Morgunblaðið - 10.06.1989, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 10.06.1989, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JUNI 1989 27 Verðhækkamr og aðgerð- ir verkalýðssamtakanna eftirAsmund Stefánsson Margir hafa orðið nokkuð undr- andi á þeim gagnstæðu fullyrðingum sem komið hafa frá þeim aðilum sem nú deila um búvöruhækkunina, þ.e. forystumönnum verkalýðssamtak- anna og ráðherrum. Sumir kunna að hafa ruglast nokkuð í þeirri orrahríð. Ég ætla því að draga hér fram í örustuttu máli hveijar stað- reyndirnar eru. Hefur ríkisstjórnin staðið við þau fyrirheit sem hún gaf í verðlags- málum? Almennt verðlagsaðhald „Ríkisstjórnin mun sporna eins og frekast er kostur við verðhækkunum á næstu misserum" segir í upphafi yfírlýsingar ríkisstjórnarinnar til ASI um verðlagsmál. Ríkisstjóminni hef- ur reynst torvelt að benda á athafn- ir sínar á þessu sviði. Mig skortir nógu stórt stækkunargler til þess að sjá hvar ríkisstjórnin hefur beitt sér eins og kostur er. Landbúnaðarvörur í yfirlýsingu ríkisstjómarinnar til BSRB segir m.a. „Einnig verða nið- urgreiðslur á landbúnaðarvörur auknar í þvi skyni að tryggja að ein- ungis verði lágmarksbreytingar á verðlagi á mikilvægustu landbúnað- aivöram á næstu mánuðum, þannig að verðlag á slíkum nauðsynjavöram hækki ekki á samningstímanum umfram laun lágtekjufólks." I yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar sem síðar var gefin til ASI var því heitið að niðurgreiðslur yrðu auknar á árinu um 5—600 m.kr. þannig að þær verði óbreyttar í krónutölu út árið. Það var augljóslega skoðun ráðherra að þessi viðbótaryfirlýsing tryggði enn betur en yfirlýsingin til BSRB að ekki yrðu veralega verð- hækkanir á landbúnaðarvörum. Þar sem laun lágtekjufólks hækkuðu meira en önnur laun með samningum var það trúverðug ályktun. Mjólkurvörur hafa nú hækkað um 13—15%. Það þarf enga talnasér- fræðinga til þess að sjá að er meira en tvöföld hækkun lægstu launa. Ríkisstjórnin hefur þannig ótvírætt gengið þvert á þau loforð sem hún gaf við samningagerðina. Ásmundur Stefánsson „Ríkisstjórnin mun sporna eins og frekast er kostur við verð- hækkunum á næstu misserum,“ segir í upp- hafi yfirlýsingar ríkis- stjórnarinnar til ASI um verðlagsmál. Ríkis- stjórninni hefiir reynst torvelt að benda á at- hafiiir sínar á þessu sviði. Mig skortir nógu stórt stækkunargler til þess að sjá hvar ríkis- stjórnin hefur beitt sér eins og kostur er.“ BSRB að mæta ekki að svo stöddu á fundi ráðsins. Þær dylgjur sem heyrst hafa um aðild fulltrúa ASÍ og BSRB að Verðlagsráði og ákvörð- un þess um bensínverðshækkunina eiga því ekki við rök að styðjast. Það er enn augljósara að ríkis- stjórnin hefur ekki tryggt að hækk- anir á mikilvægustu landbúnaðarvör- um fari ekki umfram hækkun launa lágtekjufólks. Hún hefur ekki aðeins látið erlend- ar verðhækkanir ganga fram heldur einnig aukið bensínskatta. Fleira mætti telja til. En það blasti við að ríkisstjórnin hefur ekki staðið við það fyrirheit sitt að sporna eins og frekast er kostur við verðhækkun- um. Eru aðgerðirnar árás á bændur? — Búvörusamningurinn Með búvörasamningi ríkisins og bænda er bændum tryggð greiðsla fyrir ákveðið framleiðslumagn, sem á þessu verðlagsári er 103 milljónir lítra. Búvörasamningurinn gildir til loka verðlagsárs 1991/1992 og á þeim tíma getur ríkið ekki skorið niður það magn sem það hefur skuld- bundið sig til að kaupa. Ef neysla innanlands fer fram úr áætlun er hins vegar gert ráð fyrir því að kaup- ábyrgð ríkisins verði aukin um tvo þriðju þess sem neysla fer fram úr áætlun. Slík ákvörðun verður hins vegar ekki tekin fyrr en eftir tvö ár og þá miðað við neysluaukningu tveggja ára. Bændur verða því ekki fyrir tjóni vegna tímabundins samdráttar í sölu mjólkur. Varanlegur samdráttur gæti hins vegar leitt til minni kaup- ábyrgðar ríkisins í næsta búvöru- samningi þ.e. frá verðlagsársins 1992 en gæti hins vegar leitt til þess að kaupábyrgð verði ekki aukin í sama mæli á síðari hluta samningst- ímans. Sölumöguleikar Minni mjólkursala í 3 daga af 365 dögum ársins skiptir auðvitað ekki miklu fyrir ársneysluna. Það sem máli skiptir er hver salan verður í framtíðinni. Salan í framtíðinni er auðvitað fyrst og fremst undir því komið hver verðlagsþróunin verður. Verðhækkanirnar sem nú ganga yfír hafa óhjákvæmilega áhrif á mjókur- neyslu landsmanna til frambúðar verði þær ekki teknar til baka. Þess vegna eiga bændur ekki síður en neytendur mikið undir því að verð- hækkanirnar verði afturkallaðar. Svar við spurningunni. Aðgerðir verkalýðssamtakanna koma ekki við hag bænda til skamms tíma en hljóta að treysta stöðu þeirra ef þær skila árangri. Rangar fúllyrðingar Eins og fram kemur í þessari stuttu samantekt er því ekki alltaf þannig farið þegar að tveir deila hafa báðir nokkuð til síns máls. Ríkisstjórnin segir ekki satt þegar hún fullyrðir að staðið hafi verið við þau fyrirheit sem hún gaf við ný- gerða kjarasamninga. Þeir fara með rangt mál sem segja' að áskoran verkalýðssamtakanna um að fólk kaupi ekki mjólkurvörar sé árás á bændur. Þar er á ferðinni mjög ós- mekkleg aðferð stjórnmálamanna til að draga athyglina frá kjarna máls- ins. Þvert á móti er það megin- hagsmunamál bænda að aðgerðirnar skili þeim árangri að verð á mjólkur- vöram verði fært niður. Mjólkurverð- ið er hættulega hátt ekki síður fyrir bændur en neytendur. Höfíwdur er forseti ASÍ. ALLIR I KOLAPORTIÐ! í DAG KL.10-16 Frábær kaup og góð fjölskylduskemmtun. Barnatívolí og ýmsar skemmtilegar uppákomur. Hlustið á Útvarp Kolaport á FM 106,8! (Milli kl. 10-151 KOLA PORTIO MrfR KaÐStORT ... undir sedlabunkanum. ATH. Samkvæmt ákvörðun borgarráðs verður EKKI Kolaportsdagur laugardaginn 17. júní. Bensín Bensín hækkaði um mánaðamótin um kr. 8,20 hver lítri. Af þeirri hækk- un tekur ríkið kr. 4,40 í sinn hlut. Ríkisstjórnin segist ekki ráða við erlendar verðhækkanir en hún getur tæplega neitað því að hún hafi ein- hver völd á skattheimtunni. Með sjálfvirkum hætti leggst tollur og söluskattur á bensínið. Þetta þýðir að sé ekki gripið til ráðstafana færir bensínhækkun erlendis ríkissjóði tekjuauka. Bensíngjald í vegasjóð er hins vegar ákveðið af ríkisstjórninni. Þó bensíngjald hefði ekki hækkað hefðu tekjur ríkissjóðs af bensín- hækkuninni erlendis aukist um milli 470—480 m.kr. á heilu ári. Ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að hækka bensíngjaldið um kr. 1,25 á hvern lítra gefur ríkissjóði síðan um 260 m.kr. til viðbótar tekjuauka fyrir ríkissjóð, þegar tillit er tekið til sölu- skattsins sem bensíngjaldið hleður á sig. Samanlagt hækkar skattur í ríkissjóð því um 730 — 740 m.kr. í Verðlagsráði reyndum við full- trúar ASÍ og BSRB að koma í veg fyrir þessa hækkun. Við knúðum fram fundarhlé til að ræða við Ijár- málaráðherra og samgönguráðherra til að kanna hvort ríkisstjórnin væri ekki reiðubúin til þess að endurskoða málið. Til þess reyndist ekki vilji af þeirra hálfu. í Verðlagsráði fluttum við síðan tillögu um að málinu yrði frestað þannig að okkur gæfist tóm til að ræða málið frekar við ríkisstjórnina. Við fengum engan stuðning við þá tillögu og meirihlutinn samþykkti síðan bensínhækkunina ásamt fleiri hækkunum. Þar sem okkar sjónar- mið virðast engu ráða í Verðlagsráði um þessar mundir ákváðum við eftir samráð við miðstjóm ASÍ og stjóm SKUTLAN SPARARI^fi g pláss — meira að segja fyrir mig! Eyðir næstum engu! Lægstu > skattar og tryggingariögjöldj Þægilegur í snattið, hægtað leggja hvarsemer! . Iburðarmikill, vandaður) ogfallegur! J J Skutlan frá Lancia kosta nú frá aðeins 416 þúsund krónum. gengisskr. 1.6.’89 BILABORG HF Fosshálsi 1 sími 68 12 99

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.