Morgunblaðið - 10.06.1989, Page 28
28
MÓRGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGURÍO. íúNÍ 1*989
Mikið um að vera
á íþróttadegi
MIKIÐ verður um að vera á
Akureyri á íþróttadeginum í
dag, laugardag. í göngugötunni
hefst dagskráin kl. 10.30 og þar
leikur Blásarasveit Tónlistar-
skólans og stúlkur úr Fimleika-
ráði Akureyrar sýnar listir
sínar. Lyftingamenn verða á
ferðinni og keppt verður í
boccia. Þá kynna ýmis félög
starfsemi sína.
í Kjamaskógi verður trimm-
brautin opin allan daginn og þar
eru leiktæki fyrir börn. Edda Her-
mannsdóttir íþróttakennari leið-
beinir almenningi með léttar æf-
ingar. Ferðafélag Akureyrar efnir
til gönguferðar á milli Péturs-
Listsýning
Samtökin „Minnesota World-
wide Women“ efna til sýningar á
list kvenna frá íslandi og Minne-
sota í tengslum við heimsókn
Kvennalistakvenna í mars á næsta
ári, eins og frá var sagt hér í blað-
inu. Hins vegar féll niður að geta
þess hvert senda ætti umsóknir
um þátttöku, en þær skal senda
Bobbi Burritt og Ann Mohler,
Minnesota Worldwide Women/Art
Competition, 1920 South lst Stre-
et 2002, Minneapolis MN 55454,
USA. Umsóknarfrestur er til 15.
júlí.
Dalvíkurskóli - sjávarútvegsdeild
Skipstjórnar- og fiskvinnslunám
Umsóknir um nám á 1. og 2. stigi skipstjórnar
og 1. og 2. ári í fiskiðn þurfa að berast skólanum
fyrir 15. júní. Við skólann er heimavist.
Allar upplýsingar gefur skólastjóri eða yfirkennari
í símum 96-61380, 96-61491, 96-61162.
Skólastjóri.
borgar og Skjaldarvíkur og á golf-
vellinum verður kynning á golfí-
þróttinni. Við félagsheimili Léttis
í Breiðholti verða æfingar í hesta-
íþróttum fyrir unglinga, en ungl-
ingadagur Léttis verður á sunnu-
dag.
Okeypis verður í Sundlaug Ak-
ureyrar allan laugardaginn og þeir
sem þess óska geta fengið leið-
beiningar hjá kennurunum. Á
tennisvellinum verða einnig leið-
beinendur til staðar frá kl. 13.00-
15.00 og mínígolfið verður opið.
Nökkvi, félag siglingamanna,
kynnir starfsemi sýna við Höfners-
bryggju og siglt verður á segl-
brettum um Pollinn.
íþróttafélögin Þór og KA kynna
félagsheimili sín og þá starfsemi
sem þar fer fram. Þór og IA í
fyrstu deild kvenna keppa í knatt-
spymu kl. 14.00 á Þórsvelli.
Á íþróttavelli verður fjölskyldu-
trimm UFA á milli kl. 15.00 og
16.00 og þar verður mönnum einn:
ig ráðlagt um holla hreyfingu. í
Iþróttahöllinni verður fjölmargt á
dagskrá, Júdódeild KA, borðtenn-
isdeild IFA, fimleikasýning og
Sundfélag Ákureyrar og Oðinn
reyna með sér í blaki, þá verður
þar einnig badminton, ólympískar
lyftingar og boccia. Kynning á
boccia-íþróttinni verður við Hús
aldraðra kl. 16.30. í íþróttahúsinu
að Bjargi verður veggtennisíþrótt-
in kynnt á milli kl. 10.00 og 12.00.
Flugskóli
Lærið að fljúga hjá stærsta
flugskóla landsins.
★ Bjóðum kennslu til einka- og atvinnumannaflug-
prófs.
★ Fullkomin 2 hreyfla flugvél til blindflugskennslu.
t
• FLUGTAK
★
Bjóðum fljótlega upp á
kennslu í nýjum fullkomn-
um flughermi, þar sem
okkar nemendur
njóta sérkjara.
I
Gamla Flugturninum J| ||
Reykjavíkurflugvelli
101 Reykjavlk
Sími 28122
Telex ir lce ts 2337
Fax 91-688663
Amtsbókasafiiið á Akureyri:
Rúmlega 92 þúsund bindi
lánuð út á síðasta ári
HEILDARÚTLÁN Amtsbóka-
sa&isins á Akureyri á síðasta
ári voru rétt rúmlega 92 þús-
und bindi, sem er lítið eitt
minna en árið áður, eða 3.247
bindum minna. Lán til skipa
og stofhana voru einnig ögn
feerri en árinu á undan, en
tæplega 3.000 bindi voru lánuð
út á þann hátt, sem er um 600
bindum færra. Bókakostur útl-
ánsdeildar var i árslok 1988
37.787 bindi og jókst á árinu
um 425 bindi.
Togarar Útgerðarfélags Ak-
ureyringa fengu 790 bindi að
láni síðasta ár og skipshafnir
Samheij atogaranna fengu að
láni 490 bindi. í önnur skip voru
lánuð 496 bindi. Þá fengu dval-
arheimilin lánaðar bækur og
sjúkrahúsið sem og ýmsar stofn-
anir og fyrirtæki og 273 bindi
voru lánuð á lögreglustöð vegna
fangelsis.
Mest lásu gestir bókasafnsins
í mars, en þá voru lánuð út 8.953
bindi, en í desember voru fæst
bindi lánuðu út, eða 6.357.
Heimlán af lestrarsal voru 600
á síðasta ári og um 3.700 hljóð-
bækur voru lánaðar út til 66 ein-
staklinga. Tæplega 2.000 bækur
voru sendar heim til 52 lánþega,
en á undanfömum árum hefur
mikil aukning orðið á þjónustu
safnsins við aldraða og öryrkja.
Soroptimistaklúbbur Akureyrar
annast útkeyrslu á bókunum, en
að jafnaði njóta rúmlega 50
manns heimsendingarþjón-
ustunnar reglulega og eru um
20 slíkar sendingar í hverri viku.
Á lestrarsal safnsins skráðu
sig 5.140 manns á síðasta ári
og var aðsóknin langmest í mars
þegar 750 skráðu sig í gestabók-
ina og þá vom lánuð út rúmlega
4.000 bindi til nota í salnum.
Alls vora tæplega 22 þúsund
prentskilabóka lánuð til notkun-
ar á lestrarsal á síðasta ári.
Fæðingar- og kvensjúkdómadeild FSA:
Kristján Baldvinsson
ráðinn yfirlæknir
KRISTJÁN Baldvinsson sérfræð-
ingur í fæðingarhjálp og kvensjúk-
dómum var ráðinn yfirlæknir á
fæðingar- og kvensjúkdómadeild
Fjórðungssjúkrahússins á Akur-
eyri á fúndi stjómar FSA í gær.
Sjö umsækjendur voru um stöðuna
er hún var auglýst öðru sinni, en
Stefán Helgason á Akranesi dró
umsókn sína til baka. Kristján var
með lengsta starfsreynslu þeirra sem
sóttu um. Hann hefur starfað á deild-
inni í afleysingum í einn mánuð, en
enginn yfirlæknir hefur verið þar frá
því Bjarni Rafnar lét af störfum um
mánaðamótin febrúar/mars
Eftir útskrift úr Háskóla íslands
hélt Kristján til framhaldsnáms í
Danmörku og Skotlandi og lauk sér-
fræðinámi í skurðlækningum. Síðan
lauk hann sérfræðinámi í fæðingar-
og kvensjúkdómafræðum. Kristján
kom heim til íslands árið 1970 og
varð yfirlæknir á sjúkrahúsinu í
Stykkishólmi til júníloka árið 1972,
en frá þeim tíma og til loka apríl
árið 1976 var hann yfirlæknir á
sjúkrahúsinu á Selfossi. Síðan hefur
Kristján starfað á Landspítalanum.
Hann kemur til starfa á FSA 1.
ágúst næstkomandi.
Til leigu
135 m2 jarðhæð á besta stað í miðbæ Akureyrar.
Hentar mjög vel sem verslunarhúsnæði, einnig
sem skrifstofur. Upphituð gangstétt, góðir
gluggar og næg bílastæði.
Upplýsingar milli kl. 9 og 12 mánudag og þriðju-
dag í síma 96-27468 (Jón) og 96-27466 (Pétur).
Kartöflubændur í
Höfðahverfi:
Sumir búnir
að setja niður
- aðrir ekki
byrjaðir
KARTÖFLUBÆNDUR í Höfða-
hverfi eru mjög á misjöfiium vegi
staddir að selja niður kartöflur.
Þeir fyrstu byijuðu að setja niður
fyrir rúmri viku síðan og eru
nokkrir búnir, en aðrir eru enn
ekki byijaðir að setja niður kart-
öflur þetta árið.
Guðmundur Þórisson bóndi í Hlé-
skógum sagðist vera hálfnaður með
að setja niður í sína garða. Pétur
Axelsson útibússtjóri sagðist aftur á
móti ekki vera byrjaður. Hann sagði
þá sem nyrzt byggju vera allt að
þremur vikum seinni að setja niður
nú en í meðalári og það hlyti að
koma niður á sprettunni ef ekki hlýn-
aði verulega.
Pétur sagði að garðar nyrst í sveit-
inni, á Látraströndinni, væru al-
mennt blautir og klaki enn í jörðu
og sumir garðar væru enn undir
snjó. „Við ætlum að reyna að setja
niður um 'helgina ef veðrið verður
gott og vonandi komum við meiri-
hlutanum niður þá,“ sagði Pétur.
Engir fóstru-
liðar mennt-
aðir í VMA
Er mjög sár, seg-
ir skólameistari
Menntamálaráðuneytið hefur
afturkallað leyfi Verkmennta-
skólans á Akureyri varðandi
menntun fóstruliða, en skólinn
hafði sótt um heimild til að setja
upp slíkt nám. Baldvin Bjarnason
segir að leyfið hafi verið aftur-
kallað vegna neikvæðrar afstöðu
bæjaryfirvalda á Akureyri.
„Ég er mjög sár yfir þessu,“
sagði Baldvin. Hann sagði að mikl-
um tíma hefði verið varið til undir-
búnings, m.a. hefðu verið famar
16 ferðir suður til Reykjavíkur til
að funda um málið, en Baldvin tók
sæti Bernharðs Haraldssonar skóla-
meistara í nefnd sem Birgir ísleifur
Gunnarsson fyrrverandi mennta-
málaráðherra skipaði til að skoða
þessi mál. „Það hefur farið ómæld-
ur tími í undibúning og sárt að
ekkkert geti orðið af því að skólinn
bjóði upp á þessa menntun. Ég hef
orðið fyrir miklum vonbrigðum með
afstöðu bæjaryfirvalda," sagði,
Baldvin.
Sigfús Jónsson bæjarstjóri á
Akureyri sagði að afstaða bæjarins
byggst á því að hann hefði ekki
talið sig hafa efni á að greiða nem-
um laun á meðan þeir væra í verk-
legu námi á dagvistum bæjarins.
Þá sagði Sigfús að viðvarandi
fóstruskortur væri í bænum og
brýnna að leysa þann vanda. „En
það var fyrst og fremst peningahlið-
in sem skipti máli varðandi afstöðu
bæjarins," sagði Sigfús.
<3/67
Steindór Sendibfiar