Morgunblaðið - 10.06.1989, Qupperneq 17
Sambyggðin Ás við Laugaveg 148 er bæði
sérbýli og fjölbýli. Litlar íbúðir og stórar.
Gróðurskálar, útsýni, húsvörður, lokaður
garður. Bflskýli fyrir 1-2 bfla fyrir þá sem
vilja. Langtímastæði.
ALLT VERÐUR AFHENT FULLBÚIÐ,
BÆÐI SAMEIGN OG ÍBÚÐIR
m-
Göngufjarlægð í allar helstu verslanir,
anir, söfn, skemmtistaði oc
GERÐU VERÐSAMANBURÐ -
GERÐU GÆÐASAMANBURÐ
Með stærðinni, reynslunni og góðri skipu-
jm við boðið íbúðir, sem við
Við höfum haft að leiðarijósi að fólki geti
liðið vel í þeim íbúðum, sem við höfum
hannað hér og erum að byggja.
Á sýningu þeini, sem við höfum sett upp
í þjónustumiðstöð okkar á Funahöfða 19,
getur þú kynnt þér nánar undirbúning okk-
ar og hvemig við stöndum að framkvæmd-
um.
Verið velkomin
Opið í dag laugardag
frá'kl. 9 til 15 og
sunnudag frá kl. 10 til 17
Einnig verða til sýnis uppdrættir
og aðrar upplýsingar á sama stað og sama tíma um
29 RAÐHÚS VII KRUMMAHÓLA
sem Ármannsfell hf. hefur nýlega hafið byggingu á fyrir
Samtök aldraðra. Þessi hús eru ætluð eldra fólki, sem vill búa
tiltölulega rúmt en með allt sér. Hverfishús verður byggt
af Reykjavíkurborg í miðju svæðisins.
Fulltrúi Samtaka aldraðra verður á staðnum á Funahöfða 19.
Samtök aldraðra.
Ármannsfell ht.
Funahöfða 19, Ártúnshöfða
MPHGUNBLAjJip LAUGARIJAQyK, 10, ,1989
Tökum höndum saman
eftír Kristínu
Einarsdottur
Notkun einnota umbúða hefur
stóraukist hér á landi á undanförnum
árum. Aðallega er þar um að ræða
aukna notkun á plastflöskum, ál- og
plasthúðuðum pappaumbúðum og
áldósum fyrir gos, öl og svala-
drykki. Einnota umbúðir úr léttum
efnum hafa að sjálfsögðu nokkur
hagræði í för með sér fyrir bæði
neitendur og framleiðendur og gæti
í fljótu bragði virst að það jákvæða
væri yfirgnæfandi.
Einnota umbúðir hafa
marga ókosti
Það er full ástæða til að staldra
við og athuga málið nánar. Einnota
umbúðir hafa mjög marga ókosti í
för með sér sem í fyrstu voru ekki
teknir með í reikninginn. Aukinn
kostnaður verður óhjákvæmilega
vegna sorphirðu, meira landrými
þarf fyrir sorphauga og eitt aðal-
vandamálið sem er mest áberandi
hér á landi er að fólk fleygir umbúð-
unum út í náttúruna án þess að
hugsa um þá fyrirhöfn og þann
kostnað sem það hefur í för með sér
við hreinsun.
Tillögur og lög
Vorið 1988 samþykkti Alþingi til-
lögu til þingsályktunar um einnota
umbúðir sem ég lagði fram ásamt
þingmönnum flestra þingflokka. Til-
lagan var áskorun til ríkisstjómar-
innar að undirbúa frumvarp til laga
um framleiðslu, innflutning og notk-
un einnota umbúða hér á landi.
Fyrsta skref í þessu sambandi var
svo tekið rétt fyrir þinglok í vor með
því að Alþingi samþykkti lög þar sem
kveðið er á um skilagjald verði lagt
á umbúðir úr málmi, gleri og plasti.
Pappaumbúðir eru undanskildar.
Ákveðið vandamál er talið fylgja því
að setja skilagjald á umbúðir undan
mjólk og mjóikurvöru. I því sam-
bandi hefur verið talað um að setja
s.k. umhverfisgjald á þess konar
umbúðir til að standa straum af söfn-
un þeirra til eyðingar.
ÁtakUMFÍ
íslendingar hafa löngum verið
andvaralausir gagnvart mengun
umhverfisins og hefur sóðaskapurinn
sem stafar af einnota umbúðum ver-
ið okkur til háborinnar skammar.
Ungmennafélag íslands hefur nú
ákveðið að taka til hendinni og gera
gangskör að því að uppræta sóða-
skapinn. Helgina 10,—11. júní n.k.
gangast ungmennafélögin fyrir
hreinsunarátaki og verður hreinsað
meðfram vegum landsins. Markmiðið
með átakinu er m.a. að skapa já-
kvætt viðhorf til umhverfisins. Von-
andi verður það einnig hvatning til
fólks að hætta að henda rusli út úr
bifreiðum og á víðavangi.
Fyrirmynd annarra
Málefni umhverfísverndar eru því
miður vandamál sem flestar þjóðir
eiga við að stríða. Á hátíðarstundum
er gjarnan sagt að við viljum að
komandi kynslóðir erfi landið í ekki
síðra ástandi en við tókum við því
og helst betra. En hér duga ekki
orðin tóm. Við verðum að gera stórá-
tak í umhverfismálum. Einn liðurinn
í því að vekja fólk til vitundar um
náttúruna er að ganga um hana með
virðingu. Átak UMFÍ ætti að vekja
fólk til umhugusnar og er öðrum til
eftirbreytni.
Á nýliðnu þingi var samþykkt til-
laga okkar í Kvennalistanum um
umhverfisfræðslu bæði í skólum og
meðal almennings. Fræðsla um um-
Má bjóða þér nýja,
ódýra íbúð í hæsta
gæðaflokkí á besta stað
við gamla miðbæinn?
Kristín Einarsdóttir
„Hér duga ekki orðin
tóm. Við verðum að
gera stórátak í um-
hverfísmálum. Einn lið-
urinn í því að vekja fólk
til vitundar um náttúr-
una er að ganga um
hana með virðingu.“
hverfismál er mikilvægur liður í að
opna augu fólks fyrir þeim verðmæt-
um sem náttúran hefur að geyma.
Hefjum hugarfarsbyltinguna með
því að hreinsa landið með UMFI.
Látum ekki staðar numið, höldum
áfram að vinna að umhverfismálum
í öllu okkar daglega lífi. Við höfum
ekki fengið jörðina gefins frá forfeð-
rum okkar heldur aðeins að láni hjá
bömunum okkar.
Höfundur er þingmaður Kvenna-
listans.
RAFORKAN
þarf ekki
aðvera
staðbundin
EX650 rafstöðin frá
HONDA er hentug fyrir
sumarbústaði, hjólhýsi,
báta og handverkfæri.
Hún gefur frá sér bæði
220V og 12V straum.
HONDA
VATNAGÖRÐUM 24, RVÍK., SÍMI 689900
Combi Camp
STAÐREYNDIR:
• Aðeins 15 sekundur að tjalda
• 3 m3 geymslupláss fyrir farangur
• Teppalagður botn í fortjaldi
• Stór dekk, demparar og fjaðrir
• Vindþéttur, hlýr og notalegur
Sjón er sögu ríkari
SÝNINGAR
Opið alla laugardaga
og sunnudaga frá 14-17
Tjaldvagnamarkaður
á notuðum vögnum um helgar.
BENCO
Lágmúla 7, sími 91-84077