Morgunblaðið - 10.06.1989, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 1989
21
Kína;
Harðlínumenn með
öll ráð í hendi sér
Peking, Daily Telegraph.
HARÐLÍNUMENN I Peking virðast hafa náð undirtökum á ný efftir
nokkurra vikna óvissu. Fram að þessu hafa harðlínumenn virst ráð-
villtir og ráðlausir. Á fimmtudag flutti Li Peng, forsætisráðherra
alþýðulýðveldisins, sjónvarpsávarp, en auk þess var sýnd kvikmynd
af atburðum þeim er neffndir voru „óróleiki af völdum glæpahysk-
is“, en með því er átt við íjöldamorðin á Torgi hins himneska frið-
ar. Vilja stjórnvöld halda því fram að í raun hafi það verið náms-
menn, sem vógu hermenn í hundraðatali en ekki öfugt.
í tilkynningum frá stjórnvöldum kínverskum stjómvöldum gefa til
kynna, að aðeins fimm dögum eft-
ir að stúdentar töldu sig hafa breytt
ásjónu kínverska stjómmála um
ókomna framtíð, hafi leiðtogar
kommúnista grafið stríðsöxina og
sameinast um að ganga milli bols
og höfuðs lýðræðissinnum.
Það hik, sem menn þóttust verða
varir við á fyrstu dögum mótmæl-
anna — til dæmis sú staðreynd að
hersveitir voru stöðvaðar af stúd-
entum — virðist hafa þjónað þeim
tilgangi að sannfæra efasemdar-
menn í röðum flokksins að harka-
legra aðgerða væri þörf. Þótti
harðlínumönnum þetta sönnun þess
að mótmælin væra í raun gagn-
bylting, sem ekki yrði þoluð.
Orðrómurþess efnis að einstakar
hersveitir hafi tekist á hefur enn
enga staðfestingu fengið og eru
margir sijómmálaskýrendur að
komast á þá skoðun, að þar hafi í
í Peking var ítrekað að sjálfstæð
samtök námsmanna og verka-
manna væra með öllu ólögleg og
var sérstakt símanúmer gefið upp,
sem hægt var að hringja í til þess
að tilkynna um dvalarstaði
„skemmdarvarga og vandræða-
fólks“.
Þessi tilkynning virðist vera
merki um að ijöldahandtökur í
anda menningarbyltingarinnar al-
ræmdu kynnu að vera í aðsigi.
Auk þessa hefur kommúnista-
flokkurinn hrundið af stað herferð
gegn eigin flokksmönnum, sem
tengjast lýðræðishreyfingunni.
Þessi herferð mun rannin undan
rifjum Qiao Shi, sem er í stjóm-
málaráði flokksins og hefur örygg-
ismálefni með höndum, en hann
er nú talinn vera hinn eiginlegi
flokksleiðtogi kommúnista.
Þessar síðustu hræringar í
Reuter
Orðrómur hafði verið á kreiki
um að Deng Xiaoping, hinn
aldni leiðtogi kínverska komm-
únistaflokksins, væri sjúkur en
hann hafði ekki sést í nokkra
daga. Deng kom fram í
kínverska ríkissjónvarpinu í
gær og var myndin tekin af
sjónvarpsskermi í Tókíó.
raun aðeins verið um óskhyggju
að ræða og að harðlínumenn hafi
ávallt haft öll ráð í hendi sér.
Þrátt fyrir að atburðirnir undan-
farna daga hafi slegið í baksegl
kommúnista, munu valdhafarnir
vafalítið telja sér það til tekna, að
þeir hafi komið „stöðugleika" á að
nýju. Hvort það er rétt þora sér-
fræðingar í málefnum Kína enn
ekki að segja fyrir um.
Afvopnunartillögur NATO;
Bonn, Brussel. Reuter.
GENNADÍJ Gerasímov, talsmaður sovéska utanríkisráðuneytisins,
sagði á fundi með blaðamönnum í Bonn í gærdag að þess væri tæp-
ast að vænta að Míkhaíl S. Gorbatsjov, leiðtogi sovéskra kommún-
ista, kynnti nýjar tillögur í afvopnunarmálum er hann kemur í opin-
bera heimsókn til Vestur-Þýskalands á mánudag. Talsmaðurinn
kvaðst og ekki eiga von á því að Gorbatsjov svaraði formlega tillög-
um aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins (NATO) um stórfelldan nið-
urskurð á sviði hins hefðbunda herafla í Evrópu á meðan hann dveld-
ist í Vestur-Þýskalandi.
„Það er með öllu ástæðulaust að
krefjast þess af Sovétmönnum að
þeir svari tillögunum á meðan Gorb-
atsjov dvelst í Vestur-Þýskalandi,“
sagði Gennadíj Gerasímov en hann
er staddur í Bonn til að undirbúa
komu Sovétleiðtogans. Hann sagði
að NATO-ríkin ættu enn eftir að
útfæra tillögumar nánar og minnti
á að næsta lota Vínarviðræðnanna
um niðurskurð á sviði hins hefð-
bunda herafla hæfíst í september-
mánuði. Tillögur Atlantshafsbanda-
lagsins gera m.a. ráð fyrir stór-
felldri fækkun hermanna, vígtóla
og flugvéla í Evrópu. George Bush
Bandaríkjaforseti kynnti tillögurnar
á leiðtogafundi NATO í Brassel í
síðasta mánuði og kvaðst telja að
unnt yrði að ganga frá sáttmála í
þessa veru eftir sex til tólf mánuði.
Talsmenn Sovétstjórnarinnar hafa
látið í ljós efasemdir um að tíma-
mörk þessi séu raunhæf.
kemst óskaddaður á borð neytenda.
Það er freistandi fyrir sovésk
stjórnvöld að flytja inn þær vörar
sem almenningur saknar. Á síðasta
ári jókst innflutningur til Sovétríkj-
anna frá Vesturlöndum um 17%. Á
fulltrúaþingi Sovétríkjanna kom í
fyrsta skipti fram hve háar erlendar
skuldir Sovétríkjanna eru; 53 millj-
arðar Bandaríkjadala. Nikolaj
Ryzhkov, forsætisráðherra, tók
dauflega í áeggjan þingmanna um
aukin erlend lán til að fjármagna
innflutning. Hins vegar hafnaði
hann því að skorinn yrði niður inn-
flutningur á matvælum.
Samhliða perestrojku hafa Sovét-
menn leitað nýrra leiða í viðskiptum
við vestræn lönd. Heimsmarkaðs-
verð á olíu, helstu tekjulind Sovétr-
íkanna, hefur farið lækkandi und-
anfarin misseri um leið og fram-
leiðslukostnaður hefur vaxið og því
hafa Sovétmenn minni áhuga en
áður á því að flytja hana út. Þetta
veldur gjaldeyrisskorti sem endur-
speglast hérlendis. Á ráðstefnu um
viðskipti íslands og Sovétríkjanna
í byijun apríl kom fram að vegna
lækkandi olíuverðs m.a. var jöfnuð-
ur í viðskiptum ríkjanna í fyrra eða
því sem næst. Viðskiptafulltrúi Sov-
étríkjanna var mjög ósáttur við þró-
unina enda hafði verið halli á við-
skiptunum, íslandi í óhag, mörg
undangengin ár. Hann hvatti menn
til að auka kaup sín frá Sovétríkjun-
um á öðrum vörum en olíu, sagði
fiskinn dýran og minnti á að hann
fengist ódýrari annars staðar.
Islenskir ullar- og skinnaseljend-
ur kanna nú möguleika á nýjum
leiðum í viðskiptum við Sovétríkin.
Rætt hefur verið um fyrirtæki í
Sovétrikjunum með íslenskri eigna-
raðild. Hingað til hefur strandað á
því að horfur á hagnaði er óljósar
og ennfremur það hvernig flytja
ætti ágóða úr landi. Vilji íslending-
ar halda óbreyttu sölumagni til
Sovétríkjanna gæti farið svo að
þeir þyrftu í auknum mæli að taka
við vöru sem greiðslu.
Vandinn er auðvitað sá að sovésk
vara er yfirleitt ekki auðveld „í
markaðssetningu" hvorki hér né
annars staðar. Þó fjallaði banda-
ríska fréttatímaritið Newsweek um
það í vikunni að sovéskar vörur
væra að komast í tísku vestanhafs
þrátt fyrir heimóttarlegt yfirbragð
sennilega vegna þess að sæluhrollur
angistarinnar fer um nýjunga-
gjarna neytendur þegar þeir hand-
leika gripi frá hinu dulúðga Rússl-
andi.
Færri gyðing-
ar flylja firá
Sovétrílgunun
Genf. Reuter.
ALLS fluttust 3.333 sovéski
gyðingar frá Sovétríkjunum
maímánuði siðastliðnum samai
borið við 4.129 í apríl. Þetta koi
fram í skýrslu ICM, alþjóðlegrc
nefhdar í Genf sem flallar ui
búferlaflutninga.
Af þeim sem fluttust frá So
étríkjunum í síðasta mánuði fó
96 til ísraels en aðrir til Ítalíu þ
sem þeir biðu landvistarleyfis í öc'
um löndum, aðallega Bandaríkju
um, að sögn talsmanns ICM.
Alls hafa 16.197 gyðingar flu
frá Sovétrikjunum á fyrstu fim
mánuðum þessa árs, þar af ha
524 flutt til ísraels. Árið 19!
fluttu 20.082 gyðingar frá Sc
étríkjunum.
Léttir og góðir kvenskór
Svartir, brúnir og „Taupe“
Stærðir: 36-41
Verð kr. 1.190.-
É
m
LMWEe 95 'SIUI: 621590
Svara tæpast að vænta í Þýska-
landsheimsókn Gorbatsjovs
Tveggja daga fundi varnarmála-
ráðherra aðildarríkja Atlantshafs-
bandalagsins lauk í Brassel í gær.
í lokaályktun fundarins segir að
bandalagið muni áfram reiða sig á
traustar varnir og að leitast verði
við að auka fjárframlög til þessa
málaflokks.
Þorstein Ingólfsson, skrifstofu-
stjóri Varnarmálskrifstofu utanrík-
isráðuneytisins, sat ráðherrafundinn
fyrir íslands hönd. f lokaályktuninni
er ítrekað það markmið bandalagsr-
íkjanna að framlög til varnarmála
verði aukin um þijú prósent á ári
hveiju umfram verðbólgu. Segir í
yfirlýsingu fundarmanna að nauð-
synlegt sé að auka framlög til þessa
málaflokks og fullyrt að aðildarríkin
hafi auðveldlega efni á því. NATO-
ríkin settu sér þetta markmið fyrst
árið 1977 en fjölmörg ríki hafa fram
til þessa látið yfirlýsinguna nægja.
Fyrir fundinn höfðu þær raddir
heyrst að óraunhæft væri að auka
framlög til þessa málaflokks í ljósi
þeirrar þíðu sem ríkti í samskiptum
austurs og vesturs nú um stundir.
TIL HAMINGJU „BR0KEY“ MEÐ
NÝJAR BÁTABRYGGJUR
Flotabryggjurnar frá „SF MARINA" eru úr -járnbentri
steinsteypu, sem vega 9.5 tonn. Tenging á milli eininga
er falin í sérstökum hólfum, en á milli þeirra er sterkur
stálvír með gúmmíklossum til að eyða áhrifum ölduhreyfinga.
Utan á einingarnar er festur kantlisti úr 100x50 mm
gagnvörðum viði en á listann er komið fyrir milligerðum
(fingrum) milli báta eða öðrum festingum.
Einingarnar eru festar við botninn með keðjum sem liggja
í þungum steinum. Keðjunum er þannig komið fyrir að
þœrflœkjast ekki í bátum eða hindra aðgang að bryggjum.
Upplýsingar um gerð eininganna gefur umboðsaðili:
kffáli
KRISTJAN OLI HJALTASON
IÐNBUÐ2. 210 GARÐABÆ
SIMI 46488
OPNUNARHATIÐ
BROKEY, Siglingafélag Reykjavíkur, opnar á morgun, sunnudag, kl. 14
seglbátaaðstöðu við Ingólfsgarð f Reykjavíkurhöfn (varðskipabryggjan).
DAGSKRÁ: Lúðrasveitin Svanur leikur frá kl. 13.45.
Setning: Jóhann Gunnarsson, Brokey, Siglingafélagi Reykjavíkur.
Ávarp: Hafnarstjórinn í Reykjavík, Gunnar B. Guðmundsson.
Ávarp: Ari B. Einarsson, formaður SÍL.
Séra Lárus Halldórsson flytur blessunarorð.
Július Hafstein, formaður íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur,
opnar bryggjurnar formlega.
Seglbátar félagsmanna ásamt bryggjum verða til sýnis.
Veitingar verða frá VÍFILFELLI og kexverksmiðjunni FRÓN
Allir hjartanlega velkomnir. m
FRON
FRÓN HF. KEXVERKSMIÐJA
SKÚLAGÖTU 28 StMI H400