Morgunblaðið - 21.05.1989, Side 39

Morgunblaðið - 21.05.1989, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ SAMSAFIMIÐ SUNNUDAGUR 21. MAÍ 1989 C 39 Heföbundin myndataka af nýstúdentum fyrir utan Menntaskóiann í Reykjavík. Þaö hefur greinilega rignt þennan dag. SÍMTALID... ER VIÐ ÞÓRU GUÐMUNDSDÓTTUR FORMANNFRÚLÁRU Reynum að gem þetta sem mest sjálfar 97-21410 „Þóra.“ - Sæl. Friðrika Benónýs blaða- maður á Morgnnblaðinu hér. „Já, sæl.“ - Eg sá að það var verið að auglýsa eftir rekstraraðila fyrir Frú Láru og nú langar mig til að fá að vita hver Frú Lára er. „Frú Lára er hlutafélag 150 seyðfirskra kvenna sem eiga og reka húsið Frú Lára...“ - En hvers vegna Frú Lára? „Konan sem að bjó og starfaði lengst af í þessu húsi hét Lára. Hún var ein af síðustu frúnum hér í bænum og aldrei kölluð ann- að en frú Lára.“ - Og þetta er kvennahús? „Já, í þeim skilningi að það eru konur sem eiga það og sjá um reksturinn, en það er að sjálfsögðu opið bæði konum og körlum.“ - Hvaða starfsemi fer þama fram? „Við rekum þama verslun, er- um með kaffisölu, námskeiðahald, sýningar og útimarkaði, en það er alveg opið hvemig starfseminni verður háttað í sumar.“ - Hvernig verslun er þama? „Við emm með handunnar vör- ur, heimilisiðnað... - Sem þið framleiðið sjálfar? „Bæði og. Það em þarna vömr frá konum alls staðar af landinu." - Emð þið í ein- hveiju samstarfi við Hlað- varpann í Reykja- vík? „Ekki beinu en það væri mjög vel þegið, við höf- um bara ekki athugað það ennþá. Allt fyrrasumar fór í að koma húsinu svona nokkurn veginn í stand og því er ekki að fullu lokið ennþá. Þetta er gamalt hús, byggt árið 1900, og það er að sjálfsögðu margt sem þarf að lagfæra.“ - Og þið vinnið það allt sjálfar? „Mikið til höfum við gert það. Við höfum aðeins þurft að kaupa okkur iðnaðarmenn, en við reyn- um að gera þetta sem mest sjálf- ar. Fómm til dæmis í vetur og einangmðum, en það er ansi mik- ið ógert enn. - Og það er mikill áhugi hjá seyðfirskum konum fyrir þessari starfsemi? „Ég mundi nú ekki fullyrða það. Það er alltaf erfitt að halda uppi svona félagsstarfsemi í litlu plássi þar sem allir hafa mjög*. mikið að gera. Það var mikill hugur i konum þegar við keyptum húsið en það hefur verið öllu erfið- ara að halda uppi starfsemi." - En það er enginn bilbugur á ykkur þrátt fyrir það? „Nei, húsið er alveg í þjóðbraut í miðbænum og við gemm okkur vonir um að geta notið góðs af ferðamannastraumnum í sumar og emm fullar bjart- sýni.“ ^ - Þá óska ég Frú Lám bara góðs gengis og þakka fyrir spjallið. „Þakka þér sömu- leiðis. Blessuð." - Bless. Veturinn 1841-42 var þjóð- skáldinu Jónasi Hallgríms- syni erfiður. Matthías Þórðarson þjóðminjavörður sem sá um út- gáfu á ritum skáldsins 1929-36 hyggur að um þetta leyti hafi Andvökusálmurinn „Svei, þér, andvakan arga!“ verið ortur. Hvað hélt vöku fyrir skáldinu? Varnarlaus borgari Matthías telur að skammdegið hafi lagst þungt á Jónas — en svo vom það ein óþægindin enn. Þau koma fram í bréfi sem lista- skáldið góða ritaði Stefáni Gunn- laugssyni, bæjarfógeta í Reykjavík, 19. apríl 1842: „(Pri- vat!) Þú þekkir þessa kerlingu — Þóra heitir hún, vitlaus, að ég held og hefir brókarsótt og situr um mig nótt og dag, úti og inni, svo ég hefi aldrei frið, og er hér eins og í helvíti... — Eg vildi þú værir stundarkorn kominn í minn stað, svo þú gætir séð, hversu réttlátt það er, að „póli- ■ tíið“ trassar fyrstu skylduna sína: að vernda saklausa borg- ara ... En þolinmæðin er þrotin; ef ég í bræði minni rek stein eða spýtu út um rúðuna í kjaftinn á henni, þá verð ég sektaður, en þú átt j,det moralske An- svar“ ... Eg flý ekki bæinn fyr- ir þessari svívirðilegu ásókn, sem smánar bæinn og pólitíið meira en mig; gerðu eitthvað, heldur en að gera ekki neitt, kallaðu mig fyrir rétt, þó mér sé það meir en dauðleitt.. .“ Sælasta augnablikið! Þessi kvenpersóna sem þjóð- skáldið fór svo ófögrum orðum um hét Þóra Torfadóttir, var 46 ára að aldri og nýlega orðin ekkja. Hana mun hafa dreymt að Jónas ætti að verða seinni maður sinn. Þvílíkur var ást- arbríminn að hún lá á glugga draumaprinsins, elti hann á göt- um og beið hans á húströppum. Jafnvel er sagt að Jónas hafi einu sinni barið hana frá sér og Þóra á að hafa sagt: „Það er það sælasta augnablik sem ég hef lifað því hann varð að taka á mér með höndunum á meðan hann barði mig.“ Margir töldu Þóru ekki full- komlega með réttu ráði á þessu árabili en „álitin skikkanleg kona síðar, þegar hún komst úr þess- ari leiðslu". Gamlar konur töldu að Jónas hefði ætlað að vinna hjarta kaupmannsdótturinnar Kristjönu Knudsen með seiði en galdurinn misfarist og snúist að Þóru. Pólitíþjónar gæti að Yfirvald Reykvíkinga brást skjótt við þessari kæru, í dóms- málabókina er m.a. bókað: „19. apríl.. . gefin áminning um að hætta slíku eftirleiðis, hvetju hún hátíðlega lofaði; og að hún hér eftir hvorki skyldi standa við FRÉTTALJÓS ÚR FORTÍÐ Of’mikið af svogóðu — Kvennavandræði þjóðskáldsins 1842 Jónas Hallgrímsson (f. 1807,(1.1845). glugga hans né ganga eftir hon- um á götum eða annars staðar, já jafnvel ekki líta við honum eð í þá átt sem hann væri... var aðferð framvegis og handtaka pólitíþjónunum strengilega hana, ef hún breyti á móti því uppáboðið að gæta að hennar hér að framan skrifuðu.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.