Morgunblaðið - 21.05.1989, Page 37

Morgunblaðið - 21.05.1989, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ VELVAKANDI SUNNUDAGUR 21. MAÍ 1989 C 37 Bjarni L. Gestsson Sævar Gestsson sama hlut unglingurinn sem er að byrja. „Háskólamennirnir mættu kannski hugleiða það núna,“ sagði hann, „eftir að vera búnir að semja um alls konar tilfærslur vegna ald- urs og starfsreynslu, að kona á Vestfjörðum hafði unnið í 24 ár í sama frystihúsinu án þess að fá nokkra slíka tilfærslu". Hún hafði orð á þessu við vinnuveitendur sína. Þetta var rétt, en svona voru bara kjörin hennar. Þeir voru þó slíkir menn að þeir buðu henni í sólar- landaferð til að bæta henni þetta upp. Úlfar Ingi Magnfreðsson K.P. Reykjavík QPflDT hef verið meðlimur í oruni plötuklúbb Almenna bókafélagsins sem gefur út sögu rokksins. Nú er nokkuð langt um liðið síðan þeir gáfii út síðustu plötu og er ég orðinn langeygður eftir þeirri næstu. & ekki fram- halds að vænta? Guðbjörg Aðalsteinsdóttir lyá Al- menna bókafélaginu. SVAR Af óviðráðanlegum ástæðum varð nokkuð hlé á útgáfu sögu rokksins en innan skamms mun hún heíjast á ný. Næsta sending kemur um mánaðamótin og svo verða plötur gefnar út á þriggja mánuða fresti. Góð dag- skrá Ágæti Velvakandi. Eg vil með þessu bréfi þakka Ríkissjónvarpinu fyrir dagskrá þess miðvikudaginn 26. apríl sem var í einu orði sagt stórgóð. Fyrir fréttir var sýndur bráðfyndinn breskur þáttur „The black Adder" þar sem gert var stólpagrín að breska aðlinum fyrr á öldum. Kl. 9 sama kvöld var svo lokaþátturinn í Taggart syrpunni, Ókeypis dauði, þar sem hinn kankvísi skoski lögre- gluforingi, Taggart, leysti úr flóknu glæpamáli. Þessir þættir eru bestu sakamálaþættir sem sýndir eru í sjónvarpinu. Þar á eftir kom svo kvikmyndin „Parade“ eða Sirkuslíf með franska snillingnum Jacques Tati, þar sem hann kynnti atriði í sirkus. Sérstaklega var gaman að látbragðsatriðum hjá Tati sjálfum. Sínið endilega meira af þessu. Ánægður sjónvarpsnotandi Wj uAnUtlMA : Allt til garövinnslu „Og meira" 0\ Umboðsmenn um land allt Gunnar Asgeirsson hf. Suðuriandsbraut 16,108 Reykjavík - Sími 91-680 780 Odýrast að fækka þing- mönnum Til Velvakanda. Það hefur komið til tals að Al- þingi kaupi Hótel Borg og finnst mér það ekki rétt kaup. Þeir áætla að 60 milljónir fari í breyting- ar á húsinu en ég álít að það fari 100 milljónir í þá breytingu. Það er oftast nær að breytingar á göml- um húsum fara fram úr áætlun. Mér finnst að Borgin eigi að gegna sínu hlutverki áfram og vera hótel. Mér heyrist á þingheimi að þetta verði bara bráðabirgðalausn að kaupa Borgina, því það eigi að byggja þinghús þegar frá líður. Mér fínnst að svona kaup séu að tjalda til einnar nætur, eins og gamalt orðtæki segir. Ég bendi Alþingi á Iðnó, þar yrði ódýrara að breyta. Svo get ég bent á annað ráð. Ef öll hús eru að sprynga utan af þingmönnum sem þeir hafa ráð á þá er ekkert annað hægt að gera en að fækka þing- mönnum svona um 15 til 18. Ef það væri gert þyrfti ekki að byggja þinghús fyrst um sinn. Ég held að það séu margir sammála mér um þessa lausn. Það þurfa allir að gæta að sér og spara. Ingimundur Sæmundsson Sumarhús í sérf lokki AÐ TRÖNUHRAUNI 8 HAFNARFIRÐI Okkut hjó Transit hf. er sönn ónægja að tilkynna yður að ó 30 óta ofmæli fyrirtækis okkar bjóðum við til sölu i fyrsta skipti mjög traust, hlý og vönduð (heilsórs) sumarhús, sem við erum afskaplega stoltir af. Fróbært hugvit (innlent og erlent) svo og alúð hefur ein- kennt alla hönnun og smíði ó þessum húsum. Húsin eru hlý, endo er 4 tommu einangrun i öllum útveggjum og 6 tommu einangrun i gólfi og lofti. TRANSIT HF. býður nú glæsilegt sumarhús af GISELLA ÍSLAND gerð, sem er 48 fm að flotarmóli ou* ^ fm svefnlofts eða alls TO Im innanhúss. Auk þess er yfirbyggð vetönd 35 fm. Samlals eru þvi 105 fm undir þaki. Við hönnun húsanna hefur hver þumlungur verið skoðaður gaumgæfilega af fagmönnum og vegno hagstæðro viðskipto- sommngo okkar getum við haldið öllum kostnoði í olgjöru lógmarki. Verö á GISELLA ÍSLANP sumarhúsi óuppsettu er f rú kr. 1.210.OOO,- Við munum ó næstu dögum bjóða nokkur hús af GISELLA ÍSLAND gerð ó einstöku kynningarverði, fró aðeins kr. 1.079.000, Greiðslukjör eru fróbær og erum við mjög sveigjanlegir í samninqum. DsDii: 1) Við samning greiðist 15% af kavgverði. 2) Við afhendingu greiðist 40% af kaupverði. 3) Eftirstöðvar greiðast síðan t.d. á 2 árum. Ef þér viljið kynnast GISELLA ÍSLAND nðnar þó verið velkomin i Trönuhraun 8, Hafnarfirði, skoðið sýningarhús okkar staðsett ó baklðð og fóið frekari upplýsingar. SIINARHÍIS ER EKKIBARA FJARLÆGER DRAVNUR - ÞAD SANNA OKKAR VERD OG GREIDSLEKJÖR Sjón er sögu ríkari. 'RANSIT" TRÖNUHRAUNI 8, HAFNARFIRÐI, SÍMI 652501

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.