Morgunblaðið - 21.05.1989, Side 14

Morgunblaðið - 21.05.1989, Side 14
14 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. MAÍ 1989 eftir Guðm. Halldórsson FYRIR NOKKRUM árum voru eignir vopnasalans Adnan M. Khashoggis metnar á rúmlega íjóra milljarða Bandaríkjadala og hann var talinn ríkasti maður heims. Enginn annar maður gat tryggt hergagnaframleiðendum eins ábatasöm viðskipti við Saudi-Arabíu, sem þurfti að koma vaxandi olíutekjum í lóg. En hann var eyðslusamur og dróst inn í Lockheed-mútuhneykslið, fran-kontra-málið og fleiri alþjóðleg hneykslismál. Voldugir, pólitískir vinir hans, sem höfðu haldið yfir honum vemdarhendi, snem við honum baki og hann hefiir orðið að selja eða veðsetja margar eignir sínar. Nú er hann í haldi í Sviss og á yfir höfði sér allt að 65 ára fangelsi fyrir Qárglæfra. Asamt Swamiji, dularfullum Indverja: milligöngumaður milligöngumannsins. Abur emn ríkasti mabur heimsy nú fangi í Sviss fifi , eins og Khas- hoggi kallar sig, er grunaður um að hafa hjálpað Ferdinandi Marcosi, fyrrum forseta Filippseyja, og Imeldu, konu hans, að leyna því að þau eru eigendur málverka, sem þau smygluðu úr landi áður en þau hrökkluðust frá völdum, og fasteigna, sem þau keyptu í New York. Handtaka Khashoggis er árangur ötullar bar- áttu saksóknarans Rudolphs Giul- anis, sem keppir að því aif verða kosinn borgarstjóri í New York. Krafa bandarískra yfirvalda um að Khashoggi verði framseldur mun hafa flókinn málarekstur í för með sér og nær líklega ekki fram að ganga fyrr en eftir marga mánuði. Milligöngumaðurinn Khashoggi er fæddur í Mecca 1935 og faðir hans var líflæknir Ibn Sauds konungs. Hann stundaði nám í Bandaríkjunum og haslaði sér völl með sölu á bandarískum flutn- ingabílum til Saudi-Arabíu í Súez- deilunni 1956. Meðal beztu vina hans voru Sultan, núverandi land- varnaráðherra, Fahd, núverandi konungur, og fleiri prinsar. Fahd og Khashoggi urðu sólgnir í fjár- hættuspil og töpuðu fimm milljón- um dala þegar þeir reyndu að sprengja bankann í Monte Carlo. Þegar olíugróði Saudi-Araba stóijókst upp úr 1960 var Khas- hoggi einn fárra lanndsmanna, sem höfðu svo mikil áhrif og þekktu vestræna viðskiptahætti svo vel að þeir gátu skýrt flóknar valdadeilur innan hirðarinnar fyrir erlendum fyrirtækjum og tryggt þeim hag- stæðar pantanir. Þannig varð Khas- hoggi milligöngumaður stjórnvalda og erlendra fyrirtækja, þar á meðal Lockheeds, Raytheons, Rolls- Royce, Marconis og Westlands. Svo útsmoginn var hann að hann var kallaður Mister Fixit og hann fékk UT KULDAN

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.