Morgunblaðið - 21.05.1989, Side 40

Morgunblaðið - 21.05.1989, Side 40
40 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. MAÍ 1989 Windows 25. maí KI.9-16 Farið er í helstu undirstöðuatriði gluggaforritsins Windows. Helstu fylgiforrit eru kynnt og gerðar æfingar. Allar nánari upplýsingar og bókanir hjá Ásrúnu Matthíasdóttur Einari J. Skúlasyni hf. Grensásvegi 10, sími 686933. A TH: VR og fleiri stéttarfélög styrkja félaga sina til þátttöku. Tölvuskóli Einars J. Skúlasonar hf. 1V0FS IBM á Islandi og Sameind hf. kynna: IBM 4684 verslunartölvuna 5 012345 678900 • IBM 4684 verslunarkerfið sem þjónar jafnt minnstu verslunum sem þeirn stærstu, stórmörkuðum sem sérvöruverslunum. • IBM 4684 er án efa fjölhæfasta verslunartölvan á markaðnum. • IBM 4684 les og skráir kredit/debetkort beint sem sparar mikinn tíma og kostnað. • Oruggar tengingar við stærri gerðir tölva. • IBM strikamerkjalesarar lesa allar gerðir strikamerkja. Allt eftír ó&kum notandam, á verði sem kemur á óvartl Með IBM 4684 fæst heildarlausn í verslunarrekstri, á einfaldan, öruggan og ódýran hátt. Sérstök kynning verður á IBM verslunartölvunum fyrir matvöruverslanir og sérverslanir í húsakynnum Sameindar hf., að Brautarholti 8, dagana 22., 23. og 24. maí nk. Upplýningur / nímu 25833 Qsameind Kannt þú nýja símanúmerið? Steindór Sendibílar 3/67 BAKÞANKAR Bakpokalýð- urinn Við erum sérstakir fagurkerar íslendingar og kunnum að draga fram það fegursta í og á meðal vár. Svó búum við náttúr- lega við ómótstæðilega nátt- úrufegurð, hvergi eru fegurri börðin eða uppétin holt- in, ellegar upp- blásnu melarnir en hér. Nefnið einn stað sem hefur fegurri börð með lítilli kind, flóka og gaddavír í aftur- endanum og tvö örlitil sauðalit lömb með vott af skitu? Eða jökl- arnir, maður lifandi. Enda leynir ferðamannastraumurinn sér öngvan veginn. Þeir eru mættir útlendingarnir, á hjólunum að hjóla kringum landið með bak- pokana og nælontjöldin og skaft- pottana dinglandi og í hnébux- um. Hnébuxur virðast nauðsyn- legar til íslandsferðar fyrir allt sem útlenskt er, en langt er síðan nokkur sá íslending í hnébuxum. Já, nema hvað, að það er afskap- lega intressant, eins og allir sögðu þegar ég var ung, að fylgjast með útlenskum ferðamönnum leggja á hjólið og hjóla úr „odell Lopt- lædírr" af stað á vit íslenskrar náttúrufegurðar. Nú, það er í höfuðbraut að hjóla sem leið liggur til Tingvællirr í fyrsta áfanga. Þá liggur sveita- vargurinn útí glugga og flissar og fylgist með, fölur, vöðvarýr og ofsalega mikið að spekúlera í að labba á milli húsa í kvöldkaffið, þegar fer að hlýna (í júlí). Jæja, maður liggur útí glugga og sér ferðamennina troða marvaðann frá 1. maí til 1. sept. Og allir heima í glugga, kalla: Hey, komiði og sjáiði þá á hjólunum, þeir eru að leggja af stað i kringum landið!" Eina konu þekki ég sem segir við krakkana sína þegar ferðamennirnir birtast inn Ting- vallarveg: „Krakkar minir stök- kviði út og gefið þessum aumingj- um fyrir rútunni." Nema hvað, um daginn hjóluðu nokkrar þjóðir austur á vit náttúrunnar og oft- ast tvær eða tveir eða tvö og var þá snjóa algerlega tekið að leysa fyrir utan Loptlædír. Jæja, í allt vor er sveitavargurinn hér sem annarsstaðar búinn að segja hver við annan: „Það sér ekki í lófa- stóran blett á heiðinni, ennþá." Nei, það er nefnilega það, það ætlar ekkert að vora, maður man ekki eftir að hafa ekki séð í lófa- stóran blett á þessum árstíma." „Nei, það er samt eitthvað farið að taka upp þegar kemur á neð- anverða heiðina, það sér í stöku lófastóran og lófastóran blett." „Já, það er nefnilega það, Jæja, vörtu blessaður." Nú, nema þetta vor frekar en önnur, gripur fólk óstjórnleg for- vitni að vita hvar hinir erlendu gestir ætli að tjalda fyrstu ævin- týranóttina á leiðinni kringum ísland. Svo þeim er veitt eftirför undir kvöldið. Það er ekkert að spuija að þvi, það sér ekki í lófa- stóran blett fyrr en i Leirvík á Hjaltlandi. Nema einn. Uppá að- stöðuborði nr. 1 á Mos.heiði er búið að tjalda kúlutjaldi. Kúlu- tjaldið er lítið og nett svo það fer ekki tlla uppá borðinu, t.d. i túr- istabæklingi. Afturámóti fylgir þessu það, að fólk þarf að fara ofan til dögurðar. Skriða út og niður borðið til þess að setja upp vatn í skaftpottinn, og svo hitt, að við íslendingar gerum hvenær sem er sagt erlendum ferðamönn- um að hundskast niður af borð- inu, þetta sé aðstaða, áningar- borð en ekki svefnloft. Þessvegna segi ég hversvegna að láta þetta vaða um labbandi eða á hjóltíkum án þess að þurfa að eyða svo miklu sem þúsund- kalli í íslenska rútu, hvað þá að það svo mikið sem tími að kaupa sér elna nótt á hótell. Lufsast um með skaftpott og snapar allt ókeypis, hver græðir krónu á þessu? Sjálf borgum við fyrir hvert einasta vatnsglas í Evrópu, en fáum líka þá þjónustu sem ferða- mönnum ber. En getum ekki þvælst um nokkurnveginn ókeypis með kúlutjöld og nesti að heiman. eftir Sigríði Halldórsdóttur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.