Morgunblaðið - 21.05.1989, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. MAÍ 1989
C 25
DÆGURTÓNLIST/Geta blökkumenn spilaó rokk?
Þungt og svart
ÞÓ ROKKIÐ eigi rætur sínar í svartri tónlist hefur það alla tíð ver-
ið talið „hvít“ tónlist og þá ekki síst rokk í þyngri kantinum. Þess
eru fá dæmi að rokksveit skipuð blökkumönnum hafi náð til hvítra
plötukaupenda í Bandaríkjunum ekki síður er litra; í það minnsta
hefiir það ekki gerst síðan Sly Stewart, sem tók sér nalhið Sly
Stone, sendi síðustu söluplötuna frá sér 1973.
Sú plata, Fresh, átti sinn þátt
í því að móta tónlistarsmekk
ungs blökkudrengs, Vernons
Reids, sem hélt mjög upp á hana
og aðra sem út kom sama ár,
Houses of the
Holy með Led
Zeppelin. Þessi
blanda átti síðar
eftir að skila sér
í tónlist hljóm-
sveitar Vernons,
Living Colour,
sem hefur gjör-
breytt stöðu litra
rokktónlistarmann í Bandaríkjun-
um í dag; eða svo vonar Reid í
það minnsta. Fyrsta plata sveitar-
innar sem ber heitið Vivid, hefur
selst í um 1.000.000 eintökum í
Bandaríkjunum, er nú í sjötta
sæti bandaríska vinsældalistans,
og lagið Cult of Personality, sem
minnir óneitanlega á Zeppelin,
hefur náð miklum vinsældum.
Allt hefur þetta vakið mikla at-
hygli á hljómsveitinni, en mesta
athygli hlýtur Vernon Reid, höfuð
hljómsveitarinnar og helsti laga-
smiður, sem er einnig kunnur fyr-
ir að vera einn fremsti og hug-
myndaríkasti gítarleikari Banda-
ríkjanna i dag.
Vemon Reid á sinn uppruna í
fönkrokktónlist Sly and the Fam-
ily Stone og þungarokki Led
Zeppelin, eins og áður sagði, en
hann lærði að leika kalypsótónlist
í árdaga hjá frænda sínum. Hann
hóf sinn atvinnutónlistarferil í
síðpönksveitum í New York, en
lék svo jassfönk með Defunkt
fýrstu skref þeirrar sveitar. Þegar
uppúr slitnaði hóf hann að leika
með framúrstefnu jasssveitum og
ávann sér mikla virðingu fyrir
gítarleiki. Að eigin sögn fékk
hann um síðir nóg af að hlusta á
tónlist eftir aðra og ákvað að setja
saman sveit til að leika sína eigin
tónlist. Sú tónlist var þungt rokk
þar sem flugeldasýningar Reids á
gítarinn voru áberandi. Textar
laganna sem Reid samdi voru á
nokkuð annan veg en textar
hvítra rokksveita almennt og sé
að marka textana á Vivid virðist
Reid hafa meiri félagsþroska til
að bera en Robert Plant í það
minnsta. Gott dæmi um það er
lagið Landlord sem segir frá hús-
eigenda sem brennir hjalla sína
til að losna við leigjendur sem
hann má ekki segja upp lögum
samkvæmt til að geta byggt
stærri hús og arðbærari. Önnur
lög á plötunni eru sum hver einn-
ig ádeilukennd, en það bregður
einnig fyrir léttri kímni og ástar-
hjali. Þess má svo geta að hljóm-
sveitin tekur gamla Talking He-
ads-lagið Memories Can’t Wait í
vel rokkaðri útsetningu sem vísar
til fleiri áhrifavalda en Zeppelin
og Sly Stone.
Living Colour þurfti að þrauka
í sex ár áður en sveitin gerði plötu-
samning, en það varð að hluta
fyrir tilstilli Micks Jaggers, sem
hreifst af sveitinni eftir að hafa
villst inn á tónleika með henni.
Jagger stjórnaði upptökum á
tveimur lögum og Vernon og fé-
lagar gengu með þau lög á milli
útgáfufyrirtækja. Þar vissu menn
ekki hvað gera ætti við rokkhljóm-
sveit sem skipuð væri blökku-
mönnum og fyrst eftir að sveitin
gerði loks samning gekk fyrirtæk-
inu illa að finna markhóp í auglýs-
ingum. Sex mánuðum eftir að
platan kom út fór hún að seljast
svo um munaði og nú er svo kom-
ið, eins og áður sagði, að hún er
langt komin í platínusölu. Reid
er að vonum ánægður með vel-
gengnina en í viðtali við Rolling
Stone fýrir skemmstu sagði hann
að það besta væri ef sigurganga
sveitarinnar yrði til þess að aðrar
svartar rokksveitir létu ekki hug-
fallast. í öðru viðtali sem birtist
í Spin, tekur hann af öll tvímæli
um að Living Colour sé að leika
rokk af þeirri gerð sem er á Vivid
til þess eins að hagnast af, enda
séu dæmin um misheppnaðar
blakkar rokksveitir legíó.
Living Colour; Vernon Reid, Will
Calhoun, Corey Glover og Muzz
Skillings.
Rekurþú
lítibfyrirtceki?
Hyggstu stofnafyrirtceki?
Vantarþigyfirsýn?
Námskeidid Stofnun og rekstur fyrirtcekja
fyrir konur veröur haldiö 30. maí - lO.júní.
Medal efnis: Stofnandinn, stofnácetlun,
stefnumotun, markaðsmál', jjármál, form fyrir-
tækja og reikningsskil.
Námskeiðiðferfram í kennslusal Iðntæknistofnun-
ar í Keldnaholti.
Kennt erþrtðjudaga, fmmtudaga og laugardaga.
Þátttaka tilkynnist í síma 687000.
n
IÐNTÆKNISTOFNUN
ISLANDS rekstrartæknisvið.
eftir Árna
Matthíasson
LEIKFONG
Mesta leiklangarýmingarsala
allra tíma.
Verslunin hættir hér
Masters karlar og tylgihtutir
á innkaupsverði.
Dæmi: Áður Nú
Karlar 590-715,- 390,-
Tæki 565,- 300,-
Hallir 4.800,- 2.990,-
Könguló 3.150,- 1.990,-
Barbievörur Áður Nú
Dúkkur 1.180,- 780,-
Skenkur 1.095,- 500,-
Snyrtiborð 1.575,- 800,-
Borðstofuborð 1.455,- 700,-
Dagmömmur
Barnaheimili
Einkaheimili
Notið tækifærið fyrir
afmæli og jafnvel jólin
10% - 20% - 50% -
70% ofslóttur
Alh á að seljast
Sendum í póstkröfu
LEIKFANGAHÚSIÐ,
Skólavörðustíg 10, Reykjavík, sími 14806