Morgunblaðið - 21.05.1989, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 21.05.1989, Blaðsíða 11
C 11 MORGUNBLAÐIÐ MANNLIFSSTRAUMAR SUNNUDAGUR 21. MAÍ 1989 LÆKNISFRÆÐI/Eter eba klóróform? um svæfingar Meira Nokkrum vikum eftir sögu- firæga svæfingu í Boston haustið 1846 tók breski skurðlæknirinn Robert Liston fót af manni i eter- svefni og er talið að þar með hafi svæfingar haldið innreið sína í Evrópu. Liston var þekktur fyr- ir að vera handfljótur enda veitti skurðlæknum ekki af að vera snarir í snúningum í þá daga. Myndin sem fylgir þessum pistli sýnir Liston með hnífinn á lofti en efst og lengst til vinstri er læknanemi að nafiii Joseph List- er í hópi forvitinna áhorfenda. Hann var þá 19 ára en síðar á ævi gat hann sér orðstír sem aldrei deyr fyrir kenningu sína um smitvarnir. Það var hún og tilkoma svæfinganna sem í sam- einingu gerðu beinar brautir nútíma-skurðlækninga. Ekki var að undra þótt þeim sem tóku þátt í þessu ævintýri fynd- ist mikið til um töfra svæfinganna. Einn þeirra lækna sem voru við- staddir fyrstu svæfingaraðgerðir Warrens og sam- verkamanna hans skrifaði grein í læknarit í Boston skömmu síðar og lýsti ýtarlega því sem fram hafði farið. Hann k.omst m.a. svo að orði: „Furðulegur er í eðli sínu höfginn er sígur á þann sem andar þessu að sér. Sjúklingur- inn týnir sjálfum sér og raknar svo við eftir stundarkorn og hefur þá einatt enga hugmynd um hvað gerðist eða að minnsta kosti mjög óljósa. Mikill sársauki verður stund- um í minningunni að smávægileg- um óþægindum; fyrir kemur að sjúklingnum finnst sem aðgerðin hafi verið framkvæmd á einhveijum öðrum en honum.“ Næstu árin einkennist saga svæfinganna af skiptum skoðunum um kosti og galla efnanna tveggja, eters og klóróforms. Simpson, fæð- ingarlæknir í Edinborg, var tals- maður klóróformsins og taldi það bæði fljótvirkara og þægilegra fyrir sjúklinginn. Ekki þótti öllum við hæfi að dregið væri úr léttasóttar- þrautum með svo ónáttúrlegum hætti og sóttu margir rök sín í heilaga ritningu. Stærstan sigur í þessu áróðursstríði unnu Simpson og fylgjendur hans árið 1853 þegar Viktoría drottning fæddi sitt fjórða barn í svæfingu, heilsaðist í alla staði vel og hældi klóróforminu á hvert reipi. Tímar liðu fram og mönnum fór að skiljast að klóró- formið var vandmeðfarið og fyrir kom að sjúklingar dóu af völdum þess. Eterinn reyndist ekki eins hættulegur en átti samt lengi vel erfiðara uppdráttar, einkum vegna þess hve sjúklingarnir voru miklu lengur að sofna af honum en klóró- forminu og sumum fannst eter- stækjan kæfandi meðan þeir biðu blunds. Ýmsum brögðum var beitt í því skyni að koma sem öruggastri og þó fljótvirkri svæfingu til leiðar. Eitt þeirra var að blanda efnunum saman og ná þannig í sína ögnina af hvoru, flýtinum og örygginu. Billroths-blanda var kennd við þekktasta magaskurðlækni þessa tímabils og var hún eter-klóró- form-alkóhól í hlutföllunum 1:3:1. Ekki fara sögur af því hvort sá „hristingur" var lengi við lýði en þegar aldamótin nálguðust var eter- inn í mestum metum víðast hvar. Lengi létu menn sér nægja að dreypa svæfingarlyfi á „opinn maska“ eða svæfingargrímu. Seinna voru smíðaðar lokaðar grímur, með öðrum orðum hylki, sem eternum var hellt í og varnaði því að hann ryki mestallur út í loft- ið. En svo komu svæfingarvélar til sögunnar og þá var auðvelt að blanda saman því sem henta þótti, t.d. eter, súrefni og hláturgasi sem nú er raunar oftast kallað glaðloft. Einnig bættust við ný svæfingarlyf í málmkútum, sem voru skrúfaðir á vélarnar, og má þar til nefna sýklóprópan sem er hinn ágætasti svefngjafi en öllu gamni fylgir nokkur alvara og þetta efni er svo eldfimt og olli svo oft sprengingum í skurðstofum að það var um síðir lagt fyrir róða. Um skeið töldu menn sér trú um að happadrýgst væri að hefja svæf- ingu með því að gefa lyf í endaþarm og mun avertín hafa verið mest notað þeirra allra. Nokkru síðar kom evípan til skjalanna og var þvi sprautað beint inn í blóðið í upp- hafi svæfingar en henni síðan hald- ið áfram með lyfjum sem vélin skammtaði hveijum og einum eftir því sem við átti. Önnur lyf sömu ættar eru nú gefin í staðinn fyrir evípan. Efnið sem segja má að tæki við hlutverki eters var halótan sem náði fljótt mikilli útbreiðslu eftir að það kom á markað á sjötta áratugn- um. Það er innöndunarlyf eins og eter og klóróform og er notað enn þótt skyld lyf og nýrri séu með í spilinu. Eftir að svæfingarlyfjum tók að fjölga svo mjög og aðferðir við notk- un þeirra gerðust fjölbreyttari varð augljóst að þeir sem ætluðu sér að gera svæfíngar að aðalstarfi urðu að afla sér viðbótarmenntunar og sérreynslu í námi. Því var það að svæfingarfræði varð sérgrein, og þekkist nú ekki lengur að aðrir sinni slíkum verkum en fullfærir kunn- áttumenn. Sérfræðingar í svæfing- um og deyfingum þurfa að mörgu að hyggja; þeir athuga sjúklinga fyrir aðgerð og gera sér grein fyrir ástandi þeirra, stjóma síðan svæf- ingunni meðan á uppskurði stendur og síðast en ekki síst fylgjast með þeim á gjörgæsludeild sem nú á dögum þykir með réttu sjálfsagður áfangi.á leiðinni til baka í rúm á sjúkrastofu. Starfsfólki á gjör- gæsludeild er vandi á höndum; ný- uppskorinn eða mikið slasaður sjúklingur er eins og hálftefld skák, stöðug aðgát er nauðsyn og ekki þarf mikið út af að bera til þess að taflstaðan versni og þá getur orðið harðsótt að bæta hana á ný. Viðfangsefni skurðlæknanna verða stærri í sniðum og tímafrekari með hveijum áratug sem líður og að sama skapi reynir á þolrifin í þeim sem eiga að fleyta sjúklingnum heilu og höldnu gegnum þá brim- lendingu sem bíður hans á skurðar- borðinu og fyrstu stundimar eða sólarhringana í gjörgæslu. Innflutnlngs- og beildsölulyrírtæki Höfum kaupendur að innflutnings- og heildsölufyrirtæki með þekkt umboð. Vandasöm lausafjárstaða ekki fyrirstaða, ef einhverjar fast- eignir eru fyrir hendi. Upplýsingar eða tilboð sendist til auglýsingadeildar Mbl. fyrir 26. maí nk. merkt: „Umboð - 3“. eftir Þórarin Guðnoson I ílcHj jjarf ckki act lecjfjja mikict á sicj til ad koma hcilsu ocj holdum ajiur í lacj mccthœkkandi sól. Nú hvctst cinföld actjcrct til act lacja línurnar ocj cndurhcimta þrck ocj fjör: Slcndcr You. Slcndcr You kcrfict bvcjcjist á scx vclknúnum bckkjum, scm hvcrá fcctur öctrum virkja ocj l~>jálfá ákvcctna hluta líkamans: fötlccjqi, Lcri, mjactmir, macja, hrjcjst ocj upjrhandlccjcji. Allt scm farf cru tíu mínútur á hvcrjum þcssara hckkja, tvisvarsinnum í viku. Sícndurtcknar ccjincjar, skipulacjctar aj scrfrccctincjum, stvrkja vöctvana, slctta úr apjiclsínuhúctinni lctta öndun Ofi auka pol ocj jirck - án crfictis. Arancjurinn lcctur ckki á scr standa: jrccjar cftir fvrsta skiptict crtu úthvíld ocj full aforku. F.ftir mánuctfjcturctu svo mcclt hvc marcja scntimctra Slcttdcr You hcfur hjáljxictpcr cut losna vict, jajhvcl á pcim stöctum, /xir scm talict cr crfitt act cjrcnna sicj, op jxtr scm sjaldnast nccst nokkur áranfjur mcct vcnjulccjum actfcrctum. tad cr úrcictanlcfja Slcndcr You stofa cinhvcrs stactar í fjrcnndinni. Ofj pact parf hvorki act fjrcicta áskriftcircjjald nc fjancja í ncinn klúbb. hvrsti timinn cr lika ókcvpis. Pannifj fcvrctu tcckifccri til pcss - án nokkurra skuldbindiixja afpinni hálfu - act, komast act pví act máltcckictfjamla “Ivfjurct jccst ckki án förna' cr löncju úrclt. \iltu vita mcira um Slcndcr You stofurnar? Hafctu sambancl vict Slcndcr You iipplvsincjápjónustuna á íslandi Slcnder You - Goctalandi 19 - IOS Revkjavik - 9I-3S4 30 - Slcndcr You - Sccvarlándi 4 - IOS Revkjavik 91-323 83 BETRILÍNUR - BETRI LÍÐAN oJ'bncLrQýou’ Mínus Kaupanfji v/Mvrarvefj 600 AKIIRFYRI 96-23848 . Ffinfjarsíojá Rccjcju l lafnarcjata 23 230 KEI I .WÍK 92-13433 Sólarland Hamraborcj 20.1 200 KÓPAVOGIJR 46191 Tiu V scx Rauctarcirsticjur 21 103 RFYKJAVÍK 91-21037 Slcndcr You Sucturlandsbraut 22 108 RFYKJAVÍK 689969 Fnfjlakroppar l.vravccji 27 800 SFI.FOSS 98-21112 \ ...I~

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.