Morgunblaðið - 25.06.1989, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 25.06.1989, Blaðsíða 36
f 4WÆ7ÆFJA/ÆZ Efstir á blaði SYKURLAUST FRÁ WRIGLEY’S FLVGLEIDIRjm/ MORGUNBLAÐID, ADALSTRÆTI 6. 101 REYKJAVÍK TELEX 2127, PÓSTFAX 681811, PÓSTIIÓLF 1555 / AKUREYRI: IIAFNARSTRÆTI 85 SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 1989 VERÐ í LAUSASÖLU 80 KR. Skírteini fyrir 800 -millj ónir á einni viku MIKIL sala hefur verið í spari- skírteinum ríkissjóðs að undan- förnu og var salan í kringum 800 milljónir í þessari viku. Alls hafa selst spariskírteini fyrir um 1800 milljónir frá áramótum. Þessi fjör- kippur í sölunni kemur i kjölfar auglýsingaherferðar ríkissjóðs að undanförnu og ákvörðunar um vaxtalækkun sem tekur gildi þann 1. júlí n.k. Pétur Kristinsson, framkvæmda- stjóri Söluskrifstofu ríkisskulda- bréfa, sagði í samtali við Morgun- blaðið að umræðan að undanförnu um vaxtamál hefði leitt til þess nú, að fólk tryði því að um verulega raun- vaxtalækkun væri að ræða og þess vegna keypti það spariskírteini til að tryggja sér núgildandi vexti áður en þeir lækkuðu. Sparkaði í mig og þreif í töskurnar Vönduð vinna Morgunblaðið/Einar Falur „Þetta gerðist allt svo fljótt að ég gat ekki komið manninum fyr- ir mig, finnst þó að hann hafi ver- ið um tvítugt og íklæddur leður- jakka. Eg var á leið út úr skýlinu á Hlemmi með tvær peningatösk- ur og þegar ég var í dyrunum rauk maður allt í einu upp af bekk, sparkaði í fótinn á mér og þreif um leið í töskurnar,“ sagði Guðrún Sveinsdóttir starfsmaður á Hlemmi, en ráðist var á hana og pkún rænd aðfaranótt laugardags- ins. Arásarmaðurinn hafði á brott með sér um 40.000 krónur. Guð- rún er handleggsbrotinn. Guðrún hefur starfað á Hlemmi í tæpan mánuð og taldi hún augljóst að árásarmaðurinn hefði skipulagt ránið. „Þetta hefur verið fyrirfram ákveðið, eins og hann hafi fylgst með hvernig peningaflutning- amir ganga fyrir sig,“ sagði Guðrún. Hún sagði að þtjár stúlkur skiptust á um að flytja peningatöskur frá biðskýlinu yfir Laugaveginn í hús SVR skammt frá, en sér sýndist ástæða til að endurskoða þá flutn- inga. Landsbankinn stofriar verðbréfafyrirtæki: 13 til 14 milljaröar bundn- ir á Kjörbók Landsbankans Sverrir Hermannsson segir afnám skiptikj arareikninga jaftigilda eignaupptöku ríkisins á sparifé landsmanna Á MILLI þrettán og fjórtán milljarðar króna eru bundnir á skipti- lqarareikningum í Landsbanka Islands, en ríkisstjórnin stefnir nú að því að afhema skiptikjarareikninga, eða þrengja mjög verðtrygg- ingarákvæði þeirra. Ifrétt frá Seðla- bankanum um þetta mál segir m.a. „Ljóst er að sú breyting verður nú frá miðju ári, að skiptikjörin ná óhreyfðrar innistæðu aðeins til til ársloka." Sverrir Hermannsson, bankastjóri Landsbankans, líkir þessari stefnu ríkisstjómarinnar við eignaupptöku ríkisins á sparifé Iandsmanna, í samtali við Morgunblaðið í dag, og segir Landsbankann munu í lengstu lög berjast gegn þessum áformum ríkisstjórnarinnar. Sverrir segir að bankaráð Lands- bankans hafi á fundi sínum sl. fimmtudag ákveðið að stofna sjálfstætt verðbréfafyrirtæki, sem muni taka til starfa á næstunni. Þar verði boðið upp á samskonar ávöxtunarmöguleika fyrir sparifjár- eigendur og tíðkist hjá öðrum verð- bréfa- og fjárfestingasjóðum. Hann segir að viðræður við for- svarsmenn Sambandsins um kaup Landsbankans á Samvinnubankan- um muni hefjast á ný um miðbik Samdráttur í sólarlandaflugi FÆRRI íslendingar fara til sólarlanda í sumar en áður. Það er samdóma álit starfsmanna nokkurra ferðaskrifstofa sem Morgun- biaðið hafði samband við. Svo virðist sem fólk fari frekar í ódýrari og styttri ferðir en fyrr auk þess sem bókað er í ferðir með styttri fyrirvara en oft áður. Dæmi eru um að ferðaskrifstofúr hafi samein- að flug til áfangastaða. Þær kaupa einnig og selja hver annarri sæti í leiguflugi. Veðrið á suðvesturhorni landsins síðustu vikur hefur þó glætt söluna undanfama daga. Mér virðist al- menningur huga meira að verði fargjalda en fyrr, sagði Kristín Aðalsteinsdóttir, markaðsstjóri Veraldar, í samtali við Morgunblaðið. „Það seldist til dæmis lítið í ferðir í júlí sem fólki fannst of dýrar og því var verðið lækkað.“ Kristín kvað fólk vilja komast í betra veður, a.m.k. það sem byggi á höfuðborgarsvæðinu, þar sem það sæi ekki fram á að sumarið yrði sérlega gott. Fólk kæmi því inn úr rigningunni og keypti sér flugfarseðla til útlanda með styttri fyrirvara en áður. Helgi Daníelsson, deildarstjóri hjá Samvinnuferðum-Landsýn, segir samdrátt greinilegan í ferðum íslendinga til útlanda í sumar. „Þetta ár hefur verið erfitt í rekstri ferðaskrifstofa og óneitanlega við- brigði frá tveimur síðustu ár«m,“ sagði Helgi. „Okkur hefur að mestu leyti tekist að mæta samdrættinum með því að sameina ferðir og draga úr framboði þeirra. Þar sem tíðni ferða er mikil hjá okkur höfum við getað selt öðrum ferðaskrifstofum sæti í leiguflugi." Ingibjörg Sverrisdóttir, sölu- stjóri hjá Urval, kvað bagalegt hversu seint bókað væri í ferðir. „Almenningur virðist velta verði ferða vel fyrir sér,“ sagði Ingi- björg. „Þó er það svo að fólk er tilbúið til þess að leggja mikið á _ sig til þess að komast til útlanda og sparar frekar við sig í öðru.“ Karl Sigurhjartarson, fram- kvæmdastjóri Pólaris, tekur í sama streng og segir áberandi að bókað sé í ferðir með stuttum fyrirvara. „Það hefur tekist ágæt samvinna um nýtingu sæta_ í leiguflugi en ljóst er að færri íslendingar ætla til sólarlanda í ár en í fyrra,“ sagði Karl Sigurhjartarson. Anna Guðný Aradóttir, fram- kvæmdastjóri Útsýnar, tók undir það að sólarlandaferðir seldust all- vel um þessar mundir. „Þrátt fyrir það er minni sala í sólarlandaferð- um í ár borið saman við árið í fyrra,“ sagði Anna Guðný. þessarar viku, formlega og af full- um krafti. Hann telur að Samvinnu- bankinn hafi fáa aðra leiki í stöð- unni, en reyna að sameinast Lands- bankanum, en enn sé ósamið um verð. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins setti Guðjón B. Ólafsson, forstjóri Sambandsins fram kröfu um það að Landsbankinn gæfi 1,8 milljarð fyrir Samvinnubankann, en Sverrir Hermannsson, vildi í sam- talinu ekki tjá sig um hvaða verð hefði verið sett upp né hversu mik- ið Landsbankinn væri reiðubúinn að greiða fyrir Samvinnubankann. Sverrir segist dást að banka- málaráðherra fyrir að hafa eflt einkaframtakið í landinu með því að selja einkabönkunum þremur Útvegsbankann, en það sé í hans huga alveg ljóst að ráðherrann hafi gefið með Útvegsbankanum einn milljarð króna, því hann sé 2,5 millj- arða virði. Sjá viðtal við Sverri Her- mannsson, á blaðsíðu 29. Hjartaþeginn á nýtt sjúkrahús FLYTJA á Helga Einar Harðar- son, hjartaþega í Lundúnum, á Harefield sjúkrahúsið í dag. Helgi hefur getað stigið fram úr rúmi sínu, rölt um stofuna og hjólað á þrekhjóli. Hann er enn í öndunarvél og hefur ekki getað tjáð sig að ráði nema með höndum og augum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.