Morgunblaðið - 21.05.1989, Side 19

Morgunblaðið - 21.05.1989, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR '21. MAÍ 1989 C 19 Útbyggðarfólk í Thule frá 30 íbúa plássi færði sig um set þegar sumarið nálgaðist og setti upp tjaldbúðir sínar klukkustundar göngu frá Qaanaaq. lengdir, heldur að vita hvað þarf að gera á hverjum stað á hveijum tíma. Qaanaaq er lítið vinalegt þorp undir fjallshlíð við flennistóran §örð. Þar er kirkja og matvörubúð, vinnsluhús, skóli og meira að segja pulsuskáli sem heitir Norðurpóllinn og ekki má gleyma nýmenning- unni, myndbandaleigu með efni frá breiðstrætum heimsborganna. En alveg eins og veiðimennirnir læðast úti á hafísnum til þess að hvalirnir heyri ekki í þeim, þá er bæjarbrag- urinn í Qaanaaq ekki með ósvipuð- um hætti. Hann fer fet fyrir fet með undurblíðu fótstigi, hávaða- laust í hvolfi norðursins. Eina hljóð- ið sem fer hátt er kórsöngur hund- anna í bænum, sleðahundanna sem eru tjóðraðir á ákveðnum svæðum í þorpinu, en samsöngur þeirra á stundum er með ólíkindum. Hundgá hér og þar er ekki óalgeng, en í næturkyrrðinni eiga hundarnir það til að taka á honum stóra sínum og þenja raddböndin í botn. Það er nístingskaldur söngur með eðli úlfs- ins, sultartón og öskri eftir því að komast af stað, renna ísbreiðurnar og finna til lífsins, sinna hlutverki sínu. Góður veiðimaður stjórnar sleðahundum sínum eins og hendi sinni, en það tekur fjögur til fimm ár að þjálfa hundana svo vel sé. Annars draga sleðahundarnir mjög dám af húsbændum sínum og eru misjafnlega vel agaðir. Thulebúarnir eru ekki þurfta- frekir. Lítil en hlý hús og fábrotinn matur er það sem flestir búa við. Hvalkjöt á trönum við hús, grálúða eða pólarþorskur er víða. Veiði- mennirnir sækja langt út á ísinn og eru svo dögum skiptir á veiðum, en heima í plássinu bregða menn sér gjarnan út á ísinn steinsnar frá bænum, gangandi eða á hundasleð- Komið heim til Qaanaaq úr veiðiferð utan af hafísnum. Twelr efnilegir útbyggðarmenn í Thule. ^■■■awiÝ.v'iViiiiivrii;- um, og veiða fisk í soðið. Selinn þarf að sækja lengra. Þegar selveið- in hefst á vorin er gjarnan slegið upp veislu með vinum og vanda- mönnum, en fjölskyldutengsl eru ákaflega sferk og vinabönd tryggð- ar á sinn hátt jafn sterk og afl hafíssins. Það er sérstætt með þetta fólk að það skrifar sjaldan bréf til vina og vandamanna þótt leiðir skiiji og menn hverfi til annarra byggða eða landa, en þeir hugsa reglulega hver til annars og fólk á að vita það að með hugsuninni er sendur styrkur og umhyggja á sömu nótum og við segjum að maður sé manns gaman. Þegar við Ragnar Axelsson ljósmyndari héldum heim- leiðis frá Thule, bauð bæjarstjómin öllum bæjarbúum til kveðjuhófs þar sem íslendingunum var þökkuð heimsóknin. Þar var sungið og dansaður trommudans og ræður fluttar, kaffi og kökur og fólk á aldrinum frá tveggja ára til nírætt. Kuldinn getur verið skrambi bítandi, en þá er að klæða sig í samræmi við það. Yfirleitt reynir maður að klæðast eins létt og hægt er þegar frostið er ekki mikið á þessu landsvæði við þröskuld Norð- urpólsins, en 20-30 stiga frost þyk- ir í sjálfu sér ekkert tiltökumál meginhluta ársins. En þegar kald- ast er og frostið fer í 40-50 stig er ævintýralegt að eiga aðgang að Thulubúningi veiðimannsins, stakk úr hreindýraskinni þar sem hárið snýr út, ísbjarnarskinnsbuxum þar sem hárið snýr út og selskinns- kamíkum sem er tvöfaldur, selskinn að ytra byrði, en gæruskinnssokkur hið ytra. Að klæðast þessum bún- ingi þegar frostið herðir hvað mest er eins og að fara í sumarfrí til sólarlanda. í þessum búningi hverfa skilin á milli norðurs og suðurs, maður er einfaldlega á þessum stað á jörðinni sem er veröld út af fyrir sig, engu lík, harðbýl og hlý í senn, en fyrst og fremst af mannlegri hlýju. Með þá vitneskju í farteskinu er auðveldara að taka áhættuna sem fylgir hveiju fótmáli út á hafísnum við veiðar og baráttu við klakabönd norðursins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.