Morgunblaðið - 10.06.1989, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 1989
Skrúfuflugan nemur land í Afríku:
Getur haft ólýsanlegar af-
leiðingar fyrir menn og dýr
- segir Björn Signrbjörnsson, sem sljórn-
ar alþjóðlegum aðgerðum gegn plágunni
Afríkuþjóðir standa nú frammi fyrir nýjum vágesti, sem haft
getur alvarlegar afleiðingar fyrir matvælaframleiðslu í álfunni og
kvistað niður búfénað ja&it sem villt dýr. Er hér um að ræða flugu,
sem er nokkru stærri en venjuleg húsfluga, og leggst á dýr með
heitt blóð. Leitar hún uppi hverja minnstu skrámu til að verpa í
og klekjast lirfúrnar út á sólarhring. Nærast þær síðan á holdinu
og geta drepið fullvaxið naut á tíu döguin. Þetta skaðræðisdýr hef-
ur nú numið land í Líbýu. Segir frá þessu í siðasta tölublaði banda-
ríska tímaritsins Time og meðal annars vitnað í dr. Björn Sigur-
björnsson, forstjóra sameiginlegra deilda FAO, Matvæla- og land-
búnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna, og IAEA, Alþjóðakjarnorku-
málastofnunarinnar, en hann mun stjórna samræmdum aðgerðum
vísindamanna frá mörgum þjóðum gegn þessari alvarlegu plágu.
Bjöm Sigurbjömsson, sem hefur Afríku og berst suður með álfunni
aðsetur í Vín, sagði í viðtali við
Morgunblaðið, að flugunnar hefði
orðið vart í Líbýu í júlí í fyrra,
líklega borist þangað með lifandi
skepnum, og hefði nú í ársbyrjun
verið búið að skrá 3.000 tilfelli í
dýram og nærri 200 í mönnum.
Enskumælandi menn kalla fluguna
„skrúfuflugu" og sagði Bjöm, að
það væri ekki fjarri lagi því að lirf-
an eins og skrúfar sig inn í lifandi
hold. Latneska fræðiheitið er Coc-
hliomyia hominivorax og merkir
síðari liðurinn „mannæta".
„Þessi fluga er ættuð frá
Ameríku, norðanverðri Suður-
Ameríku, Mið-Ameríku, Mexikó og
norður til Suðurríkja Banda-
ríkjanna, en þetta er í fyrsta skipti,
að hennar verður vart annars stað-
ar,“ sagði dr. Bjöm. „í átthögunum
sýkir flugan oft um 40% alls búfén-
aðar og drepur um 20% þótt reynt
sé að berjast gegn henni með því
að bera skordýraeitur á sjálfar
skepnumar. Ef hún nær fótfestu í
getur hún haft ólýsanlegar afleið-
ingar fyrir matvælaframleiðsluna
og auk þess lagt að velli 20-40%
villidýranna. Ef hún kemst í villt
dýr munu þau líka verða þau stöð-
ug uppspretta nýrra flugnafar-
aldra.“
Björn sagði, að sem betur fer
réðu menn yfir betri vopnum en
eiturburði og yrði þeim beitt í
Líbýu. Er þá átt við, að ræktaðar
era hundrað milljóna karlflugna í
verksmiðjum og þær síðan gerðar
ófijóar með gammageislum. Að því
búnu er þeim sleppt á flugnasvæð-
unum og er reynt að gæta þess,
að 10 ófijóar flugur komi á hveija
eina villta. Afleiðingin er sú, að
flugnastofninn deyr út með 7-8
kynslóðum.
„Með þessu móti tókst að útrýma
flugunni í Bandaríkjunum, í Florida
og Texas, og einnig í Mexikó fyrir
tveimur árum. Til þessara aðgerða
er síðan gripið í hvert sinn sem
flugunnar verður vart á ný,“ sagði
Björn.
Það kom fram hjá Birni, að
stjórnvöld og íbúar annarra Norð-
ur-Afríkuríkja hefðu miklar
áhyggjur af þessum vágesti í Líbýu
Skrúfúfluga. Hún er Iitlu stærri
augu.
^ *., 1
en húsfluga en með skærrauð
Björn Sigurbjörnsson
enda hefði hans orðið skammt frá
egypsku landamæranum. Villt dýr
og burðardýralestir færa líka á
milli landanna og gætu því hæg-
lega borið fluguna á milli. Bjöm
sagði, að hins vegar þyrftu íbúar
Mið-Evrópu og þar fyrir norðan
ekki að óttast því að flugan lifði
ekki þar sem hitinn færi niður fyr-
ir 10 gráður. Öðru máli gegndi um
Spán, Italíu og Grikkland. Þar
gæti flugan þrifist á sumum svæð-
um.
FAO, Matvæla- og landbúnaðar-
stofnunin, ákvað í síðasta mánuði
að grípa til neyðaraðgerða vegna
skrúfuflugunnar og fyrir nokkram
dögum var efnt til fundar í Róm
með fulltrúum frá Líbýu, Túnis og
Egyptalandi. Þá hafa stjórnvöld í
35 öðram ríkjum verið beðin um
að vera á verði og bandarískir sér-
fræðingar munu þjálfa Líbýumenn
í baráttunni við pláguna. Sagði
Björn, að Bandaríkjamenn og
Mexikómenn ættu einu „flugna-
verksmiðjuna", sem nú væri starf-
rækt og er hún skammt frá Tuxtla
Gutiérrez í Mexikó. Á næstu tveim-
ur mánuðum væri unnt að rækta
þar 100 milljónir ófijórra karl-
flugna og allt að 500 milljónir þeg-
ar fram í sækti.
Sandinistastj órn-
in í Nicaragua;
Sagðir svíkja
samkomulag
um kosningar
Washington.Reuter.
STJÓRN sandinista í Nicaragua
hefúr brotið ákvæði samkomu-
lags við sljórnarandstæðinga um
fyrirkomulag þingkosninga á
næsta ári, að sögn talsmanns
bandaríska utanríkisráðuneytis-
ins. Stjómvöld höfðu heitið því
að við skipan í fímm manna kjör-
nefnd yrði þess gætt að oddamað-
ur yrði formaður og hlutlaus.
Sandinistar hafa nú skipað eigin
fúlltrúa í formannssætið og hlut-
lausi fúlltrúinn er sagður hallur
undir stjómina.
Kjörnefndin hefur nánast alræð-
isvald yfir framkvæmd kosning-
anna; flokkar geta að vísu kvartað
ef þeim finnst sér mismunað, en
ekki er hægt að áfrýja úrskurðum
nefndarinnar. Flokkar stjómarand-
stæðinga, sem era 14, lögðu í samn-
ingaviðræðum við stjómina gífur-
lega áherslu á að skipan nefndar-
innar tryggði hlutlausa og réttláta
meðferð deilumála í kosningabar-
áttunni. Sandinistar hafa meirihluta
í þinginu sem samþykkti á miðviku-
dagskvöld skipan nefndarinnar þar
sem sandinistar hafa í orði kveðnu
aðeins tvo fulltrúa eins og stjórnar-
andstæðingar. Ætlunin var að hlut-
lausi fulltrúinn yrði valinn eftir
samráð stjórnar og stjórnarand-
stöðu. Eftirlitsmenn, sem fylgjast
með framkvæmd samkomulagsins,
segja að oddamaðurinn sé úr flokki
sem sakaður hafí verið um sam-
vinnu við sandinista.
Þú fœrð strimlagluggatjöld úr áli eða viði í öllum stœrðum og í miklu litavali hjá okkur. Haíðu samband.
Góð, snögg þjónusta
SffílMlA
GLUGGATJOLD
Síðumúla 35 - 108 Reykjavík Sími 680333