Morgunblaðið - 21.05.1989, Side 22

Morgunblaðið - 21.05.1989, Side 22
22 C MORGUNBLAÐIÐ FJOLMIÐLAR SUNNUDAGUR 21. MAÍ 1989 Norður- og Austurland: Svæðisútvarp í stað Þjóðarsálar HLUSTENDUR DÆGURMÁLA- ÚTVARPS Rásar 2 á Norður- og Austurlandi, hafa undanfarið lýst yfir óánægju sinni þar sem þeir geta ekki hlustað á Þjóðarsálina, símatíma hlustenda. Svæðisút- vörp þessara landshluta eru send út á dreifikerfi Rásar 2 milli kl. 18 og 19 en þá er Þjóðarsálin á Rás 2. nnan Ríkisútvarpsins hafa menn haft nokkrar áhyggjur vegna þessara kvartana en eftir miklar umræður var ákveðið að bíða og sjá hvað sæti. Þjóðarsálin hófst um síðustu áramót og hefur gengið mjög vel, að sögn Stefáns Jóns Hafsteins, yfirmanns dægurmála- deildar. Þar er hlustendum boðið að hringja inn og ræða ákveðin málefni í beinni útsendingu, ýmist að eigin vali eða við gesti í útvarps- sal. Ema Indriðadóttir deildarstjóri Rúvak segir að óánægjuraddir hafi heyrst en þó hafi mun fleiri lýst yfir ánægju með svæðisútvarpið. Það hafi gefist vel ekki síður en dægurmálaútvarp. „Áður en svæð- isútvörpin komu til sögunnar var kvartað yfir því að ekki væri höfðað nóg til Iandsbyggðarinnar í efnis- vali. Svæðisútvörpunum er ætlað að koma til móts við þær óskir en það er fyrirsjáanlegt að á meðan þau eru á dreifíkerfi Rásar 2, missa hlustendur af einhveiju efni rásar- innar.“ Harmleikur myndaður ERLENDIS ÞYKIR það ekki fóg- ur sjón að sjá fréttaljósmyndara reyna að ná sem bestum myndum afþeim viðburðum sem frétt- næmir eru. Hræðsla þeirra við að missa ef til vill af einhveiju, getur orsakað meiri aðgangs- hörku en fólki líkar. FÓLK i fjölmiðlum ■ SIGURÐUR G. Tómasson mun leysa þá Ævar Kjartansson og Stefán Jón Hafstein á Dægur- málaútvarpi Rásar 2 af í sumar. Sigurður er einn pistlahöfúnda Dægurmálaút- varpsins, um- sjónarmaður fréttaþáttarins Hringsjár í Sjón- varpi og Daglegs máls í Ríkisút- varpinu. Þá hef- ur hann unnið að þáttagerð á Bylgjunni. Sigurður sagði starfið leggjast vel í sig enda engu að kvíða þar sem honum hefði hing- að til gengið vel að aðlaga sig vinnu í útvarpi. Ikjölfar harmleiksins á Hillsbor- ough-leikvanginum í Sheffield í apríl síðastliðnum var aðgangs- hörku ljósmyndara og myndbirting- um blaða af deyjandi áhorfendunum iiarðlega mótmælt af almenningi. Yfir 300 kvartarlir bárust vegna mynda í Daily Mirror, margir blaða- salar í Liverpool íjarlægðu blaðið úr hillum sínum og einum ljósmynd- ara barst morðhótun vegna mynd- birtingar. Þegar slysið varð, voru nær allir ljósmyndaranna komnir til að taka myndir af íþróttavið- burði. Þeir áttu allra síst von á því að lenda í hlutverki fréttaljósmynd- ara á harmleik og mörgum þeirra varð svo mikið um, að þeim var um megn að ljósmynda það sem blasti við þeim. En þessi mynd, sem var tekin daginn eftir harmleikinn sýnir atganginn er fréttaljósmyndarar leituðu að myndefni til að fylgja fréttinni eftir. Þar sem almenningur sá niðurbrotinn fótboltaáhuga- mann, sáu ljósmyndaramir úrvals myndefni. V^terkurog kJ hagkvæmur auglýsingamiöill! ■'Vðw i gongum kl. b.UO og b uu. ve< frá '/eðurstofu kl 4.30 ^ _ 2 p*»\\ POt-».03 Morgunútvarpið Fréttir kl. 09 frt''1' °9veöurtregrw kl 8 15 Kstva'0b \ . ftfelv03 Morgunsyrpa Evu Asrúnar , oo 8-*Vttur 1’öeif>ss0"o'Js>e9aí,’í1«é''a<'!Í'yj Hádegisfrénir. urfísa' f'e"' i Umhverlis landtð á átialiu lv\ Ö's'sS ndalleikur tónlist oa gefur c RAS2 5® FM 90.1 *•'« lÆ 1.10 Vókulógin. Tónlist af ýmsu tagi i M0rn nr°9nir n næturútvarpi. Fréttir kl. 2.00 og 4.00 og //>e/öSa r^n,ónar. $9s^á. sagðar fréttir af veðri. færð og flugsam- n°ven r,,°n parad. ón,ist gongum kl. 5 00 og 6 00. Veðurfregmr;Ó/) Hayú°9ang aJ- frá Veöufstotu kl 4.30. Sn'°lnihlFeinoa!?’e°sl ^ po(’’.03 Moraunútvarpið H.\ÓSSO{ gm*Pn naVfi~"9ang a£' k 'an,eio% - He*o72*íeusl8 Wln Alberts ****$ teg.sfrá,,,, hverfis landið á áttatiú. Margrét tr,na Qfiir G s°n byrj. leikur tónlist og gefur gaum að ///* . . hfe&**ann' P,a* s,m°npr JSr' ■ yeoZJ"^L. res,°nstjórn f Næst • ve\nss«'_..s,o9•»' ÍQ\(é^’;íV\ '2°°° Hádegisfréttir ' Umhverfis landið á áttatiú. ■.fVA.&00?re\ Ó'3'sS^ r,MW w ndal leikur tónlist og gefur io.o° JfoT „tlf VAe^800' —— - og^' ^ ** ..00 Q>^ \s\eo^ '°® A4,^.00 ( ar enulgi „ ð Pan a 10 ÍÖ &<"’■ r2ki‘> ,s°° 'cs'urs*rÐ „srs.—*--£wiune 3le9U, ’S-J° f/d/eg, 91 a°Ca^?% 2,'.00JOagskrá"°" ÖBBUf . M' ÚTVARPHAFNARF*0 semadrit'' ,0 2“"“p * RÁS 2 sV/eÐlSÚTVARPA^»„ "hgr. , AF HVERJU eru dagskrár ljósvakamiðla eins og þær eru? Af hveiju eru útvarpsfréttir klukkan 19? Hví eru sakamálaþættir á sama tíma á báðum sjónvarpsrásum? Hvers vegna er barnaútvarp á rás 1 klukkan 9 á morgnana? Þó svo erfitt sé að gera sér grein fyrir reglu í dagskrárröðun ljósvakamiðla hér á landi þá er víst að tilviljun ræður þar ekki ferðinni. Eins hvunndagslegt fyrirbæri og Ijósvakadagskráin í blaðinu í dag er lokaniðurstaða Qölmargra langra og strangra fúnda með tilheyrandi undirbúningi ötulla starfsmanna. Dagskrárröðun ljósvakamiðlanna endurspeglar af- stöðu þeirra sem ráða ferðinni til þess hvert sé hlutverk fjölmiðla og hvað sé góður ljósvakamiðill. Röðunin byggir hins vegar í fyrsta lagi á því úr hvaða dagskrárefiii er að moða, í öðru lagi á trú manna um hegðun almennings og í þriðja og síðasta lagi á hefð. Þrátt fyrir að stutt sé síðan ljósvakamiðlamir fóru að keppa um augu og eyru fólks virðist dagskrárröðun þeirra allra fallin í frem- ur þröngan farveg vana og spamaðar. Ríkisfjölmiðlum hér á landi eins og annars staðar í Vestur- Evrópu var komið á legg til þess að mennta, fræða og skemmta al- menningi. Þar sem þeir höfðu ein- okun gátu þeir raðað dagskrám upp eins og þeim hentaði og þeir héldu að fólk vildi. Almenningur hafði lítil áhrif og því sköpuðust röðunarvenjur sem byggðu á þörf- um og stefnumiðum ríkisfjölmiðla. Þrátt fyrir þjóðfélagssviptingar á síðustu áratugum, tvöföldun þjóð- arinnar, tölvu-, tækni- og fjöl- miðlabyltingu eru hornsteinarnir í dagskrárröðun miðlanna þeir sömu og í upphafi. Útvarpsfréttir eruá matmálstímum þeim sem launa- menn höfðu eitt sinn og kvölddag- skrár sjónvarpsstöðvanna hefjast að loknum síðari matmálstíman- um. Dagskrárröðun léttu útvarps- stöðvanna er áþekk. Fram til níu á morgnana og milli fjögur og sjö síðdegis er gert ráð fyrir því að hlustendur hafi meiri þörf fyrir að BflKSVlÐ eftir Asgeir Friðgeirsson hlusta á talað mál. Tónlistin ræður ríkjum á öðrum tímum. Neytenda- þáttur og sérþarfaþing rásar 2 ber fyrst og fremst vott um að dægur- stöðvarnar geta höfðað til ungs fólks á fjölbreyttari vegu en fram til þessa var talið mögulegt. Dag- skrárröðun á rás 1 ber svipmót lið- inna tíma. Hún er dæmigerð fyrir vesturlensk, menningarleg og fræðandi einokunarríkisútvörp um og eftir stríð. Röðunin ber vott um að rás 1 hafi ekki skilgreint hlut- verk sitt í ljósi breyttra lifnaðar- hátta og samkeppni við aðra ljós- vakamiðla. Þar á bæ eru hins veg- ar hafnar umræður um gagngera endurskoðun dagskrár. Dagskrárröðun sjónvarpsstöðv- anna er ótrúlega lík. Hún er að vísu frábrugðin til endanna en á kjörtíma, sem er fyrstu þijár til fjórar stundirnar eftir að fólk kem- ur frá vinnu, er hún áþekk. Stöðv- arnar báðar hafa fréttir um miðbik kjörtímans en þær hafa því hlut- verki að gegna að fá fólk til þess að stilla inn á réttu rásina. Fréttum fylgir ýmist spenna, grín eða löðr- andi rómansar. Á undan þeim er yfirleitt efni sem hentar til upp- fyllingar, rétt eins og biðstefið sem leikið var á píanó margoft á dag á rás 1. Stöð_ 2 ákvað að sigla í kjölfar Sjónvarps og hafa fréttirn- ar á svipuðum tíma. Hún hefði t.d. getað ákveðið að hafa þær klukkan 18.30 og/eða 21 og bjóða upp á vinsælt efni um miðbik kjörtímans. Það hefði verið tilraun til að halda hámarksáhorfi, sem er um 60% fyrir báðar stöðvamar til samans að meðaltali, á milli 19.30— 20.30, í lengri tíma en nú er. Að líkindum hefði það glatt auglýsendur. Annað sem einkennir báðar stöðvarnar er að röðunin er æði oft köflótt, þ.e. efni sem höfðar til skilgreinds hóps, t.d. unglinga eða listáhuga- fólks er alls óskylt því sem er á undan og eftir. Þetta er hins vegar „vandamál" sem allar stöðvar sem vilja bjóða upp á fjölbreytni en hafa ekki úr mörgum útsendingar- stundum að spila, eiga við að stríða. Að líkindum er mikið til í því að íhaldsemi áhorfenda ráði miklu um röðun ljósvakadagskráa. Hins vegar er hættan sú að trú fjöl- miðlastjómenda á íhaldsemi fólks, sem þegar öllu er á botninn hvolft gerir minni kröfur til fjölmiðla, ráði meim. ,JtOBOT‘ að virðist ætla að ganga báglega að finna nothæft íslenzkt orð fyrir robot. í þáttum Gísla Jónssonar um íslenzkt mál hafa birzt nokkrar misgóðar tillögrir, sem virðast ekki eiga sér hljómgrunn. Enn tala blaðamenn og ljós- vökungar um róbóta og vélmenni, orð sem í upp- hafi þóttu lltt við hæfi nema til bráðabirgða. Robbi, sem fram kom í þáttum Gísla, hefur ef til vill þótt of gælunafnslegt til að vera notað í alvöru, of svipað nöfnum eins og Bubbi, Dabbi, Kobbi, Stebbi o.s.frv. (jafnvel Robbi fyrir Róbert). Hver veit nema betri þætti styttingin bóti, sem væri af svipuðu tagi og stytt- ingarnar bíll, spítali, berklar o.fl. slík orð. Auðvitað væri þó bezt að hafa upp á orði af íslenzk- um uppruna. Mig minnir það hafi verið í þáttum Gísla, að fram kom tillag- an tilberi, en einnig án árangurs. Mig grunar að þar hafi merkingar- gagnsæið (sá sem ber til) aldrei þessu vant verið til óþurftar. Kannski væri snakkur betra orð; það merkir raunar sama og tilberi. En þegar haft er í huga, að um er að ræða „þarfasta þjón“ næstu framtíðar, mætti ef til vill kalla hann jálk; en jálkur var löngum haft um púlshesta, en naut þó jafnframt þeirrar virðing- ar að vera Óðinsheiti. Þar væri því hvorki um nýyrði að ræða né merkingar- breytingu, heldur í mesta lagi merkingarrýmkun, þar sem ný tækni hefði hreiðrað um sig á þessu nærtæka merkingarsviði, svo sem oft á sér stað að eðlilegum hætti. Þess má að lokum minnast, að sjálft orðið robot er sprottið af tékk- neska orðinu robotnik, sem merkir þræll, eða robota, sem merkir nauðungarvinna, og var tekið eftir leikriti Karels Capeks um vélgenga vinnuþræla, sein strituðu án þess að hugsa. Helgi Hálfdanarson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.