sínum frá því að þeir hafi leitað til sálfræðings, þó að starfsfélagar hafi ekki komist hjá því að taka eftir vikulegri ijarveru úr vinnu. Fólki er illa við að sitja á biðstofum og biður gjarnan um að fá tíma sem það geti gengið beint inn í. Og það vekur enn þjóðarathygli þegar fólk fæst til þess að koma fram undir nafni og greina frá sál- og geðræn- um erfiðleikum sínum. En hver er líðan þess sem situr hluta úr degi eða allan daginn og hlustar á vandamál fólks? Sálfræð- ingarnir voru sammála um að til þess þyrfti sterkar taugar, en einn- ig hæfileikann til að setja sig í spor annarra án þess að taka vandamál- in inn á sig. Nauðsynlegt væri að þekkja eigin viðbrögð. Þess vegna þurfa klínískir sálfræðingar í námi að fara í meðferð til að valda starf- inu. „Sálfræðingur lærir starf sitt aldrei til fulls og það er sú stað- reynd sem gerir það svo heillandi," segir Siguijón Björnsson. Höfum flutt verslunina úr Bankastræti 14 á Klapparstíg 31, á horni Klapparstígs og Laugavegs. Full búð af nýjum vörum. Meiriháttar smart gallabuxur á kr. 2.800,- fyrir konur á öllum aldri. Otsölumarkaður á 2. hæó. MMI Má eitthvað af þessari miklu framkvæmd læra? Félagiö Verkefnastjórnun boöar til ráðstefnu um byggingu Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar Þriðjudaginn 23. maí 1989 kl. 13.00-18.00 að Borgartúni 6. Tilgangur ráðstefnunnar er að fjalla um byggingu flugstöðvarinnar út frá faglegum verkefna- stjórnunarlegum sjónarmiðum og leita svara við spurningunni: „Má eitthvað af þessari miklu framkvæmd læra?" Auk félagsins standa Byggingarnefnd flugstöðvar, Fjárlaga- og hagsýslustofnun, Háskóli íslands, endurmenntunarnefnd og Ríkisendurskoðun að ráðstefnunni. u Fyrirlesarar verða: Tryggvi Sigurbjarnarson Leifur Magnússon Indriði H. Þorláksson Halldór V. Sigurðsson Garðar Halldórsson Svavar Jónatansson Steindór Guðmundsson Páll Sigurjónsson Stanley Pálsson Egill Skúli Ingibergsson Pétur Stefánsson formaður félagsins Verkefnastjórnun framkvæmdastjóri hagsýslustjóri ríkisendurskoðandi húsameistari ríkisins framkvæmdastjóri ráðgjafaverkfræðingur framkvæmdastjóri framkvæmdastjóri forstjóri ráðgjafaverkfræðingur Ráðstefnan er öllum opin og þátttaka tilkynnist í síma 694306. Ráðstefnugjald með veitingum er kr. 3.000,-. F élagiðVerkefnastjórnun

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.