Morgunblaðið - 25.06.1989, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNA/RAÐ/SMÁ
GUR 25. JUNI 1989
23
ATVIN NUAUGÍ ÝSINGAR
Hlutastarf í verslun
Traustur starfskraftur óskast í kvenfataverslun.
Upplýsingar er greini aldur og fyrri störf
ásamt meðmælum leggist inn á auglýsinga-
deild Mbl. merktar: „H -7335“ fyrir 28. júní.
Matsmaður
Óskum að ráða mann með fiskmatsréttindi
sem fyrst.
Upplýsingar sendist auglýsingadeild Mbl.
merktar: „M - 7338“.
Heimilishjálp
Reglusöm og áreiðanleg kona óskast til að
sjá um heimili fyrir aldraðan mann 4-5 daga
vikunnar. Góð laun í boði fyrir góða konu.
Upplýsingar í síma 685976 eða 76639 milli
kl. 18 og 21 í dag og næstu daga.
Plötusmiðir
Mig vantar plötusmið strax. Þarf jafnframt
að vera góður rafsuðumaður. Vinnusvið: Við-
gerðir og nýsmíði á skipum.
Upplýsingar gefur Brandur í síma 51548 eða
52811.
*
Verslunarpróf V.l.
Traust fyrirtæki í miðborginni vill ráða ungan
starfskraft til framtíðarstarfa á skrifstofu
strax. Verslunarpróf nauðsynlegt.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
mánudagskvöld merktar: „Ritari - 8344“.
„Au pair“
„Au pair“ óskast frá 1. ágúst í 4-5 mánuði til
þess að sjá um íslenskt heimili í Hollandi. Tvö
börn. Ekki yngri en 20 ára.
Upplýsingar í síma 16250.
Boston - „au pair“
„Au pair“ óskast til bandarískrar fjölskyldu
til að passa börn í 1 ár sem eru 9 og 5 ára.
Þarf að hafa bílpróf. Má ekki reykja.
Upplýsingar í símum 666043 og 641404.
Vantarvinnu ’
í Reykjavík
Eg er 24 ára ný útskrifaður rafeindavirki, reglu-
samur og stundvís. Fleiri störf koma til greina.
Upplýsingar í síma 98-11261.
Framtíðarstörf
★ Þjóðhagfræðingur með framhaldsmenntun.
★ Vanur sölumaður til sjálfstæðra starfa.
★ Rafvélavirki eða maður vanur vélastillingum.
★ Ritari, heildverslun.
★ Bókari hjá lífeyrissjóði.
★ Bókari hjá iðnfyrirtæki.
★ Bókari/ritari á lögmannsstofu.
★ Snyrtivöruverslun, hlutastarf e.h.
★ Bókari/ritari, hlutastarf e.h.
★ Bókari/ritari hjá heildverslun, hlutastarf.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
SIMSPJÓNUSM H/f
BrynjoUur Jonsson • Noatun 17 105 Rvik • simi 621J15
• Alhlida raöningaþjonusta
• Fyrirtæhjasata
• Fjarmalaradgjof fyrir fyrirtæki
Hjúkrunarfræðingar!
Sumarafleysingastaða er laus í ágúst við
Heilsugæslustöðina í Bolungavík.
Upplýsingar í símum 94-7287 og 94-7170.
Hársnyrtistofan Art
óskar eftir að ráða hárgreiðslunema.
Hársnyrtistofan Art,
Gnoðarvogi 44, sími 39990.
RÍKISSPÍTALAR
Sérfræðingur
Vegna samvinnuverkefnis krabbameins-
lækningadeildar Landspítalans og rann-
sóknastofu Háskólans í meinafræði er laus
til umsóknar staða sérfræðings í líffæra-
meinafræði við Rannsóknastofu Háskólans
í meinafræði.
Áskilin er sérmenntun í nútímalegri greiningu
krabbameins í blóðmyndandi vefjum og öðr-
um líffærum m.a. með frumuflæðisjá.
Umsóknir á umsóknareyðublöðum lækna
sendist stjórnarnefnd Ríkisspítala fyrir 25.
júlí nk.
Upplýsingar gefur Jónas Hallgrímsson próf-
essor í síma 601910.
Reykjavík 25. júní 1989.
Framkvæmdastjóri
Rótgróið og fjárhagslega sterkt þjónustu-
fyrirtæki í borginni vill ráða framkvæmda-
stjóra til starfa. Starfið er laust strax eða
samkvæmt samkomulagi.
Leitað er að drífandi og kraftmiklum starfs-
manni á aldrinum 28 til 35 ára.
Skilyrði er viðskipta- og/eða tæknimenntun á
háskólastigi. Lögð er sérstök áhersla á að við-
komandi hafi áhuga og hæfileika á sviði sölu-
og markaðsmála annars vegar og á sviði fram-
leiðslu- og gæðastýringar hinsvegar.
Góð launakjör eru í boði fyrir réttan aðila.
Farið verður með allar fyrirspurnir og um-
sóknir í fyllsta trúnaði.
Umsóknir er tilgreini aldur, menntun og fyrri
störf sendist skrifstofu okkar fyrir 5. júlí nk.
GijðniTónsson
RÁÐCJÖF &RÁÐN1NCARNÓNUSTA
TIARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍK, SÍMI62 13 22
Bókari 202
Fyrirtækið er þekkt þjónustufyrirtæki í
Reykjavík. Hér er um hlutastarf að ræða og
vinnutími getur verið eftir samkomulagi. (Fyr-
ir hádegi/eftir hádegi). Heilsdagsstarf í sum-
ar væri æskilegt.
Við leitum að bókara sem getur unnið sjálf-
stætt við fjárhags- og viðskiptamannabók-
hald og leyst ýmis sérverkefni sem tengjast
verkefninu. Starfsreynsla skilyrði. Æskilegur
aldur 25-40 ára. Nánari upplýsingar veitir
Katrín S. Óladóttir.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarjjjónustu Hagvangs á eyðublöð-
um sem liggja frammi á skrifstofu okkar,
merkt: „Bókari - 202“ fyrir 30. júní.
] Htaevaneur h f
Grensásvegi 13 Reykjavík [ Sími 83666 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir
RANK XEROX
Markaðsstjóri
Rank Xerox umboðið óskar að ráða markaðs-
stjóra.
Starfið felst í:
Stjórnun og skipulagningu markaðsaðgerða,
samningagerð, sölumennsku og samskiptum
við höfuðstöðvar Rank Xerox.
Við leitum að:
Áhugasömum starfsmanni á aldrinum 25-30
ára með markaðs- og/eða viðskiptamenntun.
Starfið hefst með kynnisferðum og starfs-
þjálfun erlendis (ekki langdvalir).
Kjörið tækifæri fyrir framsækið fólk sem vill
kynnast nýjustu tækni og starfsháttum er-
lendra stórfyrirtækja. Hér er um nýtt starf
hjá fyrirtækinu að ræða. Staðan er því laus
nú þegar.
Skriflegar umsóknir sendist til Gunnars Ól-
afssonar eða Erlings Ásgeirssonar sem veita
jafnframt nánari upplýsingar.
GÍSLI J.JOHNSEN
Nýbýlavegi 16, Kópavogi
1
Sími 641222
„Hacker"
Getur einhver notað „Hacker“ sem skrifar c
og örlítið í 8086 smalamáli, hálfan daginn.
Upplýsingar í síma 92-13026 eftir kl. 13.00.
Markaðsstjóri
Auglýsingadeild Ríkisútvarpsins vill ráða
markaðsstjóra auglýsinga á Rás 2. Mark-
aðsstjóri ber ábyrgð á sölustarfi auglýsinga
fyrir Rás 2. Leitað er að duglegum starfs-
manni með mikla markaðs- og söluþekkingu
sem getur unnið sjálfstætt.
Umsóknarfrestur er til 6. júlí'og ber að skila
umsóknum til Ríkisútvarpsins, Efstaleiti 1, á
umsóknareyðublöðum sem þar fást.
niry
RÍKISÚTVARPIÐ
||j ÐAGVI8T BARHIA
Fóstrur, þroska-
þjálfar eða annað
uppeldismenntað
starfsfólk!
Dagvist barna, Reykjavík, óskar eftir starfs-
fólki í gefandi störf á góðum vinnustöðum.
Til greina koma hlutastörf bæði fyrir og eftir
hádegi.
Upplýsingar veita forstöðumenn eftirtalinna
dagvistarheimila og skrifstofa Dagvistar
barna, sími 27277:
Dyngjuborg Hlíðarendi LAUGARÁS Dyngjuvegi 18 Laugarásvegi 77 s. 38439 s. 37911
Múlaborg Nóaborg AUSTURBÆR v/Ármúla Stangarholti 11 s. 685154 s. 29595
Njálsborg Drafnarborg VESTURBÆR Njálsgötu 9 v/Drafnarstíg s. 14860 S. 23727
Suðurborg BREIÐHOLT Suðurhólum s. 73023.